Alþýðublaðið - 27.03.1962, Síða 10
I
i
I
!
í
f
t
y
í
\
spennandi leik
★ ÍR SIGRAÐI
Körfuknattleiksfélag Reykjavík-
ur í meistaraflokki karla á sunnu-
dagskvöldið með 84 stigum gegn
62. Leikurinn var hinn skemmtileg
asti og spennandi á köflum. í I.
flokki karla sigruðu stúdentar Ár-
mann með 53:38 og komu þau úr-
slit mjög á óvænt. Á laugardaginn
voru háðir þrír leikir. í I. flokki
sigraði Ármann ÍR með 43 stigum
gegn 34 í mjög hörðum leik. Hafði
fyrri leikur þessara félaga verið
kærður af Ármanni, vegna form-
galla og úrskurðað var, að hann
skyldi endurtekinn. Þar sem Ár-
mann tapaði fyrir stúdentum á
sunnudag má búazt við, að ÍR og
Ármenningar verða að leika í
þriðja sinn, til að úrslit fáist. í
meistaraflokki karla sigraði KR
stúdenta í hörkuleik, 60 stig gegn
52. Þriðji leikurinn á laugardag
var í 3. flokki karla, en þar sigr-
aði KFR Ármann með 15:4.
Meistaraflokkur karla: -
★ ÍR-KFR 84:62 (42:29).
Þessa leiks var beðið með tölu-
verðri eftirvæntingu, enda voru
áhorfendur fleiri en verið hefur
á íslandsmótinu til þessa. Leikur-
inn hófst með miklum hraða og
það var KFR, sem hlaut fyrsta
stigið, er Sigurður Helgason skor-
ar úr vítakasti, en skömmu síðar
nær ÍR yfirhöndinni, er Helgi Jó-
hanns sendir boltann í körfuna
með glæsilegu sveifluskoti. ÍR-
ingar hafa svo yfirhöndina næstu
mínútur, komust t. d. í 6:1, en
Þorsteinn Hallgrímsson skorar fyrir ÍR í leiknum gegn KFR. Hann
var be>.ti maður ÍR-liðsins.
10 marz 1962 —, ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Sex hlutu
silfumælu
í GÆR VARÐ Knattspyrnusam-
baÆnd slands 15 ára, én í því til-
efni var opið hús í Glaumbæ og
kaffi og veitingar á borðum. —
Margir velunnarar KSÍ voru þar
mættir til að árna sambandinu
heilla í tilefni þessara tímamóta.
Björgvin Schram, formaður
KSI flutti ávarp ’ og þakkaði öll-
um þeim, sem sýnt hafa KSI vin-
semd og stuðning á undanförnum
árum, en þeir eru margir. V'ið
þetta tækifæri sæmdi KSÍ sex
menn silfurnælu sambandsins fyr-
ir vel unnin störf í þágu knatt-
spyrnunnar, en það voru þeir Ag-
nar Klemenz Jónsson, fyrsti for-
maður KSÍ, Jón Sígurðsson, sem
var formaður KSÍ um nokkurra
ára skeið, Guðmundur Ólafsson,
sem um fjölmörg ár var þjálfari
KR og formaður KRR í mörg ár,
Frímann Helgason, en hann hef-
ur starfað fyrir knattspyrnuna
um árabil, Ragnar Lárusson í
stjórn KSÍ og ' stjómarmaður
nærri öll ár sambandsins og loks
Ármann Dalmannsson, formaður
ÍBA, en hann hefur starfað mikið
fyrir knattspyrnuna á Akureyri
árum saman.
Karl Jóhannsson KR er einnig með í körfuknattleik, en hann er þó j Hóf þetta var í alla staði hið
enn frægari sem handknattleiksmaður. ánægjulegasta.
KFR sækir á um miðjan hálfleik-
inn og kemst yfir við gífurleg fagn
aðarlæti, þeir komast í 15:14 og
19:16. ÍR nær sér svo verulega á
strik undir lok hálfleiksins og
skorar hverja körfuna af annarri,
þannig að staðan í hléi var 42:29.
Var samleikur ÍR-liðsins og fjöl-
breytni og hraði í leik oft með á-
gætum.
