Lögberg-Heimskringla - 05.12.1963, Page 2
2
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 5. DESEMBER 1963
Sveinn E. Björnsson:
Þórður Eggert Laxdal
Sjölugur 28. nóvember 1963
Er orku slingur íslendingur
ungur nemur þjóðar tungu,
brátt sér vorlönd víðra átta,
er vegi kannar stríðs og anna.
Nýtur landið heilla handa,
að halda plóg og riðja skóginn.
Arðsvon kallar myrkra milli,
mannsins hönd að rækta löndin.
Einn þú stóðst í stríði seinna,
sterkur í orði og trúr í verki,
lærðir margt, er hug þinn hrærði;
hljómgrunn fann í reynslu manna.
Þín var gifta að loks sér lyfti,
hin leynda þrá um vegu háa
til stórra landa, sæva og sanda,
sona, dætra og mætrar konu.
Man ég enn og forðum fann ég,
fagnaðs hrókur varstu í „Króki'1.1
Þar ég ráðinn draum þinn dáði,
um dætur, sonu og eigin konu.
Skyldur ræktir, skuldir greiddir
skapaðir “Band“,2 í fósturlandi,
er leiddi óma ljóðs og hljóma
liðinna daga, um tún og haga.
Sá ég dagsins verk þín vaxa;
verða þjóðar heill og gróði,
um gjörvalt sviðið, sifja liðið
sóma lands að allra dómi.
Var því pundið vaxtað undir
verkagjöld: á ævikvöldi
sjötugur ratar sínar götur:
sál gegn elli heldur velli.
1. Kurok, Sask.
2. Hornleikara flokk.
Fréttir fró íslandi
Framhald frá bls. 1.
Það þótti skrýtið að þó
askan virtist svört að sjá, þar
sem hún þakti fleti, þá varð
vatn mjólkur litað eins og
jökulvatn, þegar farið var að
skola hana af með vatni.
Vestmannaeyingar fá sem
kunnugt er megnið af vatni
sínu með því að safna rign-
ingarvatni. Þar sem rignt
hafði á austan, daginn áður
eftir langvarandi þurrka,
þótti mönnum gott að fá sop-
ann af þökunum í vatnsbólin.
Flestir munu þó hafa tekið
rennumar frá áður en þeir
fóru að sofa á mánudags-
kvöld. En sumir gerðu það þó
ekki og fengu óhreinindi í
brunnana.
í gær fundu Vestmanna-
eyingar í fyrsta sinn gosfýlu
af eldstöðvunum. Og reyndar
eru þetta fyrstu óþægindin,
sem Eyjabúar hafa af þessu
eldgosi við bæjardyrnar hjá
þeim.
Mgbl. 27. nóv.
☆
HallveigastaSir fokheldir
Sölusamband íslenzkra fisk-
framleiðenda afhenti nýlega
framkvæmdastj órn Hallveig-
arstaða eitt hundrað þúsund
krónur að gjöf. Ákvörðun um
gjöfina var tekin á aðalfundi
sambandsins í sumar.
Þessi höfðinglega gjöf —
sem og aðrar gjafir, sem Hall-
veigarstöðum hafa borizt
undanfarið — kemur í góðar
þarfir nú, þegar bygging
kvennaheimilisins er loksins
hafin, eftir margra ára erfið-
leika og málaferli, Byggingin
er senn orðin fokheld, og er
því farið að lækka í kassan-
um, enda hafa framlög og
gjafir frá fyrri tímum rýrnað
mjög að verðgildi að undan-
förnu.
Þrátt fyrir alla erfiðleika
hefur framkvæmdastjórnin
fullan hug á því, að koma
byggingunni upp sem allra
fyrst, enda er þörfin fyrir
húsnæði fyrir starfsemi
kvennasamtakanna í landinu
orðin brýn.
Framkvæmdastjórnin er
þakklát fyrir allar hinar
rausnarlegu gjafir, sem und-
anfarið hafa borizt, og sér-
staklega fyrir þessa stóru gjöf,
sem hér er sagt frá.
Frá framkvæmdastjórn
Hallveigarstaða).
