Alþýðublaðið - 28.01.1961, Side 10

Alþýðublaðið - 28.01.1961, Side 10
Ritstjóri: Örn EiVinon Leyndardómurinn er ... . BEZTI markvörður Svía í handknattleik og einn af þeim beztu í heimi, heitir Donald Lindblom. Hann vakti sérstaka athygli í landsleik Dana og Svía í Forum sl. laugardag, varði ó- trúlegiístu skot af snilld. Fréttamaður sænska íþrótta- blaðsins spurði Lindblom að því í vikunni, hvernig hann færi að Jressu? — Þetta er ekkert merkilegt, sagði Lindblom,, Svarið er stutt og einfalt: úthaldsþjálfun og leikfinji. Án úthaldsþjálfunar getur enginn leikið fullan leik- tíma. Án fimleika fær enginn þá lireyfingu og kraft, sem er nauðsynlegt hverjum mark- verði. Forráðamenn sænskra hand- kKattleiksmála segja að það verði að spara Lindblom þar til í undanúrslitum og úrsíitum, HM. Donald segir: Eg vil leika alla leikina, ef ég fæ og get. Úthald mitt er nægilegt til þess að leika alla keppnina. Hann bætir samt við, að helztu keppi- nautar hans um stöðuna í mark inu, Brándström og Ring séu ekki lakari en hann. Lindblom segir, að þeir séu frábærir í markinu, Hinn frægi markmaður er einn af þeim, sem fer langt út, þegar vítakast er tekið, næstum alveg til andstæðingsins. Lind- blom segir, að slíkt geti verið hættulegt, þegar komið er að lokum keppninnar, eru andstæð ingarnir farnir að þekkja á hvorn annan og þá er alltaf hætta á, að sá sem tekur víta- kastið, kasti knettinum yfir markvörðinn. |Q 28. jan. 1961 — Alþýðublaðið MMMMMMWVMiVHMVWMUMMMMMMMMHWMMtWMWVMUHVMtHMUtMWMWMMmVWt Ungir íþróttamenn II: Jón Þ. Ólafsson, ÍR Sá af yngri íþróttamönn- um okkar, sem mesta at- hygli hefur vakið undanfar- ið, er Jón Þ. Ólafsson, en hann setti nýtt íslandsmet í hástökki innanhúss sl. sunnudag, stökk 1,99 m. Jón er aðeins 19 ára gam- all, fæddur í Reykjavík 21. júní 1941, foreldrar hans eru Ólafur Þórðarson og Guðrún Jónsdóttir. — Eg fékk snemma áhuga á íþróttum eins og títt er um unglinga, sagði Jón í við- tali við tíðindamann íþrótta- síðunnar. Sú grein, sem ég æfði í upphafi, var knatt- spyrnan, lék með Víking og vann m. a. til bronzmerkis KSÍ. En svo fór mér að Ieið- ast að eíta knöttinn og hætti öllu íþróttastússi í bili. Þú hættir samt ekki alveg, sem betur fer? —• Nei, það var víst vorið 1957, að ég rakst á frétt í dagblöðunum um, að IR-ing- ar ætluðu að efna til nám- skeiðs í frjálsiþróttum fyrir byrjendur. Mig Iangaði til að reyna við þá grein og lét 'skrá mig. Þetta gekk allvel strax í upphafi og þessi í- þróttagrein virtist eiga ágæt lega við mig. Hástökkið heillaði mig fljótt og mig minnir, að á móti eftir nám- skeiðið liafi ég stokkið 1,45 m. Aftur á móti náði ég bezt 1,63 m þetta Ssumar. Hvað álítur þú að hægt sé að gera til að auka al- menna þátttöku í frjálsí- þróttum? — Því miður eru það allt- of fáir, sem leggja stund á frjálsíþróttir hér á landi, en það er þó huggun, að þeir sem halda áfram, ná yfirleitt nokkuð langt á afreksbraut- inni. Mín ískoðun er sú, að margir, sem hefja æfingar, gefist upp vegna þess, að þeim finnst árangurinn ekki koma nógu fljótt. Þetta er byggt á misskilningi og ó- þolinmæði, Eg get tekið fejálf an mig sem