Lögberg-Heimskringla

Date
  • previous monthMarch 1976next month
    MoTuWeThFrSaSu
    1234567
    891011121314
    15161718192021
    22232425262728
    2930311234
    567891011

Lögberg-Heimskringla - 18.03.1976, Page 7

Lögberg-Heimskringla - 18.03.1976, Page 7
7 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 18. MARS 1976 76 I I Fjölstrendnismenningarstefnan? llíW VIW LV yVJlMm Hún er undir þér komin. Það er tilgangur fjölstrendnismenningarstefnunnar að hjálpa Kanadamönnum til að eiga góða sambúð að skilja hvers annars fjöl-breytta uppruna og mismunandi erfðir. Það er heila hugmyndin. Þó kanadíska fjölstrendnismenningarstefna sé föst stefna stjórnarinnar, er hver maður frjáls og sjálfráður. Það er eiginlega allt undir okkur komið að hún heppnist. Sambandsstjórnin býður upp á eftirfarandi starfsskrá (program) og möguleika til að varðveita menningarerfðir okkar. í INNANRÍKISRÁÐUNEYTINU Fjölstrendnismenningarstefriuskráin er til þess gerð að að- stoða og'framfleyta þróun allra kanadískra samtaka, sem vilja varðveita þjóðararf sinn og auðga með honum kana- díska menningu. Framkvæmdum eftirfarandi áætlana er ætlað að styðja að því að markmiðinu verði náð: MILLIGÖNGU ÞJÓNUSTA FYRIR FÉLÖG INNAN ÞJjÓÐARBROTANNA Býður upp á aðstoð sérfræðinga á alþjóðarsviði og út um land við stofnun félaga og upplýsingamiðlun.' AÆTLUN VARÐANDI ÞJÓÐARSÉRKENNI Kappkostar að hlúa að menningarsérkennum smærri þjóða- brotanna og stuðla að auknum skilningi og vakandi meðvit- und um hina margþættu menningu kanadísku þjóðarinnar, gegnum hannyrðir, leiklist, þjóðlistasýningar og bókmenntir NEFND SEM LEGGUR A RAÐ UM KENNSLU 1 FRÆÐUM ÞJÓÐBROTANNA Leiðbeinir og leggur á ráð um rannsóknir í fræðum þjóða- brotanna í Kanada og skipuleggur störf- aðkomandi fræði- manna í kanadískum háskólum. AÐSTOÐ VIÐ KENNSLU í ÞREÐJA TUNGUMALS Fé veitt til ‘þróunar og framleiðslu kennslutækja-í tungu- málatímum. AÆTLUN UM FJÖLSTRENDNISMENNINGAR SAMKOMUSTAÐI Fé veitt sjálfboðahópum til að koma upp fjölstrendnis- menningar samkornustöðum í umhverfum sínum. AÆTLUN UM SAMSTILLINGU INNFLYTJENDA VIÐ ÞJ|ÓÐARHEILDINA Aðstoðar hina ýmsu_hópa við að hjálpa innflytjendum til að taka fullan þátt í kanadísku þjóðfélagi. FJARVEITINGA AÆTLUN Fjárframlög til styrktar sjálfboðahópum, sem vinna að því að efla fjölstrendnismenninguna á yfirgripsmiklu svæði. ÞJÓÐFILMUNEFNDIN Þjóðfilmunefndin (The National Film Boárd) hefur gert 400 myndir með texta á 19 tungumálum. Þær eru fáanlegar endUrgjaldslaust á skrifstofum The National Film Board í eftirfarandi borgum: — Vancouver, Winnipeg, Toronto, Montreal, Ottawa og Halifax. ÞJÓÐMINJASAFNIÐ Þjóðminjasafnið (The National Museum of Man) skráir sögu menningar og hefða allra þjóðabrota í Kanada. 1 safninu er saman kominn fjöldi minjagripa, segulbanda og sjónvarps- segulbanda. Sérstök áhetsla hefur verið lögð á sérkennileg- an og þjóðlegan byggingarstíl, innanhússmuni, matarfram- leiðslu tæki, sem tíðkuðust áður en nútíðar iðntækni tók við; þjóðsögur, fjölskyldulíf og félagslíf, veisluhöld og há- tíðasiði. Menningarsýningar og ferðasýningar eru í undir- búningi. í ALMENNA SKJALASAFNINU Þjóðbrotaskjalasafnsdeildin í Þjóðskjalasafninu (Public Archives) er til þess gerð að hafa uppi á skráðum heimildum þjóðabrotanna og varðveita þær frá glötun, skemmdum og eyðilegging. Starfslið skipað sérfræðingum hefur nú byrjað athugun og samanburð á þessum dýrmætu og þýðingar- miklu heimildum um þjóðararf okkar, með því að hafa sam- band við félög og einstaklinga innan þjóðafcrotanna. t ÞJÓÐBÓKASAFNINU Þjóðbókasafnið (The National Litorary) hefur tekist á hend- ur að skipuleggja fjöltyngda (multilingual) bókfræðiþjón- ustu. Er þar með stefnt að því að safna bókum á öðrum tungumálum en hinum tveim löggildu tungumálum, óg veita aðgang að bókunum í almennum bókasöfnum. Fyrsta bókasendingin á 10 tungumálum fór út frá Ottawa í mars 1975. Tilgangurinn er að bæta við bókum á 10 öðrum tungu- málum þar til talan kemst upp í bókmenntir á 70 tungumál- um... Til að tjá skoðun þína eða leyta frekari upplýsinga, skrifaðu: Muiticulturalism, P.O. Box 366, Station A, Ottawa, Ontario K1N 8Z9 ■ |H Hon. John Munro L’hon. John Munro I MP Minister Responsible Ministre chargé m for Multicuituralism du multiculturalisme

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue: 10. tölublað (18.03.1976)
https://timarit.is/issue/163931

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

10. tölublað (18.03.1976)

Actions: