Alþýðublaðið - 22.06.1961, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 22.06.1961, Blaðsíða 7
u VERJA ÞEEM DÝ Á Þ’VÍ sjö ára tímabili, sem um ræðir í greinum þess- um, hefur athyglisverðasta breytingin á gengi kommún- istaflokksins í norðanverðri Evrópu verið bann hans í Vest ur-Þýzkalandi 1956. Af þeim tveim kommúnistaflokkum í Norður-Evrópu, sem voru sterkir 1953, hefur finnski kommúnistaflokkurinn bælt nokkuð við sig atkvæðum, en sá íslenzki er aftur kominn á um það bil sama stað aftur eftir þá aukningu, sem hann fékk með hanníbalistum. Annars staðar, þar sem flokk urinn var pínulítill fyrir, hef ur hann haldið sínu á einum eða tveimur slöðum, en ann- ars minnkað enn. Vestur-þýzki flokkurinn hefur að sjálfsögðu minnkað mjög við að þurfa að starfa ”neðanjarðar” og er talið,, að meðlimatalan sé nú aðeins þriðjungur þeirra 70 þús. sem voru í flokknum, þegar 'hann var bannaður. Hann slarfar nú aðallega í alls konar fé- lögum eða ”fontum”, sem beina áróðri sínum fyrst og fremst að sameiningarmál- inu, halda á lofti virðingu austur-þýzka "alþýðulýðveld isins,” heimta samningavið- ræður Austur og Vestur Þýzkalands og reyna að grafa undan stjórn Adenauers. ’Vestujr-iþýzkJir 'kommún’ij t ar styðja áróður Rússa, t. d. að því er við kemur dauða Lumumba, en leggja annars litla áherzlu á alþjóðamál. Eorustumenn flokksins, þar á meðal Max Reimann, eru í Austur Þýzkalandi og hafa tæpast ráð á nokkurri sjálf- stæðri tilveru að því er hug sjónir eða ”ídelógíu” snertir. Þeir hanga í Moskva-línunni. Áhrif kommúnista í verka- lýðsfélögunum hafa að sjálf- sögðu minnkað. Öryggismála stofnanir 'V-Þýzkalands til kynntu nýlega, að kommún- istasellum í verksm. hefði fjölgað úr 101 í 197, aðallega í málmiðnaðinum, en fjöldi þeirra er samt enn lítill. Af 6.760 meðlimum verksmiðju- ráða eru um 15% fyrrverandi meðlimir kommúnistaflokks- ins. Til eru um 180 verk- smiðjublöð, sem runnin eru undan rifjum kommúnisla, en um 100 þeirra koma aðeins út einu sinni eða tvisvar á ári. Ólöglegum kommúnista- blöðum og bæklingum er dreift með leynd. Er talið, að magn þessara ólöglegu blaða og bæklinga hafi vaxið úr um 140.000 stykkjum á mánuði í milljón. Lögregln heldur stöð ugt uppi húsleitum og hand- tökum. AUSTURRIKI. í Austurríki hefur kom- múnistaflokkurinn tapað mjög mikið án hinna róttæku aðgerða, sem framfylgt var í V-Þýzkalandi. Þeir hafa ekki aðeins tapað atkvæðum, held ur er meðlimatala flokksins, sem 1953 var talin vera um 150 þús. sennilega minna en helmingur þeirrar tölu nú. Flokkurinn hefur tapað þess- um fjórum sælum, sem hann hafði á þingi. Austurríki stóð næst hinum ægilegu átökum í Ungverjalandi og má segja, að Austurríkismenn hafi þar haft stúkusæti. Vegna þessa hnignaði flokknum mjög, en sumir telja sig hafa orðið vara við nokkra endurvakn- ingu. Áhrif flokksins hafa haldizt betur í verkalýðshreyf ingunni en í almennum stjórn málum. Einkum eru áhrif hans mikil á Sistersdorf olíu svæðinu, þar sem Rússar skildu eftir sig skipulagða starfsemi, sem enn dugar. SVISS. í Sviss höfðu atburðirnir í Ungverjalandi einnig mikil áhrif og mun meðlimatala flokksins hafa minnkað þar.