dæmi, fyrir tæp- um fjórum árum stökk ég að- eins 1,45 m, en með reglu- bundinni þjálfun hefur mér tekizt að stökkva 1,99 m. Að vísu hef ég æft mjög vel síð- ustu tvö árin, en það eru þrjú boðorð, sem ávallt hafa mesta þýðingu til að ná ár- angri í íþróttum: nr. 1 æf- ing, nr. 2 æfing og nr. 3 æf- ing. Hver er bezti árangur þinn í hinum ýmsu greinum? — Eins og ég hefi áður sagt, er hástökkið mín aðal- grein og þar náði ég bezt 1,88 m utanhúss í fýrra og 1,94 m innanhúss, rétt fyrir áramót. A mótinu sl. sunnu- dag tókst mér að stökkva l, 99 m, sem er íslands- og unglingamet. Aðrar greinar eru, kringlukal-t: 41,42 m, kúluvarp: 11,81 m, þrístökk 13,58 m, langstökk 6,25 m, hástökk án atrennu: 1,66 m (unglingamet), langstökk án atrennu: 3, 15 m og þrístökk án atrennu: 9,33 m. Auk þess á ég drengjamet í Iang’stökki án atrennu: 3,13 m. Hvað ætlarðu að stökkva hátt á þessu ári, Jón? — Ja, fæst orð hafa minnsta ábyrgð. Kannske væri réttast að Isegja ekkert um það, en það ætti þó varla að vera svo óskaplega hættu Iegt. Mig Iangar til 'að stökkva 2,05 m innanliúss og a. m. k. 2,01 m úti, met nafna míns úr KR er nefnilega 2,00 m, segir Jón og brosir, Jón Þ. Olafsson er mikil hástökkvara-„typa“, eins og sagt er, hár vexti, 1,93 m og vegur 80 kg. Hann hefur einu sinni verið í landslið- inu, gegn A-Þjóðverjum í sumar og vafalaust á hann oft eftir að klæðast landsliðs búningnum í framtíðinni. ö Glappaskot í íþróttaheiminum Alltaf er mögulegt, að dóm- urum íþróttamóta skjátlrst og slíkt er reyndar alltaf að koma fyrir, því miður. Nú nýlega voru staðfest 3 slík atvik og tvö þeirra eftir frumsýningu OI- ympíukvrkmyndarinnar frá Róm. 1) Lance Larsson, USA sigr- aði örugglega, en þó naumlega Fundur frjáls- íþróttamanna er i dag FUNDUR FRI, sem við skýrð um frá í gær fer fram í dag kl. 2,30 en ekki á morgun eins og við skýrðum frá í blaðinu í gær. í 100 m. skriðsundinu í Róm. Devitt, Ástralíu var dæmdur sigurvegarr eftir miklar vanga- veltur og mótmæli. Larsson á- leit sjálfur eftir sundrð að liann hefði unnið og var ofsakátur, en trúði varla sínum ergin eyr- um, er úrslit voru tilkynnt. 2) Englendingar skiptu ólög- Iega í 4X100 m. boðhlaupinu í Róm, sá eini sem óttaðist slíkt, var einn af Bretunum í sveit- rnni, sem greip óttasleginn um höfuðið að skintingu lokinni. — Annars voru Bretarnrr ótrúlega lieppnfr í þessuhlaupi. í undan- úrslitum var Nígería dæmd úr leik, en þeir voru í þriðja sætr í riðlinum, Bretar, sem voru fjórðu komust því í úrslrt. í úr- slitum voru Bretar síðan fjórðu, en vegna þess að sveit USA var dæmd úr kræktu þeir í bronz. Eins og fyrr segir skfptu þeir ólöglega og hefðu einnig átt að dæmast úr leik. 3) Þegar Hary setti heimsmet sitt í 100 m. í Zurich í sumar, sýndu klukkurnar 10 sek., en rafmagnsklukka 10,25 sek. — Fyrrnefnda tímatakan gildir og metið hefur veríð staðfest. Um helgina: FH - KR Aðalíþróttaviðburður helgar- innar, er ieikur FH og KR í I. deild íslandsmótsins í hand- knattleik. Sá leikur fer fram annaðkvöld ásamt leik Fram og Aftureldingar í sama flokki og Framh. á 14. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.