Lögberg-Heimskringla - 28.11.1963, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 28. NÓVEMBER 1963
Afmælissamkoma á Gimli
Úr borg og byggð
Ég þakka!
Hérmeð þakka ég af ein-
lægum huga, öllum vinum
mínum, nær og fjær — einnig
félagsskap íslendinga og söng-
fólki, bæði í Seattle og Van-
couver, B.C. — fyrir að minn-
ast á mjög ánægjulegan hátt
áttræðis afmælis míns í haust.
Sömu leiðis gömlu vinunum
frá æsku árum mínum, nú
búsettum í Vancouver, B.C.
Alúðar þakkir! Gleðilegar
hátíðir!
Jakobína Johnson,
Seattle, Washington,
22. nóv. 1963.
☆
Fögur minningargjöf
Frú Ragnheiður Davidson,
639% Langside Street, Winni-
peg, hefir sýnt Betel þá vel-
vild og rausn, að gefa heimil-
inu fullkominn húsgagnaút-
búnað í eina íbúð þess. Gefur
hún þetta í minningu um
bróður sinn Munda (Guð-
mund) Strandberg og verður
þess getið á skildi sem festur
verður á dyr íbú/iaiThnar.
Með innilegu þakklæti.
Fyrir hönd fjársöfnunar-
nefndar Betels,
K. W. Johannson,
910 Palmerston Ave.,
Winnipeg 10, Man.
☆
Dr. og Mrs. P. H. T. Thorlak-
son tóku sumarfrídaga sína í
lok október og fóru fyrst til
San Francisco, en þar sat
læknirinn hið árlega þing
The American College of
Surgeons. Synir þeirra, Ken-
neth og Robert, sem eru lækn-
ar við Winnipeg Clinic sátu
einnig þingið og hlutu inn-
göngu í félagið — Fellowship
of the Americari College of
Surgeons (F.A.C.S.). Þaðan lá
leið þeirra hjóna til Honolulu,
en þar var háð annað lækna-
þing — The Pan- Pacific
Surgical Congress og hafði
Dr. Thorlakson verið beðinn
að flytja þar tvo fyrirlestra
um skurðlækningar. 1800
læknar frá 40 löndum voru
viðstaddir, meðal þeirra var
bróðir Thorbjörns læknis, Dr.
Fred Thorlakson frá Seattle
ásamt konu hans, en hann er
sérfræðingur í augnasjúk-
dómum.
Dr. og Mrs. Thorlakson
gerðu ráð fyrir að skilja við
hinar fögru eyjar í Kyrra-
hafinu 26. nóvember og dvelja
meðal frændfólks og vina á
, Ströndinni í tíu daga áður en
þau koma heim.
☆
Mr. og Mrs. Otto Kristján-
son frá Geralton, Ont. fara í
byrjun desember í heimsókn
til barna sinna þriggja í aust-
ur Ontario, dvelja hjá þeim
framyfir nýjár, fara síðan til
Los Angeles og síðan til
vetrarheimilis síns í Little
River, Calif. í lok janúarmán-
aðar.
Frásögn um samsæti, sem
haldið var í New York í til-
efni sextugs afmælis Thor
Thors sendiherra verður birt
í næstu viku.
☆
Tilvalin jólagjöí. Sendið
vinum ykkar Lögberg-Heims-
kringlu. um jólin, þeir munu
hugsa hlýlega til gefandans
í hvert sinn og þeir fá blaðið.
Þeir sem lesa íslenzka blaðið
að staðaldri vilja ekki án þess
vera.
☆
Bókasafn Fróns
Með byrjun desember verð-
ur bókasafn Fróns opið eftir
hádegi á miðvikudögum frá
klukkan hálf tvö til hálf fimm,
enn ekki kvölds og morguns
sem áður.
Ólína Johnson.
☆
The Women's Association of
the First Lutheran Church
will hold a Christmas Tea in
the Lower Auditorium of the
church on Tuesday, December
3rd, 1963 at 2.00 o’clock to
4.30 p.m. and 7.30 to 9.30 p.m.
There will be a sale of home
cooking and handicraft, also
a White Elephant booth. Re-
ceiving the guests will be:
Mrs. V. J. Eylands, Hon. Pres.,
the President: Mrs. F. W.
Einarson, and the convenors:
Mrs. A. Blondal and Mrs. J.
Snidal. Table Captains: Mrs:
J. G. Johnson, Mrs. H. Olsen,
Mrs. J. D. Turner and Mrs.
T. Gudmundson.
Mrs. S. O. Bjerring will
look after the pourers.
Handicraft: Mrs. F. Thord-
arson and Mrs. R. Armstrong.
Home Cooking: Mrs. K. W.