^ Hlutfall þeirra af heildarat- kvæðalölunni hefur haldizt stöðugt í 2V2%, þó að þeir hafi hrapað úr fimm í þrjú sæti á þingi. Leiðtogar flokks ins hafa verið klofnir í af- stöðunni lil Ungverjalands- burðanna, auk þess að veraj klofnir að því er varðar per- sónuleg völd og stjórn og hvort flokkurinn skuli vera flokkur fjöldans eða forvígis- flokkur (avant garde). BENELUX. í Benelux-löndunum hefur hag kommúnista hnignað alls staðar, en þó mest í Hollandi, þar sem meðlimatala þeirra og þingmannafjöldi minnk- aði um helming á tímabilinu 1952 til 1959. í kjölfar atburðanna í Ung verjalandi kom klofningur í flokknum út af aðferðum þeim, sem beita ætti til að ná aftur þeim áhrifum, sem flokkurinn áður hafði meðal iðnverkafólks, og var stofnað ur nýr flokkur óánægðra kommúnista, sósíalistíski verkalýðsflokkurinn. Jafn- framt varð klofningur í verka lýðshreyfingu kommúnista. Meirihluti kommúnistaforust unnar vildi leggja niður sér- stakt verkalýðssamband kom múnista, en laumast eða ”infíltrera” heldur verkalýðs samband jafnaðarmanna. Á- ætlunin fór út um þúfur. Öll and-kommúnistísk verkalýðs félög í Hollandi hafa lýst því yfir, að aðild að þeim sé ósam rýmanleg aðild að kommún- istaflokknum. Restin af hinu kommúnistíska verkalýðs- sambandi eru skipulögð í ”Miðstöð samstöðu í stétta- baráttu og áróðri í verkalýðs- hreyfingunni.” Meðlimatala kommúnistá- flokks Belgíu hefur hrapað úr um 25 þús. árið 1953 niður í um 12 þús. Flokkurinn tap- aði mjög vegna atburðanna í Ungverjalandi, en vann nokk uð á ftur vegna átakanna í Hainaut í vetur, og nokkuð minna í Liege og Bratant. Atkvæðamagn í kosningum til fulltrúadeildar þingsina féll úr 184.108 ofan í 100.145 árið 1958, en hækkaði aftur í ár upp í 162.238. Meðlima- talan hefur líka hækkað nc-kk uð síðan 1957, en hægt. NORBUILÖND. Finnland er enn sterkast vígi kommúnista á Norður- löndum. Þó að meðlimatala hafi lækkað, aðallega vegna • úrsagna menntamanna, óx atkvæðatala þeirra úr 21,6 prc. í 23,2 prc. árig 1958. Þó var hún aftur komin niður í 21,9% við bæja- og sveita Frh. á 12. síðu. BLÓÐRAUTT HJARTA KONUNGS SÍÐASTA ritgerð hinnar ný- látnu, dönsku fræðikonu og málfræðings, Lis Jacobsen, var opið bréf til Halldórs Kiljan Laxness. Birtist'það í Politik- en 16. júní s. 1. eða tveim dög- um áður en hún lézt. Þar ræð- ir hún í gamni og alvöru um þau ummæli Kiljans, að væru handritin dönsk, þá sé Sívali- turn íslenzkur. Frú Astrid Friis tók Kiljan á orðinu og sannaði með töluvísi, að ís- lendingar ættu sem svaraði rúmri alin í Sívalaturni. — í framhaldi af þessu skrifar Lis Jacobsen: ,,En er ég athugaði ðletrun- ina á Sívalaturni da’ct mér í hug, hvort íslendingar ættu ekki stóran hlut að henni. Það var grein Merete Bonnesen í Politiken 13. júní, sem kom mér til að velta þessu fyrir mér. Þar er talað um hörm- ungar íslendinga á einokunar- tímunum og sagt frá hinuin sífelldu bænaskrám þeirra til konungs Danmerkur (og ís- lands) og ákalli þeirra um bætta verzlun. Áletrunm, — hin fræga myndagáta á Sívala turni, nær yfir fjórðung hæð- ar turnsins og er ekkert minna en ákall til hins æðsta gnðs biblíunnar, Jehovah, — að Hann megi fylla hið bióðuga hjarta konungsins af vizku og réttlæti. Ég leyfi mér að varpa fram þeirri tilgátu, að lærður íslendingur, sem þekkti hörm- ungar þjóðar sinnar, sé hinn eiginlegi höfundur áletrunar— innar, sem lítur svo út: / ÐOCTRINAM ET (sverð — tákn réttlætis), DIRIGE H (V) IIJ, lesið frá hægri — JHVII — JelIoVaH. IN t blóðr.autt hjarta, konungskóróna, upphafsstafir Kristjáns IV. Áletrunin lesin á latínvt hljóðar þá: Doctrinam et Justt tiam dirige, Jehovah, in corde> sanguineo coronati Christiani quarti. Það þýðjr: Leiddu, Jehovah, vizku og réttlæti í hið blóð- rauða hjarta hins konungs-kór ónaða Kristjáns fjórða. Alþýðublaðrð — 22. júní 1961 T

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.