Lögberg-Heimskringla - 22.10.1969, Page 1
I
9
. F M I D
• L L A '» D •
llögberg-^etmslmngla
Sloínað 14. jan. 1888
Slofnað 9. sept. 1886
83. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN 22. OKTÓBER 1969
ð
NÚMER 36
Merkur Vesfur-íslendingur
DÁNARMINNING 1. OKT. 1955:
Florence Nordal
(Mrs. John Alexander Henry.)
Minningarljóð í nafni móður hennar Valgerðar Nordal
í Árborg. Man.
Ástkæra barn, hvert æsku þinnar spor
var áfram .stigið gegn um lífs þíns vor,
í frjálsri trú á fegurð þess sem er,
og framar öllu varst þú kærust mér.
Að þú varst kona, kát og yndisleg,
og kærleiksrík sem móðir, vissi ég,
og allt þitt líf var yndisfagurt vor,
er örfar og þroskar við hvert gengið spor.
Ég hugsa æ, í einverunni um þig,
um ástarbrosið þitt, sem gladdi mig.
Það gleður enn, þó öðruvísi en þá, —
sem endurskin þess bezta, er lífið á.
I endurskini þess, sem lífið lér,
þó ljósið hverfi, áfram höldum vér,
Þótt augun lokist, lít ég það sem deyr,
í ljósi því, sem sioknar aldrei meir.
Ljós mér í barmi enn þú ávalt skín,
sem engill björt þú varst er komst til mín.
I faðmi mínum fannst þú yndi og ró.
1 faðmi guðs er barnið mi'tt, sem dó!
S. E. Björnsson.
Dr. SIGURÐUR ÞÓRARINSSON:
Að lifa í sátt við landið sif-fr
Líiil hugvekja á fertugsafmæli Ferðafélags íslands
Efiirfarandi 'fyrirlesiur Dr. Sigurðar Þórarinssonar jarð-
fræðings birlisi í árbók Ferðafélags íslands síðastliðið ár.
Eins og flesl annað, em hinn heimskunni vísindamaður hefur
riiað, þá er þessi afmælisfyrirlesiur einkar forviinilegur, og
því leyfum við okkur að iaka hann upp í Lögberg-Heims-
kringlu. — H. B.
John Willard Johnson for-
seti Western Life Insurance
félagsins, s e m hefir bæki-
stöðvar sínar í St. Paul, Min-
nesota, átti 20 ára starfsaf-
mæli1 hjá því félagi 1. sept.
1969.
Mr. Johnson er fæddur i
Minneota 12. maí, 1906. For-
eldrar hans voru þau hjónin
John A. og Björg Johnson. Var
John A. fyrsta bamið, sem
fæddist íslenzkum frumbyggj-
um í Minnesota; foreldrar
hans voru Arngrímur Jónsson
og Jóhanna kona hans, er
fluttist til Bandaríkjanna árið
1876. — Björg kona John A.
var fædd að Desjamýri 1876;
foreldrar hennar voru Stefán
Pétursson, prestur að Val-
þjólfsstað, Desjamýri og
Hjaltastað og kona hans Ragn-
hildur Björg Metusalemsdótt-
ir. Björg fluttist vestur árið
1893.
Þau hjónin John A. og Björg
Johnson eignuðust sjö börn,
einn son og sex dætur og
komu þeim öllum vel til
mennta, sonur þeirra, John
Willard stundaði nám í barna-
og miðskóliun í Minneota og
reyndist jafnframt liðtækur
við búskapinn með föður sín-
um. Árið 1925 innritaðist hann
í Minnesota háskólann og út-
skrifaðist þaðan með Bachelor
of Science degree árið 1928 og
næsta ár var hann ráðinn að-
stoðarkennari í hagfræði við
háskólann. Þetta var undir-
staðan að því að hann gerðist
leikinn (expert,) í bókhaldi og
síðar við að skýra og gagn-
rýn'a fjármál, sérstaklega lífs-
ábyrgðir og vátryggingar.
Mr. Johnson fékk stöðu hjá
Mutual Life Insurance félag-
inu í Minneapolis 1934 og sök-
um hæfileika hans fór vegur
hans vaxandi ár frá ári og fé-
lagið dafnaði að sama skapi.
Árið 1943 innritaðist hann í
sjóherinn og að þeirri þjón-
ustu lokinni var hann orðinn
lieutenant að nafnbót.
Mr. Johnson hafði getið sér
svo mikils orstírs í Mutual
Life félaginu að Western Life
félagið bauð honum sæti í
stjórn þess ö f 1 u g a félags
1. sept. 1949, sem hann þáði.
og vegna hæfileika hans og
tiltrausts var hann kjörinn
forseti félagsins 1961. Hann er
í framkvæmdastjórn annarra
félaga: St. Paul Mercury In-
surance Co., Northwestern
National Bank, St. Paul Fire
and Marine Insurance, Imper-
ial Financial Services of Min-
neapolis og fleiri. Hann er fé-
lagslyndur maður og er virk-
ur félagi í Chamber of Com-
merce, Rotary Club, St. Paul
Athletic Club, Masonic bodies,
Town and Country Club, í
lútersku kirkjunni í St. Paul
og fl.
Þann 30. nóvember 1933
'kvæntist hann Miss Marie
Westline. Hún stundaði nám
við Minnesota háskólann, hún
vinniur að málum lútersku
kirkjunnar og öðrum félags-
málum með ráðum og dáð og
er meðal annars forseti Ice-
landic Club í St. Paul.
Þau hjónin eiga fjögur börn
öll vel menntuð: Virginia
Ragnhildur, Charlotte Marie,
John Willard og Doris Anne,
og mörg barnabörn.
Það er ávalt ánægjulegt að
frétta af þeim mönnum, sem
varpa ljóma á ætt s|na og upp-
runia með hæfileikum sínum
og drenglegri framkomu.
Þorbjörg Árnadóilir
Það er kunnara en svo, að
rekja þurfi í löngu máli, að
dvergþjóð sú, er kallar sig ís-
lenzka, býr í næsta sérstæðu
landi, landi m i k i 11 a and-
stæðna, frosts og funa, landi
langra vetra og nóttlausra
vora, landi sem er mjög bert
og blásið og næsta kaldrana-
legt, en á þó marga unaðsreiti
og fáa sína líka á jarðarkringl-
unni um stórbrotna, ferska og
fjölbreytilega náttúrufegurð.
Þetta land er eitt hinna ör-
fáu byggilegu landa, sem ekki
hefur verið umhverfi mann-
vistar nema í 1100 ár. Mann-
skepnan á það sammerkt öðr-
um skepnum, að það tekur
hana nokkurn tíma að aðlaga
sig nýju umhverfi. Og sú
b 1 a n d a Norðurlandabúa og
Kelta, sem hér settist að fyrir
um 1100 árum, virðist hafa
haft fremur litla hæfileika til
að aðlagast svo framandi um-
hverfi.
Víst er um það, að sama
þjóðarblanda dó algjörlega út
í næsta landi, Grænlandi,
vegna þess að hún lærði ekki
að lifa lífinu á þann hátt, sem
lifa þurfti við þarlendar kring-
umstæður, og hafði hún þó þar
til fyrirmyndar þann þjóð-
flokk, eskimóana, sem flestum
betur hefur aðlagazt sínu um-
hverfi.
Hér á landi var engin slík
fyrirmynd um aðlögun þegar
hið eiginlega landnám hófst.
Fáeinir munkar, sem hírðust í
einsetukofum, voru þær einu
mannverur, sem hér voru fyr-
ir. Enda fór svo að lokum, að
nærri lá að hin íslenzka þjóð
liði undir lok. Til þess lágu
margar orsakir, sem hér er
óþarft að rekja, en éin af þeim,
sem ekki skal vanmeta, var
skortur á eðlilegri aðhæfni.
Við lærðum hvorki að klæða
okkur né fæða svo að fullnýtt-
ir væru þeir möguleikar til
slíks, sem fyrir hendi voru
hverju sinni. Það er auðvelt
Ölduljóð
Svæfandi vaggandi seiðandi
tónar,
syngjandi báruljóð.
Hrynjandi þaggandi heillandi
ómar,
hlægjandi ölduflóð.
Gljáfrar báran glett og snör,
geysist upp í klettavör,
steina slettir, stúlku kætir,
storminn grætir, sandinn vætir.
Dr. Sigurður Þórarinsson
að kenna Heklu og Kötlu, haf-
ísnum og herjans Danskinum
um alla okkar eymd, en ef
satt skal segja var sökin einn-
ig að nokkru 1 e y t i okkar
sjálfra.
Það er eitt af frumskilyrð-
um þjóðarheillar og hamingju
einistaklinga, að þjóðin sé í
sátt við sitt umhverfi, ef svo
mætti að orði kveða, að þjóðin
nýti þá möguleika til að njóta
lífsins í landi sínu, sem landið
hefur upp á að bjóða. Svo að
ég vitni í ummæli, sem ég hef
einhverntíma áður viðhaft, þá
er það „oft þrumað yfir okkur
tslendingum, og líklega ekki
Framhald á bls. 2.
Outstanding
Musician
Mrs. K e r r i n e (Wilson)
Siewart-Hay received her
Licentiate in Music (piano)
at the University of Manitoba
Convocation in October 1968
and Bachelor of Music
Degree at the U. of M. Con-
vocation in May 1969, the first
graduate of Icelandic descent
to earn this degree; her par*
ents are the well known musi-
cians, Kerr and Thelma Wil-
son.
Kerrine is married to Peter
Stewart-Hay. They have a
two year old daughter Kristin;
the family resides in Fort
Garry, Winnipeg.