Alþýðublaðið - 22.11.1960, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 22.11.1960, Blaðsíða 1
41. árg. — Þriðjudagur 22. nóvember 1960 — 266. tbl. 27. þing AT)þýðuflokksins verður sett í Iðnó í dag kl. 4 e. h. Emil Jónsson, formaður Alþýðuflokksins setur þingið. Nú er t>að jazzlnn! f DAG birtum við þriðja og síðasta hlutá fyrsta plötu- lista Illjómplötuklúbbs Al- þýðublaðsins: Jazz og dægur- lögin. Upphaf og miðhluta listans finnið þið í föstudags- og laugardagsblaði. Þar með getið þið farið að ákveða, hvaða plötur þið ætl- ið að velia í fyrstu lotu. Eins og við höfum skýrt frá áður, ætlum við að reyna ef mögu- legt er, að koma frá okkur fyrstu plötunum fyrir jólin. En til þess að svo geti orðið, Jiafrf pöntunarlisti meðlima að vera kominn í okkar hendur í síðasta lagi kl. 6 5. desember. Merkið bréfið: Hljóm- plötu’.'lúbbur Alþýðublaðsins. Ef. vera kýnrii (sem reyndar er næsta ólíklegt), að þú hefð- ir ekki enn haft greinilegar fréttir af Hljómplötuklúbb Al- þýðublaðsins, þá þarftu að vita eftirfarandi; 1. Meðlimir borga 50 króna árgjald. 2. Þeir fá hljómplötur EFTIR EIGIN VALI á kostnaðar- : verði. 3. ' Það þýðir, að. þriðia hver plata er hrein uppbót mið- að við búðarverð. 4. ‘ Hljómplötuklúbbur Al- þýðublaðsins er þjónusta við lesendur,- ekki gróðafyr irtæki. Blaðið leggur ekki ' eyri á hljomplöturnar. Búizt er við, að þingið muni sækja um 100 fulltrúar. Reiknað er með að þingið standi f 3—4 daga. MÖRG MÁL. Fyrir þinginu liggja mörg merk mál. M. a. verður rætt um endurskoðun á stefnuskrá Alþýðuflokksins. Hefur verið unnið að endurskoðun á stefnuskrá Alþýðuflokksins og verða drög að nýrri stefnuskrá lögð fyrir þingið. Ekki mun þó ætlunin að afgreiða það mál endanlega á þessu þingi. MOSKVA, 21. nóv. (NTB). Að- stoðarflugmálafulltrúa við sendiráð Bandaríkjanna í Mosk vu var í dag vísað úr landi og gefið að sök að hafa stundað njósnir, Maður þessi heitir Mac Donald og er hann um þessar mundir á ferð um Karkov-hér- að. Segir Sovétstjórnin, að Mac Donald hafi verið staðinn að því að ljósmynda hernaðar- bækistöðvar í Úralfjölum. Frá 1. maí er U-2 vélin var skotin niður, hafa Rússar stöð- úgt verið að-vísa bandarískum sendiráðsstarfsmönnum, ferða- mönnum og stúdentum úr landi vegna njósna Virðist skipulega unnið að því, að skapa njósna- óíta meðal rússnesks almcnn- ings. _____________ Hjörfur Hjálm- arsson tekur sæti á alþingi HJÖRTUR Hjálmarsson skólastjóri á Flateyri, tók sæti á alþingi í gær sem varamaður Birgis Finnssonar, sem farinn er til útlanda í opinberum er- indum. Kjörbréf Hjartar var samþykkt í Sameinuðu þingi í gær og undirritaði hann síðan eiðstaf að stjórnarskránni, þar sem hann hefur ekki setið á alþingi fyrr. Á síðasta flokksþingi Sósíalistaflokks ins var gerð samþykkt um „lærdóm- ana af vinstri stjóminni“. Þessi samþykkt hefur aldrei verið birt opinber- lega vegnakröfu Lúðvíks Jósefssonar um að henni yrði haldið leyndri. Alþýðublaðið mun á morgun birta þessa földu samþykkt í heild, og mun hún sýna almenningi ýmsar athyglis verðar hliðar á kommúnistum. ÍU RÚBLUR VERÐA IN - GENGISFALL Sovétríkin hafa lækkað hjá sér gengið um 55%. í opin- berri tilkynningu segir, að gullgildi rúblunnar skuli vera 0.987412 grömm úr skíru gulli fyrir hverjar tíu rúblur. Það var áður 0.222168 gull- grönun. Jafnframt er ákveðið, að frá 1. janúar næstkomandi skuli lögleidd ný mynteining — „þung“ rúbla — sem jafn- gilda skal tíu „gömlum“ rúbl- um. í fyrstu tilkynningu um rússneska gengisbreytingu leit í fljótu bragði út sem þeir væru að hækka gengi rúblunnar. En með því að breyta mynteiningunni, þann ig að tíu rúblur samsvari einni, snýst þetta við og í ljós kemur, að um stórfellda gengisskerðingu er að ræða. Þetta þýðir það, að gull- innihald hverrar „gamallar11 rúblu lækkar. úr 0.222168 grömmum í 0.0987412. Þessi lækkun gildir ekki aðeins gagn vart gulli, heldur einnig gagn- vart dollar og öllum öðrum gjaldeyri, þ.á.m. íslenzku krón- unni. Þessi gengislækkun rúbl- unnar nemur 55%. Til saman- burðar má geta þess, að gengis lækkun íslenzku krónunnar í febrúar sl. nam 34%, miðað við almenna gengið, sem var á Bandaríkjadollar í innflutn- ingi. Þar eð samhliða þessari gengislækkun rúblunnar gagn vart gulli, dollar og öllum er- lendum gjaldeyri er gerð breyt ing á mynteiningunni, þannig að 10 „gamlar“ rúblur verða að einni „nýrri“, er talað um þessa breytingu í fréttum frá Sovétríkjunum sem gengis- hækkun rúblunnar. Ef hið sama hefði verið gert hér í febrúar, hefði hér verið lög- leidd „ný“ króna, sem jafn- gilti 10 „gömlum11 krónum, allir látnir skipta á 10 gömlum krónum og einni „nýrri“ og öllu verðlagi og kaupgjaldi breytt í samræmi við það. Gengi dollars væri þá 3,80 kr. nú, en ekki 38 kr., en allt kaupgjald og verðlag sömu- leiðis aðeins 1/10 af því, sem nú er. Það, sem stjórn Sovétríkj- anna er nú að gera, er annars vegar að lækka gengið, eins og íslendingar gerðu í vetur, en aðeins miklu meira, og hins vegar að breyta mynteiningu sinni, eins og Frakkar gerðu um síðastliðin áramót, þannig að 10 gamlar einingar jafngildi einni nýrri.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.