Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 18.03.1976, Qupperneq 1

Lögberg-Heimskringla - 18.03.1976, Qupperneq 1
Borgsteinn Jonsson, Box 218 REYKJAVIK, Iceland 90 ARGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 18. MARS 1976 NÚMER 10 Freigátan Yarmouth siglir á bakborössiöu Baldurs nær þvi á sama staft og Diomede sigldi á hann hálfum mánuhi áöur. Skemmdir á Baldri uröu ekki mjög miklar og er hann enn aö angra breska togara á miöunum... JIM GOODMAN HÓF STARFSFERILINN í GRJÓTHRÚGUNNI í FLIN FLON J. E. Goodman lét nýverið af störfum sem aðal fram- kvæmdarstjóri námu fyrir- tækisins, Hudson Bay Min- ing and Smelting Company í Flin Flon, Manitoba. Hann minntis.t þess þá að hafa byrjað starfsferil sinn í grjót hrúgunni þar, en á kreppu- árunum var allri vinnu tek- ið fegins hendi og þetta var í febrúar 1935. Jim er af íslenskum ætt- um ,sonur Gisla Goodman og Ólafar Bjönrsdóttur .sem nú eru bæði látin. Gísli var tin- smiður í Winnipeg og organ- isti í Fyrstu Lúthersku kirkju. Þau hjón áttu 8 börn sem ólust upp í íslendinga- hverfinu i Winnipeg. Fimm eru enn á lífi. — Bræðurnir Mike og Jim, systurnar Ólöf, Goodv og Babe. Tveir bræð- urnir eru létnir, þeir Connie og Biörn, svo og Frieda syst- ir þeirra. Fimm systkinanna tóku virkan þátt í íþróttum. Mike Goodman vann sér til frama í íslenska ís hockey flokkn- um, „Falcon Hockev Team,” sem sisraði heiminn í Ólym- píu leikunum 1920, en syst- urnar, Goody, Babe og Fri- eda, léku boltaleikinn “soft ball,” í flokki sem nefndist Rambke Rambiers og skor- aði 103 sigra hvern af öðrum á miðium briðja tug aldarinn ar. Er sú frammistaða enn minnisstæð íþróttamönnum í Winnipeg. Framh. á bls. 8 Fólk úr flestum fylkjum landsins samferða fil íslands í sumar ISLENSKUR LÆKNIR SÉRFRÆÐINGUR VIÐ THE MAYO CLINIC HÁLFA ÖLD VIÐ HÁRGREIÐSLU Tíska og tækni taka mörg- upp á hana og árnuðu henni SNORRI Ólafsson, læknir, hefur verið ráðinn frá júlí 1975 sérfræð- ingur f lyflækningum, öndunar- færa- og brjóstholssjúkdómum vió „The Mavo Clinic" í Rochest- er, Minnesota, f Bandarfkjunum, og kennari við læknaháskólann þar. , Snorri er fæddur á Eskifirði, sonur hjónanna Guðrúnar Ingvarsdóttur Pálmasonar al- þingismanns frá Ekru í Norðfirði og Ólafs forstjóra Sveinssonar Olafssonar alþingismanns frá Firði í Mjóafirði. Hann lauk læknaprófi frá læknadeild Há- skóla lslands 1959, stundaði fram- haldsnám i Bandaríkjunum, lengst af við They MayoClinic, en siðar í Winnipeg og Montreal í Kanada. 1 Bandarikjunum vann hann nær ár á styrkjum frá Bandarikjastjórn við rannsóknir á lungnasjúkdómum, og í Kanada vann hann sem „Fellow of the Medical Research Council of Canada" að framhaldsrannsókn- um með styrk frá Kanadastjórn. Hann hefur skrifað um rannsókn- ir sínar i visindarit. Hann hefur lokið prófum og hlotið viðurkenn- ingu sem sérfræðingur i sérgrein- um sínum bæði í Bandarikjunum og Kanada. Arin 1971 til 1975 vann Snorri sem sérfræðingur í lyflækn- ingum,■ brjósthols- og öndunar- færasjúkdómum við Landspital- ann og hafði auk þess lækninga- stofu i Reykjavík. Snorri Olafsson hefur verið kos- inn „Fellow of the Royal College of Physicians and Surgeons of Framh. á bis. 3 um breytingum á hálfri öld. Nú eru andlit kvennanna, sem ganga út úr Lil’s Beauty Shop á Ellice Ave. í Winni- peg, í allt öðrum ramma en þau voru þegar Lillian Eyj- ólfson byrjaði hárgreiðslu fyrir 50 árum og setti 25 cent á kollinn. Sunnudaginn 7. mars héldu ættingjar Lillian upp á starfsafmæli hennar með kaffiveislu í neðri sal Fyrstu Lúthersku kirkju, og skráðu 178 manns nöfn sín í