Lögberg-Heimskringla - 17.10.1963, Side 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 17. OKTÓBER 1963
3
Litíð um öxl
Úldrællir úr Lögbergi og Heimskringlu
frá fyrri árum
Valið hefir
Dr. Þorvaldur Johnson
Úr Heimskringlu,
15. oklóber 1903:
Markverð kona.
Réri til fiskjar í 40 ár, og
fór í 18 hákarlalegur.
. . . Kona þessi, sem hér er
látin ónefnd eftir beiðni, er
ættuð frá Ögri í Helgafells-
sveit í Snæfellsnessýslu, nú
59 ára gömul, en þó eins ung?
leg og hraust eins og hún
væri aðeins fertug að aldri...
Innan fermingaraldur var
hún látin róa til fiskjar á
Breiðafirði, og tók þá strax
fullan hlut, sem aðrir full-
gildir hásetar. Síðar fór hún í
vinnumennsku og vann hjá
helztu mönnum í Stykkis-
hólmi, svo sem Richter kaup-
manni, séra Eiríki Kuld og
Guðmundi á Þingvöllum . . .
Séra Eiríkur galt henni í kaup
3V2 vættir á landsvísu, eða
rúmar 40 krónur um árið. En
Guðmundur á Þingvöllum
galt henni 36 krónur; hjá hon-
um var hún í sex ár og réri til
fiskjar haust og vor. Vann
honum fullan hlut fiskjar eins
og karlmenn, en fékk þó að-
eins hálft kaup á móts við þá.
Hún má heita að hafa alið
aldur sinn á sjónum, því að
um 40 ára tímabil réri hún
til fiskjar haust' og vor, og
alstaðar bar vinna hennar
sama árangur—heilan hlut
mót hálfu kaupi. Auk þessa
fór hún 1 18 hákarlalegur,
allar í opnum áttæring, og
margar þeirra um hávetrar-
tíma. Tíu af þessum legum
fór hún á eigin reikning.
. . . Eins og margt annað
fólk á íslandi hafði hún lesið
vestanblöðin á síðari árum og
langaði til að komast til
Ameríku. En árangurinn af
æfistritrinu á ættjörðinni
varð ekki meiri en svo að hún
átti ekki í fargjald sitt. Ætt-
fólk hennar í Winnipeg, sem
er vel statt, sendi henni far-
gjald og á því kom hún svo
vestur í sumar, og býr nú hjá
því í góðu yfirlæti. . .
Gat aldrei lesið Faðiryorið
Skógargerði, 4. ágúst 1963
Kæra frú Ingibjörg.
Eins og þú sérð leiddist mér
að sjá Faðirvorið í blaðinu
þínu. Þar sem það rifjaði líka
upp gamalt litið æfintýri, þá
greip ég penna, sem ég fæ þó
illa stírt og skráði þetta, sem
ég sendi þér. Ég vona að þú
reiðist mér ekki, og auðvitað
ræður þú, hvort þú birtir
þetta djásn í blaðinu.
Berðu nafna mínum kveðju
og Ríkarði Beck ef þú hittir
hann.
Veitist jafnan gæfu og gengi
góðum Vestur-lslendingum
Þeirra hróður lengi lengi
lifir vel á enskum þingum.
Verið öll blessuð og sæl.
Gísli Helgason.
* * *
Ég þakka Gísla fyrir bréfið
og greinina, sem ýmissra or-
saka vegna var ekki hægt að
birta fyrr en nú. Fréttirnar í
bréfinu voru úreltar og sleppi
ég þeim — I.J.
Gal aldrei lesið Faðirvorið
Þegar ég las þessa frásögu
í ykkar ágæta blaði rifjaðist
upp fyrir mér atvik frá veru
minni í Möðruvallaskóla vet-
urinn 1900—1901.
Það var siður Hjaltalíns
skólastjóra að lesa bænir
laust fyrir klukkan 9 á hverju
kvöldi í efribekkjarstofu
skólans, en að þeim loknum
kl. 9 skildi farið að hátta, og
haldið upp í svefnloftin, en
ljósin slökkt niðri.
Brátt fóru neðribekkingar
að slá slöku við að hlýða á
bænir, en sátu kyrrir við
lestur eða skriftir, enda var
ekki að þessu fundið. Ég var
meðal þeirra, sem fyrstir
hættu að hlýða á bænirnar.
