Alþýðublaðið - 23.02.1961, Síða 4

Alþýðublaðið - 23.02.1961, Síða 4
ÞÝZKU OG $ $ sftír Gubna Guðmundsscn EITT ALVARLEGASTA deilumálið meðal vesturveld- anna upp á síðkastið hefur verið deila Bandaríkjamanna og Vestur-Þjóðverja út af að- stoð Þjóðverja til að styrkja dollarann og hjálpa jafnframt OBandaríkjamönnum yfir þann erfiða hjalla, sem þeir nú þurfa að klífa vegna dollara- og gullflóttans. Samningaum- leitanir hafa staðið yfir frá ' því í desember, en lítið gengið. Þjóðverjar hafa boðizt til að leggja fram í eitt skipti fyrir öll tæplega milljarð dollara, sem Bandaríkjastjórn hvorki telur nægjanlegt né neina . lausn á því vandamáli, sem um er að ræða. I raun og veru er um það að væoa, að Bandaríkjamenn hafa á undanförnum árum eytt of miklum peningum í þágu sameiginlegra varna vesturveldanna og í hvers kyns aðstoð við erlend ríki. Niðurstaðan hefur orðið sú, að greiðsla fjármuna út úr landinu í þessu augnamiði hef ur árum samán verið meiri en svo, að útflutningur Banda ríkjanna hafi staðið undir þvi, og þess vegna hefur orðið að ganga á varasjóði og gullforða Iandsins. Við þetta hefur traust manna á dollaranum minnkað, og eignamenn hafa keypt gull, sem svo hefur að sjálfsögðu aukið gulleyðsluna. Bandaríkjamenn leggja á- herzlu á í þessu máli, að ekki sé um að ræða að bjarga Bandaríkjamönnum eða ,,sjúkum dollara". Dillon, cjármálaráðherra Kennedys, orðaði það þannig fyrir skemmstu: „Við erum ekki að biðja Þjóðverja um að gæta 'Bandaríkjanna. Bandaríkin geta gætt sín sjálfÞað. sem farið er fram á, er einfaldlega að Þjóðverjar taki á sig nokk- nð af þeim skuldbindingum erlendis, sem nú hvíla á herð- um Bandaríkjamanna, og noti til þess nokkuð af þeim gíf- urlega gull- og gjaldeyrisforða sem þeir nú sitja með, en létti jafnframt nokkuð á dollara- eyðslu Bandaríkjamanna. Of langt er að fara ítarlega út í alla þróun málsins, en þess ber þó að geta, að fyrir jól fór Anderson, fjármála- ráðherra Eisenhowers, til Bonn með tillögur, sem m. a. fólu í sér, að Þjóðverjar skyldu greiða 600.000 dollara á ári til að standa undir kostn aði við uppihald bandaríska herliðsins í Þýzkalandi. Þessu vísuðu Þjóðverjar á bug á þeirri forsendu ,að slíkt líkt- ist um of „greiðslu til að standa undir hernámi“, og var sú afstaða í sjálfu sér skilj- anleg, ekki sízt þegav þess er gætt, að kosningar eru í nánd í Þýzkalandi. Þess má og geta, að Dillon, núverandi fjármála ráðherra en þáverandi aðstoð- ar-utanríkisráðherra, var í för með Anderson í það skipti, en hafði þó áður lýst sig algjör- lega mótfallinn þessari aðferð til að leysa vandamálið. Bandarkjamenn fara nú fram á, að Þjóðverjar auki fyrst og fremst framlag sitt til varna vesturveldanna. Þjóð verjar leggja nú fram 5,5% af brúttó þjóðarframleiðslu sinni. • Það mesta, sem Þjóð- verjar hafa til þessa fengizt til að gera í þessu efni, er að auka framlagið um 10 milljón ir dollara, sem Dillon te'iur smámuni. Þá hafa Bandaríkjamenn fceðið Þjóðverja um að leggja kerfisbundið fram til aðstoð- ar við vanþróuð lönd. Þjóð- verjar halda því fram, að þeir leggi nú þegar eins _mikið fram og Bandaríkjamenn í þessu augnamiði — 1% af þjóðarframleiðsluni — og hafa á prjónunum nýja á- ætlun um aðstoð, er nemur um einum milljarði dollara. Þess ber þó að geta, að þessi aðstoð Þjóðverja við vanþró- uð lönd hefur til þessa verið bundin því skilyrði, að fénu væri varið til kaupa í Þýzka- landi sjálfu. Nú er hins vegar ætlunin í hinni nýju áætlun, að nokkuð af aðstoðinni verði veitt til kaupa á bandarískum vörum, en þá svara Banda- ríkjamenn því til, að mest af því fé, sem fara eigi til þeirr- ar aðstoðar, eigi