Lögberg-Heimskringla - 28.11.1963, Blaðsíða 6
6
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 28. NÓVEMBER 1963
GUÐRON FRA LUNDI:
ÖLDUFÖLL
Skáldsaga
„Nei, því trúi ég ekki. Hann
vill fara að vingast við þig.
Það er auðséð á öllu. Held-
urðu, að þú gætir ekki orðið
vinur hans, góði minn? Ég
vildi óska þess, og finnst það
sjálfsagt, sérstaklega eftir
heimsókn þeirra mæðgn-
anna“, sagði Hallfríður.
Bensi þagði dálitla stund.
„Ég á svo bágt með að
gleyma því, hvernig hann
horfði á mig í réttunum hér
áður, þegar ég var á Sléttu.
En ég sé það á augunum í
Siggu, að hana langar til þess
að eignast kúna. En-------“
„Vertu ekki með neitt hik“,
greip Sigga fram í fyrir hon-
um. „Pabbi er búinn að búa
til svo prýðilegt fjós úr bað-
stofunni í Bjarnabæ. Það geta
áreiðanlega verið þar þrjár
kýr“, bætti hún píðíákveðin.
„Ég ætla að láta það bíða að
svara bréfinu þangað til á
morgun“, sagði hann og fór út.
„Ég veit að þetta er erfitt“,
sagði Hallfríður. „Mér finnst
stundum að það hefði verið
betra, að allt hefði verið eins
og áður. En þetta er sjálfsagt
ekki.rétt hjá mér, að láta mér
detta slíkt í hug. Ég var svo
oft búin að þrá það, að Bárður
sýndi honum einhverja artir“.
Morguninn eftir talaði
Sigga um það, að Bensi færi
að skrifa svarbréf til systur
sinnar.
„Þú verður að athuga það,
góði minn, að það er vika síð-
an bréfið var skrifað og þau
bíða alltaf eftir svarinu. Ekki
vita þau, að þú last það ekki
fyrr en í gær“, sagði hún.
„Ætlar þú bara að fara að
verða eins og ráðrík húsmóðir,
sem bendir manni sínum á
hvað hann eigi að gera“, sagði
hann glettinn. „En þú ættir
bara að vita, hvað það er erfitt
að skrifa þakkarbréf til þessa
fólks, sem ég hef alltaf hugs-
að mér að þiggja ekkert af.
’ Svo ætlar það bara allt í einu
að gefa mér kú og fóður handa
henni yfir veturinn. Og ég
sem rauk upp í vonzku við
karlinn þarna í hitteð fyrra,
þegar hann kom og var ekkert
nema gæðin og sáttfýsin, karl-
garmurinn".
„Það er næstum skammar-
legt að heyra, hvernig þú tal-
ar um hann föður þinn“, svar-
aði Sigga ávítandi.
„Þetta er ekkert líkur faðir
og hann Jónas í Bjarnabæ.
Það væri heldur þægilegra að
þiggja eina kú að gjöf frá hon-
um, en þessum harðjaxl“.
Þau heyrðu að það voru
barin þung högg á útidyrnar.
Hallfríður gekk til dyra. Og
nokkru seinna heyrðist til
gestsins frammi í eldhúsinu.
„Hér er komið ágætt eld-
hús“, sagði hann.
„Hver þó fjandi!“ sagði
Bensi og varð sótrauður út að
eyrum. „Það er hann! Svei
mér þá, ef það er ekki hann,
kominn alla leið inn í eldhús
til aumingja mömmu“.
Sigga fékk hjartslátt.
„Þú verður að fara fram“,
hvíslaði hún.
„Það er víst ekki um annað
að gera“, sagði Bensi og fór
fram.
„Sæll vertu,. vinur“, sagði
þessi þróttmikla og skipandi
rödd, sem látið hafði svo við-
kunnanleg í eyrum ungu
hjónaefnanna. „Það var ekki
um annað að gera, en að koma
til fjallsins, þegar það getur
ekki komið til manns“.
„Eða nennir því ekki“, sagði
Bensi.
„Hefur þú fengið bréfið frá
Elínborgu minni?“ spurði
Bárður því næst.
