Kvennablaðið - 30.05.1917, Síða 3

Kvennablaðið - 30.05.1917, Síða 3
K.VENNABLAÐIÐ 35 Leiðbeiningar Yið heysuðu. Eftir Karen Blicher, yfirumsjónarmann við »ríkisháskólann« i Khöfn. Útbúningur heykassaus. Til þess að sjóða í einum potti handa meðal- fjölskyldu skal búa til kassa, sem er 40—50 centimetrar — 15—19 þuml. — á alla vegu, með vel feldu þéttu Ioki á hjörum og hespu að framan. Kassinn er svo fyltur innan með mjúku smágerðu heyi, eða mjúkum dagblaðapappír, eða hvorutveggju. — í miðjuna er gerð hola, mátuleg fvrir pottinn, og yfir hann er svo lagð- ur dálítill koddi eða dýna, fylt með heyi eða pappír. Prifalegasl er að hafa dýnuverið þann- ig, að hægt sé að þvo það við og við. Ef blöð eru notuð, þá skal nudda þau milli handanna og mýkja, svo þau falli sem bezt utan að pottinum. Pappírinn verður þá að vera nægur til að fylla kassann og líka í dýnuna. Hann verður að leggjast og þrýstast vel niður með pottinum alt um kring og yfir hann. Fari nokkuð niður úr pottinum verður að skifta um heyið eða pappírinn og einnig verður að bæta í kassann eftir því, sem stoppið þéttist saman. Bezt er að skifta minst tvisvar sinnum árlega um hey eða pappir í kassanum. Pegar bullsjóðandi matur í glóandi potti með vel feldum hlemmi, er vandlega þjappað ofan í heykassann, eins og skýrt skal hér frá, þá fer þegar nokkuð af hitanum út i pappírinn eða heyið, sem er í kringum hann, og hita- magn matarlns í pottinum lækkar ofan í 90 stig C. En heyið og pappírinn, sem eru ónýtir hita- leiðarar, gej'ma þenna hita lengi. Maturinn kólnar því mjög seint, svo hann getur áður soðnað við þann liita, sem í pottinum er. Hvaða matur er hentastur til heysuðn? Ailur grjónamatur og mjölmatur, sem soðinn er með vatní eða mjólk eða öli, baunir, ertur, rætur, rófur, kál, kartöflur og grænmeti, nýir og þurkaðir ávextir, kjöt, flesk, saltfiskur o. s. frv. Allar fæöutegundir, sem þurfa lengri suðu til þess að verða meltanlegar. Því getur lieykassinn gert að nokkru leyti sama gagn og eldur vlð inatarsuðu? Af því að flestur matur þarf ekki 100 gr. C. (suðuhita) til þess að soðna, en verður bæði betri og meltanlegri, ef hann er soðinn við minni hita. En þá verður hann að standa 2—3 sinnum lengri lima i heykassanum en gfir eldi. Hvernig á að nota heykassa? 1. Brúka skal '/» minna vatn eða mjólk i grauta eða súpur, sem soðnar eru í hey- kassa, en yfir eldi. 2. Byrjaðu fyr á matargerðinni, ætlaðu þér nógan tima. 3. Mundu að heykassasuðan tekur 2—3 sinn- um lengri tima en yfir eldi. 4. Settu matinn yfir eld og láttu hann komast í suðu. 5. Láttu matinn sjóða við hægan eld í 5 min. —J/‘ klst. eftir þvi hvað hann þarf í sjálfu sér langa suðu, áður en þú setur hann í kassann. 6. Láttu matinn sjóða vel þegar þú tekur hann af eldinum og láttu pappirinn vera heitan. Sjáðu um að hlemmurinn falli vel. Gott er að leggja hreint hvítt pappírslag — papp- írspoka — yfir pottinn, undir hlemminn, og þjappa svo hlemminum vel niður. 7. Hafðu tilbúna hæfilega stóra holu í hey- kassanum, og breiddu pappírsblað í hana áður en þú þjappar pottinum niður. Breiddu svo pappír yfir lokið og dýnuna. 8. Vertu fljót að flytja pottinn og þjappaðu honum vel ofan í kassann. Flýttu þjer að þjappa i kringum hann og yfir hann með pappír og dýnunni. Lokaðu svo kassalok- inu og settu hespuna fyrir. Ef lieykassanum er lokið upp áður en mat- urinn er tilbúinn, þá verður að setja hann aft- ur yfir eld. Oft er það líka betra að láta mat- inn sjóða aftur snöggvast yfir eldi, einkum mjólkurmat og súpur. Pví á fremur að nota heylcassa til suðu, en sjóða matinn alveg yfir eldi? Af pvi með þvi sparast peningar til eldneylis, og timi til að gera eitthvað annað. Og auk þess fylgja því þessir kostir: 1. Maturinn brennur ekki. 2. Enginn þarf heldur að standa yfir honum. 3. Pað er fljótlegra að hreinsa pottana. 4. Maturinn verður bæði bragðbetri og auð- meltari. 5. Maturinn er jafngóður þótt hann þurfi að bíða lengi eftir borðgestunum. 6. Á þann hátt má fá heitan og góðan mat á heimilum, jafnvel þótt húsmóðirin sé við vinnu annarstaðar nokkurn hluta dagsins. 7. Geyma má tilbúinn heitan mat lengi í hey- kassa. Agætt er að þvo smáþvott þannig að koma honum i suðu og geyma svo fötuna eða pott- inn með góðum hlemmi i heykassa næturlangt á sama hátt og áður er sagt.

x

Kvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.