Lögberg-Heimskringla - 01.08.1978, Side 10

Lögberg-Heimskringla - 01.08.1978, Side 10
LOGRERG-HEIMSKRINGLA, HATIÐARBLAÐ AGUST 1978 'ÍO JÓN TRAUSTI ANNA FRÁ STÓRUBORG SAGA FRÁ SEXTÁNDU ÖLD é ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ REVKJAVlK Anna lagði höndina á öxlina á Steini og færði hann nær bróður sínum. Hallur stóðst þá ekki lengur og tók við fram- réttri hönd hans. Rétt á eftir kysstust þeir fast og innilega, eins og þeir væru að bítast. Drengirnir héldu niðri í sér hlátrinum af öllum mætti. Svo smeygðu þeir sér út á bak við mömmu sína, til þess að hlæja lyst sína. Anna fór þá aftur ofan í veislusalinn til að sækja vínið, sem hún hafði lofað bræðrunum. Þegar hún kom þangað, stóð svo á, að bróðir hennar var að halda ræðu. Hann var að svara fyrir skál, sem til hans hafði verið drukkin. Anna nam staðar og hlustaði á ræðuna. Hún ætlaði að ná tali af bróður sinum á eftir. „-----það er meira sólskin undir Eyjafjöllum í dag,” mælti lögmaður, „en ég hefi nokkum tíma sér fyrri. Oft hefir mér fundist næða köldu á móti mér, þegar ég hefi verið hér á ferð. Venjulegast hefi ég ekki annað séð en kald an og ískyggilegan þrjóskusvip á öllu — og öllum. Hvert sem ég hefi litið, hefir ekki annað mætt augum mínum en þoka og drungi og skynvillur. Hvergi skír svipur, hvergi hreinleiki og einlægni og vingjarnlegt viðmót. Mér fannst allt hér imdir fjöllunum hata mig, bæði náttúran og menn- imir. Mér fannst himinn og jörð vera á hverri stundu til þess búin að leggjast saman og kremja mig á milli sín. Eg var farinn að þrá sólskin — bjarta fjallatinda og blikandi sjó, — sjóinn héma fyrir framan, sem oft kastar af sér svo miklu sólskini, að maður fær verk í augun, — fjöllin hérna fyrir ofan, sem gætu lýst heilum heimi, þegar vel liggur á þeim. En alltaf varð svartara yfir, eftir því sem ég kom oft- ar. Loksins skildist mér það þó að seint væri, að maður get- ur ekki tekið sólskinið með valdi. Yfir því ræður ekkert lögmannsvald, ekkert jarðneskt konungsvald. — En þegar eitthvað hefir verið vel gert, opnast himinninn og sólskinið steypist yfir mann í stórum fossum. Og nú finn ég, að ég hefi loksins hitt á að gera það, sem Eyfellingar óskuðu, þvi að nú streymir sólskinið á móti mér úr hverju auga. Og ég fer að halda, að ég hafi líka borið gæfu til að geðjast himinbúimum, því að aldrei hefir sólin skinið glaðar á mig en i þessari ferð----. Að þessari ræðu lögmanns var gerður mikill rómur. Anna náði í bróður sinn að ræðunni lokinni, sagði hon- um frá sætt þeirra • bræðranna, og bað hann að gera það fyrir sig að gleðja þá með því að koma í loftið til þeirra og hringja glösum við þá. Lögmaður gerði þetta með mestu ánægju. Mesta gleði hans á þessum degi var að sýna sem flestum almúgamönn- um lítillæti. Sigvaldi í Hvammi fór með þeim i loftið. Anna gat ekki fengið af sér að láta hann verða af þeirri ánægju að sjá bræðurna faðmast. — Rétt á eftir töluðu þau ein saman nokkur orð, Anna og bróðir hennar. „Eg hefi aldrei lifað glaðari dag en þennan,” mælti lög- maður. „Nú veit ég loksins, að það er sælla að fyrirgefa en hefna. Þetta hefir verið prédikað fyrir mér á ýmsan hátt alla mína ævi, og ég hefi aldrei trúað því. Nú er ég innan um fjölda manns, sem allir hafa verið í sökum við mig, og nú eru þeir svo glaðir yfir því að hafa mig mitt á meðal sín, að ég held, að þeir gengju út í eld og vatn mín vegna.” „Já, það geturðu reitt þig á, að þeir mundu gera'. Eg sá þetta fyrir, og þess vegna valdi ég þá eina úr, sem mest höfðu gert á hluta þinn að undanförnu í þessu máli. Nógu margir munu óvinir þínir vera samt, þó að þessir gengi frá.” Það var sem ský drægi yfir svip lögmanns. „Já, nógu margir eru óvinir mínir samt,” mælti hann. „Nú er búið að grafa svo sundur allan grunn undir fótum mér, að engin von er til, að ég fái staðist lengi úr þessu. — Alls staðar er búið að rægja mig og óvirða. Allt í kringum mig er búið að leggja net af sakargiftum, sumum sönnum, Pctur minn, það eru bara leiðindakallar, sem ætla að taka boltann frá honum pabba þínum! Þetta verður í síðasta skipti sem ég réyni að fá kónginn til að hlæja! Ég sit hér vegna litblindu. — Prentaði 5000 kalla! Þetta hcitir mislingar! — Nú het ég komizt aft þvl, aö ég hef sömu málin og Sophia Loren, bara ekki alveg á sömu stöbum. flestum .lognum, net, sem ómögulegt er að slíta, net, sem herða þvi fastar að sem fastar er á þeirn tekið. Innan fárra ára hlýt ég að verða dæmdur frá