Alþýðublaðið - 25.10.1960, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 25.10.1960, Blaðsíða 3
 §§ ÞAÐ á ekki af Kongó- mönnum aS ganga. Nú herma fréttir, að her þeirra innfæddu fari með ráni og barsmið'um um Leopoldville. Mobutu, hershöfðingi, sá, sem væntanlegur er til New York í dag, hefur misst alla stjórn á mönnum sínum — og var aginn þó ekki mikill fyrir. Mynd- in sýnir hvernig svartur umgengst svartan í Kon- go um þessar mundir. — jHJermenn þjartua að ó- breyttum borgara. LONDON, 24. okt. (NTB.) í dag hækkaði enn verff á gulli í kaup höllunum i London og París, en búizt hafði verið viff, að „gull- æðið“ væri úr sögunni fyrir helgi_ Komst únsan (31,10 grömm) upp í 40 dollara, en venjulegt verð er 35 dollarar. Ástæðan fyrir þessu háa gull- verði er sú, að gullkaupendur í Evrópu gáfu usmboðsmönnum sínum skipun um að kaupa gull á „bezta fáanlega verði“, það er að segia: ekkert var tekið ti'l um hve hátt mætti bjóða, en það er venján í kauphallarvið- skiptum. Kauphallarmangararn ir voru furðu lostnir vegna þessara fyrirmæla og segja, að annað eins hafi aldrei komið í stuttii máU: Leopoldville. Mobutu hers- höfðingi, hinn sterki máður í Kongó, hefur hætt við för sína til New York. Kongóher fer nú rænandi og ruplandi. London. Frank Cousin hef- ur rætt við Krústjov í Mos- kva. Cousin er helzti talsmað ur innan Verkamannaflokks- ins fyrir því, að Bretar afsali sér kjarnorkuvopnum. Hann sagði að Krústjov hefði verið að fara til fundar við Mikoyan á Krím. London. Finnski verzlunar- málaráðherrann hefur undan- farið dvalið í London og rætt um hugsanlega aðild Finna að verzlunarsvæðum Vestur- Evrópu. Japanska þingið leyst upp TOKIO, 24. okt (NTB). Jap- anska þingið var leyst upp í dag og verffa nýjar kosningar í land inu 20. nóvember næstkomandi. Flokkur Ikeda forsætisráð- herra, íhaldsflokkurinn, hefur 283 'þingsæti, sósíalistar háfa 122 og. hinn nýstofnaði flokkur dejnókratiskra . sósíalista f 40 þingsáeti. Talið er 'að morðið. á J af naðarmannaf oring j anum Az- anuma muíji valda.því, að flokk ur hans fái mjög aukið fyjgi. fyrir áður í kauphöllinni í London. Verð á hlutabréfum í gull- námum hækkaði mjög í kaup höllinni í Jóhannesarborg í dag Augljóst er að menn vilja nú heldur ei'ga gull en dollara hvað sem veldur, en þrálátur orðrómur gengur um að í ráði sé að lækka gengj Bandaríkja dollars. Eisenhower sendir Brandt boöskap BERLÍN, 24. okt. (NTB). Eisen- hower Bandaríkjaforseti hefur sent Willy Brandt, borgarstjóra í Vestur-Berlín boðskap, þar sem segir, að bandaríska þjóð in standi með íbúum Vestur Berlínar í baráttunni fyrir frelsi sínu. Willy Brandt hélt ræðu í dag í tilefni af því, að tíu ár eru liðin síðan Bandaríkjamenn sendu Berlín „frelsisklukkuna“. Brandt sagði, að heldur vildu íbúar borgari'nnar lifa við erf iðleika en að láta af hendi rétt- inn til þess að lifa frjálsir. FELLIIR FRANSKA STJÓRNIN í NÓTT París, 25. okt. (NTB). í NÓTT eða snemma í fyrra- málið verða greidd atkvæði i franska þinginu um stjómar- frumvarp um að búa skuli franska herinn kjarnorkuvopn- um. Stjórnarandstæðingar hafa gert harða hríð að stjóm- inni vegna þessa máls og hafa flestir flokkar sameinast gegn stjómarflokknum og borið fram vantraust á Debré og stjórn hans. Guy Mollet, fóringi jafnaðar- manna var fyrstur á mæíenda- skrá í morgun, og deildi hann hart á fyrirætlanirnar um að veita- 18 milljarða franka til þess að þúa herinn kjarnorku- vopnum. Taldi hann, að það yrði til þes$ að einangra Frakka í samstarfi frjálsra þjóða, veikja Atlantshafs- bandalagið og auka hættuna á því, að Bandaríkjamenn færu méð herlið sitt' frá Evrópu. — Mollet kvað auk þess hættu á, að Þjóðverjar mundu einnig krefjast kjarnorkuvopna, ef Frakkar fengju þau. Hann kvað vafalaust að ættu Þjóðverjar um að velja samvinnu við Frakka eða Bándaríkjamenn, þá mundu þeir hiklaust velja Bandaríkj amenn. Mollet síkoraði á frönsku stjórnina, að hætta þeirri stjórnarstefnu, sem ekki-sé til annars en einangra Frákka í Vestur-Evrópu og samstarfi lýðræðisrík j anna. Ekki er búizt við, að stjórn- in verði undir í atkvæða- greiðslunni og kemur þar helzt til, að stjórnmálamenn í Frakklandi óttast uppreisn hægri manna, ef stjórnin fell- ur. Ferhat Abbas, forsætisráð- herra stjórnar uppreisnar- manna í Alsír, sagði í viðtali við New York Times í dag, að útséð væri nú um það, að ekki væri hægt að semja við Frakka um framtíð Alsír. Rússar og önnur ríki kom- múnismans auka nú stuðning við uppreisnarmenn og búizt er við að kínverskir kommúnist- ar sendi jafnvel „sjálfboðaliða11 til Alsír..... ..... Alþýðublaðið — 25. okt. 1960 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.