Mgbl. 14. nóv.
☆
Frú Guðrún Péiursdóttir
látin
Frú Guðrún Pétursdóttir
lézt hér í Reykjavík síðastlið-
ið laugardagskvöld, 85 ára að
aldri.
Frú Guðrún fæddist 9. nóv-
ember 1878, dóttir hjónanna
Péturs Kristinssonar, bónda í
Engey, og Ragnhildar ,ólafs-
dóttur frá Lundum í Staf-
holtstungum.
Hún giftist 5. júní 1904
Benedikti Sveinssyni, síðar
Alþingisforseta. Varð þeim
hjónum sjö barna auðið, sem
eru Sveinn, Pétur, Bjarni,
Kristjana, Ragnhildur, Ólöf
og Guðrún. Tvær systranna
eru látnar, Kristjana og Ragn-
hildur.
Fimmtán ára gömul var hún
meðal stofnenda Hins íslenzka
kvenfélags, og hófst þá langt
og heillaríkt starf hennar að
málefnum kvenna. Helztu á-
hugamál hennar voru rétt-
indabarátta og menntun
kvenna, líknar- og mannúð-
armál, málefni heimilanna,
heimilisiðnaður, sjálfstæðis-
barátta þjóðarnnar og íslenzk
stjórnmál. Má segja, að hún
hafi starfað óslitið að þess-
um málum um 65 ára skeið,
en árið 1959 sagði hún af sér
flestum störfum í þágu á-
hugamála sinna.
Frú Guðrún tók þátt í
stofnun Bandalags kvenna og
síðar Kvenfélagasambands ís-
lands. Formaður Kvenfélaga-
sambandsins var hún frá 1947
til 1959. Hún tók þátt í stofn-
un Húsmæðrafélagsins, var
um tíma formaður Heimilis-
iðnaðarfélagsins og Mæðra-
styrksnefndar. Formaður í
Sj álf stæðiskvennaf élaginu
Hvöt var hún um tíma og síð-
ar heiðursfélagi.
Mgbl. 26. nóv.
☆
Ekki orð um afhendingu
handritanna
1 tilefni af 300 ára afmæli
Árna Magnússonar, var í dag,
13. nóvember, opnuð í Kon-
unglegu bókhlöðunni í Kaup-
mannahöfn, sýning á helztu
handritum í safni hans, segir
í einkaskeyti til Morgunblaðs-
ins frá fréttaritara þess í
Kaupmannahöfn, G u n n a r i
Rytgaard. Auk handrita eru
á sýningunni bréf Árna til
ýmissa manna, sem hann stóð
í bréfaskriftum við, og nokkur
handrit, sem geymd eru í Há-
skólabókasafninu í Höfn. Sýn-
ingin er haldin á vegum Kon-
unglegu bókhlöðunnar, Hafn-
arháskóla og Árna Magnús-
sonar nefndarinnar.
Á dag var haldinn blaða-
mannafundur í tilefni af opn-
un sýningarinnar, og var
Rosenkilde bókaútgefandi
meðal viðstaddra. Afhenti
hann hið fyrsta af 350 eintök-
um af Bergsbók, sem gefin
hafði verið út í tilefni afmæl-
isins. Jón Helgason prófessor
tók við gjöfinni.
Á blaðamannafundinum,
sem haldinn var skömmu fyrir
opnun sýningarinnar, lét pró-
fessor Jón þau orð falla í létt-
um tón að raunar væri hægt
að gefa öll handritin út í góð-
um ljósprentunum, flytja síð-
an öll frumhandritin út á mitt
Atlantshaf og sökkva þeim
þar, einhvers staðar milli Dan-
merkur og íslands. Háskólarn-
ir í Reykjavík og Kaupmanna-
höfn gætu hvor um ’sig eign-
azt fullkomið safn af ljós-
prentunum. Ég gerði þetta
einu sinni að tillögu minni við
Framhald á bls. 6.
Minning: •
Kristveig Guðmundsson
1898 -
Þann 31. ágúst 1963 lézt á
sjúkrahúsi í Wadina, Sask.,
Mrs. Kristveig Guðmundsson
eftir stutta legu. Kristveig
var fædd að Hróarstöðum í
Þingeyjarsýslu 28. maí 1898.
