Alþýðublaðið - 13.03.1962, Blaðsíða 5
Dansað dátt
í ófærðinni
fréttlr utan af landi, — frá Egilsstöð-
um Gg Blönduósi.
Egilsstöðum, 12. marz.|
Hér er allt á kafi í snjó.
lllfært er um héraðið, einkum
hefur Fjarðarheiði verið þung' yf-
irfærðar í vetur. Um helgina var
þó skemmtisamkoma á Eiðum, og
fékk hvorki snjór né liörð veður
heft för manna þangað.
Hér er nóg að gera og standa tals
verðar byggingaframkvæmdir fyrir
dyrum í vor Kaupf. Austf. hef
ur flutzt hingað með alla sína
starfsemi, og hefur það aukið
mjög á viðskiptalíf þorpsins. Ekki
hefur flenzan borizt hingað enn,
— og var mannmargt á Eiðahá-
tíðinni. Þar var margt til skemmt
unar svo sem leikþáttur, söngur,
skrautsýning, fimleikasýning og
þjóðdansar, — ekki íslenzkiiy —
heldur tékkneskir og rússneskir.
-v G. E.
Blönduósi, 12. marz.
Héðan er fátt að frétta, nema
hvað tíðin hefur verið slæm í
vetur. Vegir hafa teppzt öðru
hvoru en alltaf verið ruddir þeg
ar í stað. Um helgina var karla-
kórsliátíð í Húnaveri, og var þar
margt manna og mikil gleði.
G. H.
Innbrot fyrir
austan fjall
BROTIZT var inn í útibú kaup
félagsins Þórs við Land-Vegamót
sl. sunnudagsnótt, og þá sömu
nótt var brotizt inn í verzlun á
Stokkseyri. Þrír menn úr Reykja-
vík hafa verið teknir höndum og
ákærðir fyrir bæði innbrotin, en
bíllinn, sem þeir voru á, hafði
sézt standa fyrir utan útibúið um
nóttina.
í útibúinu var stolið um 2000
krónum f peningum og nokkrum
ölflöskum, — annað var látið ó-
hreyft. í norðurenda byggingar-
innar er póstafgreiðsla og höfðu
þjófarnir stolið, þaðan 1000 kr.
; Þessa sömu nótt var brotizt inn
í sælgætisverzlun á Stokkseyri og
haft á brott með sér 2000 kr. í
peningum og nokkur sígarettu-
karton.
Eins og fyrr segir, hafði bif-
reið þeirra félaga vakið athygli
manna þessa nótt, og var strax
um morguninn hafin leit að
lienni. Fundust allir piltarnir í
gærkvöldi og voru þá teknir
fastir. Mennirnir eru allir ■■ úr
Reykjavík og hefur lögreglan í
Reykjavík tekið málið í sínar
hendur. Tveir mannanna hafa áð-
ur komizt undir manna hendur.
Alþýðubrauðgerðin
bakar seydd
rúgbrauð
í TILEFNI af frétt Alþýðu-
blaðsins sl. sunnudag um að flest
brauðgerðarhús bæjarins séu
hætt að framleiða seydd rúgbrauð
skal þess getið, að Alþýðubrauð-
gerðin framleiðir enn slík brauð
og eru þau til sölu í öllum verzl-
unum Alþýðubrauðgerðarinnar.
SÖFNUNIN
Framhald af 1. síðu.
blaðið, að vonandi mundi söfnunin
ná eðlilegu marki svo að úr nógu
yrði að spila handa þeim, sem
bágast eru staddir. Ekki væri enn
búið að gera áætlun um það, sem
þarf að gera en athuga þyrfti nið
ur í kjölinn hvernig ástatt væri á
heimilinum og fá þyrfti opinbera
aðstoð, t.d. Tryggingarstofnunar-
innar. Þá þyrfti að fá mann til dð
safna öllum gögnum. -
Biskupinn sagði að (okum, að
undirtektir fólks hefðu verið góðar
síðustu daga, þó að þær hefðu e.t.v.
verið daufar til að byrja rneð
Sextugur mað-
ur bíður baria
DAUÐASLYS va.rð í Ytri-
Njarðvík á sunnudaginn. Maður
að nafni Jónas Sigurðsson, varð
fyrir fólksbifreið og lézt skömmu
síðar á sjúkrahúsi. Rannsókn
málsins er í fullum gangi, — og
áður hafa orðið svipleg slys á
þessum stað, þar á meðal dauða-
slys.
