Alþýðublaðið - 14.04.1962, Page 1
43. árg. — Laugardagur 14. apríl 1962 — 88. tbl.
WIMMWMMMmWIWMMtWWtWiWWWWWWtMWWIMWWIMWMMWWWWMimMMW
STÆRSTA
NÚ ER páskaeggjafram
leiðslan í fullum gangi hjá
súkkulaðiverksmibjunum.
Þessi mynd var tejdn í Freyju
í gær, og sýnir páfckaegg, sem
er ugglaust það sjtærsta, sem
framleitt hefur *|erið hér á
landi. í því eru i'fir 20 kíió
af súkkulaði, og *það er um
EGGIÐ
80 cm. á hæð. Til samanburð
ar má geta þess, að úr efninu
sem í því er mætti búa til
250 af sömu gerð og minnsta
eggið, sem sést á myndinni.
Freyja mun að öllum líkind
um framleiða allt að 100 þús.
egg að þessu sinni, en hefur
þegar framleitt 70 þúsund.
Páskaeggjasalan í ár virðist
ætla að verða meiri en í
fyrra, og mest selst af 40-50
kr. eggjum og 150-60 kr.
eggjum.
Stúlkurnar, sem standa
hjá egginu stóra, heita Ásdis
Viggósdóttir ( til vinstri) og
Guðrön Stefánsdóttir, en þær
starfa báðar í Freyju, og
hafa ugglaust skreytt mörg
þeirra eggja, sem þú lesandi
góður, borðar yfir páskana.
ÞAÐ fór að hvessa Sunnan-
lands og vestan í fyrrakvöld. CJm
nóttina var kominn stormur og í
gærmorgun náði veðrið hámarki.
Þá voru 9 vindstig í Reykjavík
og víða um Suðurland og 11 stig
í verstu rokunum. t Vestmanna-
eyjum var hvasst, um 11 stig.
Þegar fór að líða á daginn í
gær, fór veðrið heldur að lægja,
óg um klukkan þrjú í gær voru
aðeins 4 vindstig í Reykjavík. Þá
liafði einnig stytt upp, en töíu-
vert rigndi í fyrrinótt og gær-
morgun. Asahláka var komin um
allt land og hiti 3 til 8 stig. —
Hlýjast var Suð-vestan lands og
í Reykjavík var átta stiga hiti
klukkan þrjú i gær.
Alþýðublaðið ræddi við veður-
stofuna í gær, og fékk þær upp
lýsingar, að nú mætti búast við
lilýindum næstu daga, og greini-
legt væri, að vorið væri á næstu
grösum. Veturinn hefur nú ver-
ið nokkuð harður og þá sérstak-
lega á Norð-austurlandi, en þar
hafa verið mikil snjóþyngsli og
frost. Veturinn hér á Suðurlatidi
hefur verið kaldur og er nú um
75 cm. klakalag í jörðu.
í rokinu í gærmorgun urðu
nokkrar skemmdir hér í Reykja-
vík. Járnplötur á skúr við
Bændahöllina fuku, og lenti ein
plata á bifreið, sem stóð við
Hagatorg. Skemmdist vélarhús
bifreiðarinnar svo og benzíngeym
ir. Tunnur fóru í loftköstum um
allar jarðir og nokkrar rúður
sprungu í Bændahöllinni.
Þá fuku um 40 plötur af ný-
byggðu húsi Sölufélags garðyrkiu
manna, sem stendur við Reykja-
nesbrautina. Flugu plöturnar um
allt og fóru m. a. langt niður
fyrir Miklatorg. Var það mikil
mildi, að ekki urðu slys á mönn-
um.
Þá urðu smávægilegar skemmd
ir víða um bæinn en aðallega
munu þó þakplötur hafa losnað
og lausir hlutir farið af stað.
* PARIS.
Saksóknari franska ríkis
ins krafðist í gær dauðadóms
yfir Jouhoud hershöfðingja. Kom
þetta fram í lokaræðu sækjanda
fyrir hcrréttinum, sem dæmir í
máli Jouhoud. Verjandi hans
lauk einnig síðustu varnarræð-
unni í gær og var búizt við áð
rétturinn myndi kveða upp dóm
sinn seint í gærkvöldi.
ISLENZKUR verzlunarfulltrúi
mun áður en langt um líður setjast
að í Nigeríu. Hlutverk hans verður
að greiða fyrir viðskiptum íslend-
einkum
lestir af skreið árið 1961 fyrir um
230 millj. kr. Um 90-95% af þessu
magni fór til Nigeríu og allt greitt
í sterlingspundum. ísland kaupir
hins vegar lítið frá Nigeríu.
Norðmenn leggja iiú mikla á
herzlu á að vinna sér markað fyr
i skreið í Afríku og hefur þeim
orðið víða vel ágengt.
Varð fyrir
skellinöðru
inga á Afríkumarkaði
skreiðar eins og nú standa sakir.
Alþýðublaðið átti í gær tal við
Agnar Klemenz Jónsson ráðuneytis
stjóra utanríkisráðuneytisins, og
spurðist fyrir um þetta mál.
Ráðuneytisstjórinn sagði, að
málið hefði verið til athugunar í
ráðuneytinu í eitt og hálft ár.
Mags konar atriði þyrfti að athuga
en ríkisstjórnin hefði mikinn á-
huga fyrir málinu og væri hrcyf
ing á því nú.
Það er eitt þýðingarmesta hlut
verk utanríkisþjónustunnar, sagði
Agnar Klemenz, að greiða fyrir
viðskiptum íslendinga við erlendar
þjóðir.
íslenzki verzlunarfulltrúinn mun
vafalaust hafa aðsetur í Nigeríu,1
lauginesta viðskiptaiand I iWIMMMtWWWMMMMWWWWMIMWMWIWttWtWillMMMWWtWWtMMMMMMMMWWtMI
Samlag íslenzkra skreiðarfram-
leiðenda, sem flytur út 65-70%
skreiðarinnar, og aðrir skreiðar-
framleiðendur eru því mjög fylgj
andi að íslenzkur verzlunarfulltrúi
fari til Nigeríu. Hvenær það verð
ur er aðeins tímaspursmál.
Önnur lönd í Afríku sem ísland
selur skreið til, að vísu tiltölulega
smávægilegt, eru m.a. Iíamerún,
Ghana, Kongó og Líbería. Þarna
og í mörgum fleiri Afríkuríkjum
eru miklir framtíðarmöguleika.
ÞAÐ SLYS varð I gærdag, að
75 ára gamall maður, Ilelgi Þor-
kelsson, varö fyrir skellinöðru,
er hann var á gangi í Banka-
stræti.
Meiddist hann á vinstri hand-
legg og í andliti. Var hann þeg-
ar fiuttur í Slysavarðstofuna og
þar náriar gert að meiðslum
lians.
sem er