Alþýðublaðið - 22.02.1961, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 22.02.1961, Blaðsíða 3
New York, 21. febrúar. (NTB—AFP). Öryggisráði'ð samþykkti í nótt að heimila SÞ-hernum í Kongó að beita valdi ef með þyrfti til að hindra borgara- styrjöld. Ráðið felldi sovézka tillögu um brottrekstur Ham- marskjölds aðalrHara, en Zo- rin fulltrúi Rússa kvað stjórn Verkfall tefur EINHVERJAR tafir munu verða á afhendingu liinn- ar nýju Loftleiðaflugvél- ar, sem átti að afhenda fé- laginu einhverja næstu daga., Tafirnar stafa af hinu mikla verkfalli flug- virkja hjá bandarískum flugfélögum, en eins og kunnugt er keyptu Loft- leiðir vélina af Pan Ameri can flugfél'aginu. Verkfall þetta mun standa í fjóra daga, og hafa þegar 65 þúsund manns orðið iatvinnulausir þess vcgna. sína ekki lengur líta á hann sem aðalritara. Loks felldi það tillögu er vííir pólitískar af- tökur og krefst þess að S Þ beiti valdr til að hindra liand- tökur og aftökur pólitískra fanga. Tillaga sú er samþykkt var , var borin fram af fulltrú- um Líberíu, Sameinaða Araba- lýðveldisins og Ceylon. Voru greidd níu atkvæði með henni en Frakkar og Rússar sátu hjá. Með rússnesku tillögunni greiddu Rússar einir atkvæði. Tillaga sú er samþykkt var felur m. a. í sér, að S. Þ. gcri það sem nauðsyn krefur trl að hindra borgarastyrjöld í Kongó og beita valdi ef með þarf. — Jafnframt verði sendir úr landi allir hernaðarlegir-, hálf- hernaðarlegir ráðgjafar og alls kyns málaliðar. Þá verðr strax sett á laggirnar óhlut- dræg rannsókn á morði Lum- umba og félaga hans, og verði morðingjunum síðan refsað. Þing Kongómanna verði kallað saman og því veitt vernd til starfa. Allur herafli Kongó- manna verðr endurskipulagður og komið á aga í honum, enda urlönd ekki Kaupmannahöfn, 21. febrúar. (NTB). FELLB var hér í dag á þingi Morðum linnir- ekki í Kongó Leopoldville, 21. febr. (NTB—AFP). Yfirvöld SÞ í Kongó tilkynntu í dag, að tveir kongóskir dómarar hefðu verið drepnir í dag. Jafn- framt er góð ástæða til að ætla, að sjöundi Lumumba-sinninn, Jacq- ues Lumbita, hafi verið drepinn á mánudag í Suð ur-Rasai. Á hann að hafa verrð dæmdur til dauða af dómstóli fimm Baluba- höfðingja. — Ríkisstjórn Ileo hefur lýst yfir því, að morðin á Lumumba- sinnunum sex séu ekki gerð á hennar ábyrgð, enda hafi hún ekki ver- rð viðriðin þau. Norðurlandaráðsins tillaga frá finnsku kommúnistunum um að hvetja ríkisstjórnir Norður- landanna til að taka upp við- ræður er leitt gætu til þess, að Norðurlöndin verði „atóm- fríað svæði“. Aðeins sex full- trúar greiddu atkvæði með til- lögunni: fjórir finnskir komm- iinistar, Aksel Larsen og ís- lenzkur kommúnisti. New York, 21. febrúar. (NTB-Reuter). ÚTLIT er á að verkfall banda rísku flugvrkjanna breiðist nú til Evrópu. Hefur flug-deild Al- þjóða-flutningaverkamanna- sambandsins í London sent bandaríska flugvirkjasamband- inu skeyti þar sem skýrt er frá því, !að evrópskir fagbræður hafi verið beðnir að veita Banda ríkjamönnunum aðstoð sína. — Myndi þá verða þar um að ræða samúðarverkfall og er m. a. rætt um sólarluings samúðar- verkfall. Flest evrópsku flugfé- lögin munu verða fyrir barð- inu á samúðarverkfallinu ef af því verður, þar á meðal SAS. verði séð til þess að hann láti stjórnmál afskiptalaus. Er áðurnefnd tillaga hafði verið samþykkt -lét Hammar skjöld mikla ánægju í ljós yfir því og kvað þetta eitt hið á- nægjulegasta og afdrifaríkasta í sögu Kongó-málsins. Hann hvatti Sameinuðu þjóð irnar einnig til að senda ein- hvern herafla til Kongó og kvaðst sannfærður um að þær þjóðir er stutt hefðu áður- greinda tillögu myndu ekki telja eftir sér fjárhagslegan stuðning við framkvæmd henn ar. Hammarskjöld kvað álykt- unina gefa aðgerðum S Þ í Kongó stórum greinilegri og á- kveðnari línu. FRAMBJÓÐANDI VIÐ FOR- TAKJÖR í Flí