Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 18.03.1976, Qupperneq 6

Lögberg-Heimskringla - 18.03.1976, Qupperneq 6
6 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 18. INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR SIGRÚN í NESI Skáldsaga BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR Stofnsett 1897 — Svo að það var ég, sem brást þér, Sverrir! —Nei, Sigrún, það var hvorugt okkar, sem brást. Hann heldur enn í hönd Sigrúnar og horfir í djúp augnu hennar. — Hvernig líður þér héma, Sigrún segir hann. Sigrún svarar engu ,en horfir í augu hans, og Sverrir les svarið í tárum hennar. Hann þrýstir hönd hennar fastar. Öll orð eru óþörf. Sálir þeirra tala sínu hljóða máli innilegrar ástar og sárrar sorgar. Búðardymar opnast, og maður kemur inn. Sig- rún kippir að sér hendinni og reikar út úr búðinni, Hún er komin heim að húsi sínu, og man þá eftir því, sem hún setlaði að kaupa í búðinni. En nú er Sverrir litli kominn heim og er að leika sér sunn- an undir húsinu, og Sigrún sendir hann ofan í búð ina eftir því, sem hún gleymdi. Síðan reikar hún inn í eldhúsið og hnígur þar niður á stól. Sorg hennar og kvöl er þyngri og sárari en nokkru sinni fyrr. — t>að var ég sem brást honum, sem treysti mér! Guð minn góður, hjálpaðu mér. Orðin líða eins og neyðaróp frá vörum hennar út í þögn ein- verunnar. Brennheit tár hennar brjótast fram, og útrás þeirra svalar sál hennar. Sverrir litli kemur aftur neðan úr búðinni. — Hann hleypur inn í eldhúsið til móður sinnar og nemur staðar hjá henni. Barnsleg augu hans horfa með spyriandi undrun á tárin, sem streyma niður vanga hennar. — Hann hefur aldrei séð mömmu gráta fyrr. — Af hverju ertu að gráta, mamma mín? spyr hann. — Þú ert of ungur enn, vinur minn ti lað skilja sorg mína, segir Sigrún. Sverrir litli lyftir sér upp í fang hennar og vefur örmum sínum um háls hennar. — Gráttu ekki, mamma mín, segir hann með blíðri barnsrödd. Þegar ég er orðinn stór eins og nafni í búðinni, ætla ég að vera góður eins og hann og alltaf hafa þig hjá mér. — Guð blessi þig, elsku litli Sverrir minn, og gefi að þú verði líkur nafna þínum í búðinni. Sig- rún faðmar drenginn að sér, og örlítill brosgeisli speiglast í tárum hennar. Sverrir litli er dýrmæt guðs gjöf og bjartur geisli í þungbæru örlaga- myrkri lífs hennar, og hans vegna má hún ekki láta bugast. Sverrir Karlsson getur ekki hugsað sér að vera lengur í Lóni. Ást hans til Sigrúnar er heitari en nokkru sinni fyrr. Hann veit, að Sigrúnu líður illa en hann hvorki má né getur hjálpað, og það er honum sárara en allt annað. Hann verður að kom- ast sem fyrst burt frá Lóni. Nú ákveður hann að fara heim að Hamraendum og létta áhyggjum af þreyttum foreldrum sínum. Hann ætlar að eyða kröftum sínum í sveitinni sinni í þögulli sorg, þar til yfir lýkur. Sverrir kemur að máli við Snjólf kaupmann og segir honum ,að hann verði að hverfa heim aftur í sveitina sína. Snjólfi þykir það leitt að missa þennan ágætis mann, því engan betri hefur hann haft í þjónustu sinni öll þau ár, sem hann hefur rekið verslun í Lóni. Sverrir er ekki ráðinn neinn ákveðinn tíma, og fyrrverandi búðarmaður Snjólfs er kominn heim aftur við sæmilega heilsu, tilbúinn að hefja sitt fyrra starf. Sverrir segir því upp stöðu sinni með mánaðar fyrirvara. Einn fagran vormorgun