Lögberg-Heimskringla - 21.11.1963, Blaðsíða 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 21. NÓVEMBER 1963
3
Fréttir frá íslandi
— Business and Professional Cards —
Goodman And Kojima Electric
ELECTRICAL CONTRACTORS
Canadian Fish Producers Ltd.
J. H. PAGE, Manoging Diractor
Framhald frá bls. 2.
Katalína-flugbátar frá danska
flughernum og lítil einkaflug-
vél. Með flugskýlinu brunnu
flugturninn, sem var byggður
við það, viðgerðarverkstæði,
varahlutir o. fl. og er því erf-
itt um vik á flugstöðinni í
Narssassuaq. Örn Johnson,
forstjóri Flugfélags Islands,
tjáði Mbl. í gær, að F.í. hefði
boðið leigutaka Sólfaxa,
dönsku Grænlandsverzlun-
inni, að hin Skymastervél fé-
lagsins, Straumfaxi, reyndi að
anna einhverju af verkefnum
Sólfaxa, og er afráðið að
Straumfaxi fari í tvær ferðir
til Grænlands í næstu viku.
Mgbl. 25. okt.
☆
Norlhern Spray strandar
Tvær tilraunir voru gerðar
í gær, til þess að ná brezka
togaranum Northern Spray á
flot, en hann strandaði undan
Grænuhlíð í ísafjarðardjúpi í
fyrrakvöld, eins og frá var
skýrt í Mbl. í gær. Reyndi
Óðinn tvívegis að draga hann
á flot, en dráttartaugin slitn-
aði í bæði skiptin. Mun nú
talið vonlaust að bjarga skip-
inu, enda er það gamalt og
þolir 'illa veltinginn á sker-
inu, sem það strandaði á. Þar
vegur það salt. Verða dælurn-
ar fluttar úr skipinu með
birtingu í dag, svo og önnur
verðmæti. Eru allar horfur á
því, að skipið beri beinin
þarna, en það hefur lengi
stundað veiðar við ísland.
T.d. tvístrandaði það við ísa-
fjarðarkaupstað í desember
1950, og í júní 1961 reyndi það
nokkrum sinnum að sigla á
Óðin — sama skipið og nú
bjargar áhöfn þess.
Mgbl. 25 okt.
☆
Slarfsliði fækkað
Tilkynning frá yfirmanni
flotastöðvarinnar á Keflavík-
urflugvelli, S. E. Ellison,
skýrir frá fyrirhugaðri fækk-
un starfsfólks varnarstöðvar-
innar. Ástæður eru þær, að
fjárveiting til flotans hefur
verið skorin niður um 28 millj.
dollara. Um 100 íslenzkum og
um 30 bandarískum borgur-
um mun verða sagt upp á
næstunni.
Mgbl. 25. okt.
☆
Yfirgangur Rússa
Neskaupstað, 29. okt. — Vél-
báturinn Gullfaxi kom hing-
að í dag með um 100 tunnur
af Síld, sem hann veiddi 80
mílur suð-austur af Norð-
fjarðarhorni.
1 viðtali, sem fréttaritarinn
átti við skipstjórann, Þorleif
Jónasson, sagði hann frá því,
að á 90 mílum suð-austur af
Norðfjarðarhorrii hefði hann
fundið mjög góðar torfur af
síld, en slíkur fjöldi rúss-
neskra síldveiðiskipa hefði
raðað sér með net sín á torf-
urnar, að ógerningur hefði
reynzt að kasta á þær.
Grynnra fundu þeir á Gull-
faxa einnig síld, en miklu
minna og var síldin miklu
dreifðari. Ekki kvaðst Þor-
leifur fara þarna út aftur,
heldur halda suður á síldina.
Aðspurður um fjölda hinna
rússnesku síldveiðiskipa
kvaðst hann hafa heyrt Fær-
eyinga nefna 500—600, en
sjálfur kvaðst hann ekki getað
sagt ákveðið um það, en fjöld-
inn væri geysimikill.
Mgbl. 30. okt.
