Lögberg-Heimskringla - 14.09.1961, Blaðsíða 16

Lögberg-Heimskringla - 14.09.1961, Blaðsíða 16
16 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 14. SEPTEMBER 1961 Úr borg og byggð Sú breyting er orðin á starfsháttum Fyrstu lútersku kirkju, að sunnudagaskólinn mætir kl. 9.45 árdegis og sam- tímis fer fram stutt guðsþjón- usta í kapellu kirkjunnar, sem er herbergi í kjallarasal undir skrifstofunni. Aðalguðsþjón- ustan fer svo fram kl. 11 f. h., en íslenzka guðsþjónustan er haldin kl. 7 eins og venjulega. ☆ Kvenfélag Fyrstu lútersku kirkju heimsækir Betel mið- vikudaginn 20. sept. Bus verð- ur til staðar við kirkjuna og leggur af stað kl. 12. Farseðl- ar $1.25. Utanfélagskonur vel- komnar eftir því sem sæti leyfa. ☆ Vesturför forseía íslands Skeyti, sent L.-H. 11. sept.: Forseti íslands og forseta- frú ásamt með fylgdarliði, lögðu af stað flugleiðis frá Is- landi kl. 11 í morgun áleiðis til Kanada. Farkostur er Eiríkur rauði, millilandaflug- vél frá Loftleiðum og flug- stjóri Kristinn Olsen. Lagt var af stað frá Kefla- vík og flogið yfir Grænland og Labrador til Quebec. Þar hlutu forsetahjónin hinar virðulegustu móttökur, sem sagt verður nánar frá síðar. ☆ Þann 7. iúní s. 1. fór frú Sig- rún Nordal frá Selkirk til ís- lands í heimsókn til systkina sinna og annarra frænda og vina. Hún er nú nýkomin heim eftir þriggja mánaða dvöl á ættlandinu, sem hún hafði ekki séð síðan hún flutti frá Islandi fyrir hálfri öld. Þótti henni heldur en ekki mikið koma til þeirra fram- fara og breytinga, sem orðið höfðu á þessu tímabili: þúf- urnar horfnar; enginn maður með orf og ljá; engar konur með handhrífur að raka og snúa heyi — allt gert með vélum. Torfbæirnir horfnir, steinhús risin í staðinn, búin með öllum nýtízku þægindum og jafnast á við beztu heimili hér vestra; mikil atvinna og vellíðan almenn. Frú Sigríður ferðaðist víða og skoðaði margt og átti hún hvarvetna hinum ástúðlegustu viðtökum að fagna. ☆ Squadron Leader og Mrs. E. J. Waylett frá Montreal hafa dvalið hér í sumarfríi hjá foreldrum og skyldfólki ásamt dætrum sínum, Marza Arlene og Kristínu Lynn. Mrs. Waylett er elzta dóttir Mr. og Mrs. Gottfred Hjaltalín, Ste. 64 Bell Rose Apts. ☆ Eric Stefanson, þingmaður frá Selkirk, verður í fylgd með forsetahjónum Islands fyrir hönd sambandsstjórnar- innar frá Ottawa á ferð þeirra vestur til Kyrrahafsstrandar og til baka. W. Glen Eyford flytur til Winnipeg innan skamms, því hann hefir verið skipaður yf- irumsjónarmaður C.N.R. road transport deildarinnar. ☆ Séra Kristinn K. Ólafsson, D.D. Sunnudaginn 27. ágúst, kl. 8 að kvöldi, var kirkjuleg at- höfn haldin að Garðar í minn- ingu um séra Kristinn K. Ól- afsson, sem lézt að heimili sínu í Manchester, Iowa 27. júní síðastl. Þegar vitað var að hverju dró, komu öll börnin hans að sjá hann og kveðja. Þau voru því ekki á Garðar, en kona hans Ethel var þar og margt af nánustu skyldmennum, systra- og bræðrabörn, heiðr- uðu minning hans með nær- veru sinni. Séra Hjalti Guð- mundsson flutti bæn og las ritningarkafla, og söng „Faðir vor“. Kirkjukór Garðar-safn- aðar annaðist sálmasönginn, Mrs. Wm. Olgeirsson spilaði á orgelið. Dr. Valdimar J. Ey- lands flutti