Lögberg-Heimskringla - 05.12.1963, Síða 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 5. DESEMBER 1963
Úr borg og byggð
MESSUR á hálíðunum i
Unitara klrkjunni í Winnipeg.
8. des. kl. 11 f.h. messa á
ensku. Kl. 7 e.h. messa á
íslenzku.
15. des. kl. 11 f.h. messa á
ensku.
22. des. kl. 11 f.h. messa á
ensku.
25. des. kl. 11 f.h. jóladags
guðsþjónusta á íslenzku. —
Jóladagsmorguninn.
29. des. kl. 11 f.h. messa á
ensku.
31. des. kl. 11.30 e.h. gaml-
árskvöld, aftansöngur á ís-
lenzku.
5. jan. 1964. kl. 11 f.h. messa
á ensku. — Fyrsti sunnudag-
urinn í nýárinu.
☆
To those who might be
interested I wish to announce
that I have left about 20
copies of Fleygar ($5.00) and
somewhat more of Odes and
Echoes ($3.50).
P. Bjarnason.
1016 W. 13th Ave.,
Vancouver 9, B.C.
•Cr
Donations lo Betel
In memory of
Alexander L. Benson, Chicago.
Mr. and Mrs. C. R. Benson and
onald, Mr. and Mrs. D. L. Benson,
Mr. and Mrs. R. M. Benseon, Mrs.
Maria Halldorson, a total of
$30.00.
Mr. and Mrs. William H. Taylor,
Chicago , $10.00.
Gratefully received,
S. M. Bachman,
Ste. 12 — 380 Assiniboine Ave.,
Winnipeg 1, Man.
☆
Tilvalin jólagjöf. Sendið
vinum ykkar Lögberg-Heims-
kringlu, um jólin, þeir munu
hugsa hlýlega til gefandans
í hvert sinn og þeir fá blaðið.
Þeir sem lesa íslenzka blaðið
að staðaldri vilja ekki án þess
vera.
☆
Gifting
Gefin voru saman í hjóna-
band í Fyrstu lútersku kirkju
þann 16. nóvember, Miss
Bernadette Marie La Croix og
Mr. Gerald Rurik Bjornson.
Dr. Valdimar J. Eylands
framkvæmdi vígsluna en
soloisti var Mr. Kerr Wilson
og Mrs. E. A. Isfeld lék á
orgelið. Brúðguminn er sonur
Mr. og Mrs. Rurik Björnson,
Old Kildanan, en afi hans er
Jónas Björnson, er lengi var
umsjónarmaður á Betel og á
þar heima. Hin ungu hjón
fóru til St. John, New Bruns-
wick og verður heimili þeirra
þar. Mr. Björnson er charter-
ed accountant.
☆
Mr. og Mrs. Waller Johann-
son frá Pine Falls fóru nýlega
til Vancouver í heimsókn til
Lorraine, dóttur sinnar og
tengdasonar, Mr. og Mrs. Eric
Davies og barna þeirra. Og
munu þau dvelja hjá þeim
fram yfir hátíðar.
Northern Llghts, ljóðaþýð-
ingar frú Jakobínu Johnson,
er tilvalin jólagjöf. Hún mun
enn eiga fáein eintök. Verðið
er $2.50. Heimilisfang hennar
er 3208 N.W. 59th St. Seattle
7, Wash., U.S.A.
☆
Civil Defence says: —
If you had to leave Winni-
peg — How long would it
take you to load water, food
and clothing into your car.
Are you prepared?
Metro Civil Defence,
1767 Portage Avenue,
Winnipeg 12 — TUmer 8-2351
☆
Grettir L. Johannson konsúll
kom heim á laugardaginn úr
ferð sinni til New York. Hann
var staddur í Montreal þegar
hið hörmulega TCA flugslys
vildi til, er varð 118 manns að
bana. Hann reyndi hvað eftir
annað að fá far vestur einmitt
með þessari flugvél en fékk
ávalt það svar að hún væri
fullfermd faiþegum. — Ekki
verður feigum forðað eða ó-
feigum í hel komið.
