Alþýðublaðið - 12.04.1962, Blaðsíða 13
Missti tvo fingur
Bætur: 177,196
kr.
HÆSTIRETTUR hefur nýlega
kveðið upp dóm í skaðabótamáli,
sem Þorsteinn Þorleifsson höfð-
aði gegn Júpíter og Mars h. f.
Kvað rétturinn hæfilegar skaða-
bætur kr. 177.196,00 er Þorsteini
skyldu greiddar sem skaðabætur
fyrir slys, er hann hlaut við
vinnu í vélarsal Júpíter og Mars.
Málavextir voru í stuttu máli
t>eir, að þegar Þorsteinn Þorleifs
son var við vinnu á flökunarvél í
vélarsal hjá Júpíter og Mars hf.
MEÐAL sýningarhluta, setn
vakiö hafa athvgli á vöru-
sýningunni í Utrecht í Hollandi,
er svonefndur „atómhlífffar-
hattur". HöfuðfatiS kostar sem
svarar 40 íslenzkum krónum
og er eldfast, auk þess sem
atómgeislar eiga ekki að kom
ast í gegnum það.
vildi það óhapp til, að hann fékk
karfa í hnésbótina og hrasaði við
það. Studdi hann sig í fallinu við
flökunarvélina með þeim afleið-
ingum, að eggjárn vélarinnar
tætti af honum 2 fingur. Enginn
sjónarvottur var að slysinu.
Höfðaði Þorsteinn mál og krafð
ist bóta að upphæð kr. 283.675,-
40. Undirréttur kvað hæfilegar
bætur 207,196.00 kr. með 6%
ársvöxtum til greiðsludags og 17.-
600 kr. í málskostnað, sem greidd
ur skyldi innan 15 daga frá lög-
birtingu dóms.
Þessum úrskurði réttarins áfrýj
uðu báðir aðilar til Hæstaréttar.
Hæstiréttur kvað upp þann úr-
úrskurð, að bætur Þorsteins
skyldu, lækka niður í 177.196.00
kr. með 6% ársvöxtum. Málskostn
aður var hæfilegur ákveðinn 30
þúsund kr.
Sératkvæði í málinu greiddi
Gissur Bergsteinsson og sýknaði
hann Júpíter og Mars af allri
bótaskyldu. Úrskurð sinn reisti
hann á þeim rökum, að ósannað
væri að slysið hefði orðið með
þeim hætti, sem stefnandi sagði
vera.
skrifstofu ríkisins
FERÐASKRIFSTOFA ríkisins
mun nú, eins og oft áður, gefa
fólki kost á að losa sig úr viðjum
hversdagslífsins um páskana og
taka sér ferð á hendur um ein
fallegustu og söguríkustu héruð
Suðvesturlands. Ferðaskrifstof-
an mun, í félagi við B. S. í., efna
til 3 daga ferðar til Snæfells-
ness, 2 daga ferðar um Borgar-
fjörð og 1 dags ferðar til Gull-
foss og Geysis og um Reykjanes.
Snæfellsnessförin verður haf-
in á laugardag fyrir páska og ek-
ið sem leið liggur til Stykkis-
hólms og gist þar. Um kvöldið
verður efnt til kvöldvöku, þar
sem saga Snæfellsness og helztu
merkisstaða þess verður rakin
og skýrð. Á páskadagsmorgun
verður gengið um ná-
grennið og það skoðað og eftir
hádegi verður gengið á hið forn
fræga Helgafell, sem er elzti
helgistaður á landinu. Þar má
ætla að fólki gefist kostur á upp-
T T I
Vinningum fjölgar úr 660 í 1200
i n o
'álftl
'cX^SÍaaA
6 her!-ergja efri hæð Savamýri 59, 149
ferm. ásamt 1/3 þvottahúss og ketilhúss í
kjallara og geymslu, hlutdeild í leigulóð og
bílskúrséttindi. Vinningnum fylgir: gólf-
teppi á stofur, (eftir litavali), og eftirtaidar
lieimiiisvélar:
Husquarna samstæða, eidavél og bakarofn,
Frigidaire kæliskápur. — Westinghouse
þvottavél, — Kitchen Aid uppþvottavél,
Kitch"’’ Aid hrærivól.
