Alþýðublaðið - 25.10.1960, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 25.10.1960, Blaðsíða 11
Han dknatfl eikur: Valur vann Ármann í kvennaflokki 7:5 MEISTARAMOT Reykja- víkur í handknattleik hélt á- fram um helgina og voru alls háðir tólf leikir. — Á laugar- dag voru 7 leikir í yngri flokk unurn og á sunnudag fimm í méistaráflokki karla og kvtiiina. : Þaú úrslit, sem telja verður að hafi komið mest á óvart, var sigur Vals yfir Ármannj í méistaraflokki kvenna. Sér- staklega þar sem Valsstúlkurn- ar hafa misst markmann sinn til Fram. Meistaraflokkur kvenna; Víkingur — Þróttur 5:3. Ekki er hægt að segja að þessi leikur hafi verið fjörlega leikinn og sumar af stúlkunum sérstaklega í liði Þróttar virð- ast ekki vera í góðri æfingu. Hinar ungu Víkingsstúlkur höfðu frumkvæðið í leiknum og sigur þeirra var fyllilega verðskuldaður. Eins og oft áð- ur var Rannveig bezt í liði Víkings, en annars er liðið nokkuð jafnt. — Ekki er langt síðar Þróttur átti eitt bezta kvennalið landsins. Þetta lið félagsins, sem nú leikur er bæði skipað stúlkum úr þeim flokki og 2. fldkki, ætti að geta náð lengra. v' Valur - 7:5? Ármann unnu Landsleik Svía og Dana, sem unnu silfurverðlaun Ol- ympíuleikanna lauk þannig, að Svíar sigruðu með 2 mörk um gegn engu. Leikurinn fór fram á Ullevi leikvanginum í Gautaborg og var fullsetið og vel það, en meðal áliorf- enda voru a.m.k. um 10 þús. Danir. Þeir urðu að sjálf- sögðu fyrir miklum von- brigðum. Danir höfðu reikn-: að með að sigra, en Svíar hafa ekki tapað fyrir Dönum í knattspyrnu á sænskri grund í 25 ár. — Rune Bör- jeson skoraði bæði mörkin. Ármannsstúlkurnar byrj- uðu betur og skoruðu tvívegis áður en Valur fengi skorað, það voru þær Sigríður Lúthers og Ása Jörgensdóttir. En Val- ur gefur sig ekki og jafnar, það var Sigríður Sigurðar, sem skoraði bæði mörkin, annað úr vítakasti. — Á síðustu mín- útum fyrri hálfleiks nær Ár- mann aftur tveggja marka for- skoti, en þannig endaði fyrri- hálfleikur. Síðari hálfleikur var geysi- spennandi. Valsstúlkurnar léku af miklum krafti og tókst strax að jafna — 4 : 41 Aftur skorar Ármann, en Sigríður jafnar og skömmu seinna kemst Valur yfir í leiknum og enn var það Sigríður, sem er langbezt í lið inu. Rétt fyrir leikslok skora Valsstúlkurnar glæsilga og þar með lauk skemmtilegasta leik kvöldsins með sigri 'Vals 7 mörk gegn 5. Eins og fyrr segir, var tæp- ast búizt við sigri Vals í leikn- um, sérstaklega þar sem liðið hefur misst markmann sinn, en stúlkurnar sýndu mikinn baráttuvilja og á köflum ágæt- an leik og það dugði. Ármann treysti nú sem oft áður á hina miklu skyttu sína, Sigríði Lút- hersdóttur, en hennar var vel gætt og því fór sem fór. Meistaraflokkur karla: ^ ÍR — Ármann 19 : 13. ÍR vann nokkuð auðveldan sigur yfir 2. deildarliði Ár- manns, en ekki er hægt að hrópa húrra fyrir leik liðsins. Vörn var léleg eins og oft áð- ur og leikur liðsins tilviljana- kenndur. ÍR-inga vantaði tvær af stjörnum sínum frá undan- förnum vetrum, þá Pétur Sigurðsson, sem er við nám. erlendis og Matthías Ásgeirs- son. sem er í íþróttakennara- skólanum á Laugarvatni F'yrri hálfleikur var jafn, en IR hafði þó oftast yfir, _ og hálfleiknum lauk með 9—8 fvrir ÍR. í síðari hálfleik náði ÍR betri tökum á leiknum og vann öruggan sigur. Segja verð '•r bó, að léleg vörn Ármanns átti einnig sinn stóra þátt í sigri ÍR. Hermann var bezti maður ÍR-hðsins og skoraði langflest mörkin. Gunnlaugur var traustur að vanda. Hinn gamal- kunni handknattleiksmaður, Þorleifur Einarsson lék nú aft- ur með liðinu, en virðist ekki vera í æfingu. —- Ármanns- hðið er sundurlaust og lélegt. Félavið mar sinn fífil fegri í handknattleiknum. ! Knattspyrna Framhald af 10. síðu ur KR var eins og oft áður, Bjarni Fehxsson. Hreiðar gekk ekki heill til skógar eftir á- reksturinn yið Hinrik í byrjun leiksins. ífiimir átti ekki erf- iða daga {markinu. Fram var sterkastur í vörninni