Johannson, Mrs. E. F.
Stephenson, Mrs. J. M. Ingi-
mundson, Mrs. H. Benson and
Mrs. J. T. Beck.
White E 1 e p h a n t: Mrs.
George Eby and Mrs. J.
Thordarson.
☆
New Officers:
At the Annual Meeting of
the Women’s Association of
the First Lutheran Church,
Mrs. A. H. Gray installed the
following officers:
Hon. Pres. Mrs. V. J. Ey-
lands; Pres. Mrs. F. W. Ein-
arson; Vice Pres. Mrs. L. G.
Johnson; Sec. Mrs. R. H.
Armstrong; Corres. Sec. Mrs.
S. O. Bjerring; Treas. Mrs. N.
Williams; Asst. Treas. Mrs. H.
S. Bjarnason.
☆
Útvarpserindi um landnám
fslendinga í Norður-Dakota
Þ. 15. október s.l. flutti Rík-
isútvarpið íslenzka háltíma
erindi um landnám íslendinga
í Norður-Dakota, sem dr.
Richard Beck hafði talað á
segulband í tilefni af 85 ára
afmæli landnámsins síðast-
liðið sumar. Skýrði ræðumað-
ur frá stofnun landnámsins og
rakti í megindráttum sögu
þess, jafnframt minntist hann
sérstaklega nokkurra Iþeirra
MESSUBOÐ
Fyrsia lúierska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
A ensku: kl. 9.45 f. h
11.00 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h.
manna, sem ættaðir voru það-
an úr byggðunum, og víð-
kunnir hafa orðið fyrir afrek
sín á ýmsum sviðum. Hafa
honum borizt mörg þakkar-
bréf fyrir erindið.
☆
Páll Guðmundsson frá
Leslie, Sask. kom að vestan
um helgina til að vera við-
staddur gullbrúðkaup Helgu
og Páls Westdal. Hann dvelur
hér í nokkra daga hjá vinum
og vandamönnum.
☆
Civil Defence says: —
Food in tins or tightly
sealed jars cannot be con-
taminated by fallout. Wash
container before opening, the
food inside will be unharmed.
Metro Civil Defence,
1767 Portage Avenue,
Winnipeg 12 — TUrner 8-2351
Dónarfregn
Alexander Lawrence Ben-
son andaðist 1 Chicago 28.
september 1963. Hann var
fæddur í Winnipeg, sonur
Egils Benediktssonar og
Lovísu konu hans. Hann var í
herþjónustu í fyrri heims-
styrjöldinni frá febrúar 1916
þar til stríðinu lauk. Hann
lifa kona hans Kristbjörg
(Oddson); einn sonur Ray-
mond og þrjú sonarbörn. Enn-
fremur bróðir í Winnipeg,
Richard Carl Benson, en hann
er kvæntur Albertínu systir
Kristbjargar, en þær eru ætt-
aðar frá Riverton.
ROSE THEATRE
SARGENT ot ARLINGTON
AIRCONDITIONED
CHANGE OF PROGRAM
EVERY FOUR DAY5
Foto-Nite Every
Tuesdoy ond Wednesday
SPECIAL
CHILDRÉN'S MATINEE
Every Saturday
Það var gaman að fara norð-
ur að Gimli og taka þátt í af-
mælisfagnaði deildarinnar
Gimli, sem hefir verið ein at-
hafnamesta deild Þjóðrækn-
isfélagsins síðan hún var
stofnuð fyrir tuttugu árum.
Barnakórinn undir stjórn
þeirra frú Guðrúnar Stevens
og frú Önnu Stevens kom
fólkinu strax í sólskinsskap.
I kórnum voru 24 stúlkur og
einn drengur, það er ávalt
erfiðara að fá drengi til að
syngja en stúlkur, en sá litli
karlmaður var haldinn eins
mikilli sönggleði og stúlkurn-
ar. Kórinn Söng ein átta til
tíu alkunn lög við íslenzka
texta og fleira en eina vísu
við hvert lag. Það er unun
að hlýða á þessar þýðu barns-
raddir. Ein stúlkan söng
yndislega eina vísuna í laginu
Tárið, en því miður náði ég
ekki nafni hennar.
Frank Olson skólastjóri,
forseti Gimli deildar stýrði
samkomunni ágætlega. Hann
rakti starfsferil deildarinnar;
eggjaði menn til að berjast
fyrir viðhaldi tungu sinnar og
þjóðerni og máli sínu til á-
herzlu fór hann með eggjun-
arorð Skúla fógeta til skips-
verjanna, sem skáldið Grímur
Thomsen lagði honum í munn.