☆
Álii um „Skáldatíma"
Frú Aðalbjörg Sigurðar-
dóttir:
Ég hef verið unnandi og
dáandi Kiljans, síðan hann
fyrst kom fram á skáldaþingi,
og óteljandi eru þær ánægju-
og hrifningarstundir, sem ég
hef notið við lestur bóka hans,
ekki sízt þeirra, sem mest
hafa verið umdeildar. En mér
er tregt um mál að tala um
þessa síðustu bók hans
,„Skáldatími“, finnst þó næst-
um því skylda mín að segja
þetta:
Það, sem Kiljan skrifar í
þessari bók um Rússland og
það, sem þar var að gerast,
átti hann að skrifa fyrir 25
árum, eða a.m.k. jafnskjótt
og hann hafði öðlast þann
skilning, sem hann nú lætur
í ljósi. Þess í stað gaf hann
þjóð sinni Gerzka æfintýrið
og hélt fram á síðustu ár á-
fram stuðningi við þá stefnu,
sem hann nú fordæmir.
Ég tel að ég og aðrir, sem
trúðum á hann sem skáld og
treystum honum jafnframt
sem manni, höfum átt heimt-
ingu á því, að hann blekkti
okkur ekki viljandi.
Mgbl. 26. okt.
☆
Óveður
1 óveðrinu á miðvikudag-
,inn fuku tveir menn í Vest-
mannaeyjum, annar, Kristján
Sigurjónsson, formaður á
Erninum, sagðist hafa verið á
leið niður að höfn til þess að
huga að bát sínum, er hann
tókst á loft og fauk um 40 til
50 metra veg.
— Var yður ekki meint af
þessu ævintýri, Kristján?
— Ég skall harkalega niður
á annan handlegginn og
meiddist talsvert á olnboga.
Þegar ég fauk voru járnplötur
af þaki fiskvinnsluhússins á
þeytingi allt í kringum mig
og má heita guðs mildi, að ég
varð ekki fyrir þeim.
— Hvernig leið yður á fok-
inu?
— Ég get nú ekki lýst því,
en mér finnst furðulegt, að
vindurinn skyldi vera nægi-
lega sterkur til þess að feykja
80 kg. skrokk svo langa leið.
Þegar ég tókst á loft var ég á
leið niður brekku, sem liggur
að höfninni. Ég gekk á miðri
götunni, en til beggja handa
eru há hús. Ég vissi ekki fyrr
en ég tókst á loft og valt og
fauk þar til ég stöðvaðist
niðri á höfninni með áður-
greindum afleiðingum.
— Og járnplöturnar hafa
fokið framhjá yður?
— Já, en þær fuku lengra,
enda léttári en ég. Plöturnar
dreifðust um höfnina og á
milli verstu hviðanna tíndu
mennirnir, sem voru að vinna
þar, þær upp og köstuðu þeim
í sjóinn, milli Fjallfoss, sem lá
í höfninni, og bryggjunnar.
Öðruvísi var ekki hægt að
hemja þær.
Mgbl. 23. okt.
Why nol visii ICELAND
now?
ALL-WAYS Travol Bureau
Ltd.. 315 Hargrave Street,
Winnipeg 2, Man., WHitehall
2-2535, is the recognized Agent
of all steamship- and airlines,
including Icelandic Airlines,
and has assisted more Iceland-
ers in Manitoba with their
travel arrangements than any
other travel agent.
Mr. P. E. Salomonsen and Mr.
A. A. Anderson, both Scandi-
navians, will render you every
assistance in connection with
your travel, in an endeavour
to have your trip as comfort-
able and pleasant, yet in-
expensive, as possible.
Consult
ALL-WAYS Travel
Bureau Ltd.
315 Hargrave Street,
Winnipeg 2, Man.
WHitehall 2-2535
384 McDermot Ave., Winnipeg 2
WH 2-7759
ARTHUR GOODMAN M. KOJIMA
SP 2-5541 LE 1-4433
Evmbies ond Helldeys
Wholesale Distributors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
Office: Bus.:
SPruce 5-04*1 SPruce 2-1917