Lögberg-Heimskringla - 20.06.1963, Qupperneq 6
6
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 20. JÚNÍ 1963
Bjarna bónda þótti vera æði
þungur svipur á konu sinni,
þegar hann kom inn í búrið
til þess að vita, hvort kaffið
væri ekki að koma inn. Gest-
irnir þyrftu að komast svo
snemma út eftir, að hægt væri
að komast í búðir. Nunna bar
inn kaffið nokkru seinna. Þá
var Sigga ferðbúinn í bað-
stofunni. Bjarni bauð henni
að setjast að kaffdrykkju með
gestunum. Hún þáði það.
Ekki varð húsfreyjan léttari í
skapi við það, þegar Nunna
sótti fram aukapör handa
Siggu vinnukonu.
„En sú viðhöfn“, sagði hús-
freyja. „Hún hefði nú líklega
getað drukkið það hérna í
búrinu eins og hún er vön.
Ég verð fegin, þegar hún er
farin. Bara að strákurinn færi
líka“.
Sigga kvaddi alla með
mestu virktum og þakkaði
öllum fyrir samvinnuna. Hún
skyldi ekkert í þessum kulda-
svip á húsmóðurinni, og gerði
sér heldur engar áhyggjur út
af því. Hún var að hverfa
burt frá þessu heimili og öllu
þar og lét sér fátt um finnast.
Eftir nokkrar klukkustundir
yrði hún komin heim til
pabba og mömmu.
Bensi bar koffortið hennar
út á sleðann, kvaddi hana svo
með kossi eins og góða systur
og sagðist vona, að það yrði
ekki langt þangað til hún sæi
sig við gluggann heima í
Bakkabúð.
Svo rann sleðinn af stað.
En Bensi gekk inn í bæinn til
mæðganna og sagði:
„Hér er ég þá kominn til
þess að drekka kaffið, því að
ég þarf að fara til kindanna".
„Það er nú bara enginn
kaffitími núna“, sagði Frið-
rika snúðugt.
„Það er vanalegt að hjú
njóti góðra gesta, og það hef
ég fengið sæmilega útilátið.
Mér finnst það talsvert hlá-
legt af þér að setja mig hjá
seinustu dagana, sem ég er á
þínu fyrirmyndarheimili“,
Nunna flýtti sér að hella í
bolla handa honum.
„Þarna er kaffið“, sagði hún
óþarflega hátt.
„Sko, Steinunni litlu. Hún
veit að ég er í sárum, þar sem
kærastan er flogin frá mér,
og ætlar svo að hella kaffi í
kaunin. Vel verði henni fyr-
ir“, sagði Bensi.
„Ef iiún er kærastan þín,
skal mig ekki undra, þó að þú
viljir gæta hennar fyrir karl-
mönnunum“, sagði Friðrika.
„Það er nú talsvert umliðið
síðan Gunnvör uppgötvaði, að
ég hefði kysst hana morgun-
inn eftir nóttina frægu, þegar
ég gerði miskunnarverkið á
karlskepunni á Fjalli, að það
hlýtur að vera komið alla leið
til heilans á ykkur hinum“.
„Það hefur nú stundum
þurft meira til en einn koss
til þess að trúlofun yrði úr“,
sagði Nunna brosandi.
„Þeir voru nú fleiri koss-
arnir. Ekki trúi ég því að
Gunnvör láti slíkt minnisleysi
koma fyrir í sögum sínum“,
sagði Bensi.
„Það er aldrei að hún sé
eftirsótt, hún Sigríður litla“,
sagði Friðrika.
„Já og svo bætir Bjarni því
ofan á allt annað, að setja
hana inn við bdrðið hjá gest-
unum. Þá sá ég að Nunnu
þótti nóg um. Það þótti mér
líka“, sagði Bensi.
„Hvers konar bölvað rugl
er þetta í þér, maður“, sagði
Friðrika skjálfrödduð af reiði.
„Vel verði Bjarna bónda
fyrir það, að koma þannig
fram við hana síðasta daginn.
Mér þykir vænt um að Sigga
mín er á leiðinni heim í góðu
og gömlu Höfðavíkina. Það
verða varla margar sólir af
lofti, þegar ég verð kominn
þangað líka. Svo þakka ég
fyrir kaffið“, sagði hann og
fór út.
Friðrika var fokvond yfir
því, að Bensi fór ekki ííka.