kemur Sverrir litli hlaupandi inn til mömmu sinnar og heldur á stóru umslagi í hendinni. Honum er mikið niðri fyrir. — Mamma, sjáðu, hvað hann nafni minn í búð- inni gaf mér. Hann réttir mömmu sinni umslag- ið. Sigrún tekur við því og opnar það. í umslaginu er sparisjóðsbók með nafni Sverris Þórarinssonar og eitt þúsund króna inneign í sparisjóð Lóns- hrepps. — Hvað sagði nafni þinn, þegar hann gaf þér þetta? Sigrún er undrandi yfir þessari stóru gjöf. — Hann sagði, að ég ætti að eiga þetta til minn- ingar um nafna í búðinni. Svo fór hann með mig inn í blómagarðinn hjá hcnum Snjólfi. Þar lét hann mig setjast hjá blómunum. Svo kom hann með skrítinn kassa og sagðist ætla að taka mynd af mér. Nafni minn kyssti míg marga kossa og var ósköp góður við mig. Hann sagðist ætla að fara með skipinu í dag. — Dapur skuggi líður yfir and- lit drengsins. j— Jæja, svo hann er þá á förum héðan. Sigrún lætur umslagið með sparisjóðsbókinni niður í kommóðuskúffu. — Þetta skal mamma geyma fyr- ir drenginn sinn, segir hún og kyssir Sverrir litla blíðlega. Drengurinn hleypur út aftur, en Sigrún færir stól að glugganu.m, sem snýr út að firðinum, og tekur sér sæti þar. Augu hennar fylgja eftir stóru strandferðaskipi, sem siglir út lognkyrran fjörð- inn. Sverrir Karlsson er þar einn farþeganna. — Skvldi hún aldrei sjá hann framar? í sál hennar brennur djúpur harmur og ástliúf þrá eftir hon- um, sem skipið ber óðfluga burt frá henni. — Guð og gæfan fylgi þér, góði, göfugi æsku- vinur! Aldrei skal lengd tímans má mynd þína úr hiarta mínu, hugsar hún, og augu hennar fyllast tárum. Og strandferðaskipið hverfur fyrir móðu þeirra. Sverrir er farinn. Sigrún rís á fætur og gengur frá glugganum aft- ur. Hversdagsstörfin kalla hana til þrotlausrar þjónustu og nýrra fórna. XVI. ENDURMINNINGARNAR LIFA Sverrir Kansson er kominn heim að Hamraend- um. Foreldrar hans fagna innilega heimkomu síns kæra einkasonar. Hann tekur ötull til starfa í þjón ustu við frjóa jörðina til lífs og þroska. Starfið megnar að sefa og milda djúpan söknuð og dula harma hans. Drungalegur sunnudagsmorgun grúfir yfir sveit inni. Þorgerður gengur upp í svefnherbergi sonar síns með morgunkaffið hans á bakka. Sverrir er löngu vaknaður, en liggur enn í legubekk sínum og les í bók. Þorgerður býður syni sínum góðan dag og setur kaffibakkann á náttborðið hjá hon- um. Sverrir leggur bókina frá sér og býður móður sinni sæti á legubekknum fyrir framan sig. Þor- gerður sezt niður og styður hönd undir kinn. — Sverrir drekkur kaffið en Þorgerður veitir athygli mynd af litlum dreng, sem stendur á náttborði Sverris. — Hver á þennan fallega dreng? segir hún og tekur myndina af borðinu og skoðar hana. Sverrir brosir raunalega. — Eg á hann. — Þú? Átt þú — dreng? Þorgerður horfir undr- andi á son sinn. — Já, víst á ég hann, þó gæfan væri mér ekki svo hliðholl að verða faðir hans, Sigrún frá Nesi MARS 1976 er móðir hans, og hann ber nafnið mitt. — Bar fundum ykkar Sigrúnar saman á ný, meðan þú dvaldir að heiman? — Já, hún er búsett í Lóni, þar sem ég var innanbúðarmaður. Þorgerður kann ekki við að spyrja son sinn nán- ar út í þetta viðkvæma einkamál hans, en Sverrir segir henni allt um samfund þeirra Sigrúnar og kynnum sínum af litla drengnum hennar. Þorgerður hlustar döpur á frásögn Sverris, og svo segir hún: — Eg vildi að þessi fallegi drengur væri kom- inn hingað til okkar. Ekkert ber skapandi mætti allífsins fegurra vitni en lítið saklaust barn. Sverrir tekur myndina af nafna sínum og horf- ir raunalega á hana. — Eg ber sjálfsagt aldrei gæfu til að sjá hann á heimili mínu. Sorgin í rödd Sverris snertir djúpt strengi móð- urhjartans, og Þorgerður segir blíðlega: — Vegir Guðs eru órannsakanlegir, Sverrir minn. Hver veit nema hann eigi eftir að gefa þér hann, og þau bæði. Bjartur geisli brýst skyndilega fram úr skýjum himinsins, sem hulið hafa sólina, það sem af er dagsins, og fellur á myndina, sem Sverrir heldur enn í hendi sér. Móðir og sonur líta hvor á annað og brosa. Var þessi geisli sendur þeim sem svar við spurningum framtíðarinnar? Þorgerður rís á fætur, tekur kaffibakkann og gengur út úr herbergi sonar síns. Sumarið líður. — Ótal verkefni kalla. Sverrir gengur ötull og mikilvirkur að störfum. Heima á óðali feðra sinna í nánum tengslum við frjóa ang- andi moldina finnur hann loks hugsvölun og frið. Á hljóðum sumarkvöldum söðlar hann gæðinga sína og þeysir einn út í þagnarheim náttúrunnar. 1 víðáttu-faðmi hinna óbyggðu heiða og öræfa rifj- ar hann upp endurminningar æskuáranna. Þær getur enginn frá honum tekið. Hvíti fallegi Fákur fylgir honum ætíð á slíkum ferðum. Þorgerður ein skilur son sinn til hlítar. Hún á leyndarmálið harmblíða með honum og geymir það trúlega. —' Og sumarið líður. Brosmild haust- sólin stafar geislum sínum inn um skrifstofu- glugga Karls hreppstjóra. Hann situr við skrifborð sitt, og Sverrir við hlið hans. Þeir fara sameigin- lega yfir skjöl og reikninga sveitarinnar. Karl hreppstjóri dregur hverja skúffuna af ann- arri fram úr skrifborði sínu og tekur upp ný skjöl. Hann vantar mikilsvarðandi bréf ,sem hann finn- ur ekki. — Neðstu skúffuna í skrifborðinu opnar hann sjaldan, en nú dregur hann þá skúffu fram líka og leitar í henni. Sverrir fylgist af athygli með leit föður síns að hinu dyrmæta skjali, og skyndilega nema augu hans staðar á óopnuðu sendibréfi, sem liggur neðst á botni skúffunnar. Sverrir skiptir litum. Hann þrífur bréfið, og hönd hans titrar lítið eitt, þetta sendibréf þekkir hann. Karl hættir að leita og horfir dálítið undrandi á son sinn. — Því er þetta sendibréf hér niður komið? segir hann. Karl lítur á bréfið. — Þetta kom hingað í pósti sumarið eftir að þau fluttu frá Nesi, Björn gamli og Sigrún. Eg vissi ekki um heimilisfang þeirra fyrir vestan, en ætlaði alltaf að spyrja hjónin í Nesi um það. Eg bjóst við því, að þau vissu það einna helst, en það fórst fyrir, og bréfið gleymdist með öllu. — Þekktir þú ekki skriftina utan á bréfinu? — Jú, ég þekkti þína rithönd á bréfinu, en það skipti engu máli. Það tafði ekki að neinu leyti fyr- ir því, að bréfið kæmist til skila. Þú ert frjáls að skrifa hverjum og hverri, sem þér sýnist, mín vegna. — Komu þá ekki fleiri bréf hingað til Sigrúnar með minni rithönd, meðan ég dvaldi í Svíþjóð? — Jú, það mun hafa komið eitt bréf til hennar frá þér löngu áður, og það sendi ég út að Nesi. — Það bréf komst aldrei til Sigrúnar. — Hvernig veistu það? — Hún sagði mér það sjálf, er ég hitti hana vestur í Lóni. Svipur hreppstjórans þyngist. — Manstu með hverjum þú sendir bréfið út að Nesi? spyr Sverrir.

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.