Slysið varð kl. 15,30 á Reykja-
nesbraut milli húsanna nr. 42 og
44 við þá götu.
Nánari atvik voru þau, að bif-
reiðin G-174 var á leið frá
Keflavík inn í Jýarðvikur, en á
móti henni gekk maður, sem
varð fyrir bifreiðinni og var þeg-
ar fluttur á sjúkrahús, en dó þar
kl. 4 á sunnudaginn.
Slys í
Eyjabát
BJÖRN PÁLSSON flugmaður
flutti slasaðan sjómann frá Vest-
mannaeyjum 4 sunnudaginn. —
Líðan mannsins er sæmileg eftir
atvikum.
Slysið varð í bátnum Ófeigi II.
frá Eyjum, sem er á netaveiðum.
Þegar verið var að draga inn net-
in, varð einn bátsmanna, Gunn-
steinn Kristinsson, fyrir því slysi
að handleggsbrotna, og mun hér
hafa verið um slæmt brot að
ræða.
Björn Pálsson flugmaður var
beðinn um að sækja manninn til
Eyja, og var maðurinn síðan
fluttur á Landsspítalann.
Jónas Sigurðsson var |fæddtJjr
16. júni 1903 og lögheimfli haris
var á Suðureyri við Súganda-
fjörð. Hann var starfsmaður varn
arliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Þegar vandamönnum hins látna
hafði verið tilkynnt um slysið var
líkið flutt til réttarkrufningar
hjá prófessor Níelsi Dungal, og
liggja niðurstöður hans væntan-
lega fyrir í dag.
Lögreglustjórinn á Keflavikur
flugvelli sagði blaðinu í gær, að
rannsókn málsins væri í fullum
gangi.
Búið var að kveðja fjölda vitna
þar á meðal tvær unglingsstúlk-
ur, sem voru í þifreiðinni G-174
og konu eina í Njarðvíkum, sem
var sjónarvottur að slysinu.
Mikil forföll
á ísafiröi
í
vegna flenzu
ísafirði, 12. marz. i
Inflúenzan breiðist ört út á
ísafirði. Leikfimi og sundkennslu
var hætt um helgina, og kennsla
féll niður í sumum bekkjum gzgn
fræðaskólans á laugardag.
Ekki var kennt í gagnfræðaskól
anum í dag, en hins vegar eru for
föll minni í barnaskólunum. Er
kennt þar ennþá, en þó vantaðW-
mörg böm. í efsta bekknum vant
aði 40% barnanna í dag.
Mikil og vaxandi forföll eru A
ýmsum vinnustöðvum. Róðra* - -
hafa þó ekki fallið niður enn.
Bjv.
BíH ársins Consul 315
CONSULL 315 er nýjasta FORD
gerðin í ár. Hafa FORD verksmiðjurnar ennþá einu sinni
verið fyrstar til þess að leysa hina tæknilegu þraut að smíða
hagkvæmari, þægilegri og sterkari bíl í flokki hinna létt-
ari bíltegunda. í CONSUL 315 eru fleiri kostir stærri bíl-
anna en í nokkrum öðrum bíl í léttara flokkinum.
VEIIMIVI EGILSSOIM H.F
Sérstæð ryðvörn
Zinkhúöaður
u
Til afgreiðslu
fyrir sumarið
INFLÖENZA
í KEFLAVÍK,
Inflúenzan er einnig farin a«
segja til sín í Keflavík, því al
í gær voru þrír bátar inna vegn r
lasleika áhafnanna. Allir aori
Keflavíkurbátar voru þó a sjó •
gær, enda veður á miðunum á
gætt.
Gagnfræðaskólinn og barnaskó
inn ætluðu að hefja kennslu
morgun, en forföll nemenda von
svo mikil, að ákveðið var að fell:
niður kennslu til fimmtudags
barnaskólanum og til föstudags
gagnfræðaskólanum.
Á sunnudaginn var landlega hj. -
Keflavíkurbátum, en þrír neta
bátar sem réru fengu lélegai
afla. Var Kári með 5 tonn, ei
Gylfi og Gullborg með eitthvai
minna.
Tveir bátar, sem róa frá Kefla
vík, Vilborg og Ólafur, byrjuðÁ-
nýlega á netaveiðum, en afli neta*
báta hefur verið heldur lélegur og
sízt betri en afli Hnubáta. \
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. marz 1962 5