Alþýðublaðið - 11.02.1962, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 11.02.1962, Blaðsíða 8
EINN nánasti samstarfs- maður Castro í mörg ár var kona að nafni Teresa Cas- uso. Margir hafa heyrt hennar getið, því hún var þar til fyrir rúmu ári full- trúi Kúbu á þingi Samein uðu þjóðanna. Að lokum var henni um megn að starfa fyrir Castro og stefnu hans og stjórn. Hún sagði af sér embættinu og gerði grein fyrir þeirri á- kvörðun sinni í bréfi, sem hún skrifaði Castro. Gengið hafði verið á bak hugsjónunum, sérstaklega hafði þó Castro sjálfur gert það, sagði hún. Tillitsleysið og miskunnarleysið gagn- vart pólitískum andstæðing um hafði aukizt, fyrirhug- uð endurreisn og endurbót þjóðskipulagsins hafði far- ið í handaskolum. Teresa gengur jafnvel svo iangt að fullyrða, að það, sem breyzt hafi, hafi fyrst og fremst verið leiðtoginn sjálfur Fidel Castro. barn, sem trúir á hugmynd ir sínar, hversu fáránlegar sem þær kunna að vera, og hefur hvorki hugsað þær til botns né hefur ennþá nokkra möguleika til að framkvæma þær. Næsta dag kom Castro aftur, segir Teresa Casuso. „Mætti ég ekki geyma hjá þér nokkra smáhluti?" — spyr hann. Að nokkrum. dögum liðnum lá urmull af vélbyssum, byssustingjum og skammbyssum, riffl- um og 30 þús. skot í íbúð- inni. Lengi talaði Castro svo við vinkonu mína — Lilia, þangað tij hún var orðinn þreytt og fór að hátta og sofa. En þá þurfti hann að skrifa grein og þá varð nóg að gera bæði fyrir nánasta samstarfsmann hans, Candido Gonzales og mig. Castro gekk fram og aftur og sagði fyrir grein- ina, og ég skrifaði hana niður. Opinberlega var Castro ekki höfundurinn, heldur einn af félögum hans. Greininni lauk með lofræðu um Castro. Eg ráðlagði honum að sleppa stóru orðunum, en þá varð Hvernig gat þetta háfa skeð? Hvað er það í skap- gerð Castro, sem hefur náð yfirhöndinni? Þetta eru spurningarnar, sem Ter- esa leggur fyrir s:.g, í nokkr um blaðagreinum, sem hún hefur skrifað um Castro og kynni sín af honum. Hann var ör og hrifnæmur eins og barn, það var auðvelt að særa hann og jafn auð- velt að fylla hann hug- móð. Hann var uppörfandi leiðtogi hinna mörgu upp- reisnargjörnu ungu Kúbu- manna, sem á sínum tima ráðgerðu að kollvarpa stjórn einræðisherrans Ba- tista erlendis frá. Teresa hitti fyrst Castro árið 1956. Hann sat í fang- elsi í Mexíkó, því þá hafði komizt upp um ráðagerðir hans og 50 annarra Kúbu- manna, um að gera innrás á Kúbu. Sjálf lifði Teresa sem pólit.'skur ílóttamaður í Mexikó, eflir að hafa tek- ið kröftuglega þátt í nokkr um mótmælagöngum stúd- enta og allsherjarverkfalli, sem beint var gegn stjórn Batista. Castro var snortinn af heimsókn hennar, enginn af félögum hans hafði gert sér það ómak að koma og heimsækja hann, sagði Castro. Teresa sagði honum þá, að hann gæti litið á heimili sitt sem sitt heim- ilí, þegar hann værí laus úr fangelsinu. Spönsku- mælandi menn nota reynd ar þessi orð tii að sýna virðingu, eða jafhvel sem kveðju, svo hún bjóst ekki við, að Castro myndi taka þessi orð hennar bókstaf- lega. Tveim dögum seinna losnaði Castro úr prísund- inni. Það var komið undir kvöld, þegar Teresa kom heim, en þá sat Castro þar á legubekk í stofunni og lét fara vel um sig. Hann var önugur í skapi, hafði beðið þarna á aðra klukku stund, sagði hann. Stuttu síðar voru þau þegar farin að ræða um gerðir hans um að steypa Batista. Teresa spurði hann þá þegar, hvort hann áliti að kúbanska þjóðin væri nægilega þroskuð til að taka þeim breytingum, sem Castro vúdi koma á, en hann trúði því statt og stöðugt. Hann sagði líka, að nú væri safnað pening- um í hverju þorpi á Kúbu til að kaupa fyrir vopn og útbúnað handa sjálfboða- liðum. Hann minnti á ábyrgðar laust barn, þar sem hann sat og lagði áætlanir um framtíðina, eins og heillað hann gramur í bragði — og sagði, að þau væru nauð- synleg. Næstu vikur var stöðug- ur straumur gesla hjá Te- resu og allt voru það vinir Castros, sem komu á öllum tlmum sólarhringsins. — Þeir bara komu og fóru eins og þeim hentaði. Ým- ist þurftu þeir að sækja vopn eða hvíla sig. Þegar á leið var Castro mjög hrifinn af vinkonu Teresu, Liliu. Stultu eftir þrítugs af- mæli Castros trúlofuðu þau sig. Hann var óspar á gjaf- ir handa henni, kjóla, skó og dýr ilmvötn. Það var ó- 8 11. febr. 1962 — Alþýðublaðið trúlegt, hvað han hafa efni á. Eftir hún bezt vissi, fe aðeins 80 dali á frá fjölskyldu s samt virtist han; peningum. Trúlofun hans varaði stutt. Aðru uður var liðinn v svo önnum kafir útbúa innrásarái að hann hafði alv að hugsa um Li var ung og blc þoldi ekki smán unnar, svo dag þegar Castr0 kc var hún farin. I beðið Teresu að tro þau skilabof kæmi ekki aftui ekki að sjá, að C sér það nærri. Ha bara oftar og fáj urnar sínar eða mark. sem venju sjónvarpsstengur anna. Yfirmaður ú eftirlitsins hlýtu: heyrt um þessar skotæfingar Cast: dag nokkurn kor honum, þar sem „Reyndu að og menn hans ti; að leika Indíána i Þeir eru orðnir c ir til þess.“ Dag nokkurn , og sýslaði við \ og safnaði þeim „Nú hef ég fui legri kærustu,“ s og lá vel á honui — Hver er þs Teresa. — Auðvitað b^ Daginn áður er hófst var Teresí fangelsi í Mexíkó aðeins af afspurr dagana. Efíir að látin laus. fór hú: sækja gamla f íékk að vita. að i stros var stödd Citv. Það varð ú skyldu hittast, o, kunningsskapur ' mikiUa vonbrigða sem móðir har hafa áhuga fyri biarga svkurrófui um á Kúbu. Tere: gjöra svo vel að í gegnum útvarpi ingarmannanna, mætti henda eigi Castrós.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.