Lögberg-Heimskringla - 17.10.1963, Qupperneq 1
Högberg - ® rintékringla
StofnaS 14. ian.. 1888 StofnuS 9. «apt., 1886
77. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 17. QKTÓBER 1963 NÚMER 39
Dr. Tryggvi J. Oleson Íátinn
Afmæli á Höfn
Fréttin um andlát 'þessa
ágæta og merka manns á mið-
vikudaginn 9. október var
vinum hans sem reiðarslag,
þá setti hljóða. Hér var
skyndilega horfinn af sjónar-
sviðinu, langt um aldur fram,
einn úr hópi okkar Vestur-
íslendinga er hvað mest hafði
varpað ljóma á ættstofn sinn,
Dr. Tryggvi J. Oleson
sem kennari og sagnfræðing-
ur.
Þótt hann væri aðeins 51
árs að aldri hafði hann af-
kastað svo miklu ævistarfi að
undrun vekur. Hann skrifaðá
fjórðu og fimmtu bindin af
Sögu íslendinga í Vesturheimi
og tveim bókum sagnfræði-
legs efnis lauk hann á síðustu
tveim árum.
Tryggvi J. Oleson var yfir-
lætislaus fræðimaður, er vann
störf sín í kyrrþey, en orð-
stír hans fór vaxandi með ári
hverju. Rétt nýlega þáði
hann boð frá háskóla í Cali-
forriia að flytja þar fyrirlest-
ur. Þótt hann væri ávalt mikl-
um önnum kafinn tók hann
sæti í ritnefnd Lögbergs-
Heimskringlu og ritaði fyrir
blaðið þegar til hans var leit-
að. Síðasta grein hans birtist
í blaðinu 26. sept. s.l. Myths
and More Myths og sagði
hann þá við ritstjórann, „Nú
er farið að hægjast um fyrir
mér og skal ég nú oftar hugsa
til blaðsins." Dr. Tryggva
máttum við sízt missa.
Við vottum konu hans og
börnum, móður hans og syst-
kinum innilega samúð í þeim
þunga harmi sem nú hefir
svo óvænt verið að þeim
kveðinn. Tryggðavinur hans
próf. Haraldur Bessason mun
skrifa um hann nánar í næsta
blaði.
Hér fylgir ritstjórnargrein
er birtist í Winnipeg Free
Press:
Tryggvi J. Oleson
Not only the university
community in which he
taught and the Icelandic com-
munity of whidh he was a
part will mourn the untimely
death of Dr. Tryggvi J. Ole-
son which occurred in Winni-
peg on Wednesday. His is a
loss that makes poorer the
community in its entirety.
A quiet, self-effacing man,
Pfofessor Oleson was not one
to be brought easily to public
notice; yet over the years he
built up for himself a reputa-
tion for sound schylarship and
won the respect of all who
came within the orbit og his
influence. In a busy teacbing
life he still found time for re-
7. oklóber 1963
Hér með sendi- ég fréttir
frá Los Angeles um daginn
og veginn. Satt að segja erum
við rétt bráðnuð eftir ofsa
hita í daga og vikur, en þetta
eru mestu hitar sem að sögur
fara af hér. Það eru nokkuð
mörg nöfnin eins og áður én
þó eru það aðeins nöfn gest-
anna, en þetta nýja fólk er
sem lífgjafi fyrir hina hálf-
týndu Islendinga í Los
Angeles.
Islendingar hér höfðu sína
árlegu útisamkomu í Ingle-
wood sunnudaginn 6. þ.m. Kl.
um 3 e.h. voru þar saman-
komin á annað hundrað
manns á grænum bölunum í
hinum fgara garði, bar þar
mjög á ljóshærðum börnum
og ungmennum. Sjóðandi
kaffi og ískaldir drykkir voru
veitt ókeypis. Veðrið var dá-
samlegt, en anð undanförnu
höfum við haft steikjandi hita,
hina mestu í manna minnum,
sem að ollu tjóni á mönnum
og málleysingjum.
