Lögberg-Heimskringla - 20.06.1963, Síða 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 20. JONÍ 1963
Úr borg og byggð
Síðuslu messurnar í Unitara
kirkjunni á Banning Str.,
Winnipeg, á undan sumarfrí-
dögunum fara fram á sunnu-
daginn 23. júní. Islenzk messa
kl. 7 e.h. Séra Philip M.
Pétursson prédikar. — Allir
boðnir og velkomnir.
☆
Graduales
University of Manitoba
Bachelor of Science
Ronald V. Peiluck. Parents:
Mr. Victor and Mrs. Margaret
(Bjerring) Peiluck. Mrs. Pei-
luck is the niece of Tryggvi
Bjerring of Winnipeg.
University of Alberta
— Edmonton.
Bachelor of Science with
Distinction
James Herbert Bjerring.
Parents: Kari and Barbara
Bjerring. Kari is the son of
Tryggvi Bjerring of Winni-
peg.
☆
Systkinin Guðjón Jónsson
og Hrefna Jónsdóttir frá
Keflavík á íslandi komu til
Winnipeg í fyrri viku í heim-
sókn til frændfólks síns, en
tvær móðursystur þeirra eiga
heima hér í borg, Arndis -r-
Mrs. Charles Mathison og
Sigríður — Mrs. Frank Peat-
field. Þau Mathison hjónin
dvöldu hjá frændfólki henn-
ar á íslandi í tvo mánuði
1961. Þau systkinin eiga og
tvo móðurbræður hér vestra,
Guðjón Johnson í Riverton og
Magnús Johnson í Vancouver,
en Guðjón og Sigríður kona
hans fóru í kynnisferð til ís-
lands í fyrra sumar. Þau
systkinin hafa í hyggju að
dvelja hér í landi frameftir
sumrinu; við bjóðum þau vel-
komin og væntum að þau hafi
ánægju af ferðinni.
☆
Skýrsluform fyrir þá, sem
óska þess, að upplýsingar um
ætt þeirra og uppruna geym-
ist í Vestur-íslenzkum æfi-
skrám um aldur og æfi, fæst
á skrifstofu Lögbergs-Heims-
kringlu. Spurningarnar í
skýrsluforminu eru bæði á
ensku og íslenzku.
☆
Donations to Sunrise Lut-
heran Camp.
Icelandic Goodtemplars,
Winnipeg, to the Children’s
Trust Fund, $150.00.
General Fund, Ladies Aid
Bjork, Lundar, Man. $10.00.
Mrs. Anna Magnússon,
☆
Mrs. E. F. Hall frá Vancou-
ver leit inn á skrifstofu blaðs-
ins fyrir nokkru síðan. Hún er
upphaflega frá Argyle, móðir
hennar Mrs. Sigurborg Hall-
grímsson var systir Sigurðar
Kristoferssonar, sem var einn
af fyrstu landnámsmönnun-
um í Argyle.
Biskupar Norðurlanda við
vígslu Skálholtskirkju
Biskupar frá öllum Norð-
urlöndunum koma til íslands
til að vera viðstaddir vígslu
Skálholtskirkju hinn 21. júlí
í sumar. Færeyjaprófasti hef-
ur einnig verið boðið til vígsl-
unnar, en svar hefur ekki enn
borizt frá honum.
Auk biskupanna verða fjöl-
margir aðrir gestir boðnir til
vígslunnar, einkum þeim,
sem hafa sýnt Skálholtsmál-
inu stuðning og velvilja.
Fyrir alllöngu var skipuð
nefnd til að undirbúa hátíða-
höldin. Formaður hennar er
Þórir Kr. Þórðarson, prófes-
sor, en í nefndinni eru einnig
séra Guðmundur ólafsson og
Guðmundur Benediktsson
stjórnarráðsfulltrúi.
Biskup íslands, herra Sigur-
björn Einarsson, mun vígja
kirkjuna. Þá er ákveðið að
hafa samdægurs guðáþjón-
ustu í Skálholti. Ekki er enn
að fullu gengið frá hátíðar-
dagskránni.
Sem kunnugt er hefur far-
ið fram á Norðurlöndum söfn-
un til að stofna lýðháskóla í
Skálholti. Hefur safnazt tölu-
vert fé, einkum í Noregi, en
það eru áhugamenn á Norð-
urlöndum um viðreisn Skál-
holtsstaðar sem standa fyrir
söfnuninni.
Mgbl. 29. maí.
☆
Bólusólt er í rénun,
en sífelli hættuleg
Bólusótt er sjúkdómur sem
hefur verið mjög í rénun síð-
asta áratuginn, segir forstjóri
Alþjóðaheilbrigðisstofnunar-
innar (WHO) í skýrslu sem
hann lagði fyrir ársþing henn-
ar í Genf í þessum mánuði.
