Alþýðublaðið - 27.05.1961, Qupperneq 7
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur nú
byrjað sýningar á óperettunni
Sígaunabaróninn eftir Johann
Strauss. Er það mikil sýning
og skrautleg, mikiar hópsýn-
ingar, góður dans og mjög jafn
igóður söngur og leikur. Manni
leiðist ekki á slíkri sýningu,
en ósjálfrátt verður manni
ihugsað til þess hve óskaplega
tilgangslaust er í raun og veru
að vera að sýna svona óperettu
Ihér. Þessar ,,úmpa-pa, úmpa-
pa“-óperettur eru í raun og
veru orgnar of gamlar, of ,,týp-
ískar“ fyrir ákveðinn tíma og
jafnvel ákveðin lönd á hnett-
inum, til þess að þær hafi upp
á nokkuð að bjóða lengur,
nema ef til vill þegar þær eru
sýndar i sínu eiginlega um-
hverfi, eins og t. d Vínarborg.
Valsa og zsardasa tradísjón
er ekki til hérna. Þegar ég var
að breiða mig út um þetta í
gær, spurði einn kunningi
minn, hvort ég vildi þá, að við
hlypum yfir þetta stig í þróun
tónlistar á íslandi. Ég held, að
við gætum það að skaðlausu.
Við hlupum yfir járnbrautirnar
í samgöngumálum, og ég held
ekki, að neinn sjái eftir því.
En úr því að maður er nú
farinn að tala um tónlist, þá
Þuríður. Pálsdóttir og Erlingur.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ:
Sigaunabaróninn
verð ég að lýsa því yfir, að
almennt séð finnst mér Þjóð-
leikhúsið geta látið óperettur
eiga sig, en sýnt því meira af
Guðmundur Guðjónsson og Christine.
óperum. Það má vera, að ó-
perettur séu eitthvað ódýrari
í uppsetningu, þó að ég eigi
bágt með að trúa, að Mozart-
óperur séu miklu dýrari en t.
d. þessi uppfærsia, sem hér um
ræðir. En það er einhvern veg-
inn hálfóviðkunnanlegt, að
Þjóðleikhús sé að bjóða upu á
léttmeti, þegar svo mikið er
ennþá ósýnt af því, sem veiga-
meira er. Ég held líka, að
reynslan sé sú, að óperur hafi
,ekki verið síður vel sóttar en
óperettur og því er það blátt á-
fram uppeldisatriði að halda
sem bezt við þeim vísi að óperu
menningu, sem er að skapast
hér.
Ef það er hins vegar talið al-
veg bráðnauðsynlegt ao sýna
óperettur hér á landi, þá vil ég,
til málamiðlunar, bera fram þu
tillögu, að til sýninga verði
valdar óperettur, sem að hljóð-
falli eru í meira samræm; við
tíðarandann, þ. e. a. 3 ame-
ríska söngleiki, eins og t. d.
Oklahoma! Annie Get Your
Gun, eða eitthvað þviumlíkt.
Þær eru þó nær samtiðinni en
þessar mið-evrópsku zsardas-
óperettur. Má t. d minna á
hina ágætu sýningu á Kysstu
mig Kata, sem naut mikilla
vinsælda hér.
Þetta er það helzta, sem ég
hef um þetta að segja almennt,
og skal nú snúa mér að hrós-
inu, sem flestir aðilar eíg.i skil-
ið, fyrir frammistöðuna í sýn-
ingunni á Sígaunabaróriinum í
gærkvöldi.
Christine von Widman er
eini útlendingurinn í þessari
uppfærslu og syngur hlutverk
sitt á þýzku. Er það nokkur
Ijóður, en leikur hennar og
söngur falla vel inn í heildar-
myndina, svo að málið kemur
kannski ekki svo mjög að sök.
Röddin er góð óperetturödd
og leikurinn geðþekkur.
Guðmundur Guðjónsson, sem
leikur sjálfan Sígaunabarón-
inn, skiiar hlutverkinu prýði-
lega. Hann er liðugur og ber
sig vel á sviðinu og röddin er
í prýðilegu lagi, þó að hún
sé stundum full lítil, þegar
sungið er forte með honum.
Ágæt frammistaða. Guðmvnd-
ur Jónsson Ieikur Svínakqpg-
inn með miklum barvúr. Söng-
urinn er ágætur að vanda, og
getur ekkert kvef unnið á hon-
um. Kómíkin í leiknúm oft
alveg stórkostleg. Söngur og
leikur Þuríðar Pálsdóttur hef-
ur sennilega aldrei verið betri.
Sigurve'ig Hjaltested söng með
miklum ágætum og virðist
betri í hvert sinn, sem maður
heyrir hana. Þær eru báðar
senuvanari nú, svo að leikur-
inn kemst í meira samræmi við
ágætar raddir þeirra. Þorsteinn
Hannesson leikur mikinn sið-
gæðisbarón og gerir hlutverk-
inu ágæt skil, bæði söng og
ekki síður leik.