Undantekningarlaust eru
ætíð góðir gestir á samkom-
um okkar, en í þetta sinn
voru fleiri en venjulega. Frá
íslandi voru t.d. Karvel Ög-
mundsson hreppstjóri frá
Njarðvík, dvelur hann hér
hjá syni sínum. Þá var þar
Jóhanna Guðmundsdóttir frá
Reykjavík og verður hér í
lengri tíma hjá Erlu Beringer
dóttur sinni. Jónatan Hall-
varðarson dómari hæstaréttar
í Reykjavík, er hann í boði
U.S. og búinn að fara mjög
víða, nú á heimleið, en með
honum voru Bergljót dóttir
hans og maður hennar Jón
Sigurðsson ásamt þremur
börnum þeirra, Rósu, Sigurði
og Lilju Sigrúnu. Jón Sigurðs-
son er deildarstjóri i atvinnu-
search and historical writing,
and his achievements in the
latter field will leave his
country permanently in his
debt.
He completed his most re-
cent — and possibly his most
controversial—book only last
spring. The second in the Can-
adian Centenary Series, being
brought out by McClelland
and Stewart, it bears the title,
The Early Voyages and
Northern Approaches, 860 -
1632. It is scheduled for
publication next month. The
sadness that attends his death
is made doubly sad by the
thought that his satisfaction
in writing it will not be ac-
companied by the pleasure of
seeing it in print.
ráðuneytinu, en verður hér í
eitt ár að U.S.C. í Los Angeles
og nýtur Fullbright náms-
styrks og leggur stund á
stjórnsýslu. Frá Costa Mesa
var María Brodwell með
tveimur sonum sínum, með
henni var systir hennar Dóra
Hall frá Reykjavík og tveir
synir Þórir og Hrafnkell
(Kelly), eru systur þessar
Þorvaldsdætur úr Hafnar-
firði og systur Herdísar leik-
konu. Þrjár blómarósir frá
Reykjavík, Björk Isleifsdóttir,
Þórdís Guðlaugsdóttir og
Unnur Sigurðardóttir. Þetta
var góður og eftirminnilegur
dagur.
Hér vóru nýlega á ferð
fjórir ungir menn frá íslandi,
vóru þeir í 8 vikna leiðangri
í boði U.S. Nöfn þeirra eru
Ásgeir Sigurðsson frá Birt-
ingaholti, Þór Whitehead, en
hann er fjórði ættliður frá
Árna Nikulássyni rakara í
Reykjavík. Sigmar Sævalda-
son og Björn Pálsson. Hugi og
María Peterson buðu um 30
manns til þess að kynnast
þeim, létu þeir í Ijósi ánægju
sína yfir því að hafa haft
tækifæri að kynnast Islend-
ingum hér og njóta gestrisni
þeirra. •
Um miðjan ágúst þ. árs
voru gefin saman í hjóna-
band í Las Vegas, Nev., Gary
J. McDonnell og Þóra Matt-
híasson, dóttir Árna Matt-
híássonar í Inglewood. Heimili
hinna ungu og glæsilegu
hjóna verður í Califomia, en
Gary stundar nám við æðri
mennta stofnun.
Laugardaginn 5. okt. s.l.
fór fram hin árlega Leifs
Erikssonar samkoma í Los
Angeles Breakfast Club í Los
Angeles. Þar var margt til
skemmtunar, söngvar, ræðu-
Sunnudaginn 6. okt. síðast-
iðin var fagurt veður hér í
Vancouver, hita sólskin eins
og um há sumar. Eins og
gjörist um þetta leyti árs þá
skiftir skógurinn um lit, lauf-
in verða rauð og gul, og eik-
ur það á fegurð náttúrunnar.
Og nú stóð mikið til hér á
elliheimilinu „Höfn“ — því
þennan dag voru liðin 16 ár
frá því að þessi vinsæla
stofnun var sett á fót. Stjórn-
arnefnd heimilisins sendi því
boðsbréf til allra Islendinga,
til að koma að Höfn, og halda
upp á daginn. Fyrir klukkan
tvö var allt til reiðu, heimilið
hreint og glansandi, og heim-
ilisfólkið spariklætt. Fjöldi
gesta var saman komið. Stutt
prógram fór fram í aðalsal
heimilisins. Mr. J. S. Johnson,
forseti stjórnarnefndarinnar
bauð gesti velkomna og flutti
ávarp. Skýrði hann frá því að
nú væri afráðið að ljúka við
herbergin á neðri hæðinni
sem væru enn ekki fullgjörð
og mundi verða byrjað á því
verki nú þegar. Vancouver
Icel. Male Choir söng nokkur
lög, og Mrs. Anna McLeod
söng solos — og var hvort-
tveggía áheyrendum til á-
nægju. Mr. Snorri Gunnar-
son forseti „Strandar“, deild
Þjóðræknisfélags Islendinga,
flutti ávarp og afhenti bóka-
safn „Strandar" sem gjöf til
„Hafnar“ heimilisins. Mr.