☆
Dánarfregnir
Franklin Lindal, 684 Inger-
soll St., Winnipeg, lézt 28.
nóvember 1963, 57 ára að aldri.
Meirihluta ævi sinnar átti
hann heima í norðurhluta
fylkisins og stundaði þar
veiðar og rak verzlun. Hann
lifa kona hans Laufey, einn
sonur, Donald Keith; átta
bræður, Ólafur í Ilford, Man.,
Thorsteinn í Ohio, Ásgeir og
Einar að Lundar, Vilhjálmur
í Chicago, George í Wiscons-
in, John að Lynn Lake og
Emil að The Pas; sex systur,
Lára — Mrs. T. C. Lodge,
New Brunswick, Helga —
Mrs. D. Thordarson í Florida,
Mrs. Elín Woodcock, Bertha
— Mrs. S. Tyndall og Laufey
— Mrs. H. Thorgrímson til
heimilis í Winnipeg og Thora
— Mrs. William Halldórson í
Edmonton. Kveðjuathöfn fór
fram í Bardal útfararstofunni
undir stjórn Dr. Valdimars J.
Eylands, en jarðsettning í
Lundar grafreitnum, Rev. R.
P. Grout jarðsöng.
☆
Sunnudaginn 3. nóvember
1963, andaðist á elliheimilinu
„Stafholt“ að Blaine, Wash-
i n g t o n , hefðarkonan frú
Bertha Vilhelmina Ingimund-
ardóttir, ekkja eftir Andrew
Danielson, sem andaðist hér í
Blaine fyrir nokkrum árum
síðan.
Mrs. Danielson var fædd
24. ágúst 1870, varð því rumra
93 ára. Mrs. Danielson var ein
af þeim allra duglegustu ís-
lenzku konum í Blaine bæ og
byggð. Hún var orðlögð fyrir
óskipta þátttöku í öllu ís-
lenzku félagslífi, en þó sér
staklega í Lútersku kirkju og
kvennfélagsstarfi, enda ein af
stofnendum bæði safnaðar og
kvennfélags hér í Blaine, hún
var kona elskuð og virt af
öllum sem henni kyntust.
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands. Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
A ensku: kl. 9.45 f. h
11.00 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h.
Hana lifa tvö fósturbörn,
piltur og stúlka, þau eru Dan
Danielson, Blaine, og Svafa,
(Mrs. Knight), San Francisco,
California, og tvö barnabörn
og þrjú barna-barnabörn. En
börn hinnar látnu stóðu fyrir
útför móður sinnar sem var
bæði hin virðulegasta og til-
komumikil í alla staði og
þeim systkinum til mikils
sóma.
Mrs. Danielson var jarðsung-
in þriðjudaginn 5. nóvember
frá Lútersku kirkjunni í
Blaine, að viðstöddum fjölda
af vinum og velunnurum, svo
það var álit fólks að útför
hennar hennar hafi verið ein
af þeim allra fjölmennustu
jarðarförum sem hér hafi far-
ið fram í mörg ár á meðal
íslendinga.
Söngflokkur kirkjunnar
söng nokkra íslenzka útfarar
sálma, og Mrs. Halldor John:
son söng einsöng á íslenzku.
Öll fór þessi athöfn fram sam-
kvæmt fyrirmælum hinnar
látnu sæmdarkonu, Mrs.
Danielson.
Séra Guðmundur P. John-
son, jarðsöng, aðstoðaður af
Pastor Oskar Jacobson, presti
Blaine safnaðar.
er bezt með sigti svo vatnið
renni af þeirn, og nú er komin
,aftur atvinna fyrir eigin-
manninn, því að nú þarf að
fylla ílátin.