VINNINGAR í MANUÐl
hrú r líSE-
Verðmæti kr. 900.000.00
Útdregin í 12. flokki.
Sýningartími: Fimmtudag, 12. apríl kl. 5—
8. Föstudag 13. apríl kl. 5 — 8. Laugardag
14. apríl kl. 2 — 8. Sunnudag 15. apríl kl.
2 — 8. Skírdag, 19 apríl kl. 2 — 8. Laugar-
dag 21. apríi kl. 2 — 8. 2. Páskad. 23. apríl
kl. 2-8.
Sala á lausum miðum fer fram 12., 13., 14.,
16. og 17. apríl. — Endurnýjun ársmiða og
flokksiniða hefst 18. apríl.
fyllingu óska sinna, hlíti menn
réttum siðum við uppgönguna.
Þá verður ekið til Grundarfjarð-
ar og síðan hinn nýja veg fyrir
Búlandshöfða og til Ólafsvíkur.
Búlandshöfði er frægur úr sögu
íslenzkrar jarðfræði og hafa þeir
Helgi Pjeturss og Jóhannes Ás-
kelsson gert þar merkar rami-
sóknir á jarðlögum. Á leíðinni
má sjá fjölda sögustaða að fornu
og nýju og koma þeir víða við
sögu í fornum sögum, m. a. Eyr-
byggju, sem segir frá landnámi
Þórólfs Mostrarskeggs og sögu
niðja hans. Skammt frá Ólafs-
vík er Fróðá, sem nú er í eyði,
en þar gerðust Fróðárundrin. —
Þeir sem vilja geta nú gengið
fyrir Enni og út í Rif.
Rif er gamall verzlunar- og út-
róðrarstaður. Þar voru Björn ríki
og félagar hans vegnir af ensk-
um. Fjalla- og göngugörpum
verður gefinn kostur á göngu á
Snæfellsjökul — yfir Jökulháls
— og mæta þeir bílnum á ný
sunnan megin á nesinu. Ekið
verður um Hellissand að Lón-
dröngum og Sönghelli og hann
skoðaður — þá að Arnarstapa.
Þar er vikurverksmiðja og er
vikrinum fleytt í rennum niður
í þorpið ofan úr hlíðum Stapa-
fells. Þá verður ekið að búðum
og síðan suður eftir á ný til Borg
arness, um Hvalfjörð og til
Reykjavíkur. Förin hefst kl. IV2
frá Ferðaskrifstofu ríkisins við
LækjargÖtu.
2ja daga förin um Borgarfjörð
hefst kl. 9 á skírdagsmorgun. —
Ekið verður fyrir Hvalfjörð um
Dragháls, Bæjarsveit og Reyk-
holtsdal að Húsafelli og Kal-
manstungu. Er hér um héruð að
fara, sem löngum hafa verið
rómuð fyrir fegurð og fræg eru
úr fornum sögum. Frá Kalmans-
tungu verður gengið í Surtshelli
og hellirinn skoðaður og þá ekið
niður Hvítársíðu og í Forna-
hvamm, þar sem gist verður um
nóttina. Á föstudag verður ekið
norðLU’ Holtavörðuheiði og
gönguför farin á Tröllakirkju.
Er þar vítt land og fagurt ofan
að sjá. Þvínæst verður ekið suð-
ur á ný til Borgarness. Skammt
frá Borgarnesi er Borg, hið
gamla liöfuðból Skallagríms og
sonar hans Egils, og í Borgar-
nesi er Skallagrímshaugur og
Skallagrímsgarður. Þaðan verð-
ur svo ekið suður á bóginn fyrir
Hafnarfjall, Hvalfjörð og til
Reykjavíkur.
Einsdags ferðir Ferðaskrif-
stofunnar verða farnar á skír-
dag og laugardag fyrir páska.
