Alþýðublaðið - 26.07.1961, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 26.07.1961, Qupperneq 8
EG hafði beðið ýmsa að koma með mér til Amy Engilberts í Jsví augnamiði að hún læsi { lófa viðkom- andi, síðan yrði prentað línurif lófans og útlínur og mynd lófans og spádómur- inn birtur í Opnunni, en það fór svo, að enginn fékkst til að fara með mér. Flestir báru því við, að þeir tryðu þessu ekki, lófa- lestur væri hégilja ein og einskis virði, en ég var ekki trúaður á þessar rök- semdir, ef röksemdir skyldi kalla. Úrslit urðu þau, að við fórum tveir, ljósmyndari og blaðamaður og báðumst viðtals. Eg spurði Amy hvað hún héldi um hinar raunveru- legu ástæður fyrir því, að enginn hefði fengizt til far- arinnar með mér? ★ — Eg er hrædd um, að það sé að einhverju leiti hræðsla, sem liggur á bak við það, það eru ótrúlega margir, sem óttast það að fá að vita að ráði um líf sitt og innst inni trúir margur því sem hann fær að vita í lófalestri, þó að hann vilji alls ekiki viður- kenna það. En svo er líka annað, sem kemur þarna lil greina. Það sem sést í lófa mannsins er það sem honum slendur næst, það sem er honum viðkvæmast, hans innstu leyndarmál og ég er hrædd um, að það vilji fáir lála birta þau í blaði til aflestrar fyrir hvern sem er. Eg reyndi að malda í mó- inn, en eftir að Amy hafði vandlega lesið í lófa minn með rækilegum útskýring- um og ég hafði orðið fyrir þeirri reynzlu að slanda naktari frammi fyrir henni en þó að ég hefði verið vita klæðlaus, þá fór mér að skiljast, að svo-nákvæmar upplýsingar um sjálfan sig mundi ekki neinn vilja sjá á prenti, jafnvel þótt fyllstu nafnleyndar væri gætt. En áður en til þessa hafði komið, vorum við bú- in að rabba mikið saman um Kiromanti, eins og þessi grein dulspeki er nefnd á úllendum málum. ★ — Hvað er það sem ligg- ur til grundvallar því að að unnt er að lesa örlög manna úr höndum þeirra. — Það má segja, að það •v Línur handarinnar: 1. Lífslínan — la. Upphaf lífs- línunnar — lb. Skipting lífslínunnar í aldursstig — 2„ Gáfnalínan — 3. Hjartalínan — 4. Orlagalínan — 5. Apollolínan — 6_ Heilsulínan — 7. Skilningslínan (fnnsæislínan) — 8. Skilningslínunni lýkur í mánahæð inni — 9. Venushringurinn — 10. Línan, sem táknar hið persónuléga aðdráttarafl — 11. Armbönd handrót- arinnar — 12. Ferðalínur — 13. Frjósemislínur. séu þessar línur eða rúnir, sem eru í höndum manna frá fæðingu, úr þeim geta þeir lesið, sem kunna, en fjölmargt annað kemur þar til greina, svo sem hlut- föll handarinnar, lögun hennar, stærð, áferð o.fl. — Er þetta ekki æva- forn list? — Jú, hún er það. Það er talið, að hún sé 4—5 þúsund ára gömul og er upprunnin i Indlandi. Lófa lestur byggist að nokkru leyti á stjömufræði og dul speki. Höndin fær mynd sína vegna áhrifa frá fjar- vitundinni. Lífsbraulin er falin í undirvilund hvers manns og kemur fram í höndunum. — Er lófalestur mikið iðkaður í Indlandi í dag? — Já, ég get sagt þér til dæmis, að hjá efnuðu fólki á Indlandi tíðkast það, að þegar barn fæðist er þegar kallað á astrolog til þess að hann geti ráðið örlög barnsins úr höndum þess. Niðurstöður hans eru síð- an skrifaðar niður og þær geymdar til þess að unnt sé síðar að nota þær barn- inu í hag. Ef um stúlku er að ræða, er jafnvel strax reynt að finna dreng, sem gæti fallið inn í hennar líf, bæði hvað við kemur fæð ingardegi og skapgerðar- einkennum.11 — Er ekki lófalestur í sambandi við dulspeki, kenndur sem vísindagrein víða um heim? — Jú, hann er viður- kenndur sem vísindi, bæði í Evrópu, Bandaríkjunum og í Asíu. — Þú hefur numið þetla sem háskólanám? — Já, ég var úti við Sor- bonne að nema frönsku og franskar bókmenntir, en svo rakst ég á auglýsingu í ”hall” Sorbonne háskóla um ”kursusa’‘ í þessum fræðum við Sorbonne og lét innrita mig. Þar var ég svo um nokkurt skeið við nám, en er ekki fullnuma. Eg þyrfti enn 3 ár til loka- prófs og á þeim tíma myndi ég læra meira í rit- handafræði, stjörnufræði og dáleiðslu. — Ertu að hugsa um að halda áfram námi? — Það langar mig til.að gera, ef fjárhagurinn leyf- ir. ★ — Það væri gaman að fá að heyra eitl'hvað um það, hvernig þetta fer fram. Er sama úr hvorum lófanum er lesið? — Nei, það verður að lesa jafnt úr báðum lófum, ef maðurinn er rétthentur, er það hægri höndin, sem hefur úrslitavaldið, ef hann er örvhentur, þá öf- ugt. — Er sama hvar byrjað - List og vísindi er að lesa úr línunum? — Nei, alls ekki, ef á að lesa lífslínuna, þá er byrj- að að ofan, fram við fing- ur. Lof mér að sjá — (og svo tók Amy 'höndina á mér og kíkti á lífslínuna. Það var ekki laust við að einhver ónotalilfinning færi um mig). — Ef línan er slitin á kafla á annarri höndinni, lendir maðurinn í lífs- hættu, veikindum, ef hún er slitin á báðum, þá þýð- ir það dauða. — Og hvað heldurðu að ég lifi nú lengi? (sagði ég og ég held ég hafi verið með talsverðan hjartslátt). — Þú lifir alltaf fram til...... Og talan, sem hún nefndi var svo bá, að mér stór- létti og hélt nú kotroskinn samalinu áfram. — Ræður þá lífslínan al- gjörlega ævilengd manns- ins? — Nei, það gerir hún ekki, hjartalínan og gáfna- línan hafa líka sitt að segja um áhrif lífslínunnar. (Aflur tók hjartað í mér smákipp, hvernig skyldu nú þær línur verka á líftóruna í mér; það var að mér komið að rétta fram hendina og fá úr því skorið, en ég stillti mig um það). — Hverjar eru aðallín- urnar í lófum manna? — Það eru lífslínan, — hjartalínan og 1 sem oft er nefnd a, en auk þess m; lagalínuna, sem ekki í lófum alli Ef hún finnst ek merki þess, að muni ekki koma lífinu, standa f ævi. — En hvað get ið margar? — Þær geta or; 20, en venjulej fjöldi í lófum j 4—6 aðallínur. — Er ekki n jafnlega gott að lófum manna? — Það er n jafnt, hendurnar misjafnlega fu g 26. júlí 1961 IM Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.