, Hægt er að fá í verzlunum
sérstök plastílát fyrir fryst
matvæli. Það eru án efa beztu
ílátin, enda má nota þau aft-
ur og aftur. Einnig má nota
plastpoka (polyethylene). Bezt
er að frysta í hverju íláti
hæfilegt magn í máltíð handa
heimilisfólki og hafa auk þess
nokkur ílát sem meira er látið
í vegna væntanlegra matar-
gesta. Ég hef venjulega sogað
loft úr plastpokunum, eftir að
þeir hafa verið fylltir og snúið
upp á pokann um leið og lokað
honum síðan með teygju eða
snæri. llátin eru síðan sett í
frystiskápinn og hann stilltur
á fullan hraða fyrsta sólar-
hringinn, en þá færður niður
í venjulegan meðalstillingu.
Svo er bezt að opna frysti-
geymsluna sem allra sjaldnast
til að forðast ísmyndun í
skápnum. Bezt er að taka
alltaf nokkuð magn í einu og
flytja í frystihólfið í ísskápn-
um.
Að lokum má benda á það,
,að fryst grænmeti á yfirleitt
,ekki að affrysta fyrir notkun,
heldur setja það beint í pott-
.inn.
(Úr Garðyrkjuritinu 1963)
Hve margar tennur
Prestur nokkur var að
spyrja dreng, sem ekki gat
svarað, og þótti presti hann
þunnur að vita ekki þetta. Þá
sagði, drengur: „Það er nú
líklega lítill vandi að spyrja
mann í þaula“!' „Heldurðu, að
þú spyrjir mig í þaula“ sagði
prestur stutt. „Má ég reyna?“
sagði strákur. Prestur leyfði
það. — „Hvernig er það, prest-
ur góður, vitið þér hvað marg-
ar tennur eru í steinbítshausn-
um?“ spurði strákur.
Því gat prestur ekki svarað
— þótt lærður værii
Nýtt mel
Ameríka er land hinna
margvíslegu meta. Frank
Sarcona, barþjónn í Chicago,
setti til dæmis nýlega met í
umferðaryfirsjónum. Á dög-
unum var hann nefnilega
skrifaður upp í 233. skipti fyr-
ir að leggja bílnum sínum
skakkt.
Doris Day sem er allra
kvenna reyndust í „karlamál-
um“ sagði fyrir skömmu við
meðleikara sinn:
— Það eru alls ekki verstu
eiginmennirnir, sem hrjóta.
Maður veit þó að minnsta
kosti hvenær þeir eru heima
og hvenær ekki.
Heimsins bezto
munntóbak
Why noi visii ICELAND
now?
ALL-WAYS Trar«l Butmu
Lld., 315 Hargrave Street,
Winnipeg 2, Man., WHitehall
2-2535, is the recognized Agent
of all steamship- and airlines,
including Icelandic Airlines,
and has assisted more Iceland-
ers in Manitoba with their
travel arrangements than any
other travel agent.
Mr. P. E. Salomonsen and Mr.
A. A. Anderson, both Scandi-
navians, will render you everv
assistance in connection with
your travel, in an endeavour
to have your trip as comfort-
able and pleasant, yet in-
expensive, as possible.
Consult
ALL-WAYS Travel
Bureau Ltd.
315 Hargrare Street
Winnipeg 2, Man.
WHitehall 2-2535
Sjálfsagt verður þessarar
merku konu nánar minnst
síðar í L.-H.
G.J.
Garðávextir úr frysíiskáp
Framhald frá bls. 7.
rýrnun þeirra við geymslu
(ekki má heldur gleyma því,
að létt soðnir garðávextir eru
næringarmeiri en hráir).
en eftir suðuna þarf að snögg-
kæla þá í vatni, annaðhvori
með því að setja þá í vasl
fullan af vatni með ísmoluir
eða í rennandi vatni. Næstí
UMBOÐSMAÐUR LÖGBERGS-HEIMSKRINGLU
á
ÍSLANDI
SINDRI SIGURJÓNSSON póstafgreiðslum.
P.O. Box 757, Reykjavík
Verð Lögbergs-Heimskringlu er kr. 240 á ári.
' Subscription Blank
: NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD.
303 Kennedy St.. Winnipeg 2.
I enclose $6.00 for 1 year □ $12 for 2 years □ subscrip- i tion to the Icelandic Weekly, Lögberg-Heimskringla
• NAME
: ADDRESS