Alþýðublaðið - 13.03.1962, Síða 3
nyir
strætis
vagnar
keyptir
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
aíS kaupa sjö nýja strsetisvagna.
Eiríkur Ásgeirsson, forstjóri SR,
skýrði bla'óinu svo frá í gser, að
fimm þeirra yrðu Merzedes Benz
en tveir af nýrri gerð, líklega Ley
land, sem eru brezkir.
Eiríkur sagði, að byggt yrði
yfir nýju strætisvagnana hjá
Bílasmiðjunni li.f. og sparaði það
50-60 þúsund krónur á hvern
vagn. Þessir vagnar eiga að
koma til landsins í júlí og verða
tilbúnir í október. Þá er ætlun-
in að opna tvær nýjar áætlunar-
leiðir.
Eiríkur sagði, að ákveðið væri
að leita fyrir sér og athuga með
nýjar gerðir strætisvagna og væri
nú verið að hugsa um Leyland og
yrði kannað hvort þeir væru
hentugir fyrir okkur.
Nú eiga Strætisvagnar Reykja-
vikur alls 49 strætisvagna.
NEW YORX - í BandaríKjunum
eru aS koma á markaðinn aó
minnsta kosti þrjár nýjar hljóm-
plotur rae5 söngtextum um geim
ferff John Glenn ofursta. Nafnið
á einni: „Gliding the globe with
Glenn“.
Kennsla felld
niður í M.A.
Akureyri, 12. marz.
Kennsla var felld niður í
menntaskólanum í dag vegna in-
flúenzufaraldursins, til föstudags.
Um 170 nemendur skólans hafa
lagzt og eru það um 40'c nem-
endanna.
Enn er kcnnt í gagnfræðaskól-
anum og barnaskólunum þrem, en
leikfimikennsla og sundkennsla
hafa verið felld niður. G. St.
bæjar
LONDON - lafSi Rosella
Beaty, 36 ára gömul brezk aSals
frú, hefur tilkynnt, að hún muni
í næsta mánuði opna hvíldar-
heimili fyrir - ketti.
SION - Talsmaður Chate-
auneuf-fiugvallarins í Sviss upp-
lýsti siðastliðinn föstudag, að
tveir risaernir hefðu ráðist til at-
lögu við svissneska orrustuflugvél
og neytt hana tif að nauðlenda.
SWINDON — Fjörutíu og eins
árs gamali Breti fékk í síðastiið-
inni viku aðeins skiiorðsbundinn
dóm fyrir fjöikvæni, þegar það
sannaðist, að hann hefði rekist
á kunningjakonu sína á götu og
hún hefði gert sér lítið fyrir og:
1) haft mótmæli hans að engu,
2) dregið hann fyrir fógetann, 3)
látið splæsa þau saman og 4)
læst hann inni í húsi sínu svo
að hann stryki ekki heim til iög
legu eiginkonunnar.
iWWWMWWmWWWWWWMWWMWWWWWWVmW
við Gro
Genf, 12. marz. NTB-AFP.
Utanríkisráðherrar Bandaríkj-
anna og Sovétríkianna, þeir Dean
Rusk og A. Gromyko ræddust við
í dag til undirbúnings ráðstefn-
unni um afvopnunarmál, sem
hefjast á innan skamms. Fundur
beirra stóð í 3 tíma og munu
þeir hafa rætt um Berlínarmálin,
Þýzkalandsmálin og afvopnunar-
mál. F.kkert samkomulag varð
með þeim, nema um að hittast
aftur á morgun. Gromyko mun á
fundinum hafa sérstaklega lagst
á móti tiliögum Vesturveldanna
um eftirlit með afvopnun og
Loftvarnabyssur
á þaki forseta-
hallar De Gaulle
París, 12. marz. NTB-AFP.
Verkalýössamtökin í París
efndu í dag til allsherjarverkfalls
til að mótmæla hermdarvcrkum
OAS. Verkfallið stóð í hálftíma
og var þátttaka í því geysimikil.
Mátti heita, að öll umferð og
vinna í borgrinni stöðvaðist meðan
á verkfallinu stóð.