Hún fór inn til bónda síns til
þess að létta af skapsmunum
sínum. Hann var að verða
hrein og bein plága, þessi
strákur, sem ómögulegt var
að líða fyrir bölvaða stríðn-
ina og ertnina. Svo sagði hún
bónda sínum frá öllum þeirra
orðaskiptum.
„Ég er hissa á þér, að láta
strákinn vera að stríða þér“,
sagði Bjarni. Mér finnst það
ekkert undarlegt, þó að hann
svaraði þér svona hlálega,
fyrst þú sagðir, að Sigga hefði
verið lánsöm, ef hún hefði
fengið Hrólf, sem engin kven-
maður getur felt sig við. Ef
þú trúir því að þau séu trú-
lofuð, var alveg rétt af hon-
um að segja, að Hrólfur væri
álitlegur tengdasonur handa
þér“.
„Það er aldrei að þú takir
svari hans“, sagði Friðrika,
alveg hissa á þessum undir-
tektum bónda síns.
„Þú ferð nú sjálfsagt að
losna við hann“, sagði Bjarni.
„Ætli það verði ekki eitthvað
að þeim hjúum, sem verða
hér næsta ár, ef þau fást þá
nokkur. Gunnvör er sjálfsagt
að hugsa um að fara að Litlu-
Grund. Hún situr þar öllum
stundum á sunnudögunum,
þegar hún á frí. Það er lík-
lega vissara fyrir þig að fara
að tala um vistráðningu við
hana, ef þú ætlar ekki að
verða alveg vinnukonulaus
næsta ár. En því ert þú nú
víst óvön“, sagði Bjarni bóndi
og leit brosandi til konu sinn-
ar. .
Nokkrum dögum seinna
hitti Hrólfur Bjarna fram við
merki, þar sem hann var að
sækja hrossin, sem á húsi
voru, því að Toni var kominn
í skóla fram í sveit.
„Það er orðið langt síðan
okkar fundum hefur borið
saman, Bjarni sæll“, sagði
Hrólfur brosandi.
,^öjá, það hefur verið ó-
vanalega fáferðugt á milli
bæjanna þennan veturinn“,
sagði Bjarni.
„Já, það er nú bara vegna
þessa vetrarmanns, sem þú
hefur haft á heimili þínu“,
sagði Hrólfur. „Samt skalt þú
ekki halda, að ég hafi verið
hræddur við hann, þann
kauða, þó að ég hafi ekki
komið suður eftir. Heldur hef
ég ekki viljað troða illsakir
eða koma af stað slagsmálum
á heimili þínu'b
„Það hefði varla komið til
þess, þó að þú hefðir komið
suður eftir“, sagði Bjarni.
„Þú heldur það“, sagði
Hrólfur. „En hvernig er hand-
arskarnið á þér? Ferðu ekki
báðum að geta sinnt verkum
þínum, svo að strákribbaldinn
fari að fjarlægjast. Það var
allt rólegt, áður en hann kom
hingað inn eftir“.
„Höndin er orðin sæmileg
fyrir nokkru. En jafngóð og
hún var áður, er hún ekki.
Það sækir á hana kuldi og ég
á bágt með að leysa heyið. En
Gunnvör ætlar að reyna að
verða mér stoð og stytta það
sem eftir er vetrarins“, sagði
Bjarni.
„Er þá Bensi farinn?“
spurði Hrólfur feginsamlega.
Bjarni játaði því.
„Hvenær fór hann?“ spurði
Hrólfur. „Ég var búinn að
hugsa mér að kveðja hann og
þakka honum fyrir síðast. En
hann hefur kannske ekkert
langað í hendurnar á mér, og
því laumast í burtu einhverja
nóttina“.
Hann hló tröllslega og sló
um sig með höndunum.
„Nei, það var hábjartur
dagur og glaða sólskin, þegar
hann fór, svo að þú hefðir
áreiðanlega getað séð hann,
ef þú hefðir verið úti við“,
sagði Bjarni. „En það var
náttúrlega það bezta, að þú
sást ekki til ferða hans. Mér
hefði þótt það öllu lakara, ef
hann hefði komið blár og
blóðugur út í Höfðavík og þú
legið rúmfastur eftir sam-
fundi ykkar“.
„Það hefði nú kannske ekki
tekizt jafn illa til og síðast.
