Lögberg-Heimskringla - 17.10.1963, Page 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 17. OKTÓBER 1963
Úr borg og byggð
Pumpkin Tea on October
24th in the auditorum of the
Parish Hall, First Lutheran
Church from 2 to 5 in the
afternoon and from 7 to 10 in
the evening. Conveners: Mrs.
W. G. Johnson and Mrs. C. G.
Anderson. Sale of candies,
handicraft and homecooking,
also candles. Sponsored by
the Dorcas Society of the
First Lutheran Church.
☆
Small family r e q u i r e s
pleasant person for general
housework. A friendly happy
home for the right person.
Private room, all modern
conveniences. Apply Mrs.
Linhart, 932 Renfrew Bay,
Winnipeg.
☆
Betel Building Fund
The publishers of Lögberg-
Heimskringla, 303 Kennedy
St., $10.00 — In memory of
Tryggvi J. Oleson.
Meðtekið með þakklæti
K. W. Johannson,
féhirðir byggingarsjóðsins.
☆
Rummage Sale sþonsored
by Catholic Womens’ League
at St. Mary’s School, Corner
St. Mary Ave. and Hargrave.
Friday night, October 18,
1963, 6 p.m. to 9 p.m. Satur-
day morning, October 19,
1963 9 a.m. to 1 p.m. — Free
parking in school yard.
☆
Vegna óvenju mikilla aug-
lýsinga í þessu blaði varð all-
mikið af settu lesefni að bíða
næsta blaðs, dánarfregnir,
gullbrúðkaup og fl.
☆
Fyrsti fundur Icelandic
Canadian Club
Ef óskadraumnum tókst
ekki að rætast og ekkert varð
af ferðinni til Islands í
sumar, þá væri reynandi að
bregða undir sig töfrateppinu
og skokka á fyrsta fund Ice-
landic Canadian Club sem
haldinn verður þriðjudags-
kvöldið 22. október, kl. 8.15 í
Parish Hall Fyrstu lútersku
kirkju. Skjótt mun teppið
væna svífa af stað með mann,
þá sezt verður á fundinum.
Þar munu þrír menn úr
stóra hópnum er gerðu reisu
til íslands í sumar rifja upp
minningar frá ferðinni.
J. T. Beck segir frá ferðum
sínum um sveitir og þorp
landsins og viðhorfi öllu eins
og það kom honum fyrir
sjónir.
W. J. Lindal, dómari, hefir
orðið um Háskóla íslands og
mun fara nokkuð út í hugar-
þel aðstandenda hans til Vest-
ur-lslendinga og tengsl við
menningarmál vestra.
Þá tekur til máls John
Laxdal, kennari, og fer nokkr-
um orðum um dagblöðin í
Reykjavík og hvernig þau
fögnuðu gestahópnum úr vest-
urátt, sem sagður er að hafi
verið hinn stærsti síðan út-
lagarnir gerðu heimreið yfir
hafið til að vera við alþingis-
hátíðina frægu 1930.
Kaffi og kræsingar verða
auðvitað bornar gestum í
fundarlok. Allir vita hvar
Parish Hall stendur á Victor
St., rétt fyrir sunnan Sargent
Ave. Fjölmennið þið nú,
blessaðir landar, því hér verð-
ur frá mörgu sagt. — C.G.
☆
Karl Grímson
1871 — 1963
Karl Grímson var fæddur
á Islandi 1871.
Níu ára að aldri fluttist
hann til Minnesota með móð-
ur sinni og tveimur systkin-
um.
Sjötta desember 1895
kvæntist hann Kristínu Rósu
Sigurpálsdóttur.
Bjuggu þau nokkur ár í ís-
lendinga byggðum í Norður
Dakota en fluttu um aldamót
til Raymönd, Washington.
Árið 1911 fluttu þau til Ed-
monton og 1917 festu þau
kaup á landi i Wynyard
byggð. Fluttu þau inn í bæinn
Wynyard 1948. Þar dó Kristín
og fór þá Karl til sonar síns,
en síðasta árið var hann á
elliheimilinu í Wynyard
„Golden Acres“. Eignuðust
þau Kristín og Karl fimm
börn, fjórar stúlkur og einn
dreng.