Svo var það eitt kvöld, að
ég var að skrifa meðan bæn-
ir voru lesnar hinu megin við
þilið. Þegar ég heyri að tekið
er að lesa Faðir vor, segi ég.
Nú er víst bezt að hætta þessu
kallirm er farinn að lesa
Faðirvorið. Við hlið mér sat
Vestfirðingur, sem tók mig
þegar á orðinu. Segirðu Faðir-
vorið spyr hann. Já, ég kvaðst
ósmeikur við það, þetta væri
algengt orð á Austurlandi, og
sennilega mikið víðar, nema
þá líklega ekki á Vestfjörð-
um.
Nú lentu margir í þessa
deilu, og minnir mig að fáir
fordæma Faðirvorið nema
Vestfirðingar, sem vildu hafa
kvennkynsgreinir eða Faðir-
vorin. Bænin væri kvennkyns.
Næsta dag var svo þetta
mikla vanda- og deilumál
lagt fyrir Hjaltalín íslenzku-
kennarann.
Hann kvað réttast að bænin
Faðir vor væri greinislaus.
Ég minnist nú ekki að hafa
séð Faðirvorið á prenti ný-
lega, en það mun ekki horfið
enn úr mæltu máli alþýðu
manna.
Off. SP 2-9509—SP 2-9500
Res. SP 4-6753
OPPOSITE MATERNITY HOSPITAL
Nell’s Flower Shop
700 NOTRE DAME
Wedding Bouquets - Cut Flowers
Funeral Designs - Corsoges
Bedding Plants
S. L. Stefanson—JU 6-7229
Mrs. Albert J. Johnson
ICELANDIC SPOKEN
Lennett Motor Service
Operated by MICKEY LENNETT
IMPERIAL ESSO PRODUCTS
Hargrave & Bannatyne
WINNIPEG 2, MAN.
PHONE WHiteholl 3-8157
Crown Trust Company
Executors and Trustees since 1897
offering a full range of personal and
corporate trust services to Clients. We
invite you to call or write us today.
No obligation.
364 Main Street
WH 3-3556
C. R. VINCENT, J. A. WAKE,
Manager. Estates Manager.
Mundy’s Barber Shop
1116 Portage Avenue
G. J. JOHNSON, Manager
4 BARBERS
Bezta og vinsælasta rakara-
stofan í Winnipeg
ASGEIRSON
Paints & Wallpapers Ltd.
696 SARGENT AVE.
Builders' Hardware, Paints,
Varnishes, Wallpapers
SU 3-5967—Phones—SU 3-4322
Benjaminson
Construction Co. Ltd.
911 Corydon Avenue
GR 5-0498
GENERAL CONTRACTORS
Residential ond Commercial
E. BENJAMINSON, Monoger
VIÐ KVIÐSLITI
Þjáir kviðslit yður? Fullkomin
lækning og vellíðan. Nýjustu að-
ferðir. Engin teygjubönd eða viðj-
ar af neinu tagi.
Skrifið SMITH MFG. Company
Depi. 234, Preston, Ont.
ROSE THEATRE
SARGENT ot ARLINGTON
AIRCONDITIONED
CHANGE OF PROGRAM
EVERY FOUR DAYS
Foto-Nite Every
Tuesday and Wednesday
SPECIAL
CHILDREN'S MATINEE
Every Saturday
Why nol visii ICELAND
now?
ALL-WAYS Travel Bureau
Ltd., 315 Hargrave Street,
Winnipeg 2, Man., WHitehalí
2-2535, is the recognized Agent
of all steamship- and airlines,
including Icelandic Airlines,
and has assisted more Iceland-
ers in Manitoba with their
travel arrangements than any
other travel agent.
Mr. P. E. Salomonsen and Mr.
A. A. Anderson, both Scandi-
navians, will render you every
assistance in connection with
your travel, in an endeavour
to have your trip as comfort-
able and pleasant, yet in-
expensive, as possible.
Consult
ALL-WAYS Travel
Bureau Ltd.
315 Hargrave Street,
Winnipeg 2, Man.
WHitehall 2-2535
— Business and Professional Cards —