Alþýðublaðið - 13.03.1962, Síða 2
Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoðarritstjóri:
Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsíngasíml
14 906.V-— Aðseturr Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
8—10.1- Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 einl. Útgefr
anai: Aiþýöuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson.
Æskan og kommúnisminn
ÆSKULYÐUR kommúnistaríkjanna ivirðist vera
að múast gegn- kommúnismanum. Benda æ fleiri
fregnir til þess, að unga fólkið krefj.st þess að fá
að hugsa sjálft og segja það, sem því býr í brjósti.
Það hafnar Marxisma-Leninisma og alveg sérstak
'lega því þjóðfélagi, sem treður kenningum sínum
t msvifalaust í börnin og krefst síðan algerrar
'hlýðni af þeim.
Ýms.r forustumenn Sovétríkjanna hafa rætt
þetta vandamál. Suslov gerði það að umtalsefni í
ræðu á þingi kennara í Marxisma-Leninisma, og
taldi hann léiega kennslu höfuðorsök þéss, að rúss
nesk æska hafnaði „byltingarsjónarm.ðum“. Lét
Suslov í ljós venjulega óþolinmæði við æskuna, er
íhann sakaði hana um léttúðugt lífsviðhorf og eftir-
öpu^ á smekkleysum Vesturlanda og kenndi því
um, að æskan hefði ekki upplifað baráttuár komm
únismans.
Annar rússneskur forustumaður, Ilyichev, hef-
ur á hugsjónafundi flokksins talað um „stjórn-
leysis tilhneygingu og stjórnmálaandúð“ unga
fólksins, og ráðizt á unga rithöfunda fyrir að sýna
upplausnareinkennum æskunnar of mikla samúð.
Það er athyglisvert, að vantrú virðist vera það
einkenni á æskunni, sem forustumenn kommún-
istamttast mest. Er það í samræmi við-baráttu
undafarinna áratuga við að hreinsa bókmenntir
og listir. Það varð fyrst og fremst að uppræta alla
vantrú. Þegar maður sýnir merki efasemdar og
■vill ekki trúa umsviflaust því, sem honum er sagt
í kommúnistísku þjóðfélagi, telja valdamenn
íhann hættulegan. Efasemdin leiðir til umhugsun-
ar og umhugsun opnar aðrar leiðir. Þetta eru ein-
flnitt fræ frelsisins og þau eru óalandi og óferjandi
í ríki kommúnismans.
Dæmin um þróun æskunnar austan járntjalds
éru mýmörg. Það var unga fólkið, sem fyrst flykkt
ist í raðir byltingarmanna í Ungverjalandi og síð-
an flúði þúsundum saman. Það var unga fólkið í
Austur-Þýzkalandi, sem fyllti raðir flóttafólksins
í Berlín. í Póllandi eru 160.000 háskólastúdentar
en aðeins 20.000 þeirra í kommúnistaflokknum,
og þar hafa stjórnarvöldin ekki við að útrýma
æskulýðs- og listamannakúbbum eins og „Skakka
hjólinu“ í Varsjá, þar sem frjálsar umræður voru
stundaðar.
Takist kommúnismanum ekki að vinna tiltrú
þeirrar æsku, sem hann hefur sjálfur alið upp, er
stefnan dauðadæmd.
Fréttir austan um járntjald benda í vaxandi mæli
til þess, að unga fólkið sé áhugalaust um kommún-
ismann, en þrái allt, sem minnir á hið frjálsa þjóð
félag vesturlanda.
//
Washington steeí'
SKOTíIURÐAJARN
FELL5HURÐAJÁRN
UPPÍHÖLD FYRIR
HRÆRIVÉLAR
KORNSKAPALAMIR
SKÁPALAMIR
SKÚFFUSLEÐAR
LOFTRISTAR
SKÁP ASMELLU R
SKÁPAHÖLDUR
SKÁPAGRIP
ÞUP.SKUHENGI
BOLLÁHENGI
JIJÓL FYRÍR
REMNIBRAUTIR
STÝRINGAR FYRIR
RENNIBRAUTIR
RUSLAFÖTUR
HILLUR Á SKÁPA-
HURÐIR
„WASIIINGTON STEEL“ v’örurnar eru vandaðar, smekk-
legar og til í miklu úrvali. Skápahöldur og grip eru til í
mörgum litum.
Einkaumboó:
J. Þoriáksson &
Bankastræti 11.
NerSaiiarm h*f.
HANNES
Á HORNINU
★ Vísindalega sannað að
reyingar valdi krabba-
meini.
★ Hvað þarf framar vitn-
anna við?
★ Hvers vegna tvö stór
sjúkrahús í smíðum
samtímis?
★ Og hvorugt hægt að
fullgera vegna fjár-
skorts.
