Alþýðublaðið - 26.07.1961, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 26.07.1961, Blaðsíða 10
Rltstjóri: ö r n E ið s s o ». Valur Fram 1:1 í þófkenndum leik ÞAÐ skemmtilegasta við Ieik Vals og Fram á mánudaginn, er þessi félög hittust í seinni um- ferð I. deildarinnar, var veðrið., Glampand'i kvöldsólin baðaði ið- grænan Laugardalsvöllinn í logn kyrrðinni, þar sem 22 leikmenn hlupu meira og minna, skipulags lít'ið eftir, knettinum, hver í kapp við annan í 90 mínútur. Ef leik urinn hefði verið eins vel leik- 'inn og veðrið var fagurt, væri sannarlega hægt að segja frá skemmtilegum leik_ En það er nú öðru nær. — Leikurinn, sem endaði á jafntefli, 1:1, þar sem Valur gerði bæði mörkin, var yf irleitt leiðinda þóf frá upphafi til enda. Án tilþrifa eða sam- hæfra aðgerða en með yfirgnæf- andj mistökum í sendingum og markskotum beggja. LÉLEGUR FYRRI- HÁLFLEIKUR. Valur byrjaði ekki ólaglega, með stuttum samleik að marki Fram, en það rann út í sandinn. Þá átti Steingrímur góða send- jngu inn fyrir vörnina, en Björg vin Dan. var of seinn að nýta þar upplagt tækifæri. Horn á Fram gaf Valsmönnitm enn eitt færi á markið, en skotið va - hátt yfir. Sama henti Guðmund Ósk- arsson rétt á eftir og stuttu síðar Dagbjart útherja, fyrir opnu markinu, báðir skutu hátt yfir. Svona gekk þetta aftur og fram og fram og aftur um völlinn, en allt kom fyrir ekki. Ýmist há skot yfir eða seinlæti — snerpu- leysi — hindraði að beztu færi nýttust. Eitt sinn léku þeir Stein grímur úh. Vals og Gunnlaugur miðherji laglega saman. Gunn- laugur, sem kominn var í ágæta aðstöðu til að skora, en þá skorti hraðann — seinlætið hindraði aðgerir og bjargaði Fram. Eins MMMIMMHW4UHHIMMMM Staðan i I. deild Lið LU JT M St. 1. ÍA 7 5 11 13:6 11 2. KR 5 4 10 16:5 9 3. Valur 7 3 2 2 13:8 8 4. ÍBA 7 3 1 3 17:20 7 5. Fram 8 1 2 5 6:10 4 6. ÍBH 6 0 1 5 3:19 1 )%%%*WWWMMWMWVMMIMM var það með Dagbjart Grímsson, sem skyndilega komst inn fyrir Valsvörnina og var þar fyrir opnu markinu en skorti knatt- leiknj til að nýta aðstöðuna. — Eina góða skotið í fyrri hálf- leiknum var frá Guðjóni Jóns syni, en Björgvin varði prýði- lega. Annað skot átti Guðjón úr upplögðu færi en fram hjá. Loks á 38. mín. tókst Val að skora — úr vítaspyrnu, en Björgvin Dan framkvæmdi og sendi knöttinn inn með föstu skoti. Vítaspyrnan var dæmd fyrir ólöglegt áhlaup eins af varnarleikmönnum Fram á annan innherja Vals. Á síðustu mínútunum fyrir leikhlé kom svo sjálfsmark Vals. Einn varnar leikmanna ætlaði að hreinsa frá, en knötturinn snérist á fæti hans og þaut í markið í stórum boga og inn án þess að Björg- vin fengi við ráðið. ENN LÉLEGRI SEINNI HÁLFLEIKUR. Ekki var úr háum söðli að Baldur Scheving, vinstri útherji Fram, sækir að Björgvin, markverði Vals. Halldór og Magnús fylgjast spemitrr nteð. Finnar sigruðu ogtöpuðu í 3 landa 'keppni Finna, ítala og Austur-Þjóðverja, sem hófst í Helsinki í fyrra- kvöld, var staðan þannig eft ir fyrri dagiitn: Austur-Þýzka land Finn’land 55—51, Finn- land Ítallía 62—44 og Austur- Þýzkaland Ítalía 62—44. Mo- rale sigraði í 400 m grind á 51,0, Rintamaki varð annar á 51,2 sek. Lindroos sigraði í kringlukasti 54,73 m. Rahka- mo sigraði f þrístökki, en vegna truflana sást ekki ár- angur hans, en Austur-Þjóð- verjinn Hinze stökk 15,75 m og varð 3. Ankio sigraði í stangarstökki með 4,50 m og Peter isetti a-þýzkt met í slegffjukasti 63,00 m. Úrslit keppninnar urðu þau, að Austur-Þýzkaland sigraði Finna 108—105, Finnar sigr- uðu ítali 113—99 og Austur- Þjóðverjar sigruðu ítali 113 —99. Berrutti sigraði í 100 m. á 10,3 (vallarmel), Rintamaki í 400 m. á 47,3, Salonen í 1500 ín. á 3.42,0, 'Valentin varð ann ar á 3.42,1. Durkoph ,sem Jón Framhald á 11 síðu. detta knattspyrnulega séð í fyrri hálfleiknum. En satt er það að lengi getur vont versnað. Þvi svo lélegur sem fyrrj hálfleikurinn var, var þó sá síðari sýnu lakari. Þar gerðis svo að segja ekkert sem í frásögu er færandi, utan þess er Hinrik varði á línu að- vífandi