Alþýðublaðið - 15.04.1961, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 15.04.1961, Blaðsíða 4
IIÉR birtist kafli úr erindi því, sem Einar Magnússon menntaskóia- kennari flutti um daginn og veginn í úivarpið síðastliðinn mánudag. Alþýðublaðinu fannst ærin ástæða til að birta þennan kafla, og fékk til þess góðfúslegt leyfi höfiindar. Má telja víst að skoðanir manna séu mjög skiptar í því máli, sem Einar raíðir hér á eftir og líklegt til að vekja 'umræður. FYR.IE tæpu ári, cða 25. apv- íl í fyrra, talaði ég hér í ut- varpið um daginn og veginr., og þá byrjaði ég á þessum orð um: ,,Fyrir utan gluggann hjá mér eru trén að laufgast. gras ið að grænka og jafnvel blóm að teygja sig upp úr moldinni. Svo mikil er veðurblíðan, hlý indi í lofti, litlir vindar og úr koma aðeins úð- . . veðurblíð an í alian vetur hefur verið ein stæð, snjór hefurV'aria sést hér sunnanlands”. 5>etta sagði ég þá. Og ef ég (hefði talaö .hér í fitvarpið fyrir _svo sem þrem vikum, hefði ég líklega getað byrjað á mjög svipuðum orð um. Veðuribliðan í allan vetur hefur verið mikil og sérstak lega mikil hlýindi, þar til nú fyrir tæpum þrem vikum, að snögglega kólnaði og gerði frost um allt land og töluvert mikið snjóaði, svo að alit lan'd ið frá yztu annesjum er hulið hvítum feldi En veðrið hefur verið dásamlegt, glampandi sól ■skin hvern dag, að minnsta kosti sunnanlands, oftast Iog'i eða lítill andvari. Veðrið hef ur verið eins dýriegt og hugs- ast getur bezt á vetrardegi. Og við, sem 'erum orðin allöldruð, töluðum um, að veðrið væri al- veg eins o? það var bezt á vet- urna í gamla daga. Og svo vor- um við svo heppin, að páska- vikan byrjaði einmirt rétt eftir að snjórinn og írostið og hrein viðrið hófst Og þeir, sem eiga fri frá vinnu um páskana og hafa einhverja löngun til þess að njóta dýrðar sólar og snjós og frosts, höfðum þvi tækifæri til þess betur en nokkurn tíma áður, svo að ég muni. Og fjöl- margt fólk hefur líka gert það. Sumir úr Reykjavík fóru i lengri ferðir, stórir hópar alla leið austur í Öræfí, aðrir á skíðavikuna á ísafirði, eða ann að, en langflestir upp á heið- arnar hér í krir..g, Heiíisheiði og Mosfellsheiði, eða bara upp að Eögbergi eða í Heiðmörk. Það hefur ekki þurft langt að fara, allsstaðar er snjór. Fólk hefur hundruðum saman sótt í þessar heilsulindir fjallalofts- ins og aprílsólarinnar á glamp- andi snjóbreiðunum. Og það er ekkj aðeins líkamleg heilsubót að príla upp snaevi þakin f jöll- in. Ég held, að það sé líka heilsulind fyrir sálina að kom- ast um stund burt úr kra'ðak- inu og þrengsium í steinkum- böldunum í .borginni. Þegar horft er ófan af dálitlu fjalli eða hæð, þó ekki sé nema of- an af Selásnum á húsaþyrping- arnar i Reykjavík, verður allt argaþrasið og rifrildið þar inni svo undarlega smátt og einskis virðj saman borð vð fegurð Esj unnar og víðernt Faxaflóans. Þeir, sem farið hafa til fjalla nú um páskana, hafa ýmist gengið á skíðum í gljúpum snjór.um eða þá bara labbað eftir veginum og sogað að sér kalt fjallaloftið og, dýrð sólar- innar Og um páskana voru menn l.ka svo heppnir, að lítið var um „skíðakappleiki" hér syðra, þar sem örfáir snilling- ar sýna distir sínar og berjast um sekúndubrot og hafa svo stundum fengið beinbrot.