Rúnar Guðmannsson, svo sem endranær, þó ekki eins og oft áður, en í framlínunni þeir: Grétar, Guðmundur og Baldur Haukur Óskarsson dæmdi leikinn. Haukur er einn okkar reyndasti dómari nú. Hann dæmdi yfirleitt vel, en varla er hægt að búast við því að dóm- arinn sjái allt, sem skeður og undir brot heyrir, en bót er í máli, þegar hann sér megin- hluta hjá öðrum aðilanum. Formaður KSÍ, Björgvin Schram, afhenti sigurveg- urunum verðlaun keppninnar, bikar einn mikinn og fagran, gefinn af Tryggingarmiðstöð- inni hf. en forstjóri hennar er Gísli Ólafsson fyrrv. stjórnar- meðlimur ÍSÍ. Bikarnum fylgdi 11 silfurpeningar, eða einn á hvern leikmann liðsins. E. B. í þróttafréttir í STUTTU MÁLI HÉR eru úrslit nokkurra leikja í ensku knattspyrnunni um helgina: Aston Villa—Birmingham 6:2 Blackburn—Arsenai 2:4 Blackpool—Nottingham 4:0 Bolton—Fulham 0:3 Chelsea—Burnley 2:6 Leicester—W. Bromwich 2:2 Manchester Utd—Newcastle 3:2 West Ham—Preston 5:2 Wolves—Sheff. W. 4:1 Nánar á morgun. AUK landsleiks Svía og Dana í Gautaborg léku B-liðin og sigr uðu Svíar 2:1, tveir unglinga- leikir fóru þannig, að Svíar sigr uðu í öðrum með 2:1 og Bani* í hinum 4:1. WALES sigraði Skotland í Iandsleik í Cardiff á laugardag með 2 mörkum gegn engui. Skor aði Wales eitt mark í hvoruin hálfleik. Cliff Jones skoraði það íyrra eina mínútu fyrir hlé, en síðaria markið skoraði Roy Vern©n 15 mínútum fyrir leikslob. TORPEDO Moskvu er þegar orðinn Rússlandsmeistari 1 knattspyrnu 1960. Að visu eru nokkrar leikir eftir, en það breytir engu urn úrslitin. Þe’lta er í fyrsta sinn síðan 1938, en þá tókst Torpedo að komast í I. deild, að félagið verður meist- ari 'v' Valur — Víkingur 7:6. Þetta var harður leikur og nokkuð spennandi á köflum, en ekki var hann að sama skapi vel leikinn. — Valsmönnum gekk betur í upphafi, en Vík- ingar sækja sig og tekst að jafna og komast yfir fyrir hlé — 5:4. í síðari hálfleik var 'Vals- liðið mun ákveðnara og tryggði sér sigurinn með eins marks mun. Varnarleikur beggja liða er allgóður, en það vantar fjöl- breytni í sóknaraðgerðirnar. Leikmenn eru einnig yfirleitt alltof stífir og beita kröftum um of. ^ KR — Þróttur 17 : 9. Sumir bjuggust við jafnari leik milli þessara liða, sérstak- lega þar sem Þróttur sýndi all góðan leik á móti Val um síð- ustu helgi. Að vísu vantaði Þrótt einn bezta mann sinn, Jón Ásgeirsson, en KR vantaði og góða menn { liðið sitt. f KR-liðið vantaði Guðjón í markið og Höi’ður Felixsson, en liðið náði vel saman og átti ekki í neinum erfiðleikum með ósamstillt lið Þróttar. Leikir á laugardags- kvöld. Þessi urðu úrslit í yngri flokkunum: 2. flokkur kvenna: KR — Víkingur 0:9, Valur — Þróttur 4:0. — 3. flokkur karla: Fram — KR 6:8, ÍR — Valur 1:6. 2. flokkur karla: Víkingur — Ár- mann 5:13, Þróttur — Fram 9:8, KR — Valur 6:7. Staða aðstoðarlæknis í Röntgendeild Landspítalans er laus til umsóknar frá 1. jan. næstkomandi. Laun samkvæmt launalögum. Umsóknir með upplýsingum um aldur námsferil og fyrri störf sendist til- skrif- stofu ríkisspítalanna, Klapparstíg 29, fyrir 1. des. 1960. Skrifstofa ríkisspítalanna. TÓNLEIKAR í Þjóðleikhúsinu í kvöld, þriðjud. 25. október 1660 kl. 20,30. Stjórnandi: BOHDAN WODICZKO ... Einleikari: RÖGNVALDUR SIGURJÓNSSON. , Viðfangsefni eftir Beethoven, Haydn og Brahms. Aðgöngumiðasala í Þjóðleikhúsinu. ROTAFLEX Skermar eru komnir aftur RotafléX eru lampaskermar framtíðárinnar. Nýtt form. Nýtt efni. Rotafiex lampaskermar gefa bóða birtu, draga ekki mikið úr Ijósmagni. Þægilegir til~að vinna við og íalleg- ir í útliti. — Fallegir litir. Rotaflex lampa í eldhús er hægt að lækk.a og hækka. Með hinum léttu og stílhreinu línum Rotafíex extl þeir hentugir til notkunar þar sem óskað er eftii fallegri og þægilegri birtu. RAFTÆKJAS T O FAM Vesturgötu 2 — Sími 24-330. Álfheimum 6 — Sími 33978. Alþýðublaðið — 25. okt. 1960 J,f

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.