Helsrngfors, 21. febrúar. (NTB—FNB). Flokksstjórn finnska jafnað- armannaflokksins kom saman í dag til að ræða væntanlegar forsetakosningar. Var þar á- kveðið að Olavi Honka verði frambjóðandi flokksrns við forsetakjörið á þessu ári. í svari Honka við beiðni flokksins um framboðið segir m. a. að hann sé ekki flokks- bundinn og hafi ekki tekið þátt í starfi flokksins. Því sé það von sín að framboð hans nái ekki eingöngu til flokks- manna heldur líka til manna utan hans. Verði hann kjörinn forseti muni hann fylgja leið- sögu Paasikivi heitins forseta, segir hann. í yfirlýsingu flokksstjórnar innar segir, að hún hafi lagt á það áherzlu að finna frambjóð- anda, er gæti unnið eins mikið fylgi og mögulegt væri. Verði samkomulag um framboð þetta við aðra flokka, muni flokksstjórnin leggja tillögu þar að lútandi fyrir flokksráð- ið. Þar segir enn, að frá því for setaskipti fóru fram fyrir fimm árum síðan hafi orðið stöðugt meiri óánægja í landinu. Pólitískar andstæður hafi skerpzt svo að ógnun sé nú að. Bitrir árekstrar hafi ekki að- eins eitrað ágreining flokk- anna heldur líka komið upp innan þeirra. Við slíkar kring umstæður hefur vart verið mögúlegt að mynda starfhæf ar meirihlutaríkisstjórnir. Forsetakosnrngar fóru fram í Finnlandi 1956. Voru þá í kjöri Fagerholm fyrir jafnað armenn (fékk 149 atkvæði) og Urlio Kekkonen núverandi forseti (fékk 151 atkvæði). HERUTBOÐ KATANGA Leopoldville, 21. febrúar. (NTB—AFP). Moise Tsombe forseti Kat- TSHOMBE anga hélt útvarpsræðu í dag og kvað ríkisstjórnina hafa á- kveðið að kveðja til vopna alla vopnfæra menn, bæði hvíta og svarta. Væri það gert vegna samþykktar á tillögu Öryggrs- ráðsins, en hún væri stríðs- yfirlýsing af hálfu SÞ gegn Katanga og Kongó. Jafnframt kvaðst hann haf boðið út ráð- stefnu Kongó-leiðtoga í Genf í Sviss 6. marz. Á hún að fjalla um ástand og ho.rfur í Kongó. Tshombe kvað samþykktina í Öryggisráðinu þýða stríðsyf- irlýsingu og það, að gera eigi Katanga aftur að nýlendu. — Einnig kvað hann stjórn sína hér eftir afþakka allan belg- iskan styrk, en Belgir hafa til þess borgað laun þriðjungs allra erlendra starfsmanna stjórnar- innr. Frá New York berast fregnir þess efnis, að hersveitir Tshom be haldi áfram sókn sinni í N- Katanga, brenni bær en fólk flýi í stórhópum. Er þetta úr nýrri skýrslu Dayal hershöfð- ingja og fulltrúa S. Þ. Dayal segir í skýrslu sinni að tilgang- ur sóknarinnar sé að leggja undir srg allt það svæði er Ba- luba-kynstofninn byggir og jafnvel útrýma honum. Til þess að ná svæðinu algjörlega á sitt vald á að nota ógn- brungna liarðstjórn, brenna þorp og útrýma allri mótstöðu með ýmsum skelfingaraðferð- um. Velheppnað Aflasskoi frá Canaveral Canaveral-höfða, 21. febrúar. ATLAS-flugskeyti var í dag skotið upp í um 20 þús. km. hæð. I henni var geymir einn, sams konar og sá, er maður á að fara í innan tvæggja, þriggja mánaða, og fór hann um 2800 km. leið áður en hann koni í sjó niður. Var hann þar fisk- aður upp. Skeyti þessu viar skot ið við hinar erfiðustu aðstæður og tíminn svo sérstaklega val- inn. Þó fór allt vel. Þeir sjö menn, sem valdir hafa verið til að fljúga í hylki í Atlas-skeyti, áður en langt um líður, voru viðstaddir skot þetta. Er sýnt var að allt hefði gengið að óskum voru þrír menn valdir úr sjö manna hópn um og á einn þeirra að fara í eldflaug eftir tvo til þrjá mán- uði, eins og áður segir. MHtMUHMiMMMMWMMnM Olíuleit á Svalbarða Tromsö, 21. febrúar. (NTB). AMERÍSKI olíuhring- urinn Caltex mun í sumar lialda áfram leit sinni eft- ir olíu á Svalbarða. Hef- ur félagið leigt íshafsfar- ið „Polaröy“ í þcssu skyni. Sams konar leit fór fram á Svalbarða í fyrra og voru þá sýnshorn tek- in og flutt til Bandaríkj- anna til rannsóknar. Alþýðublaðið — 22. febr. 1961 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.