Alþýðublaðið - 12.04.1962, Blaðsíða 2
[ Mtstjórar: Gigil J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aöstoöarrltstjóri:
Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasíml
XI 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hveríisgötu
8—10. — Áskriftargjaid kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3.00 eint. Útgef-
andi: Aipýðuflokkurinn. — Pramkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson.
Verkamannabústaðir
ALÞINGI afgreiddi í fyrradag ný lög um verka>-
mannabústaði'. Samkvæmt óskum Alþýðuflokksins
liafði ríkisstjórnin látið endurskoða gömlu lögin,
sem voru orðin gersamlega úrelt, og síðan lagt fyr-
ir þingið frumvarp að nýrri löggjöf. Hefur hún nú
verið afgreidd, og má þar með segja, að verka-
mannabústaðir hafi öðlazt nýjan tilverurétt.
Á sínum tíma voru lögin um verkamannabústaði
og framkvæmdir á því sviði einn mesti sigur Al-
þýðuflokksins og alþýðustéttanna í landinu. Síðan
hefur efnaliagur almennings batnað stórlega og
(þúsundir manna getað eignazt íbúðir, sem aldrei
ihefðu hugsað til slíks fyrir stríð. Jafnframt hefur
verðbólgan gert lögin um verkamannabústaði úr-
elt.
Þrátt fyrir hinar miklu þjóðfélagsbreytingar er
enn rík ástæða tii að veita hinum efnaminnstu að-
stoð til íbúðabygginga samkvæmt kerfi verka-
mannabústaðanna. Þess vegna er endurskoðun lag
anna mikill sigur, sem vonandi verður til að hleypa
mýju lífi í framkvæmdir og tryggja. að þeir njóti,
sem mesta þörf hafa fyrir.
Verkamannakjör
KÍKISSTJÓRNIN hefur með bréfi til Alþýðu-
isambands íslands gert grein fyrir sjónarmiðum
sínum varðandi kaup og kjör næstu mánuði. Er
iþetta bréf hið athyglisverðasta, og má benda á eft
irtalin atriði:
1) Ríkisstjórnin hefur sterkan áhuga á að tryggja
kjarabætur, eins og framast er hægt á raunhæf
an hátt. Stjórnin vill forðast kauphækkanir,
sem ekki eru raunhæfar og valda nýrri dýrtíð-
aröldu.
1) Stjórnin vill atnuga sérstaklega möguleika á
hækkun launa hjá verkamönnum, sem hafa
lægst laun fyrir. Stjórn Alþýðusambandsins
taldi það ekki vera í sínum verkahring.
ö/ Stjórnin hefur gert mikið til að leita að leiðum
'Jl kjarabóta með hagkvæmari vinnutilhögun,
akvæðisvinnuskipan og öðru slíku.
4) Tillögur um að lækka vöruverð að marki með
lækkun skatta og tolla hafa ekki reynzt raun-
hæfar. Þeim hafa ekki fylgt tillögur um sam-
1 bærilegan samdrátt á fjárlögum, sem verður að
? fylgja> ef ekki á að reka ríkisbúið með stórfelld-
£ um halla.
i Þessi stefna stjórnarinnar er vafalaust rétt. Ný
bylgja kauphækkana, sem gengi til allra stétta,
;imundi leiða t:l nýrrar verðbólgu, þannig að allir
' istæðu í sömu sporum — en þjóðauheildin biði tjón
? afr ' ú-.-í.ú-'w : ^ .
2 12. apríl 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Tækið kostar kr. 359,50.
Brúsi af shampó kr. 57,70
PÓSTSENDUM.
Glæsilegt nýtt heimilistæki sem gerir
yður kleift, að halda gólfteppunum
tandurhréinum — fyrirhafnarlaust.
REX-BISSELL teppahreisarinn ásamt
BEX-BISSELL gólfteppashampoo, eru
langárangursríkustu tæki, sinnar teg-
undar, á markaðnum.
-k Reynið BEX-Bissell þegar í dag
★ Notið aðeins það hezta
★ Notið pi^f-Bissell
TEPPI H.F.
Austurstræti 22
Sími 14190.
HANNES
Á
★ Framboð ákveðin.
★ Sex listar verða í kjöri.
★ Gallarnir á stjórn borg-
innar.
★ Einræði eins floltks eða
samstarf.
BÆJARSTJÓRNARKOSNINGAR
eiga að fara fram í maí. Flokkarn-
ir undirbúa nú framboð sín hver
í kapp við' annan. Alþýðuflokkur-
inn liefur orðið fyrstur með fram-
boð eins og oftast áður. Þetta fer
eftir föstum reglum þar. Fulltrúa-
ráð flokksins, cn það er skipað
fólki úr pólitfskum félögum flokks-
ins svo og verkalýðsfélögunum,
■ sem Alþýðuflokksmenn liafa stjórn
á, kýs fjölmenna uppstillinga-
HORNINU
nefnd, sem síðan ræðir framboð
og tekur ákvörðun um. Þó er það
ekki gilt fyrr en sameiginlegur,
almennur fundur í flokksfélögun-
um þremur, Alþýðuflokksfélaginu,
Kvenfélagi Alþýðuílokksins og Fé-
lagi ungra jafnaðarmanna, hefur
samþykkt framboðið. En síðan verð
ur fundur í fulltrúaráðinu að
leggja endanlega samþykkt á það.
ÞESSUM fundahöldum er nú
lokið og framboðslistinn við bæjar-
stjórnarkosningarnar ákveðinn. —
Vitanlega verða alltaf deildar mein
ingar um framboð, eða oftast nær,
! en þegar ákvörðun hefur verið
tekin standa allir flokksmenn sam-
an og vinna að því, að sem flestir
'fulltrúar flokksins nái kosningu. —
Mjög erfiðlega hefur gengið hjá
öðrum flokkum að koma sínum
framboðum saman. -Þar kemur til
greina djúptækur stjórnmálalegur
skoðanamunur. Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur cfnt til almcnnrar skoð-
anakönnunar, en úrslit hennar eru
aldrei gerð opinber. Forystumenn-
irnir eiga að hafa þau til hliðsjón-
ar. Stundum cru þau í samræral
við skoðánir forystumannanna, og
þá er allt í lagi, en stundum eru
þau það ekki, og þá er ekki tekiO
tillit til þeirra. (
ÞAÐ ER einkennilegur siðut
Sjálfstæðismanna að hafa í kjöri
við skoðanakannanir sínar, menn,
sem kunnir eru að vinsældum
eru í naiklu áliti meðat bæjarbúa,
án þess að vita fyrirfram hvort við-
komandi menn fallist á að vera í
kjöri. Það mun líka vera venjan
hjá flokknum að láta flokksmenn-
ina nokkurnveginn sjálfráða um
hvaða borgara þeir gefa atkvæðl
sitt við prófkjörið. Nú munu Heim
dallarfélagar hafa tekið þátt í
prófkjörinu, en í því félagi eru
unglingar niður í fjórtán ára aldur.
I
AULT BENDIR til þess að nú
verði fleiri listar í kjöri en nokkvu
Framhalö á 12. síðu.