að fá með lánum, sem aftur geti veikt dollarann enn meir. Þjóðverjar hafa til þessa boðizt til að hjálpa með greiðslu 1,2 milljarða dollora í eitt skipti fyrir öll — 1 rmllj- arði til Bandaríkjanna og 200.000 dollurum til Breta og Frakka, Er greiðsla þessi hugs uð sem greiðsla á skuldum og fyrirframgreiðsla fyrir vopn. Þetta fé mundi því að mestu leyti renna til Bandaríkjanna, hvort sem er, og ekki leysa hið aðkallandi vandamál. Banda- ríkjamenn líta á vandamálið sem langvarandi en ekki tíma ■ bundið, þar eð óhags’Hæður jöfn. Bandaríkjanna við út- lönd sé 3,8 milljarðar á ári, er stafi fyrst og fremst af alls kyns aðstoð við útlönd, hern- aðarlegri og annarri. Hvers vegna snúa Banda- ríkjamenn sér svo fyrst og fremst til Þjóðverja í þessu efni? Fyrst og fremst vegna þess, að Þjóðverjar eiga fyr- irliggjandi 7 milljarða dohara í gulli og erlendum gjaldeyri og vegna þess, að .greiðslu- jöfnuður þeirra gagnvart út- löndum hefur farið sífcatn- andi og er talinn hafa verið á síðasta ári 2 milljarðar doll- ara. Með þessu eru Þjóðverjar orðnir einna bezt stæðir vest- rænna þjóða, en taka ekki og hafa ekki tekið á sig hlutfails- lega aí þeim byrðum, sem svo mjög hefur veikt gjaldeyris- stöðu t. d. Bandarikjanna. Þjóðverjar segja hins vegar, að þessir sjö milljarðar í gulli og gjaldeyri séu ekki eign rík- isstjórnarinnar, beldur ríkis- bankans, og Þýzkaland sé enn Fraruhald á 12. síðu. mUUMHWWMUMWMHW HELGAFELL í HÆTTU ? ÝMSIR hafa liaft á- hyggjur af þessu fjalli og það ekki að ástæðulausu. Þetta er Helgafell í Vest- mannaeyjum. Ur því hef- ur verið tekið efni til flug brautar- og gatnagerðar og af því stafa áhyggjur náttúrufræðinga og fleiri ágætra manna. Þegar rætt cr um nýja flugbraut í Eyjum, hvarflar að ýms- um sú spurning, hvar efn- ið verður tekið. Talin er stórhætta á, að Helgafell yrði notað í flugbrautina, ef ekki verður fyrir slíkt tekið í tíma, og vilja góðir menn stemma stigu við því áður með því að friða fjallið. ÚTBÝTT hefur verið á al- þingi frumvarpi til laga um búnaðarháskóla á íslandi. Flutn ingsmaður er Benedikt Grön- dal. Er málið nú flutt öðru sinni í þeirri von, að alþingi vilji gefa gaum einu veigamesta framtíðarmáli íslenzks land- búnaðar, því að þörf fyrir sér- menntaða menn fer vaxandi með hverju ári. Með bréfi menntamálaráð- herra, Gylfa Þ. Gíslasonar, 26. febrúar 1959, var skipuS þriggja manna nefnd til að semja frumvarp til laga umi stofnun búnaðarháskóla á Hvanneyri. Búnaðarþing 1958 hafði samþykkt ályktun þes4 efnis, að það teldi brýna þörf á, að kennsla í búvísindum yrði efld og aukin £i*á því, sem nú erf og að stofnaður skyldi fullkom- inn búnaðarháskóli hér á landi og hann staðsettur á Hvann- eyri. í nefndina skipaði ráðherra þá Steingrím Steinþórsson, bún aðarmálastjóra, sem jafnframt var' skipaður formaður nefnd- arinnar, Benedikt Gröndal, al- þingismann og Guðmund Jóns- son, skólastjóra. Nefndin hélt allmarga fundi, bæði á Hvanneyri og í Reykja- vík, kynnti sér lög og reglu- gerðir búnaðarháskóla Dan- merkur, Noregs og Svíþjóðar og fékk tillögur kennara við framhaldsdeild búnaðarskólans á Hvanneyri. Nefndin var sammála um, að ekki væri ráðlegt að hafa fyrstu • lög um búnaðarháskóla á ís- landi um of ítarleg, heldur bæta þau og auka með reglu- gerðum, meðan starfsemin er í byrjun og nokkur reynsla fæst. Frumvarp það, sem nefndin samdi, var flutt á síðasta þingi af landbúnaðarnefnd sam- kvæmt ósk landbúnaðarráð- herra. Varð það ekki útrætt. FJytur Benedikt Gröndal frum varpið nú öðru sinni, eins og fyrr segir FUR ÞÚ ÐLIMUR? 4 23. febr. 1961 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.