Árið 1951 var vitað um kring-
um 490.000 bólusóttartilfelli í
öllum heiminum, en á fyrstu
11 mánuðum ársins 1962 voru
slík tilfelli aðeins 62.000 tals-
ins. Á árunum 1960 og 1961
kom sjúkdómurinn fram í 59
löndum, og 60 af hundraði
allra bólusóttartilfella voru í
Indlandi og Pakistan. Eftir að
hann hefur einnig nefnt til-
felli í Evrópu lýsir forstjór-
inn því yfir, að bólusótt sé
ógnun við alla lifandi menn,
meðan hún hefur ekki verið
upprætt í þeim löndum þar
sem hún er landlæg.
Civil Defence says: —
Store canned food, water
and warm clothing in cartons
NOW. These could be life-
savers ror any emergency.
Metro Civil Defence,
1767 Portage Avenue,
Winnipeg 12 — TUrner 8-2351
Sveinn Hannesson frá Eli-
vogum kvað:
Sjúkan fylla muna má
mætum gyllivonum.
Dýra snillidrós að sjá
draums í hyllingonum.
MESSUBOÐ
Fyrsla lúlerska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku: kl. 9.45 f. h
11.00 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h.
Dánarfregnir
John Finnbogason, Lang-
ruth, Man., andaðist 23. marz
1963. Hann var fæddur á ís-
landi 1892 og verzlaði í Lang-
ruth með búnaðarverkfæri
keypti fisk síðan árið
1911. Hann tók mikinn þátt í
félagsmálum byggðar sinnar.
Hann lifa kona hans Laura;
ein systir Bertha — Mrs. G. F.
Dixon í Vancouver; einn bróð-
ir, Thor í Amaranth, Man., og
sex systkinabörn. Útförin fór
fram frá lútersku kirkjunni í
Langruth; Rev. W. Bergman
frá Selkirk jarðsöng.
☆
Guðmundur Jakobson bóndi
í Arborg, Manitoba, áttræður
að aldri andaðist 9. júní. Hann
lifa kona han, Una; sex synir,
Clarence, Gestur, Ernest,
Guðmundur, Kristinn, allir í
Arborg og Óli í Ontario; fjór-
ar dætur, Jakobína — Mrs.
Gordon Gislason í Arborg,
Bergrós — Mrs. Buster Auch-
staetter í Saskatoon, Florence
— Mrs. Omer Plouffe og Bára
— Mrs. John Boundy, báðar í
Winnipeg; tuttugu og fimm
barnabörn og sautján barna-
barnabörn. Útförin var gerð
frá lútersku kirkjunni Ar-
borg.
Karl H. Bjarnason kveður:
Þegar myrkrið lamar lund
ljósi verð ég feginn
ef ég mætti stutta stund
standa sólarmegin.
Árni prófastur Þórarinsson
hafði margt að athuga við
hætti sóknarbarna sinna, sem
kunnugt er. Eitt sinn, er hann
ræddi um þetta við tengda-
föður sinn, sem var bóndi þar
í sókninni, sagði bóndi, að
bezt væri fyrir hann að flytja
af Snæfellsnesi og fá sér ann-
að prestakall. Þá svaraði séra
Árni: — Heldur þú, að Jesús
Kristur hefði gert það? Heldur
þú, að hann hefði flúið? Nei,
hann dó á krossinum.
F erðamannastr aumur inn
Yfirlit Sameinuðu þjóðanna
yfir ferðamannastrauminn
leiðir í ljós, að árið 1961 komu
9.4 milljónir ferðamanna til
ítalíu, 7.4 milljónir til Spánar,
5.8 milljónir til Frakklands,
5.3 milljónir til Sviss og 5,2
milljónir til Vestur-Þýzka-
lands. Sé ferðalögum milli
Norðurlanda innbyrðis sleppt,
kemur í liós að ferðalög Norð-
urlandabúa skiptust á eftir-
farandi hátt:
434.611 Danir heimsóttu
Vestur-Þvzkaland, 373.312 fta-
líu og 73.037 Austurríki; Enn-
fremur má nefna, að 722 Dan-
ir heimsóttu Túnis og 1332
Thaíland.
Frá Finnlandi fóru 85.191
manns til ítalíu, 51.983 til
Sovétríkianna og 11.472 til
Austurríkis.
Frá Noregi fóru 137.442
ferðamenn til ítalíu, 81.983 til
Vestur-Þýzkalands og 74.178
til Sovétríkianna. Hongkong
heimsóttu 407 Norðmenn.
Vinsælasta ferðamannaland
Svía var Vestur-Þýzkaland
með 299.325 sænska ferða-
menn. Til ítalíu fóru 299.304
Svíar, til Frakklands 92.000.
Auk þess má nefna að 10.212
Svíar heimsóttu Bandaríkin
og 10.751 Grikkland.
Gjafir í byggingarsjóð Stafholts
frá ársbyrjun til 31. maí 1963.