í kaup bæti fyrir-glannaskapinn, en allir hinir norpa í norðannæð- ingnum með klukku í loppinni skíði. Fólk á öllum aldri, kon- ur og karlar fóru hundruðum saman á skíði, ég held tiltölu- lega miklu fleiri en nú Kunn- átta fólks var kannski ekki mik il, en ánægjan þvi meiri að veltast um í snjónum kafrjótt og. glatt. En svo komu íþrótta frö'muðurnir svmkölluðu og fóru að skipuieggja og snilling arnir fóru að sýna sig og farið var að keppa til verðlauna Við, sem lítið kunnum, fórum þá að skammast okkar fyrir að láta nokkurn sjá okkur detta á rass inn i smábrekku. Þeir hugð- ústu og þrauíseigustu reyndu að fara að læra eitthvað af sjáifum sér og lögðu svo í brekku, sem þeir voru ekki menn fyrir, og duttu og snerust á ökla eða fótbrotnuðu. En við hinir huglausustu og varfærn- ustu, læddumst í hvarf á bak Við hól, þar sem ekkj sást til okkar klaufaskapurinn En á- nægjan var .svolítið blandin gremju. TJnglingar, sem ekki höfðu lært á skíðum i bernsku, þorðu ekki að byrja af ótta við að verða fyrir háðglósum jafn- aldranna, sém meira kunnu og ætluðu að værða snillingar. — Kennslu var erfitt að fá, því aö starfsemj íþróttafrömuð aiina beindist meira að því að -þjálfa þessa fáu. snillinga, svo að þeir gætu orðið meiri snill- ingar, en hinu að kenna b-yrj- endum, svo að þeir færu sér ekki- að voða, en nytu gleðipn- ar í snjónum. En skíðamót hinna örfáu snillinga • héldu áfram, blöðin og útvarpið kepptust við að þess er vandlega gætt að geta þess,. í hvaða íþróttafélagi við- komandí snillingur er, svo að forystumenn þess félags og klapplið þeirra geti líka baðað sig í. ijómanum af snilli snilí- ingsins. Og svo voru snjöllustu sniitingarnir sendir til útlanda með fararstjórum og þjálfurum hendinni og bla nef og kaldar fætur. Nei, fólk fékk .aö ganga í friði án þess að . þuhfa að skammast sín -fyrir klaufaskap sinn samanborið við snilld snillinganna. Þegar fyrst. var almennt far- ið áð stunda skíðaíerðir hér í Reykjav'k íaust eftir 1930, — komst það í tízku að' fara á segja frá sekúhdubrotunum og jafnvel k'ka beir.brotunum, sem snilJingarnir hlutu, til sárra leiðinda fyrir flesta út- varpshlustendur ag mikillar pappírseyðslu í blöðunum, en með styrk a£ opinberu fé. — En útlendi snjórinn var þá oftast eitthvað öðruvísi en sá íslenzki, og þó að þess væri kanriski ekki getið í útvarpinu, var stundum minnst á það á íþrótta síöum blaðanna. Nú efast ég ekk; vm, að slík skíðamót geta oft verið skemmtileg, og það er fögur sjón að sjá lipran skíðamann leika listir sínar og vissulega uppörvandi fyrir okkur hina. En þessi ofdýrkun á afreks verkum í íþróttum. og þessar sffelldu nákvæmu frásagnir í 'Erivarpinu eru satt að segja hvim’leiðar, og það sem verra er; verð'a til þess aS fæla fólk irá, þáð kallar þetta „for- heimskandi,, sportidíótí, sem það líka er. Og þegar þetta er borið sarnan við það, hvað hljótt er um ó- venjuleg afrek í vinnu eða námj eða björgunarafrek, fær maður fyrirlitningu á þessu. Mér dettur í hug, að fyrir fá- um dögum bar svo við, að tveir eða þr'.r sjómenn köstuðu sér fyrir borð af skipí í hörkufrosti i kaldan sjóinn tii þess að reyna að bjarga félaga sínum frá druknun Ég man ekki hvort nafna þeirra var gétið í blöðum og þeirra hefur ábyggi lega ekkj verið getið á íþrótta- síðum blaðanna. En, ef þeir hefðu synt 50 metra baksund á mett.'ma í 25 stiga heitu yatrii í upphitaðri Sundhöllinni, hefði því verið nákvæmlega lýst í útvarpinu og blöðunum sem miklu afreki. En svona er þetta með marg- ar ágætar og skemmtilegar í- þróttir. Þegar hætt er að' stunda þær eingöngu sér til skemmtunar og heilsubótar, — heldur til þess fyrst og fremst að velja úr einhverja örfáa af- burðamenn til þess að láta þá keppa s.'n á milli til verðlauna, hættir fjöldinn a-ð stunda í- þróttina og verður að óvirkum áhorfendum, og þeim oft harla óskemmtilegum. En keppend- urnir eru þjáifaðir og þjálfað- ir, nokkrir örfáir menn og oft, ef