hæðarbolta en Geir liáfði stokkið úr markinu. Skallaði Hinrik vel frá út á teiginn en þar fékk Geir gripið knöttinn og varpaði honum fram. Framhaid á 11. síöu. Jafntefli Akraness og Hafnfirbinga EINN af fyrstu leikjum í I. deildinni á þessu keppnistíma- bili, var á milli ÍA og ÍBH. Fór sá leikur fram í Hafnarfirði og sigruðu ÍA-menn með tveim mörkum gegn engu.. Var þetta fyrsti ósigur Hafnfirðinga í keppninni, sem síðan hélzt óslit- inn þar til á sunnudaginn, að þessir, keppinautar hittust í síð- ari umferðinni og þá uppi á Akranesi. En þeim leik Iauk með jafnteflj 1:1 og féll þá fyrsta stigið í keppninni í hlut Hafnfirðinga. Þó leiknum lyki með jafntefli, áttu Akurnesingar fleiri misnot- uð tækifæri. Það var Þórður Jónsson sem skorað þetta oma mark ÍA, en hann lék v. innh. Seint í síðari hálfleik jöfnuðu svo Hafnfirðingar, en Henning skoraðj Leikurinn í heild var frekar snerpulítill. Albert Guðmundsson lék með Hafnfirðingum að þessu sinni, sem miðherji. Hafð; hann alla forystu fyrir liðinu á leikvellin- um og hvatti liðsmenn sina ó spart. Bezti maðurinn í liði Hafn firðinga var markvörðurinn, — Karl Jónsson, og sýndi hann ofi mjög frækilegan varnarleik. Er Karl einn af okkar efnilegrstu yngri markvörðum nú Lið ÍA var skipað m. a. fimm ungum leikmönnum, auk þeirra gamalreyndu, þó lék Kristinn Gunnlaugsson ekki með að þessu sinni. Dómari var Einar Hjartarson. í GÆRKVÖLDI héldu Akur- nesingar svo utan til Færeyja, en þar munu þeir m a. keppa við færeyska knattspyrnumenn á Ólafsvökunni, þjóðhátíðardegi eyjaskeggja. Aðalfararstjóri verður gjaldkeri KSÍ Ragnar Lárusson. Hvorki Þórður Jóns- son, Kristinn Gunnlaugsson eða Helgj Björgvinsson verða í liði ÍA í þessari för. En stöður þeirra skipa yngri leikmenn. ÞAÐ HEFUR veriff m'ik- iff um aff vera hjá frjálsí- þróttamönnum okkar und- anfarnar vikur. Dagana 5. °S júlí tóku 4 íslenzkir frjálsíþróttamenn þátt í svokölluffum Heimsleikum í Helsingfors. 4 íslendingar kepptu auk þess á stórmóti í Rostock 9. júlí. Þessir 2 hópar ásamt 8 öffrum frjáls- íþróttamönnum héldu síffan til Oslo og kepptu þar í svo- kallaorj 4ra-landakeppni — effa 6 liffakeppn'i, dagana 12, og 13. júlí. íþróttaunnendum eru kunn afrek íslenzku íþrótta- mannanna í þessum mótum. Sumir eru ánægffir, en affrir óánægffir eins og gengur. — íslenzka landsliffiff hafnaði í fimmta sæti í landskeppn- inni og tapaffi í fyrsta sinn fyrir Dönum. Þau úrslit koma í sjálfu sér ekki á ó- vænt, Danir eru í mikilli framför sem frjáísiþrótta- þjóff, en okkar landsliff er ójafnt og skortir mjög hlaup ara. Afrek íslendinganna voru samt síffur en svo Iak- ari en búist var viff fyrir fram, í meirihluta grein. anna náðu keppendurnir sínu bezta á sumrinu og í nokkrum tilfellum bezta ár- angri sem þeir hafa náff til þessa. Auk þess voru sett 3 giæsileg íslandsmet í áffur- nefndum ferffum. Þaff er alveg ástæffulaust aff örvænta, þó aff á móti blás'i í bili. Margir af yngri liffsmönnum landsliffsins eru I mikilli framför og nokkr- ir ungir, hlauparar, sem lítiff hafa komið viff sögu enn lofa góffu. Frjálsíþróttafor- ustan og félögin þurfa enn aff efla áhuga þeirra yngri til móiri og betri þjálfunar. Einnig er þaff mjög mikils- vert og nauffsynlegt aff fá fleiri sérmenntaða þjálfara, sem hafa aðstöffu til aff Ieggja sig betur fram við þjálfunina. í þeim málum er ástandiff slæmt, bæffi í Reykjavík og sérstaklega út á landsbyggffinni. ^ HVAÐ ER FRAMUNDAN? Næsti stórviffburffur á sviði frjálsíþrótta, þar sem íslenzk'ir frjálsíþróttamenn koma viff sögu, er Norffur- landamótiff í Oslo, sem hcfst n. k. mánudag. — Á þessu ári eru liðin 10 ár síff- an fyrst kom fram tillaga um aff halda Norffurjanda- mót í frjálsíþróttum, en til- laga um þaff kom e'inmitt fram á þingi frjálsíþrótta- Ieifftoga Norffurlanda í Rvk haustiff 1951. Sú tillaga var borin fram iaf íslendingum og studd af Dönum og Norð mönnum, en Svíar og Finn- Framhald á 11. siðu. 10 26. júlí 1961 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.