„Þið munið fá að súpa á sjó,
þó sitjið og bælið fletið,
og háttunum ná í helvíti þó
þið hjarið meðan þið getið.“
Frank Olson sagði líka að
Vestur-lslendingar sem væru
svo fámennir gætu verið eins
og sólskins fjörgjafar (sun-
shine vitamins) í alþjóða-
mannfélagsgrautinum hér.
Grettir L. Johannson kon-
súll hvatti og V.-íslendinga til
að taka forfeðurna til fyrir-
myndar í að varðveita tungu
sína og þjóðerni, ekki síður en
stærri þjóðarbrotin hér í
landi gera. Var hann sérstak-
lega heillaður af söng barn-
anna, er minnti hann á, þegar
hann var að læra íslenzku og
íslenzka söngva undir leið-
sögn séra Runólfs Marteins-
sonar. Um leið og hann árn-
aði Gimli deildinni heilla, af-
henti hann forseta afmælis-
gjöf til deildarinnar í minn-
ingu um foreldra sína.
Ólafur Kárdal kom alla leið
frá St. Paul, Minnesota til að
skemmta með söng. Glæsileg
frú frá íslandi lék undir á
píanó, en hún er kona Arnar
Arnarrs læknis sem stundar
framhaldsnám þar í borg. Var
þeim að verðugu ágætlega
fagnað.
Kjartan Johnson læknir frá
Pine Falls flutti aðalræðu
kvöldsins, en hann var fyrsti
forseti Gimli deildar. Hann
kvað sér farið að stirðna um
íslenzka málbeinið en slíkt
gat enginn merkt. Ræða hans
var með ágætum og mun
hann láta L.-H. hana í té til
birtingar.
Jóhannes Pálsson lék á
fiðlu með aðstoð systir sinn-
ar frú Lilju Martin við píanó-
ið. Var unun að hlýða á þau,
ekki sízt íslenzku lögin. Hann
lék á fiðlu sem listamaðurinn
Ólafur heitinn Thorsteinson
hafði smíðað og náði hann
djúpum og hrífandi tónum úr
henni, sem sérstaklega nutu
sín vél í Ave Maria.
Frú Ingibjörg Jónsson rifj-
aði upp heimsókn sína til
Gimli fyrir tuttugu árum,
þegar hún fór þangað með
manni sínum Einari P. Jóns-
syni og Ásmundi P. Jóhanns-
syni, en þau þrjú tóku þátt 1
stofnun deildarinnar. Hún
þakkaði stuðning deildarinnar
við Lögberg-Heimskringlu og
minntist sérstaklega hins góða
starfs frú Kristínar Thor-
steinsson.
Miss Lára Dahlman frá
Riverton söng Draumalandið
og önnur lög en Mrs. Sigur-
lína Bergen lék undir. Var
góður rómur gerður að hljóm-
list þeirra.
Séra Philip M. Pétursson,
forseti Þjóðræknisfélagsins
minntist í ávarpi sínu á grein,
sem hafði birzt í tímariti árið
1910 og spáði höfundurinn
því að innan tíu ára yrði ís-
lenzkt mál horfið sem mælt
mál hér vestra! En það fór á
annan veg; að þeim tíu árum
liðnum var Þjóðræknisfélagið
stofnað og íslenzkur. félags-
skapur aldrei í meiri blóma
en þá. Séra Philip færði rök
fyrir því að slíkir spádómar
eru óþarfir og sem betur fer
rætast þeir ekki. Þessi afmæl-
issamkoma sannaði mál hans.
Hún fór algerlega fram á ís-
lenzku og allir sem komu þar
fram voru fæddir vestan hafs.
— Séra Philip þakkaði Gimli
deild vel unnið starf og af-
henti forseta hennar til minn-
ingar gullmerki Þjóðræknis-
félagsins.
Gunnar Simundsson, forseti
þjóðræknis deildarinnar
„Esjan“ í Arborg flutti kveðju
og heillaóskir frá deild sinni;
hann kryddaði ávarp sitt með
skemmtilegum skrítlum og
minntist meðal annars á að
hæfileikinn til að hlusta væri
almennt að hnigna, en það
sannaðist ekki þetta kveld.
Samkomusalurinn var fullur
af fólki, sem hlustaði með frá-
bærri athygli á alla skemmti-
skrána en hún stóð yfir hátt
á þriðju klukkustund.
Ekki má gleyma að Ómar
litli, sonur Gunnars flutti ís-
lenzkt kvæði með afbrigðum
vel eins og hann hefir oftar
gert.
Að skemmtiskrá lokinni
voru bornar fram gómsætar
veitingar og heilsað upp á
kunningjana. Þetta var gleði-
leg stund. Lengi lifi þjóð-
ræknisdeildin Gimli.