Bjarni Kolbeins flutti einnig
ávarp og tilkynnti að hann
væri með gjöf — um eða yfir
60 bækur, sem bókaverzlanir
á Islandi sendu Höfn með
vinar kveðju. Bjarni kom
með bækurnar meíl sér þegar
hann kom heim úr íslands-
ferðinni, en C.P.A. flutti þær
kostnaðarlaust. Var þessum
bókagjöfum fagnað með þakk-
læti. Þá sungu allir „Hvað er
svo glatt, sem góðra vina
fundur“. Að prógraminu
höld og dansað til kl. 1 um
nóttina. Islendingar hafa
lengi verið með í þessum
félagsskap, enda sennilega
þar sjálfsagðir.
í Seattle dvelur árlangt hin
glæsilega Berglind Andrés-
dóttir frá Reykjavík, dóttir
Andrésar Andréssonar klæð-
skerameistara. Berglind er í
boði Dr. og Mrs. Thomas
Wallace í Seattle, en læknis-
hjón þessi voru á Islandi s.l.
sumar. Mrs. Wallace var
áður Sophie Olafsson og nær-
skyld Andrési. Sérstaklega
leggur Berglind stund á ensku
og píanóspil o. fl.
Skúli G. Bjarnason.
loknu kom sá þátturinn sem
mér fynnst svo mikils virði —
að fólki gefst tækifæri til að
heilsast, og spjalla saman um
daginn og veginn, og styrkja
vinabönd og tengsli. Og þá
var líka gaman að koma í
neðri salin, þar sem „Sól-
skins“ konur gáfu öllum gott
kaffi og brauð — rúgbrauð
með rúllupylsu, pönnukökur
og kleinur, vínartertur og
ótal fínar kökur. Þetta var
vissulega gleðidagur á Höfn,
að finna þá einlægu vinsemd
og kærleik sem var auðsýni-
leg hjá vina hópnum, og af
þeim gjöfum sem heimilinu
barst.
Mrs. Thorson segjir: Stjórn-
arnefnd Hafnar hefur mælst
til þess, að ef einhverjir Is-
lendingar óskuðu eftir inn-
göngu á Höfn, þá verður pláss
fyrir 18 manns, þegar her-
bergin eru tilbúin, 6 eins
manns herbergi og 6 fyrir
tvo menn eða konur hvort.
Væri æskilegt að beðið væri
um inngöngu sem fyrst, því
að nefndin vonast til að fá
íslenzkt fólk ef hægt væri.
En ef ekki, þá verða teknir
aðrir þjóðflokkar, því her-
bergin mega ekki standa tóm.
Allar upplýsingar þessu við-
víkjandi geta fengist hjá Mrs.
Emily Thorson, 1065 W. llth
Ave., Vancouver, B.C.
G. Jóhannesson.
Hljómplötukynning
Fálkans
Fálkinn h.f. í Reykjavík
hefir um allmörg undanfarin
ár rekið umfangsmikla upp-
töku- og útgáfustarfsemi ís-
lenzkra hljómplatna. Mjög
mörg íslenzk tónverk eru
þannig orðin aðgengileg öll-
um almenningi, og flestir
þekktustu tónlistarmenn þjóð-
arinnar koma fram á þessum
plötum, en þær eru gefnar út
í samvinnu við hin heims-
þekktu plötufyrirtæki „His
Master’s Voice“ og „Odeon“.
Á plötunni „Gullöld ís-
lenzkra söngvara" koma fram
þessir listamenn: Pétur Á.
Jónsson, Stefán Islandi, María
Markan, Einar Kristjánsson,
og er söngur þeirra allra tek-
inn af eldri plötum; enn-
fremur Magnús Jónsson, Guð-
mundur Jónsson, Kristinn
Hallson, Guðrún Á. Símonar
og Sigurveig Hjaltested.
Upptökur þeirra eru segul-
bandsupptökur og nýrri en
hinar fyrrnefndu. — Á plöt-
unni „ísland í. tónum“ er
bæði úrval af því bezta, sem
karlakórinn Fóstbræður hefir
áður sungið á plötur, og
Framhald á bls. 2.
Frá Los Angeles