„Ég fékk það í gærkvöldi“,
sagði Bensi.
„Hann hefur alltaf verið á
sjónum“, skaut Hallfríður inn
í. „Og kom ekki heim fyrr en
í gær“.
„Þú gerir svo vel að setjast
hérna inni í stofuna til okkar“,
sagði Bensi og fylgdi gestin-
um til stofu.
„Hvað segir þú um það, sem
hún skrifar?“ ítrekaði bóndi,
þegar hann hafði fengið sér
sæti.
„Það er nú eins og máltæk-
ið segir, að það er vandi vel
boðnu að neita. En mér finnst
ég varla geta tekið við svona
miklu frá þér. Ég var ekki svo
kurteis og þægilegur við þig
þarna um árið, þegar þú
komst út að Stóru-Grund til
þess að finna mig“, sagði
Bensi.
„Það verður að reyna að
gleyma því, sem liðið er. Öllu
nema því, að þú stofnaðir lífi
þínu í hættu til þess að bjarga
mér úr dauðans greipum. Það
varð til þess að opna augu
mín fyrir ræktarleysi mínu
við þig og hina góðu móður
þína. Nú er það eíndregin ósk
mín, að þú látir mig ekki fara
héðan án þess að ég finni ofur-
lítinn vináttuvott hjá þér mér
til handa. Enda þótt dóttir
mín sé búin að ryðja veginn,
hafa mér fundizt spor píla-
grímsins þung“.
Bensi brosti þægilega.
„Það er víst eitt af því
sjálfsagða, að taka vel á móti
pílagrímum“, sagði hann. „Við
erum nú einmitt að undirbúa
brúðkaupsveizluna o k k a r.
Vonandi verður þú svaramað-
ur minn?“ sagði hann.
„Það verður þá ekki aldeilis
ónýtt að fá kú 1 fjósið áður
en sá dagur rennur upp“,
sagði Bárður. „Þið þurfið þá
ekki að kaupa mjólkina í
brúðkaupssúkkulaðið“.
Hallfríður kom inn til
þeirra, óvenjulega blómleg á
vangann og hýr til augnanna.
Bensi horfði á hana steinhissa.
Honum virtist hún hafa yngst
um mörg ár við að sjá karl-
skepnuna. Það var meira en
hann gat skilið.
„Ég vona að þetta gangi vel
á milli ykkar“, sagði hún.
„Það lítur út fyrir það“,
sagði Bárður. „Ég á að verða
svaramaður hans. Og kýrin
verður komin í fjósið fyrir
helgina. Hvað viltu svo hafa
það betra“.
„Mér þykir það dásamlegt
að þið getið verið hvor öðrum
eins og skyldan bíður“, sagði
Hallfríður ánægð. „Sjálfsagt
hefur hún mest og bezt unnið
að þessu stúlkan þín“.
„Já, það er henni að þakka
að mestu leyti. Hún er nú að
hugsa um að fara að setja upp
hringinn. Það er búfræðingur-
inn á Stóru-Grund, sem er
mannsefnið hennar. Þið þekk-
ið hann sjálfsagt“, sagði Bárð-
ur.
„Þau ættu að gifta sig sam-
tíma“, spaugaði Hallfríður.
„Nei, það er víst óþarfi að
flýta því svo mikið“, sagði
Bárður, „því að eiginlega
finnst mér alltaf einhver hálf-
velgja í þessari trúlofun
þeirra, hennar megin. Það er
gott að vera trúlofaður lengi.
Það eru þau vissulega búin að
vera, en nú hefur það þó kom-
izt þetta lengst. Hversu end-
ingargott sem það verðíir“.
„Ef ég á að segja eins og
mér finnst um þetta“, sagði
Bensi, „þá finnst mér Guðni
leiðinlegur og líkleg^t ekki
nægilega góður eiginmaður
handa systur minni. Mér
fannst það heldur ómannlegt
af honum að nenna ekki eftir
meðölunum, þar sem hann
var þó að hugsa til tengda við
ykkur“.
„Ég býst líka við að það hafi
setið talsvert l,engi í Elín-
borgu“, sagði Bárður.
