Kvennablaðið - 15.06.1895, Blaðsíða 1
Kvennablaðið.
I. ár. Reykjarík, 15. júní 1895. Nr. 5.
Hússtjórnarskólar Við aðra skóla, í líkingu við einhverja aí
(bústýru- og vinnukonuskólar). þessum skólum.
Kvennabl. hefir fyrir löngu viljað flytja
lesendum sínum grein um skóla þá sem
nú eru álitnir hagkvæmastir fyrir alþýðu-
stúlkur. En þegar Þjóðölfur í 19. tölu-
bl., 10. apr. þ. á., kom með greinina:
„Búnaðarskólar fyrir konur“, þótti Kvbl,
sem litlu mundi verða við það bætt, eink-
um þegar höf. sagðist áður hafa hugsað
mál þetta í mörg ár. En með því að
höf. gaf sér ekki tíma til að útskýra
þetta mál nákvæmlega, af þeirri ástæðu, að
þjóðfundurinn á Þingvöllum og þingið
sjálft í sumar missti þá af tiliögum hans
eða hefði ekki sjeð þær nógu snemma til
þess að geta tekið þær til greina, —
vogar Kvbl. að hefja máls á þessu efni,
einkum vegna þess, að málefnið sjálft er
svo nauðsynlegt, að það verður að skoðast
rækiiega, og í öðru lagi skoðar Kvbl.
siq ekki sem það „autoritet11, sem þjóð og
þing sje svo bundið við, að hverja tillögu-
verði að taka til greina, sem það hefir
meðferðis, þótt hún væri að engu leyti und-
irbúin eða útskýrð. — Kvbl. viil því færa
lesendum sínum sem ljósasta skýrslu af
þessumskólum,tilþess að menu geti sjálfir
sjeð og dæmt um, hvort ekki mundi til-
tækilegt, að koma hjer á fót kennslu-
stofnunum, sjálfstæðum eða í sambandi
Á síðari árum hafa víða erlendis ver-
ið stofnaðir skólar til að kenna ungum
stúlkum allt það, sem lýtur að stjórn og
vinnu á heimilinu. Menn hafa fundið til
þess, að hinir almennu kvennaskólar full-
nægðu ekki þeim kröfum, sem húsmæður
og vinnukonur þurfa að uppfylla, og að
kvennfóikið fengi ekki og gæti ekki feng-
ið þar næga kunnáttu í þeim störfum,.
sem flestar þeirra þurfa helzt að vinna í
daglegu lífi. Bóklega kunnáttan og fín-
ar hannyrðir væru alls ekki einhlítar.
Það eru Belgíumenn, sem gengið hafa
á undan öðrum þjóðum í þessari grein
kvennmenntunarinnar. — Bústýru (og
vinnukonu) skólar þeir sem þar hafa ver-
ið stofnaðir handa ungum stúlkum, hafa
orðið fyrirmynd annara þjóða, og er nú
verið að koma þeim á fót í ýmsum lönd-
um. Á Norðurlöndum eru þeir fáir enn
sem komið er. í Noregi er þó málefni
þetta komið á góðan rekspöl, og eru slíkir
skóiar víðsvegar þar að komast á fót.
Svíar eru líka í byrjun með þá, og eft-
ir norskum og sænskum blöðum að dæma,
lítur svo út sem þeir eigi mikla fram-
tíð þar. En í Danmörku er lítið um slíka
hússtjórnarskóla, sem hjer er um að
ræða, enn sem komið er.