Alþýðublaðið - 08.03.1961, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 08.03.1961, Blaðsíða 1
- LIÐ VÍN Á STOLINNI BÁTSKEL INNBROT var íranúð í út sölu Áfengisverzlunar ríkisins á Seyðisfirði í fyrrinótt. Var þar að verki brezkur sjómað ur, háeti á togaranum „Dinas“ frá Fleetwood. Þýfið 'var rúm ^ lega 40 flöskur af áfengi, aðal f lega wliisky, og var megnið af því komið í feitimar í gær kvöldi, er Alþýðublaðið ótti taj við Erlend Björnsson, bæj- arfógeta. Það var í gærmorgun, að út sölustjórinn varð þess var, að Ibrotizt hafði verið inn í verzl unina og gcrði hann bæjarfó geta þegar aðvart. Fyrirskipaði Blaðið hefur hlerað — Að Loftleiðir muni taka við rekstri hótelsins á Kefla- víkurvelli — og jafnvel þegar um næstu mánaða- mót. ■IIIIIHII «111 I I I ■!! I II ■ III I ihann þegar leit í brezka tog aranum, sem fyrr er getið, þar sem borið hafði á ölvun skip verja í landi þá um nóttina. Yfirmenn togarans voru bæjarfógeta hjálpsamir við leitina og fundust fljótlega rúmar 30 flöskur. Sumt var falið Um 'borð, en annað fannst í toá:tskel, sem sá brezki ætlaði að nota til að flytja varninginn um borð og koma þeim megin að tog aranum, er frá landi vissi. En ekki hafði hann siglt langt, er mikill leki kom að fleytunni, að með naumind um varð hleypt upp í Sjöru. Liggur báturinn þar marandi í kafi og fannst sumt áfeng ið þar, eins og áður greinir. Þá er talið, að eitthvað kunni að hafa farið í sjóinn af þýf inu, er sjávaitoáskann bar að. Brezki sjómaðurinn, sem er 33 ára gamall háeti, játaði verknaðinn á sig við yfir- heyrslur í gær. Kvaðst hann hafa verið mjög ölvaður, er Framhald á 15. síðu. LEHMAN bezti maður Svisslendinganna (segir í þýzka textanum, sem fylgdi þessari mynd), horfir á og getur ekkert aðhafzt með an Einar Sigurðsson skorar í leiknum, scm lauk með íslenzkum sigri (14:12). Einar er einn traustasti varnarleikmaður íslenzka liðs ins, iHann hefur mikið komið við sögu í skeytum undanfarinna daga til Aiþýðublaðs ins. . ÞÝZKI blaðaljósmyndarinn Hans Apfel tók þessa Alþýðublaðs- mynd. Hún kom frá Þýzkalandi í gær, FLEIRI MYNDIR í ÍÞRÓTTAOPNU! VAL ÍSLENDINGA í land- helgismálinu er eins auðvelt og einfalt og frekast má vera, sagði Guðmundur í, Guð- mundssen utanríkisráðherra á alþingi í gær, er umræðan um lausn deilunnar var á öðrum degi. Guðmundur sagði, að ef við höfnuðum þessum kosti um lausn deilunnar mundi veg ur okkar ekki mikill á alþjóða vettvangi og hvorki 12 mílna né 4 mílna fiskveiðilínurnar yrðu okkur mikils virði eftir það. Ráðherrann ræddi í upp- hafi máls síns um afstöðu and- stöðuflokkanna sem er á yfir- borðinu hin sama, en stafar af ólíkum ástæðum hjá flokkun- um. Hann rakti fyrst fyrri fer- il Framsóknarflokksins í land- helgismálinu, er flokkurinn hefði í stjórnarforustu 1952 látið undirbúa útfærslu mjög vandlega og boðið Bretum að Jeggja málið fyrir alþjóðadóm stólinn, er þeir ögruðu okkur. Árið 1958 liafði framsókn einn ig stjórnarforustu, þótti þá skynsamlegt að leysa deiluna og bauð samninga þannig að aðrar þjóðir mættu veiða á 6—12 mílunum öllum allt ár- ið, ef 12 mílurnar væru viður- kenndar og smávægilegar grunnlínubreytingar gerðar. Nú er framsókn í stjórnar- andstöðu og allt er öfugt hjá henni. Hún telur það landráð og svik, sem hún sjálf taldi skynsamlegt og sjálfsagt að gera, þegar hún var í stjórn. Að henni amar það eitt, að hún er í stjórnarandstöðu. Með kommúnista kvað ráð- herrann allt öðru máli að gegua. Einar Olgeirsson hefði látið bóka eftir sér í utanrík- ismálanefnd 1948, þegar land- grunnslögin voru þar til með- ferðar, að við yrðum að fara varlega í útfærslur, undirbúa þær vel að lögum og leita und irtekta annarra þjóða. Þá var ekkert Atlantshafsbandalag til að splundra, og Einar tal- aði af viti og friði. Síðan hef- ur hljóðið breytzt. Fyrst hafi Lúðvík viljað færa út fyrir Genfarfundinn, en það hefði skapað hina mestu erfiðleika milli okkar og annarra þjóða. Eftir fundinn vildi hann eng- an frest til að leita samþykkis annarra þjóða, hejdur ifæra út með mestum illindnm og ó- friði. Öll afstaða Alþýðubanda lagsmanna hefði verið þann- ig, að það væri ekki útfærslan ein, sem þeir hugsuðu mest um, heldur að halda þannig á henni, að sem mestum illind- um og erfiðleikum ylli milli okkar og bandamanna okkar, til s»ð reyna að koma íslandi úr Atlantshaftbandalaginu. Það væri höfuðtilgangur þeirra. Framhald á 14. síðu. tl fc

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.