Alþýðublaðið - 28.01.1961, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 28.01.1961, Blaðsíða 1
OKfitÖ) 42. árg. — Laugardagur 28. janúar 1961 — 23. tbl. IWWWWIWIWmWMMWWMWWWHWHIWl»WMWM»W*mWWWWHMMWMWWMl»MWI SVO VIRÐIST, sem hcil fjöl skylda á Akureyri liafi gufað upp. Hefur fjölskyldan horfið úr íbúð, er hún hafði á leigu án WWMMtMWWiMWWWWMWU Fenguð Jb/ð oð vita allt um ESSO? EINAR OLGEIRSSON var að tala um KRON og SIS á alþingi f gær í sam- bandr við umræður um SH, er segir frá annars staðar í blaðinu. Kvaðst ræðumáður vera í KRON og þar af leiðandi fá að vita allt um SÍS, enda væri lýðræðrnu þar í engu ábótavant. Skaut þá Bjarni Bene- diktsson, dómsmálaráð- herra fram spurningunni: „Fénguð þið að.vrta allt um ESSO?“ Vakti spurn- ingin hlátur á þrngpöllum og jafnvel framsóknar- þingmönnum stökk bros, en við lá, að Ehiari vefð- íst tunga um tönn! MWMWHWWIWWWWWWWW 'ÞEKKIÐ þið stúlkuna? Það er ekki annað að1 isjá en hún sé búin að sigrast á hugarvílinu, sem endaði með sjálismorðstil- raun í fyrra. Brigitte Bardot brunar á ný inn á stjörnubrautina og virðíst hvergi bangin. Hérna er hún að æfa sig undir atriði í nýrri kvikmynd. þess að greiða hú'saleiguna en enginn hefur orðið þess var, að fjölskyldan hafi flutt búferlum úr bænum. Hér er um að ræða mann nokkurn, er var mikið í sigling- um fyrir nokkrum árum en sett ist síðan að á Akureyri ásamt sænskri konu sinni. Ekki er vit að hvað maðurinn starfaði á Akureyri en hann mun hafa leit að eftir atvinnu á vinnumiðlun- arskrifstofunni þar, en er láta átti hann vita um vinnu, var hann horfinn. Maðurinn leigði hjá húseig- anda nokkrum á Akureyri. Er húseigandi ætlaði að inn- heimta húsaleiguna hjá honum fyrir nokkru, v.ar öll fjölskyd- an horfin með alla sína búslóð. Hefur síðan ekki til hans spurzt og þegar manntalið var tekið á Akureyri kom maðurinn ekki fram þar. Helzt er gizkað á, að maðurinn hafi farið með skipi til útlanda. Vitað er hins vegar, að konan fór frá Akureyri með flugvél. Þykir þetta mjög furðulegt, þar eð enginn virðist hafa tek- ið eftir því, þegar maðurinn fór á brott frá bænum. Hann virðist sem sagt hafa gufað upp. STOÐ I ÞAÐ ER HÆGT að koma upp sjónvarpsstöð fyrir Reykjavílc og nágrenni á þrern miánuðum, og sú stöð þyrfti ekki að kosta meira en 100 þúsund dali, eða f jórar milljónir ísl. Ííróna, Frá þes’su skýrði bandaríski sjón- varpseigandinn Harry Engel á fundi með blaðamönnum í gær. Engel kvaðst einnig vera fús til að útvega lán, eða ábyrgjast lán til slíkrar stöðvar. KJORSKRÁIN sodin —1 '^minniTwr—w—awi iwwwpwMiMMmMw——i— ÆKmmsammmmmmmmmmmmmammmm■——— ÖR SELLUSKRÁ KOMMA ÞAÐ hefur verið mikið að gera á skrifstofu Dags- brúnar undanfarið. Öll kvöld og langt fram eftir nóttu hafa ljós logað í skrif- stofugluggum Dagsbrúnar. Þekktir línukommúnistar hafa sézt fara inn og út. — Hvað hafa þeir verið að gera? Jú, þeir hafa verið að semja kjörskrá vegna vænt- anlegs stjórnarkjörs í Dagsbrún. Og í gær var verkinu lokið. 'Voru þá til- búnar tvær kjörskrár, önn- ur fyrir A-listann og hin fyrir B-listann. 'Sú síðar- nefnda lætur lítið yfir sér. Þar er nöfnum raðað í staf- Framhald á S. síðu. Engel, sem er giftur íslenzkri stúlku, Kristínu Hallvai ðsdótt- ur, að nafni, er eigandi að sjón- varpsstöð á eyjunni Guam á Kyrrahafi, og er jafnfrænt for- stjóri sjónvarps- og útvarps- stöðvanna Guam og Guam-Tv og International Services Ltd. í New York. Hingað til lands kom hann fyrir nokkrum dögum, og hefur þegar rætt við útvarpsstjóra Vifhjálm Þ. Gíslason og Bene- dikt Gröndal formann útvarps- ráðs um hugmynd sína að sjón- varpsstöð hér. Taldi liann að þeir hefðu haft mikinn áhuga á hugmyndinni, en hvorki get- að né viljað gefa nein ákveðin svör við tilboði hans. 'í sambandi við uppsétningu sjónvarpsstöðvar, kvaðs* hann hafa boðizt til að útvega lán til stöðvarinnar, og einnig að senda hingað sérfræðimenntaða menn til að sjá um uppsetningu á henni og annast önnur tæki- Framh. á 14. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.