Franska stjórnin hefur nú bann
að allt flug flugvéla, sem ekki eru
í áætlunarflugi. Hefur loftvarna-
byssum verið komið fyrir víða í
París, m. a. á þaki forsetahallar-
innar. Hefur loftvarnasveitum ver
ið skipað að skjóta niður hverja
þá flugvél, sem leyfislaust fljúgi
yfir landið.
Enn er haldið áfram handtökum
í Frakklandi á mönnum, sem
grunaðir eru um þátttöku í OAS.
Frönsk stjórnarvöld búast nú
við að OAS muni éfna til 24
stunda allsherjarverkfalls, þegar
lýst verður yfir vopnáhléi í Als-
ír. Má búast við að fólk af evr-
ópskum stofni taki almennt þátt
í verkfallinu ýmist af fylgi eða
hræðslu við OAS. Hafa hermdar-
verkamenn fyrirskipað að menn
komi ekki út úr húsi næsta sólar
hring á eftir vopnahléi. Yfirvöld-
in hafa nú fyrirskipað opinberum
starfsmönnum að koma til vinnu
sinnar, þegar vopnahléi verður
lýst og jafnframt hafa verið
fluttir menn frá Frakklandi, sem
banni við tilraunum með kjarn-
orkuvopn. Sagði hann að ekkl
kæmi til mála að erlendir menn
fengju að ferðast um Rússland f
því skyni, en að hvert ríki gæti
gætt þessara mála innan eigin
landamæra. Dean Rusk minntisf
sérstaklega á truflanir Rússa á
flugleiðunum til Vestur-Berlínar.
Gromyko mun síðar ræða við
Hume, utanríkisráðherra Breta og
Sehröder utanríkisráðherra V,-
Þjóðverja.
Rússar hafa nú sent Sameinuðu
þjóðunum erindi, þar sem þeir
leggja til, að bannað verði að
framleiða kjarnorkuvopn og birgð-
ir þeirra eyðilagðar. Einnig verði
stór svæði lýst kjarnorkuvopna-
laus þegar í stað. Rússar segja
einnig í þessu erindi, sem afhent
var U Thant í dag, að þeir séu
fúsir til að skuldbinda sig til að
aflienda ekki öðrum þjóðum kjarn
orkuvopn. ef Vesturveldin vilja
skuldbinda sig til hins sama.
eiga að vera til taks, ef orku-
ver, vatnsveitur eða sjúkrahús
stöðvast samt sem áður vegna
verkfallsins.
Alls voru 13 manns myrtir og
álíka margir særðir vegna að-
gerða hermdarverkamanna í dag.1
Samninganefndirnar í Evian
ræddust við í 8 stundir í dag og
munu þær hafa skipt sér í tvær
nefndir, þar sem önnur ræddi um
hernaðarlegu hlið málanna, en hin
um þá stjórnmálalegu. Eru menn
nú bjartsýnir um að samkomulag
fari að nást, en báðir aðilar munu
leggja áherzlu á að ganga greini-
lega frá öllum atriðum, svo að
ágreiningur komi ekki upp síð-
ar um framkvæmd samninganna.
Snjópokinn
og Olafur
Ketilsson
SMÁ missögn var í Vísi
fyrir lielgina um snjópoka,
frá Hellisheiði. Upplýst er
að Ólafur Ketilsson fékk
sand i poka hjá Kristjáni Guð
mundssyni hjá Vegagerðinni
og hvolfdi úr pokanum á
hálku á Hellisheiðinni.
Svo að munar ekki meira
en venjulega hjá Vísi. Það
var og.
MWWWWWWWMWW
Cardiff 12. marz (NTB-AFP)
ELLEFU mánaða gömul stúlka
lézt í gær úr bólusótt á sjúkra-
húsi í Wales.
Um helgina voru 11 manns
fluttir á sjúkrahús í Wales vegna
gruns um að þeir hefðu tekið
bálusótt. Liggja nú alls 24 bólu
sóttar-sjúklingar í sjúkrahúsum
í Suður-Wales.
í Svíþjóð hefur verið tilkynnt
að norskur sjómaður, sem veikt
ist um borð í skipi sínu í Karls
hamn og menn héldu að tekið
hefði hófnsótt, hefði ekki sýkzt
af veiifinni. heldur af sérstökum
hitabe'tissjúkdómi, sem ekki er
smitnæmur.