Ég hefði reynt að vara mig á
honum. En hann er alltaf svo
mikill fantur að slá mann“,
sagði Hrólfur. „En hefur ekki
verið dregið sjaldan í-spil hjá
þér í vetur?“ spurði hann svo,
þegar hann sá að hestarnir
voru lagðir af stað heimleiðis
og Bjarni gerði sig líklegan
til þess að fylgjast með þeim.
„Það hefur verið spilað þó
nokkuð oft“, svaraði Bjarni.
„Ég gæti hugsað mér að
bregða mér suður eftir á
sunnudögum, svona af göml-
um og góðum vana“.
„Það fer nú að verða nokk-
uð bjart til þess að sitja við
spil“, sagði Bjarni. „En lík-
lega yrðu þó spilin tekin ofan
af hillunni, ef þú kæmir“.
Svo kastaði hann kveðju á
Hrólf og gekk heimleiðis.
Hrólfur lét ekki sitja við
orðin tóm. Hann var kominn
inn á rúm til Vermundar
gamla um hádegi næsta
sunnudag og farinn að taka
í nefið hjá honum. Hann iðaði
af kæti, þegar hann talaði um
hvað nú væri langt síðan
hann hefði verið gestur á
Stóru-Grund.
„Heldurðu, að það væri
ekki gaman að taka einn slag,
Vermundur minn? Hefur
ekki sjaldan verið spilað
hérna í veutr? Var hann ekki
heldur latur við það, vetrar-
mannstuskan, eins og við
flest annað?“ sagði hann ill-
kvittnislega á milli þess, sem
hann hnerraði hátt og mikið.
„Hann var ekki latur við
neitt, hann Bensi minn. Þetta
var dugnaðarmaður“, sagði
gamli maðurinn. Hann tók
spilin ofan af hillunni og rétti
Hrólfi þau.
„Jæja, hvað eigum við þá
að spila, Vermundur minn?
Geta ekki stúlkurnar verið
með?“ sagði Hrólfur.
„Þær eru alltaf svo latar
við að spila, nema þá helzt
hún Friðrika. Við skulum
bara spila marías“, sagði Ver-
mundur.
Hrólfur stokkaði og gaf.
„Hvar er Jiún Sigríður mín,
fallega stúlkan, sem mér leizt
svo dæmalaust vel á. Hún sit-
ur ekki á rúminu sínu núna?“
spurði Hrólfur.
„Hún er nú gengin þér al-
gerlega úr greipum og komin
út í Höfðavík. Þú skalt ekki
hugsa um hana framar“, sagði
Vermundur.
„Fór strákskattinn með
hana?“ spurði Hrólfur og
lagði frá sér spilin.
„Hún var farin á undan
honum, svo að hún gæti tekið
á móti honum, þegar hann
kæmi“, sagði gamli maðurinn.
„Ján, nú er ég hissa. Ég hef
þó verið að gá til mannferða
undanfarið. Ég hafði nefni-
lega hug á að kveðja þau
bæði Bensa og hana. Húr, hef-
ur farið hjá að næturlagi“,
sagði Hrólfur.
„Hún sat á sleða hjá
Hannesi á Mosfelli þarna um
daginn, þegar næstum hálf
sveitin var á ferðinni út í
kaupstaðinn til þess að rífa í
sig kramið“.
„Gekk hún þá úr vistinni.
Var hún ekki vistráðið hjú?“
„Það veit ég ekkert um“,
sagði Vermundur. „Blessaður
taktu nú spilin og vertu ekki
að brjóta heilann um það. Mér
sýnast þær vera nógu margar
stúlkurnar hérna á heimilinu
til þess að þvarða hver upp í
aðra, þó að hún færi. Það er
orðið langt síðan ég hef spilað
marías“.
„Ja, því get ég trúað. Hann
hefur auðvitað ekkert kunnað
að spila strákasninn hann
Bensi. Kann sjálfsagt ekkert
annað en böðlast á sjónum,
þessi draslaragarmur. Ég skil
bara ekkert í Bjarna að hæla
þessari skepnu og segja að hér
hafi verið spilað talsvert í
vetur“.
„Það var alltaf spiluð vist
fyrir innan“, sagði Vermund-
ur.
BEER BOTTLES
The Brewers of Manitoba wish to assure the public
that old type, loag necked beer bottles will coa-
tinue to be accepted for refund up to and induding
SATURDAY, SEPTEMBER 14th,1963
These old type beer bottles may be refunded any-
where in Manitoba.
-------------X------------
Manitoba Brewers'Assodafion
/0