Sú fyrri verður farin til Gull-
foss og Geysis, og síðan út með
Hlíðum um nýja veginn um Brú-
ará, sem liggur um mjög fagurt
umhverfi til Laugarvatns — þá
um Grímsnes og Þingvöll til
Reykjavíkur.
Seinni förinni er heitið um
Reykjanes. Reykjanes hefur upp
á margt að bjóða ferðalöngum
til fróðleiks og skemmtunar. —
Sérkennilegt landslag getur að
líta með hraunbreiðum, þraut-
seigum jai-ðargróðri og hömrum
Framhald á 11. síöu.
MORGUNBLAÐINU líkar það
illa að Alþýðublaðið skuli
skrifa um borgarmálin. í Stak-
steinum sl. þriðjudag er rit-
stjórnargrein Alþýðublaðsina
sl. sunnudag um lóðamál iðn-
aðarins gerð að umtalsefni.
Mbl. segir m. a.: „í ritstjórnar-
grein Alþýðublaðsins segir
ennfremur: „Það er ALLTAF
gefið sama svarið, þegar fyrir-
tæki sækja um lóð. Það er ekkl
búið að ákveða skipulagið á
þessu svæði og þess vegna ekki
unnt að úthluta þar lóðum. En
það einkennilega er, að ALLT-
AF fá einhverjir gæðingar í-
haldsins samt lóðir”. Þannig
rekur eitt sig á annars horn,
þegar Alþýðublaðið tekur að
ræða um lóðamál iðnaðarins”.
— Morgunblaðið undrast þessa
„rökfræði Alþýðublaðsins.” —
Blaðið læzt ekki vita að þannig
sé málum háttað eins og Al-
þýðublaðið bendir á. En enda
þótt Mbl. látist ekki skilja rök-
fræði Alþýðublaðsins, þá er
það einmitt þannig, að fyrir-
tækin fá neitun, ef þau sækja
formlega um lóðir til bæjarins,
en ef gæðingarnir reyna „bak-
dyraleiðina“ fá þeir ALLTAF
úrlausn! Það er þetta skipulag,
sem Alþýðublaðið gagnrýndi sl.
sunnudag. Borgarstjórnin á að
búa það vel að fyrirtækjum hof
uðstaðarins, að þau þurfi ekkl
að hrekjast í aðra kaupstaði
með starfsemi sína, og lóðir
eiga að vera fyrir fleiri en gæð-
ingana. Þetta kann að sýnast
skrítin rökfræði í augum Mbl.
en fyrirtækin, sem þegar hafa
orðið að hrekjast úr bænum
skilja hana mæta vel.
FYRÍR nokkrum mánuðum vorU
lagðar fram í borgarstjórn
Reykjavíkur áætlanir um nýja
höfn í Reykjavík og nefndir
nokkrir staðir, sem til greina
kæmu fyrir höfn. En síðan ekki
söguna meir. Meirihluti borgar
stjórnar hefur enga ákvörðun
tekið um það hvar heppilegast
sé að hafa framtíðarhöfnina. —
Það er því allt í fullkominni ó-
vissu um það enn hvar höfnin
verður. Þetta er mjög slæmt.
Hin stóru skipafélög eins og
Eimskip vita ekkert hvar heppi
legast er að koma upp nýjum
vöruskemmum. Eimskip hefur
t. d. hvað eftir annað reynt að
fá upplýsingar um það hjá borg
arstjórn hvar framtíðarhöfn
Reykjavíkur eigi að vera, en
engin svör hafa fengizt. Á með-
an hefur fyrirtækið beðið með
aðgerðir í sambandi við nýja
vörugeymslur og er nú orðinn
mikill skortur á vörugeymslu-
rými hjá félaginu.
Frumkvöðlar tollvörugeymsi
unnar hafa spurt beint að
þessu sama en engin svör feng-
ið. Þarf ekki að orðlengja það,
live slæm áhrif skipulagsleysl
og fálm meirihluta borgarstjórn
arinnar hefur í þessu efni. Það
dregur bókstaflega úr framtaki
fyrirtælrjanna og skapar þeim
margvíslega erfiðleika.
ALÞÝ9UBLAÐIÐ - 12. apríl 1962 33