Alþýðublaðið - 01.04.1962, Qupperneq 3
S.ÓMADUR
JÁTAR SÖLU
Framhald af 1. síðu.
Grimsby, kemur niður að höfninni
þar leignbilstjóri er Harry nefnist.
Hefur hann alltaf til sölu ótak-
markað af ritalíntöflum og einnig
amfetamin. Sjómaðurinn, sem lief-
ur verið í siglingum í mörg ár,
keypti áður ritalintöflur í lyfja-
verzlunum án lyfseðla. Fyrir 2
árum var sú sala stöðvúð í Eng-
landi og kynntist sjómaðurinn þá
Harry, sem seldi lionum þessar
töflur.
Ekki kvaðst sjómaðurinn hafa
selt aðrar töflur en þær, sem hann
lét sölumanninn frá Akranesi fá.
Hins vegar hefur hann sjálfur
neytt ritalíntaflanna, og kveðst
hafa keypt alls 5 stauka á árunum,
en hver þeirra inniheldur 100 töfl-
ur. Hefur hann keypt staukinn á
eitt pund.
í jólaferð, sem hann fór til
Grimsby á s. 1. ári bað hann Harry
að útvega sér amfetamin. Gerði
Harry það, og lét hann hafa glas
með 1000 töflum í, sem hann
seldi á 4 pund. Skömmu seinna
komst sjómaðurinn að því, að í
hverri töflu voru ekki nema 5
mililgrömm af hreinu amfetamíni,
en það þótti honum ekki m^ilega
sterkt, og seldi þá fyrrnefndum
sölumanni töflurnar er hann kom
í land. Annað segist hann ekki
hafa selt.
Ekki kvaðst hann vita nema um
einn annan sjómann, er keypt hafði
ritalíntöflur af Harry. Ekki ber
þeim saman sjómanninum og sólu
manninum, hvað viðvíkur þeirri
upphæð er sjómaðurinn fékk fyr-
ir töflurnar hér.
Eins og fyrr seglr voru svo f jór-
ir menn teknir í fyrrakvöld á veit-
' ingastofunni Vesturhöfn. Reyndust
þeir vera með ritalín og meproba-
mati-töflur, sem þeir liöfðu feng-
ið út á lyfseðla, en neyttu þarna
með áfengi.
Höfðu þeir fengið Iyfseðla hjá
læknum, — annar preludíntöfl-
urnar út á konu sína, en eins og
kunnugt er, þá eru það megrnnar-
töflur. Hinn hafði komið til lækn-
is og borið sig illa, kvaðst vera
slæmur á taugum, og fékk hann
30 meprobamati-töflur.
~Er Alþýðublaðið ræddi við Svein
Sæmundsson í gær, sagði hann að
íþreludíntöflur virtust vera sér-
staklega vinsælar hér, og menn
svikið þær út á margan hátt — oft
út á konur sínar. Sagði hann að
ásókn ungs fólks í þessi nautna-
lyf virtist vera takmarkalaus.
KAY GREGSON
FEGRUNARSÉRFRÆÐINGUR
Á FERÐINNI HÉRLENDIS
FRÚ Kay Gregson frá snyrti-
vörufyrirtækinu Innoxa kemur
liingaö til lands á morgun til þess
aö kynna snyrtivörur frá fyrir-
tæki sínu og leiðbeina konum um
fegrun og snyrtingu. Frú Gegson
mun dveljast hérlendis fram und
ir lok næstu viku og verður liún
til viðtals í útsöluverzlunum Inn
oxa, sem eru Regnboginn, í Banka
stræti, Stella, Bankastræti, Sápu
húsið, Austurstræti og Oculus
Austurstræti. Þar mun bún veita
þeirn viðskiptavinum, sem þess
óska, ókeypis leiðb'ir ingar um
val og notkun á snyrtivörum.
Þá mun frú Gregson einnig hafa
n.k. miðvikudag sýnikennslu og
leiðbeiningar að Hótel Borg. Boðs
kort verða afhent á áðurnefndum ]
verzlunum.
Frúin mun heimsækja Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur, og að
síðustu holdur hún námskeið fyr
ir afgreiðslustúlkur Innoxa út-
söluverzlunanna.
Fréttaþjónusta G J Á
■ \
\>Ai> KVAÍ>
VSRA Á
SE.XTAND0
S/OU
Álfarnir á Akureyri komust í New York Times
og eitt af óskabörnum þjóffarinnar kom heim eftir erfiffa
útivist í New York.
Sjómenn vilja
ekki leigja
FÆREYINGAR hafa nú óskað eft
ir því að fá á leigu einn íslenzkan
togara. Hafa þeir þó látið þess
getið, að ekkert yrði úr þeirri
leigu, ef hún væri í óþökk íslenzku
sjómannasamtakanna.
Umboðsmaður Færeyinganna hér
á landi leitaði í gær til Jóns Sig-
urðssonar, formanns Sjómanna-
félags Reykjavíkur, og óskaði eft-
ir áliti sjómannasamtakanna á
málinu.
Samninganefnd togarasjómanna
kom saman til fundar í gærmorg-
n og ræddi málið. Hafði Jón Sig-
urðsson þá áður athugað hvort
ekki þyrfti leyfi íslenzkra stjórn-
arvalda til slíkrar leigu. Kom í
ljós að þess þurfti, en það er
sjávarútvegsmálaráðuneytið, sem
með þau mál hefur að gera.
Það var einróma álit nefndar-
innar, að sjómannasamtökin hlytu
að snúast gegn því, að togarar
yrðu leigðir úr landi, sérstaklega
meðan á verkfallinu stæði.
Verður sjávarútvegsmálaráðu-
neytinu tilkynnt afstaða nefndar-
innar með bréfi, sem sent verður
á mánudag.
Laukur
hækkar
í verði
MATLAUKUR kostaði fyrir
nokkrum dögum kr. 13 kg. — en
í dag borga húsmæður 24,10 fyr-
ir sama magn. Húsmóðir hringdi
til Alþýðublaðsins í gær og
spurði, hvort þetta gæti verið rétt
verð. Alþýðublaðið hafði sam-
band við verðlagsstjóra og sagði
hann, að laukurinn hefði hækkað
gífurfcga með síðustu sendingu.
— og þetta væri eitt hið hæsta
verð, sem lagt hefði verið á lauk.
Þessi nýja, dýra sending kemur
frá Hollandi, en laukur hefur ver
ið fluttur hingað áður frá Hol-
landi Póllandi og fleiri löndum.
Verðlagsstjóri sagði, að þessar
miklu sveiflur í verðlagi orsökuð
ust af því, að laukur og ýmsir ávext
ir væru háðir árstíðum, þannig,
að þeir væru dýrastir í verði, þeg
ar lengst veeri frá uppsker/tím-
anum-, — en lækka, þegar mark
aðurinn fyllist.
Afli lítill og
flenzufár
Hnífsdal, 31. marz.
AFLI bátanna er tregur. Tveir
eru á þorskanetum og þrír á línp.
Línu'Játar hafa fengið um 8—15
tonn í róðri.
Hér er norðangarður og hann
gengur á f.ieð snjókomu öðru
hvoru. Flenzan gengur hér, en fer
fremur hægt yfir. Þó mun hafa
vantað um 18 manns af um fimm-
tíu manns, sem starfar í frystihús
nu. mmm
Alþýffublaffsmyndin, sem var tekin í Bankastræti í gær, þarfnast ekki skýringa.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 1. apríl 1962 3