Alþýðublaðið - 15.12.1961, Page 13
I
5
Nýjar bækur
frá Leiftri
CAROLA heitr bók, sem
Leiftur gefur út. Þetta er önn-
ur bók eftir Joan Grant, sem
Leiftur sendir frá sér, en áður
er komin ,,Vængjaður Faraó“,
sem náði miklum vinsældum
í fyrra; enda metsölubók er-
lendis. Ste nunn Briem þýddi
foáðar bækurnar.
Þessi seinni bók Grants
fjallar um unga stúlku, sem
fæddist á ítalíu á sextándu öld
sem laundóttir aðalsmanns.
Sagan segir frá margbreyti-
legu lífi hennar og kynnum
af fólki úr öllum stéttum þjóð
félagsins. Brugðið er upy,
skýrri mynd af aldarhætti og
Iífi ítölsku þjóðarinnar á þess-
um umbrotatímum, því sögu-
lietjan kemur víða við. Inn í
bókina fléttast frásögn af innra
lífi söguhetjunnar og óvenju-
legri dulrænni reynslu, sem
hún verður fyrir.
Hið sérkennilega við bækur
Grants er, að höfundur telur
sögur sínar ævisögur frá liðn-
um jarðvistum. Hver, sem sann
leikur þessa máls kann að *era
er það víst, að bækur hennar
hafa náð óvenjulegum vinsæld
um. Bókin er 348 bls. að stærð.
fyrir kenningum yoga og dul-
Vísindanna um sálarlegá gerð
mannsins og skýrt frá'hinum
ýmsu þáttum í eðli mannsins.
Þá koma sérstakir kaflar um
dulræna hæfileika, afl hugsun-
arinnar, dulrænar lækntingar,
lífið eftir dauðann o fl| Loks
er sagt frá hinn: hagnýíu hlið
yoga, hvernig nota megi kenn-
ingar þessar ,rætt um framþró
unina, þroskaleið mannsins og
tilgang mannlífsins samkvagrit
kenningum vestrænna sem
austrænna dulfræðinga.
í formálsorðum þýðanda,
pteinonnar Briem, kemur
fram, að höfunduirnn vill ekki
að lesendur trúi þesum kenn-
ingum í blindni, heldur taki
þær sem athyglisverðar til-
gátur, unz þeir geta sjálfir
sannreynt þær. Tilgangur bók
arinnar, segir í kynningu er að
'vekjp melnn ,til sjálfstæðrár
hugsunar og benda á leiðir til
dýpri skilnings á ráðgátum
lífs og dauða.
LÆRISVEINNINN heitir
þriðja bókin, sem Leiftur
ÍSLENZKAR
GÁTUR
IÐIJNN sendir á markað nú
fyrir jólin íslenzkar gátur,
Iheildarsafn Jóns Árnasonar,
eina heildarsafnið, sem til er
af íslenzkum gátum, þessum
gömlu góðkunningjum, sem
alltaf eiga vinsældm að fagna,
ekki sízt hj'á börnum og ungl
ingum, enda e> góð dægradvöl;
að ráða gátur. — Nóttin
langa, spennandi bók eftir met
sölu'höfundinn Alistair Mac
Lean, þann hinn sama, er skrif
aði Byssurnar í Navarone. —
Frúi/i á G airimsstöðum, skáld
saga eftir John Knittel. Þetta
er ástar og örlagasaga, er ger
ist í svissneskum fjalladal. !
Saga þessi hefur verið kvik j
mynduð fyrir skömmu. !
hefur sent blaðinu. Þessi bók |
er annað bindi Nazareans, og r
kom fyrsta bindið í fyrra: Róm
verjinn. Allar eru þessar bæk-
ur ævisögur ólíkra manna á
dögum Krists, sem lýsa atburð
um þess tíma hver frá Sínum
sjónarhóli. Lærisveinninn er
eftir Sholen Asch og þýðandi
er Magnús Jochumson. Bókin
er 215 bls. að stærð.
GLÆSILEG
FRAKKLANDSBÖK
YOGA HEIMSPEKI nefnist
önnur bók, sem Leiftur gefur
út. Bók þessi er eftir yoga Ram
acharaka, sem skrifaði allmarg
ar bækur um yoga og dulvís-
indi rétt eftir Síðustu aldamót
sem síðan hafa verið mikið
lesnar og taldar sígildar um
þau mál. Þeir. sem áhuga hafa
fyrir þess konar bókmenntum
munu því fagna bókinni. Bók
þessi er allýtarleg yfirlitsbók
um þessi fræði og er skipt nið-
ur í fjórtán kafla, sem hver
fjallar um einhvern ákvæðin
þátt yoga. Fyrst er gerð grein
Saga bóndans
í Hrauni
KCMIN er út hjá ísafoldar
prentsmiðju bókin Saga bónd
ans í Hrauni eftir Guðmund
L. Friðfinnsson. Bókin fjallar
utn Jónas Jónsson bónda í
Hrauni í Öxn.adal. Jónas hef
ur lifað margt um dagana,
þekkir örbirgð eins °g hún hef
ur gezrt þung'bærust hér á
landi en einnig allsnægtir hins
dugmikla og fnrsjála íslenzka
bcnda. Skáldið segir . sögu
íbóndans eins og og hún opnast
(honum, smátt 0g smátt í við
töium við Jónag bónda og
ikonu hans. Það bregður tpp
leiftrandi myndum úr ís
lenzku sveitalífi og öll sagan
er með skáldlegum blæ.