andríka minning- arræðu um þennan merka mann, sem var til grafar bor- inn langt frá æsku- og átt- hagastöðvum. Garðarbyggðin var honum öll æviárin mjög kær. Þar var hann fæddur, þar komst hann til þroska-aldurs og þaðan var lagt út á menntabrautina að líkindum með léttan fjársjóð, en hann fór úr foreldrahúsum með annan sjóð — gulli betri, sem voru fjölhæfar gáfur, einbeittan vilja og þrek og dugnað í ríkum mæli. Þurfti hann oft síðar á ævibraut sinni að halda á þessum gjöf- um, því hann var á stundum misskilinn af samtíðarmönn- um sínum — en lundin heil- steypt og ekki gjarnt til að hopa ff hólmi, er það líka oft- ast svo, að þeir menn, sem mikið kveður að, hvort held- ur á andlegu eða veraldlegu sviði. Þeir hinir sömu verða fyrir ýmsu andstreymi. Á Garðar var hann fyrstu 12 árin af 56, sem hann gegndi prestsþjónustu, lengur en nokkur annar starfsbróðir hans hér. Sá, sem þessar línur ritar, minnist hans sem góðs vinar um mörg ár, minnist gestrisni hans öll árin, sem hann dvaldi á Mountain og ótal fleiri gleði- og sorgarstunda. Minningin um hann mun lengi lifa í huga og hjörtum allra þeirra mörgu þúsunda manna og kvenna, bæði hér og í Kanada, sem þekktu hann og nutu hans miklu hæfileika. A. M. A. Dánarfregnir Björn Björnsson, til heim- ilis á Laufási að Lundar, Man. andaðist á Almenna spítalan- um í Winnipeg 5. sept. 1961. Hann var fæddur að Sleðbrjót í Hróarstungu 17. maí 1881. Foreldrar hans voru Jón MESSUBOÐ Fyrsta lúlerska kirkja Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku: kl. 9.45 f. h. 11.00 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h. Næstkomandi sunnudags- kvöld verður forseti Islands og fylgdarlið hans við kvöld- messuna. Austmann Runólfsson frá Hjaltastaðaþinghá og Jónína Guðmundsdóttir, ættuð úr Þistilfirði. Björn ólst upp í Hróarstungu til 20 ára aldurs, en fór þá vestur um haf með foreldrum sínum, 1901; dvald- ist siö ár að Garðar, flutti síð- an til Lundar og rak þar bú- skap. Árið 1910 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni Björgu Högnadóttur. Hann var í safnaðarráði Unitara kirkj- unnar og átti um skeið sæti í skólanefnd. Hann lifa fjórir synir, Björn og Eric í Winni- peg, Magnús og Valdi að Lundar; þrjár dætur Mrs. Guðný Eiríksson og Mrs. Lára Árnason, báðar búsettar að Lundar og Mrs. Sigrún Cruise að Chatfield; 21 barna- barn og eina systur, Mrs. Sig- rún Sigurdson í White Rock, B.C. Séra Philip M. Pétursson jarðsöng. ☆ Björn S. Dahlman, 92 ára, andaðist á St. Boniface Sana- torium 7. sept. 1961. Hann var fæddur á Islandi, átti heima að Baldur og í Winnipeg og flutti til Riverton 1920. Konu sína, Sigríði, missti hann árið 1942. Hann lifa tveir synir, Earle í Winnipeg og Cecil í Riverton; ein dóttir, Mrs. Kristín Wood í East Kildonan; 10 barnabörn og 14 barna- barnabörn. Útförin fór fram frá lútersku kirkjunni í Riv- erton; séra R. Magnússon jarð- söng. ROSE THEATRE SARGENT ot ARLINGTON CHANGE OF PROGRAM EVERY FOUR DAYS Foto-Nite Every Tuesdoy and Wednesdoy SPECIAL CHILDREN'S MATINEE Every Saturday —AIR CONDITIONED— Viðtökur íorsetans í Quebec Viðtökur voru allar hinar virðulegustu. Landstjóri Kan- ada, George Philias Vanier og frú hans, og forsætisráðherra Quebec, Jean Lesage og frú, tóku á móti forsetahjónunum og föruneyti þeirra, en Thor Thors ambassador kynnti; leiknir voru þjóðsöngvar Is- lendinga og Kanadamanna, og forseti kannaði heiðurs- vörð. Vanier landstjóri og Lesage forsætisráðherra fluttu ávörp, en forseti svaraði með stuttri ræðu, og mæltu þeir allir á báðum málum, frönsku og ensku. Öll var þessi athöfn hátíð- leg og eftirminnileg. Um kvöldið hélt Vanier landstjóri íslenzku forseta- hjónunum, utanríkisráðherra og ambassadorshjónunum veizlu að aðsetri sínu, The Citadel, en Mr. Davis. aðal- umsjónarmaður fararinnar, öðrum meðlimum fylgdarliðs- ins veizlu á Chateau Fron- tenac. Á eftir hittust svo allir og fjölmargir aðrir gestir á hinu fagra heimili landstjór- ans, The Citadel. The President's Schedule MANITOBA Thursday, Sept. 14, 1961 1.15 p.m.—Cars Assemble at Legisl. Bldgs. 1.45 p.m.—Motorcade arr. at R.C.A.F. Station. 2 00 p.m.—Arrival of the Pre- sident and party. 3.00 p.m.—The President of- ficially received in Legisl. Chambers. 3.30 p.m.—Public reception, Room 200, Legisl. Bldgs. 7.30 p.m.—State d i n n e r at Government House. Friday, Sept. 15 10.45 a.m.—Visit to City Hall. 11.30 a.m.—Stop at Unitarian Church. 12 noon—Luncheon at Pier- re’s Cafe. 3.30 p.m.—Reception—Consu- late of Iceland. Saturday, Sept. 16 12 noon—Luncheon at Carle- ton Club. 6.30 p.m.—Banquet at Fort Garry Hotel. Sunday, Sept. 17 11.45 a.m.—Visit at Betel 7.30 p.m,—Service— First Lutheran Church. 8.45 p.m.—Special meeting '' Icelandic National League- Monday, Sept. 18 4.30-6.30 p.m,—Reception— and Mrs. P. H. T. Thorlak' son’s home. 8.10 p.m.—Special Convoc3 tion at the University- Tuesday, Sepl. 18 10.00 a.m.—Departure froIfl Stevenson Field. SASKATCHEWAN Tuesday, Sept. 19 10.40 a.m.—Arrival in Regtnn 11.00 a.m.—Motorcade e parts. 1.30 p.m.—Arrival in yard—Luncheon. 2.30 p.m.—Public recepti°n' 4.00 p.m.—Departure f r 0 Wynyard. 6.30 p.m.—Arrival—Hotel SaS katchewan, Regina. ALBERTA Wednesday, Sept. 20 8.30 a.m.—Departure f r 0 Regina. 10.50 a.m.—Arrival Calgar^' 11.30 a.m.—Arrival in fold—Visit Markerville- 2.00 p.m.—Departure f r 0 Penfold. 3.00 p.m.—Arrival Edm°nt0. 7.00 p.m.—Dinner at Mo^0 ald Hotel. Thursday, Sept. 21 ^ 8.20 a.m.—Departure fr° Edmonton (by train). BRITISH COLUMBIA Friday, Sept. 22 8.10 a.m.—Arrival in VanC° ver' ri3- 11.00 a.m.—Leave for Vict0 11.20 a.m.—Arrival Viet° (Day set aside for rest)- ^ 7.00 p.m.—Informal dinner Empress Hotel. Saturday. Sept. 23 12.00 noon—L unche°n Lieut. Governor. 3.45 p.m.—Departure. 4.05 p.m.—Arrival at Vane ver Airport. jjotel 7.00 p.m.—Banquet Vancouver. at Sunday, Sept. 24 jjC 11.00 a.m.—Service—Iceta Chur Lutheran Church. 12.15 p.m.—Reception Auditorium. 4.00 p.m.—“Turning of s°c ch Home. 1.45 p.m.—Laying of wreath— Pioneer Cairn. 2.00 p.m,—Public gathering in Gimli Park. Monday, Sept. 25 12.00 noon—Departure ronto. f°r T°' UMBOÐSMENN LÖGBERGS-HEIMSKRlNGLtf á ÍSLANDI SINDRI SIGURJÓNSSON pósiafgreiðslum. P.O. Box 757, Reykjavík ARNI BJARNARSON bókaútgefandi. Akureyri, Iceland Verð Lögbergs-Heimskringlu er kr. 240 á ari.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.