Alþýðublaðið - 04.01.1962, Síða 9
i’iöum.
n hljóta
u hafn-
a fyrir
ig mýkt
en þeir
ilfgerðir
;anburði
Angeles » Bandaríkj-
unum, og eins og skilj
anlegt er vekjjn þjtir
mikla eftirtekt og ó-
skipta aðdáun allra
þeirra, sem þangað
koma.
við höfrungana hér a
myndinni.
Þessir fimu höfrung
ar eiga samastað í
Marineland, miklu sæ-
dýrabúri, sem staðsett
er rétt utan við Los
HWWWWWMmWMMWWVWMMMWMMMMMMMWMMMMMMW
HAFIl) ÞIÐ heyrt um
manninn, sem setti víta-
mínpillur í viskíið sitt í
hvert sinn, sem hann fékk
sér dropa. Með því móti
sagðist hann geta drukkið
endalaust, því vítamínið
byggði upp það, sem viskí
ið rifi niður.
★
SVO VAR ANNAR skrít-
inn náungi, sem ekki hafði
nennt að kyssa konuna
sína í fimm ár, en einn
góðan veðurdag kom ann
ar karlmaður að henni
og kyssti hana rembings-
koss, og þá sló eiginmað
urinn hann hálfdauðan.
★
ÉG ELSKA jörðina, sem
hún gengur á, sagði biðill-
inn við föður slúlkunnar,
að ég nú ekki minnist á allt
landið, sem hún á hinu meg
in við ána.
'k
NEI, SKO, þér þekkið alls
ekki konuna mína, sagði
eiginmaðurinn við gult
smiðinn, þegar hann var að
kaupa afmælisgjöf fyrir
konuna sína. Hjá henni er
það ekki hugsunin, sem
skiptir máli, heldur gjöfin
bak við hana.
★
UNG STÚLKA kom til
gamallar frænku sinnar,
sem var piparmey og
spurði hana ráða í ástamál
um; Já, barnið mitt, sagði
frænkan, ef ég gæi lifað
lífinu afur, þá myndi ég
^v^ mér að gifta mig áður
en ég yrði svo gömul og
skynsöm að gera það ekki.
★
UNGA STÚLKU dreymdi,
að ungur, fallegur maður,
heldur skuggalegur þrátt
fvrir glæsileik sinn, stóð
við rúnrð hennar. Áður en
hún gat komið uop hljóði
hafði hann tekið hana í
arma sína og bar hana út í
plæsilega sportbifreið, sem
bp'ð við dvrnar. Hann kast
aði henni eins og tusku inn
á baksætið. ók af stað og
hélt sem leið lá langt út í
sveit, þar stanzaði hann að
lokum á mjóum skógarstíg,
sem var baðaður í tungls-
ljósi.
Maðurinn sneri sér við
í sætinu og horfði á stúlk-
una með ógnandi augna
ráði.
— Hvað ætlið þér nú að
gera? spurði hún skjálf-
andi.
— Hvernig i ósköpunum
ætti ég að vila það? svar-
aði hann, þetta er yðar
draumur.
Dansskóli
Hermanns Ragnars
Endurnýjun skírteina fyrir
síðari heiming skólaársins &c
í Skátaheimilinu fimmtud. 4.
jan. og föstud. 5. jan. 1962
kl. 3—6 eftir hádegi báða
dagana. Kennsia hefst aftur
mánud- S . jan. og eru allir
flokkar á sama stað og tínia
og viy fyrir j 61.
ATH.: í ráði er að bæta við
einum flokki á hverju aldura
skeiðj og er innritun nýrra
nemenda föstud. 5. jan. VI.
9—12 f. h. og 1—3 é. h. í
síma 33222 og 11326.
ATH. — Innritunin er aðeins þennan eina dag
Nokkrar saumakonur
óskast nú þegar.
Upplýsingar hjá verkstjóranum.
Sími 16554.
VWksmiðjan S P A II T A
Borgartúni 8.
Sendisveieiti
óskast að Lyfjaverzlun.ríkisins. Umsækjend-
ur komi til viðtals á skrifstofuna, Hverfis-
götu 4—6, föstudag 5. janúar kl. 10—12.
Framtíðarstarf
Oskum eftir að ráða mann til aðstoðarstarfa hjá
deildarstjóra millilandaflugs félagsins. Umsækj-
endur skulu vera á aldrinum 21—35 ára, og þurfa
þeir að hafa gott vald á að skrifa og tala enska
tungu. Ennfremur er kunnátta í einu Norðurlanda
málanna mjög æskileg.
Skriflegar umsóknir, er greini aldur, menntun,
og fyrri störf, ásamt meðmælum, ef fyrir hendi
eru, skulu sendar skrifstofu millilandatflugsins,
Lækjargötu 6B, eigi síðar en 15. janúar n.k.
fifap A/a/trfs
- /C£lAAfIlAÍ&
M-------------------------------------
Aíþýðublaðið — 4. jarnúar 1962 0