Lögberg-Heimskringla - 14.09.1961, Page 1
iögberg - ^etmsfermgja
Stofnað 14. jan.. 1888
Stofnuð 9. sepl., 1886
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 14. SEPTEMBER 1961
NÚMER 34
Hugsað til Ásgeirs forseta
Þú fæddist, er umbótaaldar sól
var óðum að nálgast hafið;
hún mildaði göngu mannkynsins
þó margt sé nú týnt og grafið.
En framundan eygði óskaland
í upprisubjarma vafið.
1 draumsýn um alheimsfrelsi og frið
var fóstruð þín æskuhyggja:
Að hefja vorn lýð til hærra vegs —
á hugsjónum framtíð byggja
og láta ekki tvísýn, áfjáð öfl
á ættlandsins heiður skyggja.
Þó blóðfjöðruð sé nú okkar öld
hún ísland úr viðjum leysti,
og enn sem fyr ber sitt aðalsmark
hin arfgenga, forna hreysti.
Sú fylking var djörf og frækileg,
er fánann að siglu reisti.
Vor þjóð þarf að brynja sjálfa sig
og sækja til dýpstu miða.
Það afl, sem með henni innra býr
hún ein á að göfga og friða,
og reisa sér alfrjáls eigin höll
án erlendra máttarviða.
í barmi hvers dags býr landnámsljóð,
er lýsir um vegu þína.
Og blysið, sem þú hefir borið hæst
mun bjart yfir öldum skína.
Og vaxandi eining um borg og byggð
þinn bústað skal láni krýna.
Einar P. Jónsson — 1952
»»o»o»»»»o»»»»»ao»»0»oo»0»»ö»»»ö»»»»»»»»»»»»»»»»»»c0»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»
VERIÐ HJARTANLEGA VELKOMIN
Ásgeir Ásgeirsson, forseti Islands, og frú Dóra Þórhallsdóttir