Lönd og þjóðir: Frakk-
land, eftir D. W. Brogan
og ritstjóra Life. Al-
menna bókafélagið,
Reykjvík, 1961.
ÞEGAR prentlistin var ein
föld og aðeins þrykkt í
svörtu, gátu tslendingar gef
ið út bækur á borð við aðra,
þótt bókagerð sé hér ekki
eins fullkomin og við reyn-
um stundum að telja okkur
trú um í jólaösinni. Þegar
litprentun kom til sögunn-
ar, skorli okkur (fjölda til
að standa undir upplögum,
sem gætu réttlætt tilkostnað
litprentunar. Hér hafa því að
eins fáar og rándýrar lista-
verkabækur verið gefnar út í
litum.
Alþjóðasamvinna hefur
bjargað þessu máli. Unnt hef
ur reynzt að gefa út bækur í
samvinnu við aðrar þjóðir,
þannig að dýrasti hluti prent
unarinnar er gerður sameig-
inlega. Þannig eru tilkomnar
þær bækur um önnur lönd
sem Almenna bókafélagið
hefur nú útgáfu á. Myndirnar
eru frá hinu fræga tímariti
LIFE og textana skrifa fyrsta
flokks höfundar. Frágangur
bókanna er hinn fullkomnasti
og fegursti.
Komin er út bókin um
Frakkland og von á fleirum á
næsta ári. Hér er um mikinn
feng að ræða, aðgengilegan
fróðleik bæði fyrir lærða og
leikmenn, settan fram þann
ig að ungir og gamlir hafa á
nægju af. 'Vinsældir slíkra
landafræðibóka hafa áður ver
ið sannaðar hér á landi með
góðum en þó mun fátæklegri i
útgáfum. Frakklandsbókin, j
Denis Brogan skrifar textann,
er góð byrjun og lofar miklu |
um hinn nýja bókaflokk.
Daglegar fregnir um ■
sprengjur og óeirðir, stjórnar
kreppur, víndrykkju og kæru;
leysi gefa villandi mynd af i
Frakklandi. Það er annað og'
meira á bak við þetta vafa-!
sama úllit, og sitthvað i fólks
fjölgun, efnahag og tækni
Frakka, sem bendir til stór-
breytinga á þjóðinni. Allt
það og margt fleira má nema
af þessari bók. Og þeir, sem j
ekki nenna að lesa hinn á-
gæta lexta, geta samt sem áð
ur lært margt af myndunum
einum.
B. Gr.
Auglýsing
um umferð í Reykjavík
Samkvæmt 65. gr. umferðalaga hefir verið ákveð
-Ö að setja eftirfarandi takmarkanir á umferð hér
í bænum á tímabilinu 15. — 24. desember 1961.
1. Einstefnuakstur:
í Pósthússtræti milli Austurstrætis og Kirkju
strætjs til suðurs.
2. Bifreiðastöður bannaðar á eftirtöldum götum:
A Týsgötu austan megin götunnar. í Naust-
unum vestan megin götunnar milli Tryggvai
götu og Geirsgötu.
Á Ægisgötu austan megin götunnar milli Vest
urgötu og Bárugötu.
3. Akreinaakstur verður tekinn upp á kafla á
Laugavegi austan Kvlapparstígs. Ennfremur
neðar á Laugavegi í Bankastræti og Austur*
stræti, þegar sérstök þörf þykir vegna mikill
ar umferðar.
Athygli skal vakin á því, að bifreiðastöður
verða bannaðar, þar sem ekið verður á tveim
ur akreinum.
4. Umferð vörubifreiða, sem eru yfir ein smálest
að burðarmagni og fólksbifreiða 10 farþega og
þar yfir, annarra en strætisvagna, er bönnuð
á eftirtöldum götum:
Laugavegi frá Höfðatúni í vestur, Bankastræti,
Austurstræti, Aðalstræti og Skólavörðustíg
fyrir neðan Týsgötu. Ennfremur er ökukennsla
bönnuð á sömu götum.
Bannið gildir frá 15. — 24. desember kl. 13—
18 alla daga nema laugardaginn 16. desember
til kl. 22. 23. desember til kl. 24. Þeim tilmæl
um er beint til ökumanna að forðast óþarfa
akstur um framangreindar götur, enda má
búast við, að umferð verði beint af þeim eftir
því sem þurfa þykir.
5. Bifreiðaumferð er bönnuð um Austurstræti, Að
alstræti og Hafnarstræti 16. desember kl. 20
— 22 og 23. desember kl. 20—24.
Þeim tilmælum er beint til forráðamanna verzl
ana, að þeir hlutist til um að vöruafgreiðsla í
verzlanir og geymslur við Laugaveg, Bankastræti,
Skólavörðustíg, Austurstræti og Aðalstræti og aðr
ar miklar umferðargötur, fari fram fyrir hádegi
eða eftir lokunartíma á áðurgreindu tímabili frá
15. — 24. desember n.k.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 14. desember 1961.
Sigurjón Sigurðsson.
Alþýðublaðið — 15. deS. 1961 J3