Eftirl'ifandi börn þeirra eru,
Rose gift P. A. Peters í Cali-
fornia, Olive gift G. D. Alair,
Victoria, B.C., Lillian í Cali-
fornia og Walter í Wynyard.
Karl var skýrleiksmaður,
svo stálminnugur að hann
mundi nöfn á bæjum og gat
lýst landslagi á íslandi, sem
hann yfirgaf 9 ára. Og fólki,
sem hann hitti einu sinni
gleymd'i hann svo að segja
aldrei. En vinir hans minnast
hans fyrst og fremst fyrir
hina einstæðu ljúfmennsku.
Gerði hann gott úr öllu og
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
A ensku: kl. 9.45 f. h
11.00 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h.
aldrei skyldi maður heyra
hann hallmæla nokkrum
manni þó hans lífskjör væru
erfið sérstaklega í æsku (11
ára byrjaði hann að vinna) þá
lét hann það ekki á sig fá. Var
hann jafnan glaðlegur og
spaugsamur. Enda spurðu
dætur hans í sumar sem leið
þegar þær sáu hve honum
var að hnigna, „Has he still
his wonderful sense of
humor?“
Hann dó 10. ágúst tveimur
dögum fyrir 92 ára afmælið,
þegar maður nær svo háum
aldri er dauðinn ekki sorgar-
efni. En Karl hélt svo fullum
sálarkröftum alveg fram í
andlátið en söknuðurinn í bili
er sá sami eins og þó yngri
væri.
Viljum við vinir hans í
Wynyard þakka honum fyrir
trygga vináttu og margar
glaðar og góðar stundir sem
við áttum með honum.
J. D. Johnson.
Þjóðræknissamkoma í
Brown Manitoba
Stjórnarnefnd Þjóðræknis-
félagsins hefir nú séð um að
allar deildir félagsins í Mani-
toba hafa verið heimsóttar og
ýmsir nefndarmenn hafa
skemmt þar á samkomum. í
haust er leið var farið til Sel-
kirk, Gimli, Arborg og Lund-
ar, og einnig Fróns samkoma
haldin í Winnipeg. Hafa dr.
Beck, frú hans, og Hólmfríður
Danielson skemmt á öllum
þessum samkomum; prófessor
Haraldur Bessason á flestum
þeirra og séra P. M. Péturs-
son, núverandi forseti, hefir
verið nokkrum sinnum með í
förinni og flutt erindi.
Laugardaginn 5. okt. var
farið til Morden, í ljómandi
sumardags blíðu; og voru í
förinni dr. og Mrs. Beck, próf.
Haraldur Bessason, Hólmfríð-
ur Danielson og J. T. Beck.
Staðnæmst var hjá systrun-
um frú Lovísu Gíslason og frú
Pálínu Sigurdson þar sem
fínustu rjúkandi réttir biðu
gestanna, og var þeim gerð
góð skil. Síðan var farið til
Brown, um fimmtán mílur s.-
vestur frá' Morden, þar sem
ísl. félagshúsið er. Isl. byggð-
in í Brown er nú orðin mjög
strjál og hefir víst öll byggð-
in sótt samkomuna, því þar
voru yfir sextíu manns.
Ungur maður, Olafur Lin-
dal, forseti „Islands" deildar,
setti samkomuna á ágætri ís-
lenzku og kallaði á J. G. John-
son til að kynna gestina. Dr.
Beck og próf. Bessason fluttu
mjög skemmtileg ávörp; frú
Margrét Beck sýndi og skýrði
fallegar litmyndir frá íslandi;
frú Hólmfríður skemmti vel
að vanda með upplestri á ísl.
og ensku. Las hún „Vöku-
maður“ eftir Davíð Stefáns-
son, grínkvæði eftir Guttorm,
og ákaflega hlægilega grein á
ensku sem fjallaði um „The
,Hot Line‘ to Moscow." Inn á
milli skemmtu allir sér með
söng, og spilaði frú Lovísa
listilega undir. Einnig flutti
hún stutta tölu um ferðina til
Islands í sumar og flutti
kveðjur frá ýmsum.