gesta- bókina. Margir viðskiptavin- ir heiðurgestsins heilsuðu þá Á ÍSLENSKUM HESTUM YFIR ÞVERA AMERfKU FJ'ÓRIR ÞjóBverjar og einn Auat- urrlkismaBur jatla I sumar aB taka þátt I hópreiB á hestum yfir þvera Amerlku en hópreiS þessi er farin I tilefni af 200 ára afmæli Banda- rlkjanna. Fararskjótar fimmmenn- inganna verBa islenskir hestar en þátttakendur I hópreiBinni verBa frá öllum rlkjum Bandarikjanna auk þess, sem nokkrar sveitir koma erlendis frá. AætlaB er aB ferB þessi taki 100 daga og vega- lengdin sem farin verBur er um 5600 km. islensku hestamir. sem I ferBina fara verBa 10 og hafa þeir allir dvaliB á erlendri grund slBustu 3 ár og eru eldri en 10 vetra. Frumkvöðlarnrr að þátttöku is- lenska hestsins I þessari hópreið eru hjónin Claus og Ullu Becker^en þau búa I Saarbrúcken I Þýrkalandi og hafa átt Islenzka hesta síðan 1956 Auk þeirra hjóna fara I ferð þessa þeir Lothar Weiland. Johannes Hoy- os og Walter Feldmann yngri Hver Hrappur frá Garðsauka þátttakandi hefur til umráða tvo hesta nefna má að Beckerhjónin ætla að nota stóðhest sinn Hrapp frá Garðsauka og son hans, Hrappson, I ferðinni. Ekki er vitað hvaða aðrir hestar fara I ferðina, en um slðustu helgi var farið með 15 islenska hesta frá Þýzkalandi til San Fran- cisco á vesturströnd Bandarikjanna en þar verða þeir þjálfaðir og siðah valdir úr þeir tiu, sem I ferðina fara Eins og áður sagði eru þetta allt hestar, sem dvalið hafa erlendis um nokkurt skeið og hafa náð að aðlag- ast aðstæðum erlendis auk þess, sem þeir hafa þegar fengið þá hrossasjúkdóma. sem algengir eru erlendis og Islensk hross fá eftir að þau koma út. Lagt verður af stað I ferðina frá Saratoga skammt frá New York 29 mai n.k. og til Sacramento I Kali- fornlu verður komið 5 september og þá lýkur ferðinni Meðal svæða, sem farið verður um má nefna Nev- adaeyðimörkina og Klettaf jöllirt Þátttakendurnir verða á ferðalagi sex daga vikunnar en sjöunda daginn verður haldið kyrru fyrir Vegalengd- Framh. á bls 3 heilla, þó þar sé oftast skammt á milli samfunda, því margar konur í Winni- peg eiga snyrtimensku sína undir því komna að Lil og Herdís systir hennar leggi hendur á hár þeirra. Af góð- um og gildum ástæðum halda þær tryggð við hár- greiðslustofu þeirra systra allt frá fyrstu kynnum. 1 samsætinu voru sex kon- ur, sem hafa sótt hárgreiðslu til Lil síðan hún tók fyrst til starfa í lítilli stofu á St. Matthews Ave. Ein þeirra er Mrs. Lily Smith, og skenkti hún kaffi við fagurbúið borð í veislunni. — Ein minntist þess að Lil hefði greitt henni upp á hæsta móð á brúð- kaupsdaginn 1919. Framh á bls 3 Áhuginn er mikill að komast til íslands í sum- ar, segir Stefan J. Stef- anson, en hann og Ted Arnason, sem báðir eru Nýja-lslendingar að ætt og uppruna, hafa tekið á leigu Air Canada flugvél og standa fyrir hópferð til íslands í sumar. „Fólk úr flestum fylkj um þessa lands verður í hópnum,” sagði Stefan í viðtali við L.-H. Að sjálf sögðu verða því endur- fundir með nokkrum Vestur-íslendingum þeg ar lagt verður upp í ferð ina, og ekki vonlaust um að sumir kynnist sam- löndum sínum hér í fyrsta sinn. Flogið verður af flug- vellinum í Winnipeg seint að kvöldi 29. júní n. k. og áætlað að hóp- urinn verði kominn til ís lands eftir rúmar fimm klukkustundir. Stefan segir að enn séu laus sæti og þeir, sem hafa áhuga á að vera með í ferðinni, ættu að hafa samband við Ollu Stefanson í Winni- peg í síma 338-1161, eða Márjorie Arnason á Gimli í síma 642-8276 sem allra fyrst til að leita sér nánari upplýs- inga. i

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.