Alþýðublaðið - 25.11.1961, Blaðsíða 9
Rabbað saman úti á gangi , . .
„SKEMMTILEGASTA
sjúkrahús í heimi“ er lik-
lega Emanuel-sjúkrahúsið
í Portlandi í Bandaríkj-
unum. Og „ánægðustu
sjúklingar heims“ eru lík-
lega unglingarnir, sem þar
1 'ggja. í þessu sjúkrahúsi
hefur nefnilega verið kom-
ið upp sérstakri unglinga-
deild, þar sem að því er
keppt, að unglingarnir lifi
viðmóta lífi og þeir mundu
gera utan veggja sjúkra
hússins og þar sem þeir
eru látnir umgangast hvor
ir aðra eins og þeir væru
heilbrigðir.
Hugmyndina að þessari
unglingadeild átti yfirmað-
ur sjúkrahússins Paul R.
Hanson. Þessi nýja skipan
mála hefur gefizt svo vel
þarna á sjúkrahúsinu, að
nú skTur enginn í því, að
einhverjum skuli ekki hafa
dottið þetta í hug iöngu
fyrir árið 1957, þegar Han
son fékk hugmynd sína.
Sjúklingarnir á ung-
lingadeildinni fá heimsókn
ir, þegar þeir vilja jafnt
morgun, kvöld, sem miðj-
an dag. — Hamborgara,
kók og pylsur geta þeir
fengið hvenær sem er og
borðað það f staðinn fyrir
venjulegan mat svo lengi,
sem læknar telja að það
geti gengið vegna heilsu
sjúklingsins. Piltar heim-
sækja stúlkuganginn og öf-
ugt, jazzmúsík og kapp-
akstur á hjólastólum til-
heyra lífinu þarna.
Arangurinn af þessu
hefur komið fram í því, að
unglingunum hefur batnað
fyrr, þeir eru ánægðari og
sjúkrahúslífið, sem annars
er kvöl og dauflegt, verður
ánægjuleg vist.
Paul R. Hanson fékk hug
myndina að þessari ung-
lingadeild, þegar sonur
hans 13 ára var lagður inn
á sjúkrahúsið með brotna
hnéskel. Sonurinn, sem var
óvenjustór eftir aidri var
lagður inn á deild með
smábörnum, sem skældu
allan daginn og hæddu
hann fyrir það, hvað
hann væri stór og luraleg-
ur. Hann kvartaði við föð-
ur sinn, sem komst síðan
að raun um það eftir sam
töl við foreldra, sem áttu
unglinga á sjúkrahúsinu,
að líka sögu höfðu þau
flést að segja. Unglingarn
ir kunnu ekki við sig,
hvorki á barnadeildum né
deildum hinna fullorðnu.
Unglingsstúlka hafði lent á
deild með nokkrum kon-
um, sem allar þjáðust af
móðurlífssjúkdómum, —
og þær töluðu um þessi ó-
sköp daginn út og inn, —
en unglingurinn fylltist
skelfingu gagnvart því,
sem fullorðinsárin hefðu í
för með sér.
Unglingarnir lifa í ver-
öld út af fyrir sig, segir
Paul R. Hansen. Ef þeir
eru rifnip út úr þeirri ver-
öld, verða þeir utanveltu
og angraðir. Eina leiðin er
að koma upp sérstakri ung
Ungadeild, þar sem ung-
Ungarnir geta haldið áfram
að lifa sínu lífi að svo
miklu leyti og unnt er
vegna sjúkleika þeirra.
Margir þeir, sem héldu,
að þeir væru úlilokaðir
frá öllum leikjum æskunn
ar njóta nú sömu gleði og
jafnaldrar þeirra úti á göt
unni, og margir þeirra,
sem þráðu að komast heim
af sjúkrahúsinu segjast
fá ,,heimþrá“ til sjúkra-
ins, þegar þeir koma heim.
Hjúkrunarkonur og starfsíólk
Hjúkrunarkona og starfsstúlkur óskast í hjúkrun
ardeild Hrafnistu.
Uppl. hjá yfirhjúkrunarkonunni, sími 36380.
Tvö skrifstofuherbergi
til leigu nú þegar á Tryggvagötu 4.
ALLIANCE HF
Sími 13324.
Húse
fil sölu í Vestmannaeyjum
Húseignin Ofanleiti er til sölu ef viðunandi tilboð
fæst. Tilboðum sé skTað til KirkjumáIaráðu,neytÍ5>-
ins fyrir 1. des. 1961. Leigulóð hæfilega stór fylgir
húsinu.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
annað og síðasta, fer fram á hluta í Háteigs
vegi 54, hér í bænum, þingl, eign Finnhoga
. Kjartanssonar, á eigninni sjálfri, fimmtudag
inn 30. nóvember 1961, kl. 2V2 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Nýja SHIRLEY-bókin komin í bókaverzlanir.
Bókaútgáfan LOGI
Sími 38270-
Alþýðublað ð
25. nóv. 1961 Q)