Fóstruna leikur Guðrún Þor-
steinsdótt'ir mjög skemmtilega
og röddin er ágæt, Erlingur
Vigfússon leikur son hennar og
syngur með fallegri tenórrödd.
Herforingi Ævars Kvarans er
valdsmánnslegur sem vera
ber. Jón Sigurbjörnsson syng-
ur lítið hlutverk mjög vel. —
Kórinn er ágætlega æfður af
Carl Billich og Magnús Bl„ Jó-
hannessyni og skilar sínu hlut-
verki prýðilega. Hefur leikstjór
anum, Soini Wallenius, einnig
tekizt að fá kórinn til að hreyfa
sig mjög eðlilega. Virðist mér
sviðssetning hans góð yfirleitt,
þrátt fiyrir mikil þrengsli í
fjöldasenum. Dansarnir eru
samdir af ballettmeistaranum
Veit Bethke og njóta sín prýði-
lega í skemmtilegri útfærslu
Brynd*sar Schram & Co. —
Hljómsveitarstjórinn, Bohdan
Wodiszco, hefur unnið verk
sitt af mikilli natni og er ár-
angurinn eftir því. Hljómsveit-
in leikur mjög vel. Leiktjöldin
gerðu Lárus Ingólfsson og
Gunnar Bjarnason eftir erlend-
um teikningum, og eru þau ein
föld og góð, þó að mér finnist
þessi risavöxnu blóm á sviðinu
dálítið einkennileg.
Að lokum þetta: Uppfærsla
þessarar óperettu hefur tekizt
ágætlega, en ég er á móti því að
útvatna tónlistarsmekk fólks
með slíkum verkum, þegar vit-
að er, að söngáhugi fólks hér
mundi verða til þess, að það
færi alveg eins að sjá óperur.
Gullvægu tækifæri til að bæta
tónlistarsmekkinn er með því
glatað. — G.G.
punktar
FRÉTTIR berast nú af að'-
alfundum kaupfélaga þessar
vikurnar. Þar er annars veg-
ar sagt írá framkvæmrlum
félaganna, vaxandi veltu og
framlc'iffslu — en hins veg-
ar gerffar beinar árásir á
ríkisstjórnina. Slíkar árásir
verffa til þess að spyrffx
kaupfélögin og Framsóknar
flokkinn saman í huga al-
mennings meir en áffur, og
verffur erfitt fyrir félögin.
að kvarta undan pólitiskum
árásum, ef þau koma þamiig-
fram. Þessi inisnotkun kaup
félaganna til pólitísks áróff-
urs bendir mjög til þess, aff
margir stjórnendur þeirra
séu framsóknarmenn fyrst
— og samvinnumenn aðeins
þar. á eftiv.
• • •
Sem dæmi um þetta má
nefna kaupfélagsfrétt úr
Tímanum í sl. viku. Þar
segir: „Afkoma félagsins
viar miklu lakari heldur en
undanfarin ár vegna ráðstaf
ana ríkisstjórnarinnar".,
Hins vegar ber frásögnm
með sér., aff vörusala félags
ins jókst. um 10%, félagií?
byggffi „mikía og glæsilega
byggingu“ fyrir bifreiða-
verkstæffi, kom upp bilvcg,
lagði 50.000 til hafnarfram-
kvæmda og ætlar á þessu
ári aff byggja nýtt útibú,
sem skal reisa og ljúka alveg:
á árinu. Benda þessar þrótt-
miklu framkvæmdir til þess
aff félagiff sé illa stætt eða
hafi ástæðu 'aff standa fyrir
árásum á ríkisstjórn þessa
tímabils? Effa skyldi allt,
sem gert er, einhvern veg-
inn vera framsókn að þakka
•— og allt hitt rikisstjórninni-
aff kenna?
Þjaðviljinn birtir myndir
af Ku Klux-klan, leynifé-
lagsskap ofbeldismanna x
Bandaríkjunum, sem alli*;
réttsýnir menn fordæma
vlssulega. En er þaff ekki
umhugsunarefni f.vrir
kommúnista, aff einn af
þeirra eigin félögum skyldi
í blaffagréin likja innri
klíku moskvukomma í S<v
síalistaflokknum í Reykja-
vík einmitt við Ku KIux-
klan?
• • •
Tíminn kann lausn á
vi nnu deilunum. Það á meff-
al annars 'aff stóidækka sólu
skatta ríkisins,, F.inhvem
tíma hefði blað Eysteins
spurt: Hvar á rikið aff fá
tekjur í staðinn?
_________________
Alþýðublaðið — 27. maí 1961 f