Eftirfarandi 27 upphæðir eru
gjafir í minningu um
Sigurjón Björnsson:
Mrs. Dagbjört Vopnfjord $ 5.00
Mrs. Dorothy Neilson 5.00
Mr. og Mrs. A. B. Salter 5.00
Mrs. Rósa Casper 5.00
Mrs. Mikka Smith 5.00
Mr. og Mrs. Ólafur Bjarna
son 5.00
Mr. og Mrs. Björn Björnson 5.00
Mr. og Mrs. M. A. Carlstrom 5.00
Mr. og Mrs. E. B. Carlstrom 5.00
Mr. og Mrs. A. M. Dobbie 5.00
Mr. og Mrs. T. Hart 5.00
Mr. og Mrs. Paul Björnsson 5.00
Mr. og Mrs. Henry Bjöms-
son 5.00
Mr. og Mrs. Dwight B.
B.jörnson 5.00
Þjóðræknisdeildin Aldan 5.00
Mr. og Mrs. G. M. Bjarna-
son og fjölskylda 20.00
Mr. og Mrs. I. Goodman, V.
W. Peden, E. Kuch og C.
Anderson 20.00
Unitara söfnuðurinn í
Blaine 15.00
Mr. og Mrs. J. Thorsteinson 5.00
Mrs. Guðfinna Stefánsson 1.00
Murice og Emily Sullivan 2.50
Mr. og Mrs. Ingi Benedict-
son 2.00
Mrs. Thorbjörg Johnson 2.00
Mrs. Herman Thordarson 2.00
Mrs. Anna Swanson 2.00
Mr. og Mrs. J. Scheving 3.00
Vistfólk og starfsfólk 8.00
í minningu um
Mrs. Thora Scully:
Mrs. Anna Swanson 5.00
Mrs. Mikka Smith 5.00
Mrs. Charles Wells 5.00
Mrs. Thora Hedberg 5.00
Mrs. Vala Anthony 5.00
Mr. og Mrs. Laugi Thor-
steinson 5.00
Vistfólk og starfsfólk 9.00
í minningu um
Mrs. Sigrún Runólfson:
Mr. og Mrs. Robert Baker 150.00
Mr. og Mrs. H. P. Forman 10.00
Mrs. Daniel Reuenzohn 10.00
Vistfólk og starfsfólk 5.00
í minningu um
Mrs. Rose Peterson:
Mr. og Mrs. Harry Tompson 10.00
Mr. og Mrs. Gerald Ives 3.00
Mr. og Mrs. Ingi Benedict-
son 2.00
í minningu um
Mrs. Lois Thompson:
Fread Aanes og fjölskylda 6.00
Mrs. Vaga Moffatt 5.00
Mrs. Ingi Benedictson 2.00
Home Demonstration Club 5.00
Vistfólk og starfsfólk 5.00
í minningu um
Mrs. Marlha Johnson:
Mrs. Cora Eyrikson, Mrs.
Carl Berg, Morit Berg og
Mr. og Mrs. Dunn 12.00
Vistfólk og starfsfólk 5.00
t minningu um
Mrs. Dottie Washburn:
Mr. og Mrs. Wesley Hart,
Robert Rubright, Ray
Foster, Clarence, Ander-
son, Norman Guðmund-
son og Pete Harmon 9.00
t minningu um
Nellie Woodhull:
Mrs. R. S. Peterson 3.00
t minningu um
Mrs. Óskar Tom:
Vistfólk go starfsfólk 5.00
í minningu um
Mrs. Verna Westford:
Mrs. Anna Swanson 5.00
í minningu um
Mrs. Helgu Sölvason:
Mr. og Mrs. Ross Chambers,
Solvi Tompson 50.00
t minningu um
Bernith Williamson:
Dorothie Nielson 5.00
Aðrar gjafir:
Hannes Teitson 25.00
Kvennfélagið Eining
Seattle 200.00
Mrs. Herman Thordarson 100.00
Mr. og Mrs. H. C. Karason 100.00
W. Ray Evens 10.00
Mr. og Mrs. W. A. Gorje 10.00
Mrs. J. N. Jakobsen 5.00
Mrs. Roberta Gustafson 7.00
Wally Vopnfjord 10.00
Kvennfélagið Freyja 50.00
Mr. og Mrs. R. Björnson 20.00
í minningu um
Oddrún Bjarnason:
Ólafur og Kjartan Bjarna-
son 100.00
Fyrir allar þessar gjafir vottar
stjórnarnefndin þessum vinum
Stafholts sínar beztu þakkir, og
óskar þeim öllum gæfu og gengis.
í umboði nefndarinnar
A. E. Kristjánsson.
PROVINCE OF MANITOBA
9
THE TOBACCO TAX ACT
All tobacco retailers and wholesalers in Manitoba
are required to be licenced under The Tobacco Tax Act.
It will be unlawful to sell tobacco without a licence after
the Act comes into force.
Dealers not yet registered should apply immediately.
Application forms are available from wholesalers or
The Taxation Division, Provincial Treasury Department,
Winnipeg.
NO FEE IS REQUIRED FOR A LICENCE