Lögberg-Heimskringla - 11.04.1963, Side 1
lögberg-J^eimsfmngla
Stofnað 14. jan., 1888 Stofnuð 9. sept., 1886
J^ARGANGUR__WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 11. APRÍL 1963_ .-rfjgB*. NÚMER~15
Fréttir fró íslandi
B<?ln *« Bretlands
hef°1Seta ^s^an<^s °S frú hans
rj. Ur úorizt boð frá brezku
"Wn-nni um að koma íl
land -6ra ^e*msnkn til Bret-
>tjS a hausti komanda.
boðiðíao«f°rSetahÍÓnÍn þegið
ig öloar mun verða ákveð-
Oanar um heimsóknartím-
ann.
Tíminn 28. marz.
a5?.8^la«far á íslandi
sk US sPrunSu á Siglufirði og
0rsteinar hrundu. — Fólk
dist upp úr rí
«,e6ruyri °S tlú61 út
skulfu
rumum a
tne« " ■ á §ötur
itngbörn í fangi. — Hús
^ u °g glertau glamraði.
ia * eðurstotan telur upptök
j f shjálftans fyrir norðan
1 um 450 km. fjarlægð
ork ^eyhjavík og er þetta
Umesti jarðskjálfti, sem
„,$.zt hefur á mæla Veður-
stof
1934,
unnar. — Sá mesti síðan
Tíminn 28. marz.
T*»ir kippi, *
Enn virðast jarðhræringarn-
r ekki að fullu um garð
engnar. Um klukkan fimm í
orgun fannst jarðskjálfta-
^^Ppur 4 Sauðárkróki, Skaga-
ejrðnú. Siglufirði, Akureyri og
v vill víðar. Kippir þessir
ru ekki snarpir og ollu eng-
um skemmdum, og ekki
hreyfðust munir né leirtau
glamraði.
Tíminn 1. apríl.
☆
Þriðji hluti gosmagns
komið upp hér á landi
Nú þegar svo miklar hrær-
ingar eiga sér stað á eldfjalla-
svæðum víðs vegar um heim,
er von að okkur, sem byggjum
mestu eldfjallaeyju í heimi,
verði hugsað til okkar frægu
gosstöðva. Jarðfræðingar bíða
alltaf eftir gosi í Kötlu, og ef
Askja hefur ekki breytt um
skapferli er hún vís til að láta
til sín taka aftur á næstunni,
enda héldu ýmsir, að önnur
hvor þeirra væri komin af
stað, þegar jarðhræringar
urðu að kvöldi miðvikudags.
Sprettharkan í eldfjöllum
jarðarkringlunnar hefur verið
ærin upp á síðkastið, og er
þess skemmst að minnast,
hvernig eldgosin á Tristan da
Cuhna lögðu eyna í eyði fyrir
u. þ. b. tveimur árum. Nú er
það hið heilaga fjall Agung á
Bali, sem spýr eldi og eim-
yrju svo að stórtjón hefur
hlotizt af, a. m. k. 1500 hafa
látið lífið, 500,000 misst heim-
ili sín og heil héruð einangr-
ast frá umheiminum. Og nú
hefur eldfjallið Irasu á Costa
Framhald á bls. 3.
Kosningarnar í Kanada
fór °SninSarnar á mánudaginn
u eins og marga grunaði;
n8inn flokkur fékk hreinan
j^*rihiuta> 'þnð er að segja
k Smtl af 265 sætum sam-
andsþingsjns Liberal flokk-
s^lnn jók fylgi sitt og hefir
em stendur 128 þingsæti, en
lr hinir flokkarnir töpuðu
0g Conservative flokk-
rinn hefir nú 96, Social
Kredit 24 0g NDP 17. Atkvæði
. anadískra hermanna erlend-
’ Sem ekki verða talinn fyrr
helgina gera e. t. v.
is
en um
mikið
strik í reikninginn og
verður ekki vitað fyrr en þá
hverjir taka við stjórn í
Ottawa.
Tveir Islendingar voru kosn-
ir á sambandsþingið; William
Benidickson þingmaður Ken-
ora — Rainy River, var endur*
kosinn í sjöunda sinn og tvö-
faldaði meirihluta sinn frá því
í júní. Hann hefir verið fjár-
mála gagnrýnandi Liberala í
þinginu. Eric Siefanson vann
í þriðja sinnSelkirk kjördæmi
fyrir Conservative flokkinn,
og fékk mörg hundruð fleiri
atkvæði en í kosningunum í
júní.
Mr. Eric Stefanson
Hallgrímskirkja
Líkan gert af Dr. Guðjóni heilnum Samúelssyni, húsameist-
ara íslenzka ríkisins, af hinni fyrirhuguðu Hallgrímskirkju.
(Sjá rilsijórnarsíðu).
Bréf fró Vancouver, B.C.
Á föstudagskvöldið 1. marz,
hélt Ströndin, deild Þjóðrækn-
isfélags Islendinga í Vancou-
,ver, sína árlegu vetrar
skemmtun sem við nefnum
„Þorrablót“, í samkomusal að
125 E. 8th Ave. Veður var
ágætt og hátt á þriðja hundr-
að manns sóttu samkomuna
og sumir langt að. Kl. 8 e.h.
steig forseti Strandar, Mr.