Endaði svo allt með ágæt-
um kaffiveitingum sem kon-
urnar báru fram með sinni
venjulegu rausn. Komið var
aftur til Winnipeg um klukk-
an tvö um nóttina og þar beið
frú Ása Bessason með heitt
kaffi á hinu prýðilega nýja
heimili þeirra hjóna, að 84
Triton Bay í St. Vital.
WARD 2
FOR SCHOOL BOARD
Re-elect
ANDREW
MOORE
He Supports:
• Sound Educational
Standards.
• Sounded phonics in
primary reading.
• The best welfare of all
children.
EXPEHIENCE DOES
COUNT
Give your second choice to
Mrs. Agnes McGavin.
MOORE, Andrew | I~|
AUGLÝSING
um innköllun hlutabréfa í H.f.
Eimskipafélagi íslands og útgáfu
jöfnunarhlutabréfa
Aðalfundur H.f. Eimskipafélags Islands 2. júní 1962
samþykkti að nota heimild þá, sem veitt er í D-lið laga nr.
70, 28. apríl 1962 um tekju- og eignarskatt, um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa, og á aukafundi félagsins 29. desember
1962 var þessi samþykkt endanlega staðfest, og samþykktum
félagsins jafnfram breytt í samræmi við þessa ákvörðun.
Með skírskotun til samþykktar þessarar, tilkynnist
hluthöfum félagsins hérmeð, að innköllun hlutabréfanna
er nú hafin, og vestanhafs verður henni hagað í aðalatriðum
á þann hátt sem hér segir:
Hlutabréfin ásamt stofnum af arðmiðaörkum skulu af-
hent hr. Árna G. Eggertson, 209 Bank of Nova Scotia Bldg.,
Portage Avenue and Garry Street, Winnipeg 1, Man. (Ekki
,er nóg að afhenda eða senda stofninn af arðmiðaörkinni
einan, heldur verður að afhenda sjálft hlutabréfið).
Þeir hluthafar, sem ekki geta komið því við, að senda
hr. Árna G. Eggertson hlutabréf sín, geta sent honum þau í
ábyrgðarpósti, og sendir hann hlutabréfin síðan áfram til
aðalskrifstofu Eimskipafélagsins í Reykjavík.
Með því að hlutabréfin eru nafnskráð, er nauðsynlegt að
skrifa á bakhlið þeirra greinilegt nafn og heimilisfang þess,
sem hlutabréfin skulu nafnskráð á. Hafi orðið eigendaskipti á
hlutabréfi. skal útfyllt sérstakt eyðublað með tilkynningu
um eigendaskiptin. Eyðublöð þessi má fá hjá hr. Árna G.
Eggertson.
Hluthafar fá kvittun fyrir þeim hlutabréfum, sem þeir
afhenda eða senda hr. Árna G. Eggertson. og verða hin nýju
hlutabréf síðan gefin út og send hluthöfum í ábyrgðarpósti
beint frá skrifstofu Eimskipafélagsins í Reykjavík.
Sé um að ræða mörg hlutabréf í eigu sama hluthafa,
verður aðalreglan sú, að þau verða sameinuð í stærri hluta-
bréfum, nema sérstaklega sé óskað að það verði ekki gert.
Ef um er að ræða skipti á stærri hlutabréfum t.d. milli
erfingja, verða gefin út smærri hlutabréf sé þess óskað, en
"þó eigi minna en 250 kr., sem er nafnverð minnstu hluta-
bréfanna. Ef hluthafar óska af einhverium ástæðum að halda
sínum gömlu hlutabréfum, skal það sérstaklega tekið fram
þegar hlutabréfin eru afhent eða send, en nauðsynlegt er að
afhenda félaginu þau, svo hægt sé að stimpla þau með
ógildingarstimpli, áður en þau eru send hluthafa aftur.
Nú hefur hlutabréf glatast eða eyðilagst á einhvern
hátt, og skal það þá tilkynnt hr. Árna G. Eggertson. Eyðu-
blöð fyrir slíkar tilkynningar má fá hjá honum. — Um út-
gáfu nýrra hlutabréfa í stað glataðra og skemmdra fer eftir
ákvæðum 5. gr. félagssamþykktanna.
Reykjavík, 12. júlí 1963,
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS