Kvennablaðið - 30.05.1917, Blaðsíða 1

Kvennablaðið - 30.05.1917, Blaðsíða 1
Xvennablitðið %o»t- ar 3 kr.innanlands erlendÍB kr. 3 60 (90 cent veetan- hafa) */» verðsinB borgist fyrfram, en */. fyrir 16. júli. tnnmalvlaíiiíi. UppBÖgn skntleg bnndin við fcra- mót, ógild nema komin sé til út- get. fyrir 1. okt og kaupandi hafl borgað að fullu. 23. ár. Reykjavík, 30. mai 1917. Til kaupenda Kvennablaðsins. Um leið og eg óska ykkur öllum góðs sumars og árs og hagsælda í alla staði, Tildi eg einnig minnast dálítið á Kvenna- blaðið. Eins og menn vita, var eg ein af þeim löndum, sem voru í nokkurslconar »her- leiðingu« síðari hluta vetrarins, suður í Kaupmannahöfn. í tvo mánuði, eða frá 27. febr.—2. april, þegar við fórum þaðan, mátti heita að við fengjum engar fregnir heiman að. Aðeins örfá og fáorð símskeyti fengu ýmsir, sem sögðu oss mjög lítið um ástandið heima fyrir. Að vísu gat eg komið einu bréfi heim í Kvennablaðið, og gert ráðstafanir til að það kæmi út, en að öðru leyti vissi eg ekkert um hvernig því mundi reiða af, þótt eg byggist við að hin almenna dýrtíð á öllu, og ekki síst öllu því, sem snerti útgáfu bóka og blaða, mundi líka gera vart við sig heima eins og annarstaðar, og það því fremur, sem pappír og alt, sem að prentun lýtur, verður að flytjast inn hjá okkur. En með því að eg vissi ekkert um þau efni heima, gat eg engar ráðstaf- anif gert í því fyrir blaðið þá þegar. Þegar eg svo kom heim, 13. apríl, var það eitt af því fyrsta sem eg fekk að vita að nú hefði verð á allri þrentun verið hækkað frá 1. apríl um 55%. í apríl 1916 hækkaði líka verðið á prentun um 25%. — Samanlögð er hækkunin þá orðin 80°/o eða nœr þvi hálfu dýrari en áður. Og verðið á pappírnum hefir hækkað enn þá meira, það hefir nær því fjór/aldast. Af öllum þessum vandræða-ástæðum neyðist eg því til að hækka verðið á þess- M 5. um árgangi upp í 3 kr. Allir sjá að ekki græði eg á verðhækkuninni, því hún er mikið minni en kostnaðarhækkunin. Mér þykir mjög ilt að verða að neyðast til þessa, en eg vona að kaupendur og við- skiftamenn blaðsins sjái, að eg get ekki farið öðruvísi að. Mér finst við íslenzku konurnar verðum að eiga eitt málgagn að minsta kosti, ekki síður nú á þessum vandræðatímum en áður, og eg vona, að allir sem blaðinu hafa verið vinveittir, verði það eins enn, þrátt fyrir verðhækkunina. Eg hefi fengið loforð ýmsra góðra kvenna um að rita í blaðið. Vinsamlegast: Briet Bjarnhéðinsdóttir. Eldsneytisvandræðin. Ekkert orð er jafn alment nefnt eins og orðið: dýrtíð. Hvar sem við erum saman- komin bæði hér á landi, og víðast í heim- inum annarstaðar, þá er þetta algengasta umtalsefnið í borgum og sveitunum. — Dýrtíðin, sem allir verða varir við, og alt af þrengir meira og meira að, og sultur- inn, sem venjulega fylgir í fótspor hennar. Að verjast sultinum er nú aðal-verkefni allra stjórna: landsstjórna og bæja- og sveitastjórna, lítið síður í hlutlausu lönd- unum en hinum, sem taka beinan þátt í heimsstyrjöldinni. Hér á landi er það mjög eðlilegt að til- finnanleg dýrtíð verði á mörgum vörum. Við verðum að sækja allar korn- og mjöl- vörur vorar til útlanda, og yfir höfuð allar nýlenduvörur, auk margra annara vöru-

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.