Lögberg-Heimskringla - 01.08.1978, Page 24

Lögberg-Heimskringla - 01.08.1978, Page 24
LOGBERG-HEIMSKRINGLA, HATIÐARBLAÐ AGIJST 1978 Sæmd erhven þjóð... Þrasi falegi akautbúningur ar nú á dögum einurtgís notaður sem hátíðerbúningur aða viðhafnarbúningur. Treyjan er með baldýringu á barmi og ermum, og pHsið með isaumuðum kanti að neðan. Höfuðbúnaðurinn er faldur, koffur, slör og silkblaufa að aftan, og að sjátfsögðu er stokkabelti með sprota ömiss- andi. Þá er komið að því að 17. júní renni upp. Ekki er ólíklegt, að þeir sem bregða sér niður í bæ, eigi eftir að sjá skrautbúnum konum með skotthúfur bregða fyrir en það er einmitt sú sjón, sem setur hvað mestan hátíðarblæ á þennan mesta hátíðisdag landsmanna. Saga íslenska þjóðbúningsins er of löng til þess að rekja megi hana hér og mun því aðeins verða getið þeirra gerða hans, sem algengastar eru þ.e. eftir að Sigurður Guðmundsson, listmálari, lagði að gjörva hönd á öldinni sem leið. Þær eru eflaust margar konurnar, sem lengi hefur dreymt um að eignast þjóðbúning, en ekki talið sig hafa efni á því. En er það nokkuð dýrara að koma sér upp slíkum upphlut í dag, en að fá sér veglegan samkvæmiskjól? Við leituðum til verslunarinnar BALDURSBRÁR með þessa fyrirspurn, en hún var stofnuð árið 1919 af frk. Kristínu M. Jónsdóttur og frú Ingibjörgu E. Eyfells, sem nú er látin. Núverandi eigandi verslunarinnar er frú Kristín Eyfells, en hún er dóttir Ingibjargar. Kristín upplýsti okkur um það, að áhugi kvenna fyrir upphlutnum hefði aukist mjög á síðustu árum. Væri þaö mikið vegna þess, að nú væri hægt að gera hann úr garði á viðráðanlegu verði, með því að sauma hann eftir eldri gerð með svokölluðum líberíborðum og legg- ingum, og gjarna væri tekin upp gamla, beina miðlínan á baki. Bolirnir eru þá rauðir, flöskugrænir eða indigóbláir og prjónuð, svört húfa með skúf í lit, sem fer vel við, er þá gjarna notuð. Þá hefur aukist í seinni tíð notkun handofinnar ullarsvuntu, dúksvuntu, og hvítrar blússu. Mjög erfitt er að upplýsa nákvæmlega hvað það kostar, að fá sér upphlut, þar sem hægt er að fá efni i hann á mjög mismunandi verði, eftir magni og gæðum. Einnig fer það mikið eftir smekk hvers og eins, hve mikið silfur er notað í búninginn. Kristín Eyfells áætlaði, að efnið í búninginn (dúksvuntan ekki talin með) gæti kostað 30-40 þúsund krónur. Skúfhólkurinn og millurnar kosta um 50 þúsund, en allt silfrið í heild kostar um 100 þúsund. Að sjálfsögðu hefur efnið í þessa búninga alla tíð verið háð þvi hvað fáanlegt hefur verið og hentugt hefur getað talist, og eins hefur gætt í gerð hans tiskufyrirbæra, eins og eðlilegt er með lifandi búninga. Þeir, sem áhuga hafa á nánari upplýsingum um upphlut- inn, er bent á að hafa samband við Baldursbrá Skólavörðustíg 4a, en fyrir utan að hafa nú bæði til sýnis og sölu ýmsa muni lista- og hagleiksmanna t.d. málverk, tréskurðar- og prjónavörur (lopa- peysur), þá er hún eina sérverslun þessarar tegundar hér á landi. Vikan 24. tbl. 40. árg. 15. júní 1978 KyrtHlinn or sannHoga onduriffgun búnlngs fomkvsnna. Hann er löttur, þœgilagur og ætíaður tH viðhafnar og skemmtana við dans, brúðkaup og aðrar gleðisamkomur. Hann mö vera hvrtur, blér eða svartur með ýmiskonar útsaumi, og honum f ylgir f aldhófuðbúnaður eins og skautbúningL Síðastliðna áratugi harfur nútimaupphkiturinn verið skreyttur með æ meira silfri, svo segja mö að nú sé möl að linni, til þess að notkun hans geti orðið almennari en nú er. Við hann er notað baldýrað beKi og dúksvunta. Hér sjöum við upphlut með rauðum bol, sem er saumaður eftir eldri gerð. Hann er skreyttur með liberiborðum og millum. Svuntan og háls- knýtið er úr köflóttu, léttu efni og húfan djúp með rauðum skúf. With Compliments of . . . TARGET STORE DRY GOODS Phono: 642-5246 83 & 3rd Ave. Gimli, Manitoba Compliments of . . . PALSON RADIO & TV R.C.A. TV, RADIO, STEREO AND APPLIANCES Phone 376-5011 ARBORG, MAN. COMPUMENTS OF . . . RIVERTON CO-OP ASS'N LTD. Service Centre 378-2324 General Store 378-2251 Groceries, Meat, Dry Goods, Hardware, Feed, Oil, Grease Building material, Farm Supply, Pump Gas. PHONE 378-2251 RIVERTON. MAN.

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.