Snorri Gunnarson upp á pall-
inn og setti samkomuna með
faliegri ræðu, og bauð fólk
velkomið. Hann sagði að til-
gangur þessa móts væri að
„gleðjast á góðra vina fundi“
og minnast um leið íslands og
.feðra vora sem þaðan komu til
þessa lands. Bað hann svo Mr.
M. K. Sigurðsson að lesa upp
fyrir okkur kvæði hans Davíðs
Stefánssonar „Þorrablót" en
sem kunnugt er, þá les Mr.
Sigurðsson svo prýðilega vel,
að unun er á að hlíða. Að því
loknu var farið að borða —
þennan líka ál-íslenzka mat,
sem íslenzkar konur höfðu til-
búið — saltað og reykt kinda-
kjöt, rúllupylsu, lifrapylsu og
kæfu, sultu, roast turkey,
salads, heitar kartöflur í
mjólkurjafningi, gúlrófur og
grænar baunir. Eftir matur
var skyr með rjóma, kaffi,
kleinur og pönnukökur. Matur
þessi var allur fyrirtaks góður
og nóg handa öllum og meira
en það.
Þá kom prógramið næst.
Ræðumaður kvöldsins var Mr.
L. H. Thorlakson, enn hann er
vel þekktur gáfumaður og
göfugmenni, og er vel mælsk-
ur. Ræða hans þótti mér á-
gæt. Hann sagði frá þátttöku
íslendinga í lífi og starfi Van-
couverborgar og B.C. fylkis í
síðastliðin 25 ár, í félags- og
kirkjumálum, pólitík, iðnaði,
íþróttum, o. s. frv., og nefndi
leiðandi menn og konur.
„Hingað erum við komin“,
sagði hann, en hvað tekur við?
Hann hvatti „Ströndina“ til
að láta skrásetja sögu þess
svo hún ekki gleymdist. Mér
finnst þessi áminning mjög
nauðsynleg, og tíma bær.
Karlakórinn söng undir
söngstjórn, Mr. S. Sigurdson.
íslendingar hér í Vancouver
eru vissulega í þakklætis
skuld við „Vancouver Icel.-
Male voice choir“, fyrir þá
skemmtun sem þeir veita okk-
ur svo oft með sínum ágæta
SÖng. — Mr. og Mrs. Tani
Bjornson komu frá Seattle, til
að vera með okkur þetta
kvöld, og hann var beðin að
syngja eitt lag. — Hann söng
gaman kvæði K.Ns. „Æfin-
týri á gönguför“, konan hans
spilaði undir á píanóið. Þá
söng Mr. Paul Frederickson
nokkra „cowboy songs“ — með
gítar undirspili — og ensk
stúlka söng einsöng.
Eftirmál
Sárt er þeim er sitja og bíða
sjúkir eftir dauðans náð,
já er tíminn lengi að líða
lífið ýmsum meinum háð.
Liðinn fram til loka dagur
ljósið orðið dauða skar
framsýn horfin, áttin eina
aftur til þess, sem að var.
Margur bíður þreytu þjáður
óangað til að líknin gefst.
Engill dauðans önnum kafinn
oft á sínum ferðum tefst.
:: öllu lífi maur og manni
moldin hefur örugt veð
Dar er enginn undandráttur
eða þras um skulda féð.
Smátt og smátt skal þrek vort
þverra
því að feigðin heimtar alla.
Altaf verður berra og berra
bak vort þegar vinir falla.
Bitrur haustsins bíta vanga
brúnir og tindar snævi hærast
úr sér mun og af sér ganga
alt það sem að var oss kærast.
Vorið geymt í voru minni
verður ekki heimt til baka
birtan dofnar úti og inni
innan skamms mun gluggann
klaka.
Dyrnar munu byljir berja
berja hlíðar kefjast fönnum
gamlir vargar hold vort herja
hlífðarlaust og beita tönnum.
Þetta er gamla þrauta sporið
það sem slitin kynslóð stígur.
Æsku fæðist aftur vorið,
annar fugl úr suðri flýgur.
Hlíta verður lífsins lögum
lúta hinum rama mætti
slítur öllum æfi sögum
æ í þessum sama þætti.
P.G.
Heiðursgestir þetta kvöld
voru þau Mr. og Mrs. Geir
Jón Helgason, Squamich, og
Mrs. Lóa Skúlason, Vancou-
ver. Forsetinn ávarpaði þau,
og þakkaði þeim fyrir vel
unnið starf í Ströndinni, og þá
um leið rétti Tómas Gunnar-
pon frúnum falleg blóm,
„corsage“. Heiðursgestirnir
þökkuðu fyrir sig. — Var síð-
an dansað fram eftir nóttinni.
Yfirleitt fannst mér þetta
Þorrablót heppnast ágætlega
og fólkið virtist skemmta sér
vel. Gestir sem ég varð vör
við lengra að voru Mr. og Mrs.
S. B. Johnson, og Mrs. Emma
Framhald á bls. 2.
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA
Eina islenzka vikublaðlð í
Norður Ameríku
Styrkið það,
Kaupið það
Lesið það