BLÖÐIN skýra frá nýjum niö-
urstöðum um að vindlareykingar
valdi krabbameini. Nú er svo kom-
ið, að þetta er talin vísindaleg- staö
reynd. Tjara í vindlingunum veld-
ur þessum banvænasta sjúkdómi
nútímans og allt bendir til þess, að
ef unglingur byrjar að reykja, þá
sé hann móttækilegri fyrir sjúk-
dómnum heldur en sá, sem byrjar
seint, en báðir eru í mikilli liættu.
ÞAÐ ætti varla að þurfa fleiri
orð, en þegar hafa verið sögð a’f
vísindamönnum margra þjóða til
þess að mönnum skiljist, að þeir
mega ekki reykja vindJinga. En
menn gera svo margt sjálfum sér
og öðrum til miska vitandi vits.
Menn drekka frá sér vitið. Menn
sitjast undir stýri á bíl ölvaðir.
t>að virðist þurfa svo mikið til að
koma vitinu fyrir menn. En fram
hjá því verður ekki framar gengið,
að sígarettureykingar valda kiabba
meini.
J. SKRIFAR: „Sýndarmennska
íslenzkra stjórnmálamanna er lít-
il takmörk sett. Fyrir nokkrum ár-
um var byrjað á mikilli viðbótar-
byggingu í Fossvogi. í hvora þessa
byggingu er búið að eyða iugum
milljónum króna, en ekkert virð-
ist hugsað um að fullgera þær, og
þó eru hin mestu vandræði ríkj-
andi vegna skorts á spítalavist fyr
ir sjúkt fólk. Nú er líka svo komið
að fæst heimili geta sinnt rúmliggj
andi fólki, þó það sé ekki sárþjáð
og þurfi ekki daglegrar læknis-
hjálp við því veldur fólksfæð á
heimilinum.
TIL AÐ FULLGERA þann hluta
Landspítalans, sem nú er í smíðum
er talið að ekki þurfi nema 25-30
millj. króna. Er það einkennileg
fjármálavizka hjá Alþingi að láta
hús, sem kostað hefir verið til
mörgum milljónatugum standa
hálfgert og gagnslaust ár eftir ár
ef ekki er um stærri f járhæð er að
ræða til að fullgera það, en hér
er nefnt. Ætti að vera auðvelt að
afla lánsfjár innanlands í þessu
skyni, ef ríkissjóður er ekki fær
um að greiða byggingarkostnaðinn
á einu, eða tveimur árum.
ÍSLENZKAR KONUR hafa átt
drjúgan þátt í að koma Landspít
alanum upp. Væntanlega neyta
þær nú aöstöðu sinnar og áhuga
til að firra þjóðina þeirri van-
sæmd og tjóni, að láta fullnaðar-
byggingu spítalans dragast lengi
úr þessu.
MEÐAN LANDSPÍTALINN og
borgarspítalinn hanga á horrim-
inni vegna fjárskorts að talið er,
hefur ríkið haft ráð á að annast
um lán og ábyrgðir til kaupa á 5
togurum fyrir rúmar 200 millj.
króna samtals — í erlendum gjald
eyri — Og byrjað er'að ræða og
verja fé til undirbúnings nýs flug-
vallait sem kosta mun nokkuð
mörg hundruð millj. króna. Þetta
er að vísu önnur saga. En væri
ekki rétt að reyna að fullgera
eitt nauðsynjverk, áður en byrjað
er á öðru sem ekki getur talizt
sérlega aðkallandi?"
Þingeyri, 12. marz.
Fjórir bátar róa héðan. Hef-
ur aflinn verið rýr það, sem af
er, en virðist þó heldur vera að
glæðast.
í febrúarlok var Hrafnkell afla
hæstur með 162 tonn. Fjtílnir
næstur með 146 tonn, þá Þor-
grímur með 144 lonn og fjórði
Þorbjörn með 116. Þá höfðu allir
þessir bátar farið í 21 róður. —
Marzmánuður lofar betru, því að
í sex róðrum í þessum mánuði
hafa aflazt um 50 tonn á bát.
S. B.
2. ráðstefna
verkfræðinga
Verkfræðingafélag íslands
verður 50 ára 19. apríl n.k. og I
því sambandi verður haldin 2.
ráöstefna ísienzkra verkfræff-
inga.
Er nú unnið að undirbúningi
ráðstefnunnar, sem á að fjalla
um orkumál óg iðnaðarmál.
í tilefni afmælisins liefur fé-
lagið samið við feðgana próf.
Guðna Jónsson og Jón Guðna-
son, sagnfræðing, um að semja
sögu verklegra framkvæmda á
íslandi í liálfa öld. Miðar því
verki vel áfram.
Skátar safna
á Akranesi
SKÁTAR á Akranesi fara um
bæinn í kvöld til aff Ieita eftir
framlögum í sjóslysasjóðinn.
Fólk er beðið að taka skátun-
nm vel og styrkja gott málefni.
ESdavéSasett
Bökunarofn.
með sjálfvirkum hitastilli og
glóðarrist.
ESdunarpIata
með 3 eða 4 hellum.
J. Þorláksson & Norffmann hf.
Bankastræti 11.
' -■ —-------------- -
2 13. marz 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