Alþýðublaðið - 26.07.1961, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 26.07.1961, Blaðsíða 13
SÍÐASTA VÍGI HABSBORGARA VITIÐ þig hvað höfuðborg- in í Lichenstein heitir? Veit yfirleitt nokkur hvað Liechten stein er eiginlega? Eru íbúarn- ir 5000, 100.000 eða hálf millj- ón? í stuttu máli sagt: hvað vit- um við um Liechtenstein, ann- að en að það er ríkj í Evrópu — og höfuðborgin er Vaduz, 158 ferkílómetrar að stærð. Liechtenstein er furstadæmi á landamærum Austurríkis og Sviss, íbúarnir eru 15000, svo til allir kaþólskir bændur — Flestar fjölskyldur eiga kýr, rækta mais, hveiti og kartöflur handa sér. Út er flutt nauuta- kjöt, kartöflur og vefnaðarvör- ur. Inn er flut bómull, vélar, matvæli og ferðamenn. Þjóð- höfðinginn heitir Franz Josef II — og viti menn: — hann er síðasti þjóðhöfðingi, eini lif- andi fulltrúi hins heilaga róm- verska rík:s þýzkrar þjóðar, sem Karlamagnús þáði úr hendi páfa á jólum árið 800. Um Liechtenstein hefur ver- ið sagt, að stjórnmálamenn láti það í friði og sagnfræðingar hafi gleymt því. Þangað liggur 'engin járnbraut og þar er eng- inn flugvöllur. Leiðin þangað liggur um fornfálegíi trébrú yf:r Hín, sem nötrar undan litl um áætlunarbílum svo ætla mætti, að hún hryndi þá og þegar. Höfuðborgin heitir Vaduz og íbúar hennar eru um 3000, og þessi minnsta höfuðborg heims líkist meir sveitaþorpi en borg. Það, sem mestan svip setur á Vaduz er furstahöllin og þing- húsið, sem er í senn aðsetur hins fimmtán manna þings, hús hæstaréttar og aðalsafn ríkis íns, þar, sem ótrúleg listaverð- mæti eru geymd Þar eru yfir eitt hundrað málverk hinna flæmsku meistara, verk Leon- ardo da Vinci, gull- og silfur- smíð frá endurfæðingartíman- um og gullvagninn frægi, krýn ingarvagn furstans í Liechten- stein. í furstahöllinni eru einnig ó- metanleg verðmæti saman kom in, og einkum er vopnasafnið frábært. Ekkj er þó her Liecht enstein líklegur til þess að ógna heimsfriðnum, því að hann var leystur upp eftir síð- ari heimsstyrjöldina, en í lög regluliðinu eru 12 menn — og nægir það til þess að halda uppi reglu. í styrjöldinni 1866 stóðu Liechtensteinbúar með Austur rikismönnum gegn Prússum og sendi allan herinn, 59 menn á vígvöllinn. Sennilega er það eini herinn, sem kom fjölmenn ari af vígvöllunum en fór á þá, því í honum voru 61 maður er heim var haldið — tveir Liecht ensteinmenn í Þýzkalandi gengu í lið með landsmönnum sínum í stríðinu — og enginn féll. Liechtenstein er eina landið í heim:num, sem hlotið hefur heiti sitt af ríkjandi höfðingja Liechtenste'nættin var allt frá 13. öld virðuleg og mikils met- in í Austurríki. 1608 voru karl menn ættarinnar gerðir að prinsum, en þá var yfirráða- svæði þeirra margfalt stærra en nú 1709 varð Liechtenstein sjálfstætt ríki innan lceisara- dæmisins. Núverandi fursti í Liechten stein er ákaflega vel ættaður á mælikvarða vrópskra kónga. - Elisabeth erkihertogaynja, móð ir hans v ardótt’r Kari Ludvig, yngri bróður Maximilians keis ara í Mexikó og Franz Josefs ke:sara, og Franz Ferdínand erkihertogi, sem myrtur var í Sarajevo 1914 var bróðir henn ar. Þetta er sem sagt Habs- burgarættin í öllu sínu veldi. Allt þar til eftir seinni heim Myndin hér við hliðina sýnir furstahjónin í Liech tenstein og börn þeirra í setustofunni í höllinni í Veduz. Þetta virðist ósköp venjuleg fólk, en samt á það heilt ríki, síðasta ríki, sem stjórnað er af Habs- borgara, meðlimi hinnar frægu konunga- og keis araættar. Neðri rríyndin er af skrautvagninum, sem nú er aldrei notaður. styrjöldina áttu Liechtenstein- prinsar ýmisar hallir í Tékkó- slóvakíu, en nú er það allt far ið en enn eig aþeir þrjár hallir í Vínarborg, sem gerð hafa ver ið að söfnum. Á stríðsárunum rændu Þjóðverjar auðvjtað öll- um listaverkunum úr þessum hellum, en nokkr irmenn frá Liechtenstein komust að hvar þau voru geyrnd, fóru á vett- vang og náðu þeim og fluttu heim, gegnum vandlega lokuð landamæri og styrjaldaræði. Liechtenstein er í tollabanda lagi við Sviss og notar sviss- neska mynt. En þetta er sjálf- stætt ríkj og gæti þegar í dag gert milliríkjasamninga við Perú, ísland eða Sovétríkin án þess að nokkur gæti skipt sér af. Prinsinn getur einnig tekið menn í aðalstölu, en lætur það vera. Þannig er Liechtenstein, ró- legt og undarlegt, arfur fyrii tíma, safn, sem leiðinlegt væri að hyrfi. Það er ekki nema skemmtilegt til þess að vita, að Habsborgarar skuli enn vera til sem þjóðhöfðingjar, einkum af því, að það gerir engum ncitt til Múgsefjun Framhald af 4. síðu. er fólgin í vitneskju stað- reynda um einstaklinginn. Kenningar gefa hins vegar aðeins til kynna meðaltal- ið og gera að engu undan tekningar og frávík tveggja vegna meðaltalsins. Þær gefa okkur því ekki rétta mynd af veruleikanum, því það, sem er einkenn- andi fyrir raunverulegar slaðreyndir, er einstakleiki þeirrra. Þótt hægt sé að lýsa einstaklingnum að vissu marki á tölufræðileg an hátt, þá er alls ekki hægt að líta á hann sem nokkurs konar fjöldaút- gáfu, heldur miklu fremur sem eitlhvað sérstætt og einstætt, sem ekki verður! borið saman við neitt annað. Einmitt þessi sérstæðu ein kenni verður að hafa í huga eigi að skilja einstak linginn, því kenningarnar; veita aðeins þekkingu á hinum hugsaða meðal- manni, og þær verður því að leggja að nokkru til hliðar, svo þær liti ekki dóma okkar um einstakling! inn, sem er ætíð undantekn ing frá reglunni og hinum hugsaða meðalmanni sem vísindin fræða okkur um. 'L \lþýðublaSið — 26. júlí 1961 43

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.