Alþýðublaðið - 21.02.1962, Blaðsíða 1
ŒOftSOS
43. árg. — MiSvikudagur 21. febr. 1962 — 43. tbl
JOHN GLENN ofursti flaug í gær þrisvar sinnum kringum hnött-
inn á 4 klukkustundum og 56 mínútum. Þetta var sannkölluð sigurför.
Fólk um allar jarðir fylgdist með. Allt fór fram fyrir opnum tjöldum. —
Alþýðublaðið hafði í gærkvöldi viðað að sér eftirfarandi um hina sögu-
legu geimferð handaríska flugkappans: ;
KANAVERALHOFÐA,
20. febr. (NTB—Reuter).
John Glenn undirofursti
lenti kl. 18,43 eftir ísl. tíma í
dag heilu og höldnu á Atlants
liafi undan strönd Florida eftir
að hafa farið þrjá hringi um
jörðu í geimskipinu „Friend-
ship Seven“. Hann lenti aðeins
sex sjómílum frá bandaríska
tundurspillinum „Noa“, sem
tók geimfarann um borð aðeins
18 mínútum síðar til þess að
flytja hann og geimfarið aftur
til Bahama-eyja.
Glenn lenti á Atlantshafi
réttum fjórum klukkustund-
um og 56 mínútum eftir að hon-
um var skotið frá Kanaveral-
höfða, fremst í risastórri Atlas
eldflaug. Bæði ferðin út í geim
inn og hringferðirnar1 þrjár
gengu eins vel og ferðin niður
aftur, og það ríkti mikill fögn-
uður á tilraunasvæðinu við Ka-
naveralhöfða, þegar hinu sögu
lega 'hlutverki Glenns var lok-
ið. „Vel af sér vikið, Glenn.
Við kveikjuni okkur í vindli“,
liljóðaði síðasta skeytið til
Glenn í geimfarinu.
Geimferð Glenns varð sigur
bandarískra vísinda og geim-
rannsókna. Þrátt fyrir nokkra
smávegis tæknilega erfiðleika,
m. a. í sambandi við hinn sjálf-
virka stýrisbúnað, geklc öll ferð
in eins og í sögu.
Það var nákvæmlega kl.
13.47 eftir íslenzkum tíma sem
Atlas-eldflauginni með Glenn
var skotið frá Kanaveralhöfða,
og aðeins nokkrum mínútum
Framhald á 3. siðu
HítXAS vxv mi*ík-XMnber- t»»kkar skij. ót«ð fjélr ikemwí »lBeheé»tr »tfcor»ir rlu ne*. MaBA»>tg S»Xku
ýaná
Við höfðum naumast fyrr sleppt
orðinu en enn eitt skip bættist
í hópinn. í gær sagði Alþýðu-
blaðið frá þeirri dapurlegu
staðreynd, að tólf íslenzk skip
hefðu orðið fyrir alvarlegum
áföllum. Og í gærdag — fáein-
urn klukkustundum eftir að við
fórum í prentun — barst blað-
inu sú vitneskja, að enn eitt
skip hefði reyndar bætzt í hóp-
ínn. Það var Faxi frá Þorláks-
höfn. |
Hann slitnaði upp þar sem
hann lá í höfninni í Þorláks-
höfn um klukkan 8.30 í gær
morgun, og rak upp í klappim
ar skannnt þar frá. Vélbátur-
t) 5. siða [)
œriEsi