Oslo 12. marz '"T3)
Miklu skinnu” ->íi J.auk i
Oslo í dag. Vor • \ boðin upp
170 þúsund min'"s''.inua. Voru
fyrst boðin upp 93 þúsund dökk
skinn og fór verðið á þeini
upp í 2200 ~
Síðan voru boðin upp 77þúsund
skinn af svokölluðnm Pastell
mink. Náðist nú hærra verð
en áður fyrlr þessi skinn og var
meðalverð fyrir skin af kven
dýri um 460 ísl. krónur en fyrir
skinn af karldýrum 840 krónur
að meðaltali.
Helsingfors, 12. marz NTB-
FNB).
KEKKONEN Finnlandsforseti fól
í dag Veli Merkoski, einum af
leiðtogum finnska þjóðarflokks-
ins að reyna stjórnarmyndun án
þátttöku sósíalistísku flokkanna.
Merkoski hefur tjáð sig fúsan að
kanna möguleika á slíkri lausn
stiórnarkreppunnar. Mun hann
nú hefia viðræður við borgara-
fln>'kpna og að því loknu ákveða
hvort hann taki að sér stjórnar
fomstu.
Merkoski er prófessor í stjórn
lagafræði við Háskólann í Hels-
ingfors. Hann er fyrrverandi for
maður finnska þjóðarflokksins.
Wasliington 12. marz (NTB-
Reuter)
Eftir eitt til tvö ár geta sjón
varpsáhorfendur í Evrópu fylgít
með fundum á Allsherjarþingi
Saineinuðu þjóðanna, sagði að-
stoðarutanrikisráöherra Bandi-
ríkjnna Richard Gardner.
Sagði hann að unnið væri að
undirbúningi þess að koma upp
gervitunghmi til að flytja sjón
varpssendingar á milli heims
álfanna. Hann sagði einnig, að
með aðstoð gervitunglanna yrði
símasamband milli heimsálf
anna miklu ódýrara og yrði
þá ekki kostnaáarsatnara að
hringja yfir Atlantshafið en til
næsta bæjar.
Berlin, 12. marz.
(NTB-Reuter).
Dómstóll í V-Berlín úr-
skurðaði í dag Wilhelm Grau-
rock, 52 ára gamlan lögreglu-
foringja, i gæzluvarðhald. —
Maöur þessi var handtekinn
fyrir skömmu, grunaður um
morðið á danska lögreglumann
inum John Christian Falkenaa
1. febrúar 1944.
Formælandi dómstólsins
sagði að beðið væri eftir upp-
lýsingum í málinu frá dönsk-
um yfirvöldum. Rannsókn á
framferði Graurocks meðan
hann var SS-foringi í Dan-
mörku og Rússlandi verður og
framkvæmd af þýzkum yfir-
völdum.
BREZKA stjórnin hefur beJiS
bæiar- og sveitarfélög um a3
sveita sér fulltingi í baráttunni
gegn sígaretturevkingum, sem
nú þykir sannaff að valdi lungna
krabba. Eru nú uppi í Bretlandi
ýmsar ráðagerðir um til hverra
ráða skuli gripið gegn sígarettu
reykingum og er m. a. áformað
að koma á fót sérstökum lækn-
ingastöðvum fyrir fólk, sem vill
venja sig af reykingum. Einnig
kemur til greina að hækka mjög
verulega söluskatt á sígarettum.
París, 12. marz.
NTB-AFP.
Nú er búizt við í París,
að serkneski þjóðfrelsisfor-
inginn Ben Bellá og félagar
hans, sem eru í lialdi i Aunoy
höllinni skammt fyrir austan
París, verði látnir lausir dag-
inn, sem vopnalilé við Serki
verður undirritað.
r
Mun þeim þá ætlað að fljúga (
frá París til Rabat í Marokkó,
, en af hálfu stjórnar Márokkó
er nú unnið að undirbúningi
fyrir komu þeirra þangað. Eru
þar mikil hátíðahöld í vændum
og er sagt að Marokkókonung-
ur muni fyrirskipa almennan
frídag í landinu af tilefni S
komu þeirra. I
w
ALÞ'ÝÐUBLAÐIO - 13. marz 1962 3