★ KFR MINNKAÐI BILIÐ
í 5 STIG - SÍÐAN
DRÓ í SUNDUR
Siðari hálfleikur hefst með sama
fjöri og iiðin skora á víxl til að
byrja með. En er nokkrar mínút-
ur voru liðnar minnkar bilið stöð-
ugt, þannig að um miðjan hálf-
leikinn er staðan 58:53 fyrir ÍR og
spenna komin í leikinn aftur. Þá
er eins og úthald þeirra KFR-
manna sé búið, ÍR-ingar skilja
vörn þeirra hvað eftir annað eftir
og skora 24 stig gegn 9 síðustu 10
mín. Annars er eins og flesta
körfuknattleiksmenn okkar skorti
þrek og úthald, þeir eru flestir
hálf linkulegir í lok leikjanna.
Bæði liðin léku maður á mann
og tókst ÍR betur upp í vörninni,
auk þess er ÍR-liðið mun jafnara
en KFR. Beztur hjá ÍR var Þor-
steinn Hallgrimsson eins og venju
lega, en Helgi Jóhannsson átti
einnig ágætan leik og skoráði 24
stig. Hann er auk þess aðal skipu-
leggjari liðsins. Ungu leikmenn-
irnir Einar Hermannsson og Sig:
Gíslason vöktu athygli. — Hjá
KFR voru Einar Matthíasson, Mar
inó Sveinsson og Sigurður Helga-
son beztir, þeim siðastnefnda er
alltaf að fara fram.
Dómarar voru Jón Eysteinsson
og Guðjón Magnússon. Þeir
dæmdu allvel, en stundum gætti
misræmis í dómum þeirra og fyrir
kom, að sá sem braut hagnaðist á
brotinu, þannig að karfa var dæmd
ógild, en vítakast misheppnaðist.
Borgardómarar
og hjón sigruðu
MEISTARAMÓT Reykjavíkur í*
badminton var háð í Valsliúsinu
um helgina og var k'eppt í meist-
ara- og I. flokki. Reykjavíkurmeist
ari í einliðaleik varð Óskar Guð-
mundsson, en hann sigraði einnig
í fyrra.
Óskar keppti til úrslita við Jón
Árnason og keppnin var jöfn og
skemmtileg. Óskar vann fyrsta
leikinn 15-10 en Jón vann annan
með 15-10. Þriðja leikinn
vann svo Óskar eftir hörkukeppni
og framlengdan leik 18—13.. Jón
hefur. keppt í fá ár og er mjög
efnilegur. Óskar og Einar Jónsson
sigruðu í tvíliðaleik, þeir mættu
Wagner Walbom og Þóri Jónssyni
í úrslitum og umíu báða leikina
með 15 — 8.
Hjónin Jónína Niljóhníusdóttir
og Lárus Guðmundsson sigruðu í
tvenndarkeppni, en í úrslitunum
léku þau gegn Jóni Árnasyni og
Gerðu Jónsdóttur, hirini kunnu
handknattleiksstúlku úr KR. Þau
sigruðu með 18 — 14 og 15 — 18,
Framhald á 13. síðu.
Úrslit
i kvold
í KVÖLD lýkur innanhússmóti
KSÍ í knattspyrnu að Hálogalandi
og verður keppt til úrslita. í gær-
kvöldi voru háðir margir skemmti
legir leikir og má búast við, að
enn meira fjör verði í kvöld. —
Keppnin hefst kl. 8,15.
EINS og skýrt hefur verið
frá áður hér á.síðunnið hef-
ur ísland tilkynnt þátttöku
í svokölluðum „Polarcup“,
sem haldinn verður í Stokk-
hóími 2.-4. nóvember næst
komandi í tilefni 10 ára af-
mælis sænska Körfuknatt-
leikssambandsins. Er hér
um „óopinbert” Norður-
landamót að ræða og úr-
tökumót fyrir næsta Evrópu
mót í körfuknattleik, sem
haldið verður í Póllandi
1963, en þátttaka í því verð-
ur það mikil, að hafa verður
undankeppni.
Stjórn Körfuknattleiks-
sambands íslands stendur
fyrir æfingu fyrir mót þetta,v
en það . verður fyrsta stór-
mót, sem ísl. körfuknatt-
leiksmenn taka þátt í. Einri
þáttur þessarar þjálfunar
eru þrek og úthaldsæfingar,
sem Benedikt Jakobsson sér
um. Þessar æfingar eru nijög
illa sóttar, það eru víst að-(
eins tveir leikmenn, . sem
sýna þeim verulegan áhuga.
Það réttasta, spm Körfu-
knattleikssambandið gerði
ef sama deyfð helzt, væri að
hætta þátttöku, því að hvað
er samband, sem varla á fyr-
ir frímerkjum frekar en önn
uri sérsamböndin hér, að
berjast við að senda þá íþrótta
menn á alþjóðamót, sem ekki
sýna meiri áhuga en hér á
sér stað. — Ö.
i
i