Foreldrar hennar voru: Björn
Jónsson Axfjörð, fæddur í
Ytri-Tungu á Tjörnesi 14. feb.
1864 og Valgerður Þorláks-
dóttir, fædd að Garði í Þistil-
firði 13. jan. 1873. Kristveig
fluttist með foreldrum sínum
frá íslandi til Ameríku 1903.
Þau settust að í Argylebyggð
í Manitoba og áttu þar heimili
til 1910. Fluttu þá til Leslie,
Sask. og byrjuðu búskap 1
svo nefndri Hólarbyggð suður
af Leslie. Þar ólst Kristveig
upp með foreldrum sínum til
1915. Það ár giftist hún Guð-
mundi F. Guðmundsson. Þau
bjuggu góðu búi í Hólarbyggð
til 1950. En þá brugðu þau búi
og fluttu til Elfros bæjar.
Mann sinn misti Kristveig
1959 eftir langvarandi veik-
indi. En umhyggja hennar og
ástúðleg hjúkrun veittu hon-
um styrk að bera hið lamandi
dauðastríð með stakri ró og
þolinmæði til síðustu stundar.
Mundi og Veiga eignuðust
4 dætur og 2 syni, sem öll eru
á lífi. Þeirra nöfn: Hólmfríð-
ur (Mrs. Julius McMartin),
Elfros, Sask.; Valgerður (Mrs.
Clarence Stepto), New West-
minster, B.C.; Arnold, giftur,
- 1963
býr í Hólarbyggð; Gladys
(Mrs. Vernon Nash), New
Westminster; Gunnar, giftur,
býr í Regina; Ramona (Mrs.
Victor Halldorsson), Elfros,
Sask. Einnig átti Kristveig 3
bræður á lífi: Þorlákur og
Halldór búa í Hólarbyggð,
Steingrímur búsettur í New
Westminster. Barnabörnin
voru 28 og 6 barna-barnabörn.
Veiga var altaf glöð í anda,
gestrisin og veitul og var þau
hjón gott heim að sækja.
Móðurástin og umhyggjan
fyrir börnum sínrnn og barna-
börnum, var sterkur þáttur í
lífi hennar og einnig mesta
huggun og yndi, eftir að
manns hennar misti við.
Mrs. Guðmundsson var
jarðsett í Elfros-grafreit 3.
sept. s.l. að viðstöddum fjölda
vina og vandamanna.
Rósm.
ROSE THEATRE
SARGENT ot ARLINGTON
AIRCONDITIONED
CHANGE OF PROGRAM
EVERY FOUR DAYS
Foto-Nite Every
Tuesday and Wednesday
SPECIAL
CHILDREN'S MATINEE
Every Saturday
LOWEST
AIR FARES TO ALL '
SCANDINAVIAN
ICELAND
NORWAY
SWEDEN
DENMARK
FINLAND
ENGLAND
SCOTLAND
HOLLAND
GERMANYt
LUXEMBOURG*
tvii connections
• No Family Plan to
luxembourg
COUNTRIES
ONLY ON ICELANDIC
LOWEST fares from NewYork of any
scheduled airline...and even lower
during Fall Thrift Season. Extra sav-
ings on Family Plan and Thrift Sea-
son fares for 10V2 months, Aug. 16
to Apr. 30; return Oct. 16 to June
30. Savings also apply to children
12 to 25. Save wherever you go ...
pay far less than jet Economy fares
to key cities of Scandinavia and
other European countries. Enjoy
real lcelandic hospitality, free
meals and cognac, expert service
by 3 stewardesses on every long-
range pressurized DC-6B.
VISIT ICELAND, newerf fourist discovery.
/CELANDIC AIRLINES
MllFUUÉIlMlk
i
610 Fifth Ave. (Rockefeller Center) New York 20 PL 7-8585
WRITE FOR NEW YORK ’ CHICAGO * SAN FRANCISCO
FOLDER XI The PIONCER. of Low Fares to Europe