Hallfríður lagaði gott kaffi
>og bar það inn til feðganna,
sem sátu nú og ræddu saman
eins og góðkunningjar. Sigga
varð að koma inn til þeirra
og drekka kaffi þeim til sam-
lætis. Tengdaföðurinn langaði
líka til þess að sjá hana betur.
„Það er engin hætta á, að
okkur semji ekki“, sagði
Bensi, „því að eiginlega höf-
um við verið eins og systkini
síðan við sáumst fyrst, og það
er langt síðan. Við förum
varla að taka upp á því að
jagast, þegar við erum orðin
hjón“.
„Þetta er falleg og góðleg
stúlka", sagði Bárður. „Mér
lízt ágætlega á hana.
„Og svo það, sem bezt er,
að þeim þykir svo vænt
hvorri um aðra, mömmu og
henni, að það getur ekki
betra verið“, sagði Bensi.
Tveim dögum seinna var
komin rauðhjálmótt kýr í
fjósið í Bjarnabæ. Hallfríður
og Sigga voru yfir sig glaðar
yfir slíku ríkidæmi. Ná-
grannakonurnar höfðu aldrei
verið eins fullvissar um og
einmitt nú, að þessar mann-
eskjur færu á höfuðið áður
en langt um liði. Og svo ætl-
uðu þau sér að halda stór-
veizlu þar til og með.
Giftingardagurinn var heið-
ríkur og fagur logndagur. Þor-
björg í Nausti bjó brúðina.
Hún var í hvítum kyrtli með
skauti. Falleg brúður. Elín-
borg á Fjalli kom með fyrstu
gestunum, og amma hennar
með henni. Þær höfðu farið af
stað heiman að frá sér daginn
áður og gist á Stóru-Grund,
vegna gömlu konunnar, sem
var orðin óvön löngum ferða-
lögum. Hallfríður tók mjög
vel á móti þeim. Elínborg
sagði þær fréttir af móður
sinni, að hún mundi ekki geta
komið vegna þess að hinn
lærði sonur þeirra Fjallshjón-
anna var kominn heim með
kærustuna með sér. Og það
hefði ekki verið viðkunnan-
legt að skilja þau eftir tvö
ein í bænum, þar sem faðir
hennar ætlaði ákveðið að
koma.
Gamla konan trúði Hallfríði
fyrir því, að það hefði hlaupið
snurða á fyrir þeim Elínborgu
og Guðna út af því, að hann
hefði viljað láta hana ríða á
undan með honum, en hún
hefði viljað fylgjast með
ömmu gömlu. En hann hefði
ætlazt til þess, að Friðrika
yrði gömlu konunni samferða,
og að þær kæmu á eftir. Hann
hafði áreiðanlega stórreiðst
við hana út af þessu.
GÓÐAR ÍSLENZKAR BÆKUR
,,Æskudagar“ og „Þroskaárin" eru minningar Vigfúsar
Guðmundssonar s.l. 70 ár. Mest frásagnir af íslandi, en talsvert
úr N.-Ameríku frá dvalarárum V. G. þar. Bækurnar eru sam-
tals yfir 500 bls. í stóru broti og í bandi. Sendi ísl. í Ameríku
átta dollara til Bókaútgáfunnar Einbúi, verða bækurnar sendar
burðagjaldsfrítt. En séu dollaramir tólf, þá verður bætt við
þriðju bókinni — ferðabók eftir V. G. um S.-Ameríku og víðar.
Bækur V. G. eru mjög vinsælar á íslandi.
EINBÚI, Hjarðarhaga 36, Reykjavík
Heart Warming Gift Idea . . .
INTERIOR ELECTRIC CAR WARMER
You step into a warm, frost-free car each moming. No more scraping
windows or windshields before you start out — makes for safer driving too!
A car warmer would be an ideal Christmas gift for dad.
Finding something for mother is no problem at all. She will love any
one of the many other electrical appliances — from hair dryers to clothes
dryers — that are available at City Hydro. And because electrical appliances
come in such a wide variety they make ideal Christmas gifts for everyone.
See t-hem
now at .
405 Portage Avenue
WHiteholl 6-8201