embætti og kannske ein- hverju af eignum mínum líka. Ef til vill á ég nú enga vini til, nema þá, sem ég hefi unnið mér til hér undir fjöllunum þessa dagana. En það eru líka góðir vinir, sem ég má treysta, hvað sem annafs gengur á. Og þó að ég viti að skýin dragast saman allt í kringum mig, á meðan ég baðast í sólskininu hjá ykkur, gef ég því engan gaum, og nýt hinn- ar líðandi stundar. Það var engin uppgerð, sem ég sagði í ræðunni minni áðan. Hér er sólskin og gleði, sem vermir mig inn að hjartarótum, og ef til vill bý ég lengi að þessu sólskini, þegar allt er orðið kalt í kringum mig. Ef til vill vermir þessi dagur mig til dauðans.” Systkinin gengu aftur inn í veisluglauminn, en uppi i svefnloftinu föðmuðust bræðurnir og kystust og drukku hvern sáttabikarinn eftir annan, þar til báðir sofnuðu á gólf inu. 2. NÝTTLlF Daginn eftir brúðkaupið var messað í hálfkirkjunni á Stóru borg og þar vígður nýr prédikunarstóll, sem Hjalti hafði skorið út á tíma þeim, sem liðinn var frá því sættir tókust með systkinununr og fram að brúðkaupinu, og gefið kirkj- unni í guðsþakkaskyni. Kirkjan var troðfull af fólki; við hlið altarisins að sunnanverðu sat lögmaður og Hjalti hjá honum. Anna og börn hennar sátu í sæti þvi, er næst var prédikunarstólnum, en frammi í krókbekk sátu bræðurnir Steinn og Hallur. Það var í fyrsta skipti sem Hallur hafði fengist til að koma í „saurgaða” kirkju, og hafði það ekki gengið striðlaust, en vegna þess, að ekki var laust við, að það „hamraði í höfðinu á honum” eftir veislugleðina daginn áður, hafði hann unnist. — Að lokinni messu dreifðist mannsöfnuðurinn í allar áttir, og undir kvöld var loks orðið gestalaust á Stóruborg. Fólkið var orðið þreytt á gestanauðinni og veislumönnun- ■ um og gekk snemma til værðar um kvöldið. — Rósemin og friðurinn á heimilinu stakk mjög í stúf við það, sem verið hafði næstu daga á undan. Um kvöldið sátu þau Anna og Hjalti í svefnlofti sinu. — Börnin, sem þar sváfu, voru sofnuð og allt orðið hljótt um- hverfis þau. En þetta friðsæla kvöld var svo fullt af blíðu og yndi, að það var sem þau gætu varla slitið sig frá því að vera á fótum og njóta þess. Þau sátu bæði þegjandi og horfðu út um gluggann. Úti fyrir var allt svo hátíðlegt, kyrrt og blítt, að það greip hug þeirra rfieð lotningu. Grundirnar suður af bænum lágu í mildum, blágrænum kvöldskugga, því að sólin var fyrir góðri stundu gengin bak við Eyjafjallajökul. Þessi blágræni litur dökknaði frammi við sjóinn, þar sem sandarnir tóku við. Framan við sandana reis landaldan, hægt og letilega, en hélt þó áfram að rísa, þar til hún var orðin svo há, að hún gnæfði yfir sandana, og svo hvöss, að hún var glær að ofan. Þá steyptist hún yfir sjálfa sig og valt i fannhvítri, freiðandi hrönn upp á sand- inn. Utan við hana liðu stórar, þungar ölduleiðingar, hver á eftir annarri. Allar stefndu þær upp að sandinum og allar tóku þær upp sama verkið, sem fyrri systur þeirra höfðu sprungið á: Allar reyndu þær að skola burtu sandinum. Og allar slitu þær jötunafli sínu til furðu lítils. á þessari seigu, mjúku dyngju, sem lá á endilangri ströndinni. Lengra úti var hafið slétt og bjart, eins og þunnur, glær ís lægi yfir því öllu. Langt, langt suður á hafinu var þokubakki, sem geislar hinna lækkandi sólar bak við Eyjafjallajökul, léku sér nú að að skrýða pelli og purpura. Ó, hvílík dýrð! Það var sem myndir af heilum löndum væru dregnar upp á himininn með hinum dásamlegustu litum. Það var sem suðurhiminn- inn speglaði ekki einungis allt Island, heldur ótal undra- lönd að baki þess langt úti í regin-norðri, norður í hafs- botnum, ævintýralönd, sem ekkert dauðlegt auga hafði litið. — Þar risu himinhá fjöll með meitilhvössum tindum, þar gnæfðu skínandi jökulbungur, þar stóðu dásamlegir eldstólp ar og undu sig upp i himininn. Neðri hluti skýjafjallanna rann saman í mjúkri, blárri móðu. Á hana voru svo undir- f jöllin dregin. Þau voru ekki aðrir eins jötunar óg hin, sem hærra gnæfðu, en þau voru fegurri og yndislegri í yfirlæt- isleysi sínu. Þar voru allir svipdrættir svo mjúkir og mildir, engar skerandi hvassar raðir, engir hrikasvipir skins og skugga hver við annars hlið. Þar var allt sem strokið og fágað af hlýrri, vingjarnlegri hönd. Sólin var horfin af þeim. Þau voru hætt að brenna eins og fjallaeldar, þau létu sér nægja með endurskinið af björtu kvöldloftinu fyrir ofan sig

x

Lögberg-Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.