ekki oftast, misboðið á heilsu sinni, reknir áfram aí. forystu- mönnum íþróttafélaganna og sínu eigin heimskuíega kappi. Nemendur í skólum, þar sém íþróttir eru þó mikið stu'ndað- ar, fá ekki frið fyrir iþrót-tafé- iögunum, en eru tsfðir frá námi sínu með æfingum og kappleikjum. og frósögnum af þeim í blöðum og útvarpi. Það eru nú einkum kappleik ir í tveimur íþróttagreinurri og frásagnir af þeim, sem eru að trölll'íða þjóðina i útvarpinu með hégómalegum frásögnum af hégómalegum afrekum, en . það eru knattspyrnuleikirnir á sumrin og handkanttleikirnir á veturna, en hvorttveggja enr þetta skemmtilegir leikir í hófi. Allmar.gir unglingar stunda þessa leiki sér til gamans og heilsubótar, og er ekki nenia gott eitt urii það að segja, þó að stundum geti leikúrinn breyzt í ódrengskap og géð- illsku. En nokkrir örfáir eru þjálfaðir í þeim tilgangl einum að láta þá keppa fyrir áhorfena ur, sem boi'ga st.órfé. fyrir að horfa á þessa leiki, þó sjaldnast til þess eins að sjá fagran og drengilégan leik., heldur tjl þess að fylgjast með því, hvort þeirra félag beri ekki sigur úr býtum. Þessir unglingar eru sýning- argriplr líkt og skilmingaþræl ar hjá Rómverjum til forna, — þjáifaðir til þéss að skemmta áhorfendum, sem norpa kaldir og hoknir á knattspymuvelli með sígarettuna lafandi í munn. vikinu, og telja sig þess vegna mikla íþróttamenn eða íþrótta unnendur, æpandi upporfunar orð til síns liðs en ókvæðisorð um til hins liðsins, en „sv.'virð- ingum og háðglósum rignir yf- ir dómarann og línuverðina“, eins og stóð í fréttaklausu £ Morgunblaðinu síðastliðið haust í frétt af knattspyrnu- leik á Akureyri. Og þetta er svo kallað menning og íþrótta- viðburður, Knattspyrnan er þó háð £ fersku útilofti, en handknatt- leikur er mest inniíþrótt, há5 í íþróttasölum. Hér í Reykja- výk riafa hanidknattleiksmót verið háð í bragga frá stríðs- tímunum, síðusta 10—15 árin, Ég kom þangað einu sinni 1 haust og hvorki fyrr né s!ðar. Sóðaskapnrinn var yfirgengi- legur, rykið þykkt og óloftið alveg hræðilegt, enda gat ég ekki séð, að nein loftræsting væri í þessari yistarveru. En þarna var hrúgaö inn mörg hundruð áhorfendum, miklu fleiri en í húsið komst. Og þarna hlupu 12 eða.14 ungling ar fram og aftur kófsvelttir og lafmóðir í súrri svitasvækj- unni á skíbugu gólfinu og þéttu rykskýi Ég var fegnastur þeirri stund, þegar ég komst út. Og þetta á víst að vera heilsusamlegt! í 10—15 ár hafa Iþróttafrömuðir Reykja- víkur hrúgað æskulýð þessa bæjar í þennar heilsuspillandi bragga til að hlaupa úr sér lifur og lungu og áhorfendur borga hundruð þúsunda ef ekkf milljónir til að horfa á þetta, án þess að borgarlæknir eða önnur heilbrigðisyfirvöld bæj- ariris hafi að þvi er virðist hreyft 1egg eða lið. Og til livers? Ja, ég veit ekki. Ég hef aldrei séð ófremdar- óstands þessa getið í neinu biaði fyrr en nú fyrir fáum dög pm. Þá var þessu ástandi .þarná lýst á íþróttasíðu í einhverju , bla'ði með jafveil enn sterkari orðum en ég hef riotað — en það v'ar klykkt út með því að bera fram skorinorða kröfu til bæjaryfirvaldanna um að hraða sem mest byggingu hús- bákns mikils, sem. er í undir- búningi í Laugardalnum. ti|' þess að fá þar „löglegan hand- knattleikssal“ eins og komízt er að orði. Ég rief séð likan af húsbákni þessu og það 'muii kosta marga milljóna tugi. ■ Ég heid mér sé óhastt að full yrða fyrir hönd mjög margra útsvarsgreiðanda í Heykjavik, Framh. á 14. síðu Síldarflök Kristján Ó, Skagfjörð, hf l Tryggyag. 4 Sími 24120 \ ) 4 15. dpríl 1961 — Alþýöublaíið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.