Alþýðublaðið - 26.08.1961, Blaðsíða 2
DStatJórar: Gísli J. Astþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúi rit-
' MJómar: Indriði G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri: Björgvln Guömundsson. —
Hmar: 14 900 — 14 90* — 14 90Í Aug’ýsingasimi 14 906. — AÖsetur: AlþýÖU-
; fcasið. — Prentsmiðja Alþýðubiaösins Hverfisgötu 8—10. — Áskriftargjald
ta. 45,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgefandi Alþýðuflokkurinn. —
Fra 'væmdastjóil SvPrrir Kjartansson.
NÝTT SAMSTARF
I FRAMSÓKNARMENN hæla sér mjög af hinu
nýja „samstarfi verkalýðshreyfingar og sam-
vinnuhreyfingar!£ sem 'birtist í kaupsamningum
íþeim, sem SÍS og KEA riðu á vaðið með í sumar.
ÍÞessi nýja samstaða á að boða nýja tíma.
-Spyrja mætti, hvar vinátta samvinnufélag-
: anna í garð verkalýðsins hafi verið í verkföllum
: 1952 og ‘55, í sjómannaverkfallinu 1957, í vinnu
•deilunum 1959? Af hverju stöðvaði SÍS ekki verk
föllin :þá? Voru þau ekki skaðleg eins og verkfall
: iö í sumar?
Afstaðan í þessum málum hefur því miður far
íð eingöngu eftir því, hvort framsókn var í stjórn
eða utan stjórnar. í sumar styttu þeir verkfall
— en tryggðu gengislækkun.
ÍTÖK I BÖNKUM
j HANNES Á HORNINU flutti hvassa og rök
, fasta ádeilu á útþenslu, lóðakaup og byggingar
•bankanna hér í -blaðinu á fimmtudag. Þjóðviljinn
gerir grein hans að umtalsefni og segir lítið um
; aðalefni 'hennar, en því meira um að Alþýðu-
> ílokksmenn séu gammar bankakerfisins, sem þar
í sitji í stöðum og bitlingum.
: í tíð vinstri stjórnarinnar var gerð mikil aukn
' >.ng á bankakerfinu með samþykki kommúnista
-— af því að þeir fengu við það stöður og ráð. Er
; málum raunar svo háttað, að kommar geta talið sér
einn bankastjóra og kratar einn (af 14), kommar
einn varabankastjóra og kratar engan, en í banka
* ráðum sitja nákvæmlega jafn margir kommar og
kratar samkvæmt kosningu alþingis. Hér hallar
! ekki á — enda amar annað að bankakerfinu en of
• xnikil ítök Alþýðuflokksmanna.
IÐNSTEFNA
SJÖTTA IÐNSTEFNA samvinnumanna á Ak
ureyri vekur athygli á hinum mikla iðnaði, sem
samvinnufélögin hafa komið upp þar, í Húsavík,
Reykjavík og á Selfossi. Stærstu verksmiðjurn
ar vinna úr íslenzkum hráefnum og eru 'byrjaðar
útflutning í allstórum stíl. Það eru merkileg tíma
mót fyrir íslenzkan iðnað, og vonandi verður fra-m
hald á þeim útflutningi.
Við þessar verksmiðjur starfa 6—700 manns,
og framleiðsluverðmæti er á annað hundrað mill
jónir. Verksmiðjurnar eru vel byggðar og búnar
góðum vélakosti. Þar sem viðskiptakjör iðnaðar
ins hafa verið mjög hagstæð undanfarið, hafa- sam
vinnuverksmiðjurnar bæði getað veitt kaupfélög
um endurgreiðslur og hafið byggingu nýs Verk
.smiðjuhúss fyrir Heklu. Þessi þróun gefur góða
von um eflingu iðnaðar í framtíðinni.
HANNES
Á HORNINU
•fc Eftirtektarverðar
umræður um
fræðslumálin.
'Á' Vaxandi gagnrýni.
ýV Skólamenn taka til
máls.
ýý Rekinn frá kirkju-
dyrum.
ÞAÐ ERU EKKI ýkja mörg
ár síðan fór að bera á gagnrýrii
á fræðslukerfi okkar,. Tiltölu-
lega fáir menn gerðust svo
djarfir að benda á að svo mikl
ir gallar væru á kerfinu að af
þeim gæti stafað stór hætta fyr
ir æsku landsins og þar mcð fyr
ir framtíðina. Um þetta var
skrifað í blöðin og tlað í útvarp
ið. En andsvörin létu ekki á sér
standa. Margir kennarar, skóla
stjórar og aðrir skólamenn, risu
upp 0g mótmæltu kröftulega- Ég
minnist þess, að einn ágætur
skólastjóri sér í borginni kallaði
mig „níðhögg" vegna ummæla
minna.
EN REYNSLAN er ólýgnust
og eftir því, sem tímar líða kem
ur það æ betur í ljós, að gagn-
rýnendurnir, sem þeir vöruðu
við, hafa haft á réttu að standa.
Og nú koma skólamenn hver á
fætur öðrum og telja upp þau
vandræði, sem af göllum fræðslu
kerfisins stafa, jafnvel segir
hinn kunnasti, að til dæmis
landsprófið, sé hættulegt fyrir
andlegt heilsufar unga fólksins,
— og get ég trúað því
EN AÐALATRIÐI er ekki
það, að ræða um deilur, sern um
þessi mál hafa staðið, eða hverj
um ,hefur skjátlast og hverjum
ekki, heldur hitt, að við snúum
okkur að því, að lagfæra það,
sem lagfæra þarf, að bæta um
En það er ekki að ástæðulausu
að ég segi það, að varlega skyld
um við fara í því, að geta nú
enn eina gjörbyltinguna. Rétt
ara er að feta sig áfram og
breyta smátt og smátt.
:ÉG ER EKKI skólamaður og
heldur ekki neinn sérfræðingur
í fræðslumálum, en ég held að
eitt hættulegasta meinið ligjji í
því, að skylda nemendur til þess
að læra það, ,sem þeir geta eVki
með nokkru móti skilið. Það eru
til ungmenni, sem stendur á
■sama þó að þau læri utanbókar,
án þess að skilja upp né niður
í því, sem þau eru að læra. En
ég fullyrði, að yfirleitt geta ung
menni ekki lært það, sem þau
fá ekki skilið. Og það eru heil
brigð ungmenni.
IIEILBRIGÐI og heiðarlegar
umræður um þessi mál er mik
il nauðsyn og maður verður að
vænta þess', að þeir menn, sem
bezt kunna, taki þátt í þeim
umræðum og leggi fram sinn
skerf til lausnar. Framtíðin
byggist á því, að okkur takist
að koma hér upp fræðslukerfi,
,sem hæfir ungum íslendingum
með tilliti til atvinnuveganna,
náttúru landsins og þau auð-
æfa hennar, sem við verðum að
nema hvort sem okkar líkar
betur eða ver.
G. S. SKRIFAR: „Það var
auglýst guðsþjónustu í Nes
kirkju kl. 8 fyrra föstudags-
kvöld. Stór hópur ætlaði í
j kirkju, en þegar við komum að
' hliðinu og ætluðum inn, var
þar beitt valdi með hörku af
| vaktmanni, sem ,stóð þarna og
rak alla bur.t Hann sagði, að
það væri bara fyrir boðsgesti.
Hann hafði ekki við að reka
fólkið burt og hann varð að
; fá aukið herlið og fékk 2 lög-
!regluþjóna sér til hjálpar. Það
vantaði bara gaddavír.
ÉG HRINGDI til prestsins
og spurði, hvort kirkjan væri
bara fyrir boðsgesti því að
þetta var í annað ,sinn, sem ég
var rekin frá Ég hélt að kirkj
an væri fyrir alla. Hann sagði,
að það hefði bara átt að taka
frá þrjá bekki fyrir boðsgesti.
Svo hefði söfnuðurinn átt að
ganga fyrir. Það hefði verið,
gaman af að vita hvaðan þessi
háttsetti vörður fékk skipum
um, að reka burt saklaust fólk
sem ætlaði í guðshús. Þetta er
líkt og í Austur-Þýzkalandi.
SVO FINNST MÉR almenra
ingur hefði átt að fá frítt inrj
þennan dag á sýnguna. ViS
borgum það mikið skatta til-
bæjarins. Þeir ættu að spara
meira veizluhöldin“
Hannes á horninu.
& Féfaqsiíf
UNGLING AMEIST AR AMÓT
ÍSLANDS
í frjálsum íþróttum verðuS
haldið á Laugardalsvellinum
sem hér segir:
Laugardagur 26. ágúsfi
kl. 15.
100 m. hlaup, kúiuvarp, há-
stökk, 110 m. grindahlaup, —
langslökk, 1500 m. hlaup*
spjótkast og 400 m. hlaup.
Sunnudagur 27. ágúst kl. 14.
200 m. hlaup, kringlukast,
stangarstökk, 3000 m- hlaup,
sleggjukast, 800 m. hlaup, þrí-
stökk og 400 m. grindahlaup.
Mánudagur 28. ágúst kl.
20.15.
4x100 m. boðhlaup, 1000 un.
boðhlaup, 1500 m. hindrunar-
hlaup.
Frjáisíþróttaráð Reykjavíkur.
Áuglýsið í Alþýðublaðlnn
Alþýðuhúsið - Sauðárkróki
Höfum opnað veitingasölu að Aðalgötu 7,
Sauðárkróki, sími: 165.
Á boðstólum: |
Kaffi, mjólk, smurt forauð, pySsur,
skyr, smáréttir.
Einnig öl, tóbak og sælgæti.
Tökum á móti hópferðum í mat og kaffi með
fyrirvara.
Opið alla daga kl. 9 f. h. til kl. 11,30 e. h. ]
2 26. ágúst 1961 —• Alþýðublaðið